Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Síða 18
18 | Umræða 23. mars 2011 Miðvikudagur
„Ég trúi ekki að
menn vilji fara í
kosningar núna
[…] En það er ekki
útilokað að það geti
orðið síðar á kjörtíma-
bilinu.“
n Jóhanna Sigurðardóttir forsætis-
ráðherra um hugsanlegar alþingiskosn-
ingar. – Fréttablaðið
„Þetta bílalán er stór-
kostlega umdeilt.“
n Ólafur Thóroddsen lögmaður manns
sem er nú krafinn um greiðslu á 4
milljónum vegna láns á bíl sem hann
hefur selt. – DV
„Síðustu þrjátíu kílómetr-
ana var ég orðinn svo
þreyttur að ég fann ekki
fyrir fótleggjunum.“
n Jerome Josserand, franskur
jaðaríþróttamaður, sem fór þvert yfir
Ísland á svokölluðum snjódreka. – DV
„Ég fagna þessari niður-
stöðu sem er réttlát.“
n Svavar Halldórsson, fréttamaður
RÚV, sem var sýknaður af meiðyrðakröfu
Pálma Haraldssonar, sem oftast er
kenndur við Fons. – DV.is
„Ekki var verið að iðka
sparkæfingar.“
n Úr tilkynningu eigenda og fram-
kvæmdastjóra Hreyfingar um brott-
rekstur séra Pálma Matthíassonar úr
stöðinni eftir að hann sparkaði í rass
líkamsræktarkennara. – DV
„Við viljum vara við
þessu.“
n Birna Jónsdóttir, formaður Læknafé-
lags Íslands, um starfsemi konunnar sem
býður upp á bótox-fegrunaraðgerðir í
heimahúsi í Kópavogi. – DV
Dólgar og dómstólar
V
axandi tilhneiging er til
þess hjá dólgum og skrúð-
krimmum að draga fjöl-
miðlafólk fyrir dóm í því
skyni að þagga niður umræðu um
siðleysi og glæpi. Varla líður sá
dagur að einhver hinna óhreinu
rísi ekki upp með hótanir um að fá
blaðamenn, ritstjóra og útgefend-
ur dæmda til himinhárra fébóta
fyrir að svipta hulunni af verkum
sem í besta falli teljast vera siðlaus.
Það er fagnaðarefni að Héraðs-
dómur Reykjaness skyldi sýkna
Svavar Halldórsson sem lögsótt-
ur var af útrásarvíkingnum Pálma
Haraldssyni, sem kenndur er við
Fons. Útrásarvíkingurinn sæk-
ir að fátækum fréttamanni í krafti
auðs, sem í sjálfu sér er fyrirlitn-
ingarvert. Peningarnir eru hreyfi-
aflið. Hinn snauði er hundeltur af
hinum ríka. Rétt er að halda því til
haga að Pálmi í Fons er með fleiri
mál á hendur fréttamanninum. Þá
er annar þekktur útrásarvíkingur,
Jón Ásgeir Jóhannesson, einnig
í máli við sama fréttamann. Ein-
hvern veginn er eins og allt snúi á
haus þegar aðalleikarar hrunsins
lögsækja fréttamenn og fjölmiðla
og heimta bætur.
DV hefur ekki farið varhluta af
lögsóknum og hótunum. Þar eru
á ferð menn á borð við Eið Smára
Guðjohnsen knattspyrnumann
og Heiðar Má Guðjónsson fjár-
festi sem eru með kröfur um að
venjulegt launafólk greiði milljón-
ir króna fyrir að fjalla um einkamál
þeirra á borð við óhóflegar lánveit-
ingar úr föllnum banka og stöðu-
töku gegn íslensku krónunni í út-
löndum.
Og svo eru það hinir sem hóta.
Lektorinn Jón Snorri Snorrason
var stjórnarformaður Sigurplasts
sem fór í þrot. Viðurkenndir end-
urskoðendur hafa komist að þeirri
niðurstöðu að fyrirtækið hafi verið
rænt innan frá. Skiptastjóri Sigur-
plasts hefur kært stjórnendur og
eigendur fyrirtækisins til lögreglu
fyrir fjárdrátt, eins og DV hefur
greint ítarlega frá. Viðbrögð lekt-
orsins eru ekki þau að víkja úr starfi
sínu í Háskólanum á meðan rann-
sókn fer fram, eins og eðlilegt væri.
Þvert á móti er hann hinn brattasti
og hótar ritstjórn DV.
Háskólakennarinn sem situr
undir grun um fjárdrátt og fleiri
efnahagsbrot vill, að sögn, fá fimm
milljónir frá DV fyrir að fjalla um
meint afbrot hans og siðleysi í við-
skiptum. Aumir fjölmiðlar á Ís-
landi hafa gagnrýnislaust gleypt
við spuna lektorsins og dólga hans.
Algjört áhugaleysi er fyrir hendi
varðandi meint og rökstudd afbrot
í starfsemi Sigurplasts. Almenn-
ingur verður að koma til varn-
ar heiðarlegu fjölmiðlafólki sem
liggur undir stöðugum árásum og
hótunum við að upplýsa fólk um
siðleysi og svindl í viðskipalífinu.
