Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Page 14

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Page 14
„Það má segja að í hnotskurn snúist þetta um að það sé kraftur fjöldans sem býr þetta til. Fólk hópast um að fá vöru á betra verði en tilboði,“ segir Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri Hópkaupa en á heimasíðu þeirra, hopkaup.is, er hægt að fá tilboð frá ýmsum fyrirtækjum og þjónustuað­ ilum. Hann segir að fyrirtækið sé að erlendri fyrirmynd en sé nýtt hér á landi. Allir rólegir og ekkert stress Vefsíðan virkar á þann veg að inn á hana eru sett tilboð og afslættir sem fyrirtæki eða þjónustaðilar eru til­ búin að veita. Fyrirtækið eða þjón­ ustuaðilinn ákveður hve marga þarf til að virkja tilboðið og hve lengi það muni standa. Fjöldinn fer eftir því hve lágt fyrirtækin geta farið til þess að ná því sem þarf til að mæta kostn­ aði. Fólk skráir sig svo á það tilboð sem það hefur hug á og þegar lág­ marksfjölda hefur verið náð verður tilboðið virkt. „Tilboðin eru oftast á netinu í 48 tíma. Þegar ákveðinn fjöldi hefur skráð sig verður tilboðið virkt og fólk fær senda kvittun fyrir því sem það keypti. Á kvittuninni er tekinn fram gildistími tilboðsins og er hann oftast á bilinu 6 til 12 mán­ uðir. Þá hefur fólk góðan tíma til að ná í það sem það sækist eftir og fyr­ irtækið lendir ekki í því að allir komi í einu. Allir geta verið rólegir og ekk­ ert stress,“ segir Árni Þór. Hann bæt­ ir við að ef fólk sækist eftir því að það gangi hraðar að fá tiltekinn fjölda sé gott að láta vini og vandamenn vita, til dæmis á Facebook. Mun þróast enn frekar Eins og fyrr sagði þá gilda tilboð­ in oftast í 6 til 12 mánuði og er ekki krafa um að þú notir keypt til­ boð á ákveðnum tíma eða tiltek­ inn dag. „Það sem þú kaupir safn­ ast inn á vefinn því þú átt eins konar bankabók hjá okkur sem er virk í marga mánuði. Erlenda fyrirmynd­ in, groupon.com, er komin lengra með þetta og þar getur þú til dæmis eignast inneign ef þú færð vini þína með í þetta. Það er í vinnslu hjá okkur og við stefnum á að bæta við möguleikum.“ Fara eftir öruggum stöðlum Hópkaup býður upp á tvo greiðslu­ möguleika en það er með greiðslu­ korti annars vegar og með því að millifæra hins vegar. Komi ekki til þess að tilboð sem þú hefur skráð þig á verði ekki virkt, vegna ónægr­ ar þátttöku er ekki gjaldfært út af korti þínu. Verði það hins veg­ ar virkt er tekið út af kortinu eða þú beðinn um að millifæra. „Við vinnum samkvæmt öllum örugg­ ustu stöðlum sem til eru. Við erum í samvinnu við Kortaþjónustuna og allt er mjög öruggt,“ segir Árni Þór og bendir á að fólk sé farið að versla meira á netinu en áður. Fólk sé far­ ið að hugsa öðruvísi og að treysta þessum kaupmáta. Búbót fyrir almenning Aðspurður um hvað Hópkaup fái fyr­ ir þessa þjónustu segir Árni Þór að fyrirtækið fái 20 til 30 prósent af út­ söluverði fyrirtækjanna. „Við vinnum ef fyrirtækið vinnur, það er það sem við fáum fyrir okkar snúð. Fyrirtæk­ in greiða okkur ekki að öðru leyti.“ Hann segir þetta hafa farið virkilega vel af stað og þessi þjónusta sé mikil búbót fyrir almenning. „Við erum al­ veg í skýjunum með þetta og ég held að neytendur ættu að vera það líka vegna þess að þetta er allt gert fyrir neytendur. Þetta er nýjung þar sem neytendur sjálfir skapa þrýstinginn á fyrirtæki og þjónustuaðila til að koma með betra verð og tilboð,“ segir hann að lokum. Einn grænn n Einn grænn Suðurnes fær lofið fyr­ ir frábæra þjónustu. Viðskiptavinur lét breyta bíl sínum þannig að hann gangi fyrir umhverfisvænu metan­ gasi. Breytingin kostaði 390 þúsund krónur. Viðmótið sem viðskiptavin­ urinn fékk var frá fyrsta degi til fyrirmyndar. Hann fékk lánaðan bíl meðan á við­ gerðinni stóð, endurgjalds­ laust, og sá sem breytti bílnum bauðst til að koma með bílinn heim að dyrum að breytingu lokinni. Örugg ferðalög Með tilkomu netsins er orðið auðveldara að skipuleggja ferðalög sjálfur en því fylgir þó viss áhætta. Á heimasíðu Neytendasamtakanna er nú aðgengileg fyrir félgsmenn ný vönduð ferðahandbók sem er skrifuð fyrir Íslendinga í ferðahugleiðingum. Höfundur hennar, Ian Watson, hefur skrifað ferðahandbækur auk þess að hafa unnið við leiðsögn um árabil. Í bók þessari má finna gagnlegar og áhugaverðar