Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2012, Page 3
A
ðeins tveir félagsráðgjafar
starfa innan Fangelsismála-
stofnunar ríkisins og sinna
þeir alls um 380 einstak-
lingum. Fangar á Íslandi
eru um 170 og eru 210 einstaklingar
á skilorði. Þar af eru um 100 með sér-
skilyrði og háðir umsjón og eftirliti.
Almennt er talið að eðlilegur mála-
fjöldi félagsráðgjafa sé um 50 ein-
staklingar. Í þungum málaflokkum
eins og barnavernd, fangelsismálum
og geðsviði er viðunandi málafjöldi
talin vera 35 einstaklingar þannig að
hægt sé að hafa yfirsýn yfir málin og
sinna stuðningi og meðferð.
Nauðsynlegt að
fjölga starfsmönnum
Íris Eik Ólafsdóttir, félagsráðgjafi hjá
Fangelsismálastofnun, segir að erf-
itt sé að sinna öllum þeim einstak-
lingum eins vel og æskilegt væri og
því sé nauðsynlegt að forgangsraða
málum. „Inni í þessum málafjölda
eru ekki teknir með þeir einstakling-
ar sem ekki eru komnir til afplánunar
og ekki heldur sú þjónusta sem veitt
er til aðstandenda,“ segir Íris og bætir
við að sú þjónusta sé talsverð. „Alls
eru 100 einstaklingar undir sérstöku
eftirliti og í þeim málum væri eðli-
legt að félagsráðgjafi væri með um
35 einstaklinga á sinni könnu til þess
að hafa yfirsýn ásamt því að geta veitt
þann stuðning og eftirlit sem ætlast
er til.“
Það er hennar mat að veita þyrfti
í mun ríkara mæli einstaklingsviðtöl,
fjölskylduviðtöl og hópmeðferðir til
þess að markmiðum starfsins sé náð
og fjölga þyrfti félagsráðgjöfum um
fjóra til fimm.
Ekki hægt að gera meðferðar-
áætlanir vegna anna
Íris segir að eftirlit með föngum á
reynslulausn sé mismikið. Það fari
eftir hvers eðlis skilorðið sé og fyrir
hvaða brot fanginn hefur setið inni.
Þá spili inn í hvar einstaklingurinn
er staddur í sinni betrun. Markmið
viðtala við þá sem eru á skilorði eru
einkum að veita meðferð, stuðning,
leiðbeiningar, aðhald, og aðstoða
við aðlögun út í samfélagið að nýju
eftir að fangelsisvist lýkur sem og á
skilorðstímabilinu. Hlutverk félags-
ráðgjafa er einnig að fylgjast með
handtöku þessara einstaklinga hjá
lögreglunni og hafa þannig eftir-
lit með einstaklingum á skilorði og
kalla viðkomandi til viðtals vegna af-
skipta lögreglu. Fangelsismálastofn-
un á í samvinnu við fanga að gera
meðferðar- og vistunaráætlun sem
skal endurskoða eftir atvikum með-
an á afplánun stendur.
„Vistunaráætlun er unnin fyrir
alla fanga en það er misjafnt hvort
unnin sé meðferðaráætlun. Það fer
alfarið eftir áhuga viðkomandi fanga
hvort slíkt er unnið eða ekki. Vegna
anna hefur félagsráðgjöfum ekki tek-
ist að gera meðferðaráætlun nema í
litlum mæli og hafa forgangsraðað
þeirri vinnu á þá leið að gera áætlun
með ungum föngnum.“
Stuðningur nauðsynlegur
Fangelsismálastofnun ásetur sér að
minnka líkur á að einstaklingar á
reynslulausn brjóti af sér og fara allir
einstaklingar sem fá reynslulausn á
slíkt skilyrði. „Til að ná þessu mark-
miði er mikilvægt að standa vel að
losun úr fangelsi og að aðlaga einstak-
lingana út í samfélagið. Það er gert
með því að tryggja öruggt húsnæði,
styrkja fjölskyldutengsl og tengja þá
við viðeigandi stofnanir ef við á.
Með öflugu skilorðseftirliti og
markvissum úrræðum á skilorðs-
tíma er sá möguleiki fyrir hendi að
draga verulega úr endurkomum ein-
staklinga í fangelsi. Þeir fangar, sem
skora hátt á áhættumati eins og kyn-
ferðisafbrotamenn og ofbeldismenn,
þurfa mikinn og góðan stuðning sem
og öflugt eftirlit á reynslulausnartíma-
bilinu. Þannig aukast líkurnar á að
hægt verði að draga úr almannahættu
vegna þessara einstaklinga,“ segir Íris
að lokum.
Með 190 fanga
á sínum herðum
n Tveir félagsráðgjafar sinna 380 einstaklingum hjá Fangelsismálastofnun„Alls eru 100 ein-
staklingar undir sér-
stöku eftirliti og væri í þeim
málum eðlilegt að félags-
ráðgjafi væri með um 35
einstaklinga á sinni könnu.