Baráttan snýst um heilbrigt samfé-
lag eða sama ógeðslega sukkið.
Leiðari
Bókstaflega
Reynir Traustason ritstjóri skrifar„Útrásarvíkingurinn
sækir að fátækum
fréttamanni.
Eiður skammar Sirrý
n Eiður Guðnason bloggari á það til að
gera harðar atlögur að Útvarpi Sögu.
Eiður breytti til í nýlegum pistli og
hundskamm-
aði þá ástælu út-
varpskonu Sirrý
fyrir auglýsinga-
vændi í útvarpi
allra landsmanna
á Rás 2. Benti
Eiður á langt
viðtal við sölu-
mann heyrn-
artækja í þætti hennar. „Það var
hinsvegar handan góðra vinnu-
bragða (20.03.2011) að vera með
langt viðtal,sem var ódulbúin auglýs-
ing fyrir eitt tiltekið fyrirtæki í Kópa-
vogi, sem selur heyrnartæki og mælir
heyrn fólks. Nafn fyrirtækisins og vef-
síða var margnefnt í löngu viðtali.
Eiga ekki önnur fyrirtæki í sömu grein
rétt á samskonar þjónustu frá útvarpi
allra landsmanna?“ spyr Eiður.
Lúxuslíf þrotamanns
n Björn Leifsson, kenndur við World
Class, er mikið á milli tannanna á fólki
þessa dagana. Kappinn rambar pers-
ónulega á barmi
gjaldþrots vegna
útrásarævintýr-
is í Danmörku.
Samt heldur hann
World Class á Ís-
landi og lifir hátt
í örbirgð sinni.
Um áramótin fór
hann í glæsiferð
til Mexikó með fjölskylduna. Þá er
hann að byggja 150 fermetra sumar-
bústað á besta stað við Þingvallavatn.
Kvittur er um að nýverið hafi hann
farið í veiðiferð til Argentínu en það er
óstaðfest.
Læknir á grásleppu
n Læknirinn, kvikmyndaframleiðand-
inn og útgerðarmaðurinn Lýður Árna-
son er nú að ýta úr vör grásleppuútgerð
sinni. Óhætt er
að segja að strax
sé meðbyr með
rekstrinum en
grásleppan veiðist
í miklu magni.
Það er því bjart yfir
lækninum sem
réð alþekktan afla-
mann, Ólaf „popp-
ara“ Ragnarsson, tónlistarmann og fyrr-
verandi veðurathugunarmann í Æðey,
sem skipstjóra á bát sinn.
Sölvi skammar Sigurð
n Sigurður Einarsson útrásarvíkingur
lagði til atlögu við alla fjölmiðla lands-
ins að Fréttablaðinu undanskildu í
grein í síðustu
viku. Taldi hann
að fríblaðið, sem
er undir stjórn
Jóns Ásgeirs Jó-
hannessonar, stæði
öðrum fjölmiðlum
framar. Nú hefur
Sölvi Tryggvason
sjónvarpsmaður,
sem tilgreindur var í skrifum Sigurðar,
svarað víkingnum harkalega. Bendir
hann Sigurði á að í fjölmörgum póst-
um síðustu tvö ár hafi hann leitað við-
bragða hans en án árangurs. Aðrir fjöl-
miðlar hafa lent í því sama.
Sandkorn
TRYGGVAGÖTU 11, 101 REYKJAVÍK
Útgáfufélag: DV ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
Jón Trausti Reynisson, jontrausti@dv.is
og Reynir Traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr Vilhjálmsson, ingi@dv.is
Ritstjórnarfulltrúi:
Jóhann Hauksson, johann@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir Jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: DV. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
Eitt af helstu einkennum Svart-höfða er prinsippmennska. Þess vegna tekur hann alltaf afstöðu
til þjóðmálanna út frá mjög ströng-
um prinsippum sem miða að því að
komast alltaf að því sem er satt og rétt
í öllum málum. Það þarf því ekki að
koma á óvart að Svarthöfði hefur mik-
ið dálæti á öðrum miklum prinsipp-
manni, Jóni Steinari Gunnlaugssyni
hæstaréttardómara, sem alltaf tekur
afstöðu út frá prinsippum sem byggja
fyrst og fremst á ást á sannleikanum
og einskærum vilja til að hafa það sem
sannara reynist.
Jón Steinar hefur aldrei hallað réttu máli eða tekið afstöðu um eitt eða neitt án þess að hafa þessi prinsipp
sín að leiðarljósi. Aldrei hefur hann
ákveðið sig fyrir fram áður en hann
kemst að einhverri niðurstöðu og
aldrei hefur hann verið þátttakandi
í málum sem byggjast á því að verja
hagsmuni einhvers manns eða hóps
þvert gegn því sem satt er eða sann-
gjarnt.
