Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2012, Side 6
6 Fréttir 27. febrúar 2012 Mánudagur
Rekinn læknir kallaður til
n Hannes Sigmarsson mætti til starfa vegna rútuslyss
J
á, ég fékk allavega sms þannig
að ég fór uppeftir,“ segir Hann-
es Sigmarsson, fyrrverandi yf-
irlæknir Heilbrigðisstofnun-
ar Austurlands, sem kallaður var
til vegna rútuslyss á veginum um
Oddskarð á fimmtudagskvöld.
Hannesi var vikið tímabundið
úr starfi yfirlæknis árið 2009 vegna
meints fjárdráttar og misræmi í
reikningum en sýslumannsemb-
ættið á Eskifirði rannsakaði málið
og komst að þeirri niðurstöðu að
ekki væri fótur fyrir ásökunum.
Hannes fékk þó ekki að snúa
aftur til starfa og var sagt upp var-
anlega í desember sama ár. Þeg-
ar hann sótti um stöðu læknis við
stofnunina árið 2010 var honum
hafnað þrátt fyrir að vera eini um-
sækjandinn. Hannes hefur stefnt
stofnuninni vegna ólögmætrar
uppsagnar.
Það vekur athygli að þrátt fyrir að
starfskrafta hans hafi ítrekað verið
hafnað á heilbrigðisstofnuninni þá
sé hann kallaður til þegar slys verð-
ur. Hannes segir að gjarnan sé haft
samband við sig frá Neyðarlínunni
ef ekki næst í lækna á svæðinu.
Í samtali við DV segist Hannes
setja öll deilumál til hliðar þegar
slys verða eða þegar einhver þarf á
læknishjálp að halda, enda sé það
borgaraleg skylda hans að sinna
sjúklingum. „Það er líka skylda
okkar lækna að bregðast við ef við
fáum kvaðningu. Það er þannig í
læknaeið,“ segir Hannes.
„Það er ekki óalgengt að ef ekki
næst í lækni hérna þá sé hringt
heim til mín,“ segir Hannes sem
bendir jafnframt á að fólk megi leita
til hvaða læknis á landinu sem það
vill.
Hannes er mjög vinsæll læknir
í sinni heimabyggð, Eskifirði, og
þegar honum var vikið úr starfi á
sínum tíma var víða flaggað í hálfa
stöng á bænum honum til stuðn-
ings.
Aðspurður segist hann bæði
hitta sjúklinga sína og sinna þeim
símleiðis óski þeir eftir því.
Átta manns voru í rútunni sem
fór út af veginum um Oddskarð, en
samkvæmt upplýsingum frá Lands-
björg slasaðast enginn alvarlega.
solrun@dv.is
Borgaraleg skylda Hannes
setur öll deilumál til hliðar þegar
sinna þarf sjúklingum.
Á
meðan hvorki elliheimilin né
önnur úrræði á vegum heil-
brigðisyfirvalda geta gert
neitt þá sitjum við bara uppi
með þetta og við verðum bara
að gera það sem við getum,“ segir Páll
Winkel fangelsismálastjóri aðspurð-
ur um það að 94 ára gamall karlmað-
ur hafi hafið afplánun á Kvíabryggju í
síðustu viku. Páll tekur fram að hann
geti ekki tjáð sig um einstök mál en
staðfestir að málið sé að mörgu leyti
einstakt enda hafi ekki áður komið
svo gamall fangi til afplánunar. Mað-
urinn er fæddur árið 1918 og er því
elsti fangi landsins. Hann var árið
2008 dæmdur í fjögurra ára fang-
elsi fyrir gróf kynferðisbrot gagnvart
barnabarni sínu.
Fangar hneykslaðir
Samkvæmt heimildum DV er mað-
urinn ekki í góðu líkamlegu né and-
legu ástandi vegna aldurs. Fangelsis-
málayfirvöld voru í nokkrum vanda
vegna málsins en þar sem engin
önnur úrræði voru í boði þá var tek-
in ákvörðun um það að hann afplán-
aði dóminn á Kvíabryggju. Fyrst var
hann í nokkra daga í Hegningar-
húsinu á Skólavörðustíg líkt og vani
er þegar fangar koma til afplánun-
ar. Fangar á Kvíabryggju voru sam-
kvæmt heimildum DV „margir hverj-
ir hissa og nokkuð hneykslaðir“ eins
og einn fanginn orðaði það, þegar
komið var með manninn til afplán-
unar enda er hann ósjálfbjarga og
þarf því töluvert meiri aðstoð en aðr-
ir fangar auk þess sem engin aðstaða
sé í fangelsinu fyrir mann á þessum
aldri við slæma heilsu.
Ekki gert ráð fyrir ósjálfbjarga
Páll segir það rétt að fangelsin séu
ekki í stakk búin að taka við slík-
um föngum. „Tali ég almennt þá
þurfa einstaklingar á þessum aldri
auðvitað meiri þjónustu. Fólk á
þessu aldursskeiði er hugsanlega
ekki í öllum tilvikum sjálfbjarga. Við
höfum ekki gert ráð fyrir því í okk-
ar byggingum að þar sé ósjálfbjarga
fólk sem kemst til dæmis ekki milli
hæða. Við erum bara með fangelsi.
Við erum vön því að okkar skjólstæð-
ingar séu sjálfbjarga,“ segir hann.