upplýsingar sem gott er að kynna sér áður en lagt er af stað. Þar er svarað spurningum á borð við: Hvenær á að gefa þjórfé? Er ég tryggður ef ég þarf að leggjast inn á spítala? Er nauðsynlegt að kaupa for­ fallatryggingu? Hvernig ferðast ég frá helstu flugvöllum? Léleg þjónusta n Lastið að þessu sinni fær fjár­ reiðudeild 365 miðla. Viðskiptavin­ ur hafði samband og var óánægður með hve erfitt er að ná inn í síma. „Það er alls ekki hægt að ná í þær. Ég var búin að reyna að ná þangað inn í nokkra daga. Fyrst var sagt að þær tækju ekki síma nema á vissum tíma og loks þegar ég náði í gegn voru þær allar farnar í mat. Það er bara engin þjónusta hjá þeim,“ segir viðskiptavinur­ inn. SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS Lof&Last Fermingar handan við hornið Fermingatíminn er hafinn og margt sem þarf að huga að við undirbúninginn en þess á meðal er hvernig veislu skal halda. Á heimasíðu Leiðbeiningastöðvar heimilanna er að finna ýmis góð ráð og tillögur að veisluborðum. Þar segir að alltaf sé sígilt að bjóða upp á kalt hlaðborð eða heitan veislumat en einnig eru hugmyndir að matseðlum, hvort sem um dögurð, kaffihlaðborð, smáréttahlaðborð eða brauð- og ostaborð er að ræða. 14 | Neytendur Umsjón: Gunnhildur Steinarsdóttir gunnhildur@dv.is 23. mars 2011 Miðvikudagur E ld sn ey ti Verð á lítra 227,9 kr. Verð á lítra 233,8 kr. Bensín Dísilolía Verð á lítra 227,7 kr. Verð á lítra 233,6 kr. Verð á lítra 228,9 kr. Verð á lítra 233,8 kr. Verð á lítra 227,6 kr. Verð á lítra 233,5 kr. Verð á lítra 227,7 kr. Verð á lítra 233,6 kr. Verð á lítra 227,9 kr. Verð á lítra 233,8 kr. Algengt verð Almennt verð Algengt verð Akureyri Melabraut Algengt verð Á síðustu fimm árum má rekja fjölda brunaslysa til heita vatnsins: Stillum hitann hóflega Gunnhildur Steinarsdóttir blaðamaður skrifar gunnhildur@dv.is Við Íslendingar búum við þann munað að heitt vatn rennur úr krön­ um okkar og er það ein af okkar dýr­ mætustu auðlindum. Jarðhitinn er ódýr, vistvæn og örugg orka til hús­ hitunar og flest íslensk heimila eru hituð með heitu vatni. Þrátt fyrir þessa staðreynd verða flest bruna­ slys hér á landi vegna heits vatns en algengt er að 70°C til 75°C heitt vatn renni úr krönunum. Á vefnum stillumhitann.is má finna ýmsan fróðleik og upplýsingar um þær hættur sem geta skapast af heitu vatni. Þar eru eftirfarandi lykil­ atriði tekin fram sem fólk ætti að hafa í huga, en til að byrja með segir að ávallt skuli sýnd fyllsta aðgát þegar heitt vatn sé annars vegar. Vatn skal látið renna í smástund til að ná réttu hitastigi og mikilvægt er að kanna hitastig vatnsins áður en farið er út í. Tryggja skal stöðugt eftirlit með bún­ aði og viðhaldi hans og leita skal að­ stoðar fagmanna við val á lausnum. Að lokum er fólk hvatt til að gera ráð­ stafanir strax í dag. Þar segir jafnframt að mikilvægt sé að hafa hitastýrð blöndunartæki við vaska óháð aldri húsa, því slíkt komi í veg fyrir óhöpp hjá börnum. Hafa ber í huga þegar hitastýringar­ búnaður er keyptur að mismunandi lausnir henta hverju húsi. Neytend­ ur eru hvattir til að kynna sér vefinn og þær forvarnir sem þar eru kynnt­ ar auk upplýsinga um þá skyndihjálp sem skal beita ef um brunaslys er að ræða. Vefurinn er hluti af átaki sem Orku­ veita Reykjavíkur, Sjóvá­Forvarnar­ hús og Landspítali Háskólasjúkrahús standa fyrir og tilgangur hans er að fækka brunaslysum af völdum heita vatnsins. Markmið hans er annars vegar að vekja umræðu meðal fag­ manna um þá staðla og reglugerðir sem eru í gildi varðandi hitastýringu neysluvatns. Hins vegar að benda al­ menningi á nauðsyn þess að sýna varúð í umgengni við heita vatnið og sýna fram á þær lausnir sem til eru til að lækka hitann á krana­ og baðvatni. gunnhildur@dv.is Hætturnar í heita vatninu Mikilvægt er að vera með hitastýrð blöndunartæki til að koma í veg fyrir óhöpp hjá börnum. Lægra verð með þrýstingi neytenda n Hópkaup.is er ný heimasíða sem auglýsir tilboð á vörum og þjónustu n Framkvæmdastjórinn segir þetta mikla búbót fyrir neyt- endur n Neytendur sjálfir skapa þrýsting á fyrirtæki og þjónustu- aðila um betra verð og tilboð Hópkaup Árni Þór Árnason, framkvæmdastjóri Hópkaupa, er ánægður með viðbrögðin.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.