Hanna Ólafsdóttir
blaðamaður skrifar hanna@dv.is
Fréttir 3Mánudagur 27. febrúar 2012
Undrast hin miklu viðbrögð
n Vickram Bedi leggur fram ný gögn n Ummæli Geirs Jóns á Sprengisandi hafa vakið undrun og reiði
J
á, þetta kemur mér á óvart því
þetta eru ekkert nýjar upplýs-
ingar og hefur áður komið fram
í fjölmiðlum. Ég svaraði bara
beinni spurningu um þetta í þættin-
um og fór ekkert nánar út í það,“ segir
Geir Jón Þórisson yfirlögregluþjónn
aðspurður um viðbrögð við ummæl-
um hans í þættinum Sprengisandi
á Bylgjunni á sunnudaginn. Hann
vinnur að skýrslu fyrir lögreglustjóra
um mótmælin og aðgerðir lögregl-
unnar á þessum tíma.
Geir Jón sagði í þættinum að
nokkrir þingmenn hafi stýrt mót-
mælunum á Austurvelli í búsáhalda-
byltingunni árið 2009 þannig að
harðar var veist að lögreglumönn-
um. Lögreglan hafi fundið fyrir að
það hafi haft áhrif á staðsetningu
mótmælenda og varð til þess að þeir
brugðust harðar við gagnvart lög-
reglu. Það hafi komið til hans þing-
menn sem tóku eftir því að ákveðn-
ir þingmenn voru í samskiptum við
hluta mótmælenda þann 20. janúar
2009. „Það var mitt hlutverk að koma
skilaboðum til þeirra og biðja þá um
vera ekki í þessum samskiptum. Það
var nóg fyrir lögregluna að standa í
því sem hún stóð í þann daginn. Það
tóku allir vel í það.“
Aðspurður hvort hann telji málið
hafa eftirmála fyrir umrædda þing-
menn segist hann ekki eiga von á því
fyrst ekki hafi verið gert neitt í málinu
á þeim tíma. Hann segir að honum
finnist þó að slíkt ætti að hafa eftir-
mála og að skoða hefði átt málið bet-
ur og rannsaka. Lögreglan hafi litið
þetta mjög alvarlegum augum.
Ummæli Geirs Jóns hafa vakið
mikil viðbrögð í bloggheimum en
meðal þeirra sem hafa tjáð sig eru
Illugi Jökulsson, Lára Hanna Einars-
dóttir og Hörður Torfason. „Hafi Geir
Jón haldið því fram að „Búsáhalda-
byltingunni“ hafi verið stjórnað af
þingmönnum þá lýgur hann einfald-
lega.“ Þetta segir Hörður Torfason í
samræðum á Facebook-vegg Láru
Hönnu. gunnhildur@dv.is
Geir Jón Þórisson Yfirlögregluþjónninn sagði að nokkrir þingmenn hafi stjórnað
mótmælum. MyNd: dV
Óeðlilegur fjöldi á mann
Félagsráðgjafi segir erfitt að sinna
öllum eins og vel æskilegt væri.
Sóttu mann í
Landmannalaugar
Þyrla Lanhelgisgæslunnar
sótti á sunnudag mann í Land-
mannalaugar. Maðurinn var með
bráðaofnmæmi. Læknir var á
staðnum sem hlúði að mann-
inum þar til þyrlan kom. Þá var
hann fluttur á Landspítalann til
frekari aðhlynningar en hann var
ekki talinn í bráðri hættu.
Árekstur á
Krýsuvíkurvegi
Árekstur varð síðdegis á sunnu-
daginn á Krýsuvíkurvegi við Blá-
fjallaveg. Hann varð með þeim
hætti að tvær bifreiðar skullu
saman. Bifreiðarnar voru fluttar
burt með kranabifreið og þrír
voru fluttir á slysadeild. Að sögn
lögreglunnar á höfuðborgar-
svæðinu voru meiðsl þeirra þó
talin minniháttar.
Blaðamannaverðlaun 2011:
Tveir blaðamenn
DV tilnefndir
Tveir blaðamenn DV, þau Ingi-
björg Dögg Kjartansdóttir og Ingi
Freyr Vilhjálmsson, hafa verið
tilnefndir til
Blaðamanna-
verðlaunanna
2011.
Ingi-
björg Dögg
er tilnefnd til
Blaðamanna-
verðlauna
ársins fyrir
fjölbreytt og
mikilvæg skrif
um samfélags-
vandamál, svo
sem ofbeldi,
einkum er
varða hlut-
skipti kvenna,
eins og það
er orðað á vef
Blaðamannafélags Íslands.
Ingi Freyr er tilnefndur í flokki
rannsóknarblaðamennsku ársins,
fyrir umfangsmikinn og ágengan
fréttaflutning af uppgjöri og af-
leiðingum fjármálahrunsins.
Þess má geta að Ingibjörg
Dögg Kjartansdóttir hlaut í fyrra
verðlaun Blaðamannafélags-
ins sem rannsóknarblaðamaður
ársins fyrir áleitna og vandaða
umfjöllun um kynferðisbrota-
mál. Ingi Freyr var hins vegar til-
nefndur í sama flokki og nú árið
2009 fyrir skrif sín um afleiðingar
efnahagshrunsins.
Verðlaunin verða veitt næst-
komandi laugardag, 3. mars.