Þess vegna hefur Svarthöfði notið þess að lesa þær greinar sem hæstaréttardómarinn hefur
látið frá sér fara um Icesave-málið í
gegnum tíðina. Jón Steinar sannfærði
Svarthöfða um ágæti dómstólaleiðar-
innar í Icesave-málinu strax um sum-
arið 2009. Hefur Svarthöfði æ síðan
aldrei hvikað frá þeirri bjargföstu
trú sinni síðan að Íslend-
ingar eigi ekki að sam-
þykkja Icesave-klyfj-
arnar heldur fara
með málið fyrir
dóm. Jón Steinar
orðaði þessa hugs-
un á kristalstæran
hátt í grein í Morg-
unblaðinu í júní
árið 2009: „Það
er talinn helgur
réttur í öllum sið-
menntuðum ríkj-
um að menn eigi
aðgang að hlut-
lausum dóm-
stólum til að
láta dæma um
réttarágreining
sem þeir eiga í
við aðra.“
Sannfæring Svarthöfða um ágæti þessa sjónarmiðs Jóns Steinars hefur svo ekki minnkað við lestur
á nokkrum örgreinum eftir nokkra
lögfræðinga sem birst hafa í Frétta-
blaðinu upp á síðkastið en þeir virðast
einnig innblásnir af orðum meistara
Jóns Steinars. Af greinum þeirra að
dæma er ekki annað að sjá en að þeir
hafi nánast drukkið í sig sannindin úr
fyrri greinum Jóns Steinars og gert að
sínum. Að minnsta kosti er þetta texta-
brot úr einni af Fréttablaðsgreinunum
frá síðustu viku sláandi líkt og ívitnuð
glefsa úr grein Jóns Steinars. Þarna
fjalla lögfræðingarnir um réttinn á því
að eiga aðgang að hlutlausum dóm-
stólum til að skera úr um réttarágrein-
ing: „Þetta er helg-
ur réttur sem
allir eiga að
njóta í vest-
rænum rétt-
arríkjum og
er varinn
í stjórnar-
skrá þeirra
flestra.“
Svarthöfða finnst frábært að sjá, svo ekki sé meira sagt, að orð Jóns Steinars virðast hafa náð
fleiri eyrum og sannfært þessa sjö
hlutlausu lögfræðinga um ágæti dóm-
stólaleiðarinnar – það hvílir auðvitað
engin lagskylda á okkur Íslendingum
að greiða þessar bannsettu Icesave-
skuldir óreiðumannanna.
Engu minni varð gleði Svarthöfða þegar hann sá að lögfræðingarnir sjö taka undir aðra af lykilskoð-
unum meistarans en sú skoðun snýst
um það að íslenskum ráðamönnum
beri skylda til að tryggja það að Ice-
save-málið fari fyrir dómstóla áður en
skuldabagginn fellur á þjóðina. Sjö-
menningarnir orðuðu þetta svona í
Fréttablaðsgrein í síðustu viku: „Í raun
var það aðeins einfaldur réttur Íslend-
inga sem þeim bar að tryggja: Réttur-
inn til hlutlausrar málsmeðferðar fyrir
dómi um hvort lagaleg skylda hvíldi á
okkur til að greiða Icesave-kröfurnar.
[...] Það var skylda ráðamanna þjóðar-
innar að tryggja okkur hann.“
Meistarinn kom hins vegar sömu hugsun í orð á eftirfarandi hátt um sumarið 2009: „Það er að
mínum dómi skylda íslenskra ráða-
manna að tryggja þjóðinni réttinn til
að láta hlutlausan dómstól dæma um
þessa þungbæru skyldu sem nú stend-
ur til að samþykkja.“
Svarthöfði hefur aftur öðlast trú á mannkynið vegna þess að hann sér að orð meistara
Jóns Steinars virðast skjóta rótum
og öðlast sjálfstætt líf í hugum
þeirra sem þau lesa. Slíkur er
sannfæringarkrafturinn, slík
er þekkingin, slíkt er innsæ-
ið, slíkur er máttur manns-
ins Jóns Steinars Gunnlaugs-
sonar. Ef Svarthöfði vissi ekki
betur hefði hann jafnvel haldið
að Jón Steinar sjálfur hefði
skrifað örgreinar lögfræð-
inganna sjö fyrir þá eða sagt
þeim hvað þeir ættu að skrifa
og hvernig. En slíkt þarf auð-
vitað ekki þegar rök og orð
Jóns Steinars eru annars
vegar þar sem sannleikur-
inn, sanngirnin og viskan
blasir auðvitað við öllum
skynsömum mönnum.
Svarthöfði
SKOÐANABRÆÐUR
JÓNS STEINARS
Ber Davíð höfuð og
herðar yfir aðra?
„Já, það er ekki nokkur spurning,“
segir Hlynur Jónsson, formaður
Heimdallar, félags ungra sjálfstæð-
ismanna í Reykjavík. Eftir árshátíð
félagsins var skrifað í fuglahvísli
vefsíðunnar AMX að Davíð Oddsson
bæri „höfuð og
herðar yfir aðra
forystumenn
þjóðarinnar á
umliðnum árum
og áratugum“,
en Davíð hélt
ræðu á árshá-
tíðinni.
Spurningin