Ósjálfbjarga einstaklingar eiga
rétt á aðstoð frá sveitarfélögunum.
„Þegar svona mál koma upp þá vinna
félagsráðgjafar á okkar vegum í því
að fá aðstoð fyrir einstaklingana,“
segir Páll.
Aðspurður hvernig leysa eigi slík
mál þá segir hann að með nýju fang-
elsi byggðu frá grunni þá yrði vanda-
málið ekki lengur til staðar. „Þar er
gert ráð fyrir klefum fyrir fatlaða og
allri aðstöðu inni á klefa. Það er inni
á planinu og þá er aðgengi í allt á
sama stað.“
Braut á barnabarni sínu 11 ár
Maðurinn var eins og áður sagði
dæmdur árið 2008 fyrir kynferðis-
brot gagnvart barnabarni sínu. Brot-
in áttu sér stað á árunum 1994 til árs-
ins 2005, frá því að stúlkan var 4 til
15 ára gömul. Brotin fóru fram bæði
á heimili mannsins, sem og í sumar-
húsi og hjólhýsi hans. Annað barna-
barn mannsins kærði hann einnig
fyrir kynferðisbrot en því var vísað
frá vegna þess að málið var fyrnt. Við
dómsuppsögu var hár aldur hans
metinn honum til refsilækkunar.
Maðurinn neitaði sök fyrir dómi og
sagðist hafa verið nánast getulaus
frá 55 ára aldri vegna krabbameins
í blöðruhálskirtli. Að mati dómsins
var framburður stúlkunnar afar trú-
verðugur.
n Engin önnur úrræði í boði n Níddist á barnabarni sínu í ellefu ár
94 ára og ósjálf-
bjarga í fangelsi
„Fangar á Kvía-
bryggju voru sam-
kvæmt heimildum DV
„margir hverjir hissa og
nokkuð hneykslaðir“.
Viktoría Hermannsdóttir
blaðamaður skrifar viktoria@dv.is
Páll Winkel Fangelsismálastjóri segir
fangelsismálayfirvöld ekki hafa nein önnur
úrræði fyrir aldraða fanga.
Fjögurra ára dómur
Ef maðurinn situr
dóminn allan verður
hann 98 ára þegar hann
losnar. Hann er við
slæma heilsu.
Drukkinn sýndi
mótþróa
Lögreglan stöðvaði tvo ökumenn á
sunnudag. Var annar þeirra stöðv-
aður á Laugalæk grunaður um
ölvun við akstur.
Maðurinn var færður á lög-
reglustöð þar sem klára átti mál-
ið. Samkvæmt lögreglu tók öku-
maðurinn tók þá upp á því að sýna
mótþróa og var ósamvinnufús en
það endaði með því að hann var
vistaður í fangaklefa. Þá var bif-
reið stöðvuð við Hörðukór. Öku-
maður var stöðvaður grunaður um
að aka undir áhrifum vímuefna.
Hann reyndist vera með vímuefni
í fórum sínum. Hann var færður á
lögreglustöð þar sem málið var af-
greitt samkvæmt reglum þar um.
Í tilkynningu lögreglu frá lögreglu
dró málið þó dilk á eftir sér því
nokkru seinna voru lögreglumenn
kallaðir að heimili hans og þurftu
að fjarlægja hann vegna ástands
hans. Var hann því var færður í
fangaklefa.
Mikill erill hjá lögreglu:
Nauðgun og
heimilisofbeldi
Mikill erill var hjá lögreglunni
aðfaranótt sunnudags og mikið
um alvarleg ofbeldismál. Upp
úr klukkan fimm á sunnudags-
morgun var lögregla kölluð að
húsi í Kópavogi. Sextán ára stúlka
sem hafði verið að skemmta sér
í miðbæ Reykjavíkur sagði að sér
hefði verið nauðgað af nokkrum
mönnum í ótilgreindu húsasundi.
Farið var með hana á slysadeild
þar sem hún gekkst undir skoðun.
Málið er í rannsókn.
Um klukkan hálf sjö sama
morgun var lögregla kölluð að
Hrafnhólum vegna heimilisof-
beldis. Þar var karlmaður hand-
tekinn, færður út af heimili sínu
og vistaður í fangageymslu. Hann
er sakaður um líkamsárás með því
að hafa lamið sambýliskonu sína.
Á heimilinu var 12 ára barn.
Lögregla var kölluð að veit-
ingastað við Hverfisgötu rétt fyrir
klukkan tvö á laugardagsnótt en
þar var maður sagður hafa slegið
dyravörð. Engin meiðsl urðu vegna
þessa og engar kröfur. Maðurinn
var færður á lögreglustöð þar sem
rætt var við hann og honum síð-
an sleppt. Á svipuðum tíma var
komið að alblóðugri konu í Drápu-
hlíð. Kom í ljós að hún hafði dottið
illa vegna ölvunar. Var hún flutt á
slysadeild af sjúkraliði.
Um klukkan þrjú sömu nótt
var tilkynnt um rúðubrot í Ing-
ólfsstræti, þar hafði rúða í útihurð
verið brotin. Ekki er vitað um ger-
anda. Þá var einnig tilkynnt um
rúðubrot í húsi við Templarasund
seinna sömu nótt og ekki held-
ur vitað um geranda í því tilfelli.
Kallað var á smið til að loka. Þá var
nokkur fjöldi ökumanna stöðvaður
vegna gruns um ölvun við akstur.