Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Side 20

Dagblaðið Vísir - DV - 23.03.2011, Side 20
20 | Fókus 23. mars 2011 Miðvikudagur Blóðugt en litlaust fjör Killzone-serían hefur fyrir löngu sannað tilverurétt sinn í hópi bestu skotleikja tölvuleikjaiðnaðarins. Killzone 3 er sá fjórði í röðinni og gefur forverum sínum ekkert eftir hvað varðar blóðuga skemmtun og kaótíska stemningu. Leikurinn byrjar í raun þar sem Killzone 2 endar. Þú ert í hlutverki hermannsins Sev, sem tilheyrir ISA- herliðinu, og berst gegn hinum ill- ræmdu og rauðeygðu Helghast- hermönnum á heimavelli þeirra síðarnefndu. Þó að einspilun leiksins (e. single player) líti fáránlega vel út og öll smáatriði séu fínkembd staldr- ar maður aðeins við söguþráðinn. Hann er frekar litlaus og þunnur og virðist manni sem heldur meira hafa verið lagt upp úr útlitinu en innihaldinu. Persónurnar í leiknum virðast vera hugsanalausar dráps- vélar og nær maður lítilli tengingu við þær. Þrátt fyrir þessa galla er Killzone 3 líklega einn flottasti leik- urinn á markaðnum í dag – alla vega hvað varðar útlit. Aðdáendur Killzone 3 munu væntanlega gleðjast yfir því að búið sé að taka netspilunina rækilega í gegn og gera hana næstum því sam- keppnishæfa við það allra besta sem í boði er, til dæmis Call of Duty og Battlefield-seríurnar. Boðið er upp á þrjá mismundandi möguleika til spilunar og eru þeir allir ágætlega heppnaðir. Þegar allt kemur til alls er Kill- zone 3 afbragðsskemmtun og ætti að vera fín viðbót í safnið fyrir aðdáend- ur góðra fyrstu persónu skotleikja. Hann gerir hins vegar ekki mikið fyrir þá sem vilja góðan söguþráð og vandaða persónusköpun. Náttúra og landslag eru uppspretta Þorra Hringssonar og Sigtryggs Bjarna Baldvinssonar: Varanlegt augnablik Síðustu helgi var opnuð samsýning listamannanna Sigtryggs Baldvins- sonar og Þorra Hringssonar í Hafn- arborg. Sýningin var áður í Lista- safni Akureyrar. Sýningin nefnist Varanlegt augnablik og hefur sterk tengsl við Norðurland en báðir lista- mennirnir eiga þar rætur sínar og náttúra heimahaganna er þeim inn- blástur. Þorri Hringsson er ættaður frá Haga í Aðaldal, Þingeyjarsýslum, og Sigtryggur er fæddur og uppalinn á Akureyri. Faðir Þorra er hinn merki list- málari Hringur Jóhannesson (1932– 1996) og eiga þeir feðgar það sam- eiginlegt að hafa leitað í fagra náttúruna í Aðaldal. Sérstaklega hefur verið þeim hugleikinn árbakk- inn og hólmarnir við Laxá í Aðaldal. Þorri stundaði nám við Myndlista- skólann í Reykjavík, Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Jan van Eyck-akademíuna í Maastricht í Hollandi. Sigtryggur Bjarni Baldvinsson er fæddur á Akureyri 1966. Hann nam við Myndlistaskólann á Akureyri, Myndlista- og handíðaskóla Íslands og Ecole des Arts Décoratifs í Frakk- landi. Sigtryggur og Þorri nálgast hugmyndina um málverkið á ólíkan máta en báðir eiga það sam- eiginlegt að leita í lands- lag og náttúru og ytri veruleika. Báðir styðjast við ljósmyndir á þess- arri sýningu en Sigtrygg- ur Bjarni forvinnur verk sín í tölvu þar sem hann mótar myndina á meðan Þorri málar beint á strig- ann þar sem sjálf myndin verður til. Verk sýningarinnar eru hrífandi, sérlega fyrir þá er rata um Norður- land og Þingeyjasýslur. Þar má líta verk er sýna lygnan flöt í skugga ár- bakka, væntanlega Laxár í Aðaldal, nærmyndir af gáruðu vatnsyfirborði og ýmiskonar spegilmyndir og nær- myndir af landslagi. kristjana@dv.is Sækir í heimahagana í Aðaldal Þorri Hringsson við eitt verka sinna. Hann og Sigtryggur Baldvinsson eiga það sameiginlegt að leita uppsprettu í landslagi og náttúru á nýopnaðri sýningu í Hafnarborg: Varanlegt augnablik. Af hverju að læra frönsku? L‘Alliance Français stendur fyrir hringborðsumræðu fyrir nem- endur og kennara í samvinnu við frönskudeild Háskóla Íslands í dag, miðvikudag, klukkan 15. Stúdent- um, menntaskólanemum og öllum sem hafa áhuga á spurningunni „Af hverju ætti ég að læra frönsku núna?“ er boðið til umræðnanna. Silja Bára Ómarsdóttir, Katrín Ólína, Guðrún Vilmundardóttir, Nína Björk Jónsdóttir og Eiríkur Ingvar Ingvars- son taka meðal annars þátt í um- ræðunum og segja frá því hvernig franska nýtist þeim í starfi og mögu- legri þörf á frönskukunnáttu. Tónleikar á hátíð CCP Árleg EVE-aðdáendahátíð tölvu- leikjafyrirtækisins CCP nær há- marki næstkomandi laugardags- kvöld með tónleikum Booka Shade og FM Belfast í nýju Laugar- dalshöllinni. EVE Fanfest-há- tíð CCP fer í sjöunda sinn fram í Reykjavíkurborg dagana 24.–26. mars. Viðburðurinn hefur stækkað ár frá ári og sækja hana nú hundr- uð aðdáenda tölvuleiksins frá fjölda mismunandi landa. Í tilefni tónleikanna verður Laugardals- höllinni breytt í gríðarstóran næt- urklúbb þar sem ekkert er til spar- að í hljóði, ljósum og umgjörð, samkvæmt tilkynningu frá CCP. Nemendur bregða sér í allra kvikinda líki Nemenda- leikhús Dans- listaskóla JSB kynnir árlega nemenda- sýningu sína, Undraland. Nemendur list- dansskólans munu bregða sér í allra kvik- inda líki í þess- ari sýningu sem verður færð á fjalir Borgarleikhússins í þessari viku. Að vanda er sýningin einstaklega skrautleg og lífleg danssýning þar sem margar víðfrægar sögupers- ónur ævintýranna mætast í litríkum dansheimi. Síðasta sýning nemenda skólans verður í dag, miðvikudag, en frumsýnt var á mánudag. Ævintýra- og hasarmyndin Season of the Witch skart-ar hinum mjög svo misjafna Nicolas Cage í aðalhlutverki. Hon- um til halds og trausts er svo Íslands- vinurinn Ron Perlman sem sletti úr klaufunum um árið á hinum sáluga skemmtistað Pravda. Þeir leika ridd- arana Behmen og Felson sem fara hamförum í krossferðum Englend- inga á 14. öld. Í nafni Guðs fella þeir hvern hermanninn á fætur öðrum þar til að eitt skiptið börn og konur verða á meðal þeirra sem liggja í valnum. Behmen og Felson snúa þá baki við skyldum sínum og halda heim til Englands þar sem plágan herj- ar á landsmenn. Á sama tíma rík- ir mikill ótti við nornir og eru konur grunaðar um svartagaldur hengdar í stórum stíl. Behmen og Felson fá svo það verkefni að fylgja ungri konu til klausturs til að fá úr því skorðið hvort hún sé nornin sem orsaki pláguna eða ekki. Season of the Witch kristallar að mínu mati allt sem er að Holly- wood. Fjöldaframleidd klisjutugga sem er svo útþynnt og vötnuð að eft- ir stendur innihaldslaust þvaður. Ég leyfi mér að fullyrða að á löngum og nokkuð misjöfnum ferli hafi Nico- las Cage sjaldan eða aldrei leikið í verri mynd. Þá lítur Perlman út fyrir að vera þunnur alla myndina og er frammistaða hans átakanlega rislítil. Manni finnst ótrúlegt að hugsa til þess hversu miklir peningar fara í það að framleiða algjört sorp á ári hverju. Peningar sem gætu runn- ið til alvöru kvikmyndagerðar sem skilar einhverju til áhorfandans. En hvar liggur vandinn? Er það hjá þeim sem framleiða myndirnar og hugsa um það eitt að græða pening eftir að hafa brennt sig margoft á því að taka áhættur eða hjá okkur neytendunum sem verðlaunum þetta rugl með því að fara umhugsunarlaust á fjölda- framleidda poppsmelli. Á meðan aðsóknin er afgerandi á myndir af þessu tagi þá verður lítil breyting. Þessi mynd skrifast á okkur. Eins og lesandanum er nú orðið ljóst er Season of the Witch ekki góð mynd. Byrjunaratriðið þegar þeir fé- lagar rífast um hvor þeirra geti drep- ið fleiri andstæðinga er svo lélegt að það er móðgandi. Ekki einu sinni hasarsenurnar eru góðar. Ég hef ekki séð jafn slakar tæknibrellur síðan..., ég held að ég hafi bara aldrei séð jafn slakar tæknibrellur. Þessi mynd fær hálfa stjörnu og það er fyrir þokka- lega frammistöðu Claire Foy sem leikur nornina ungu. Þetta er okkur að kenna Season of the Witch IMDb 5,4 RottenTomatoes 5% Metacritic 28 Leikstjórn: Dominic Sena Aðalhlutverk: Nicolas Cage, Ron Perlman, Stephen Campbell Moore, Robert Sheehan, Claire Foy, Ulrich Thomsen, Stephen Graham, Christopher Lee Handrit: Bragi Schut 95 mínútur Bíómynd Ásgeir Jónsson Killzone 3 Tegund: Skotleikur Spilast á: PS3, Xbox 360 Tölvuleikur Einar Þór Sigurðsson Fínasta skemmtun Killzone 3 gerir nákvæmlega það sem hann þarf að gera, án þess þó að verða einhver flugeldasýning.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.