Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2012, Qupperneq 9
Ólafur Ragnar
of hégómlegur
Umræða 9Mánudagur 27. febrúar 2012
Þórður Eyfjörð Halldórsson: Telur þú
frjálshyggju snúast um frelsi auðhringja
til einokunnar, eða frelsi einstaklinga frá
einokun? Hvort er rétthærra, einstaklingurinn eða
fyrirtækið?
Hannes: Frjálshyggja snýst um hagsmuni
neytenda, almennings, skattgreiðenda.
En það er þeim í hag, að fyrirtæki græði og
athafnamenn fái notið hugvits síns.
Guðmundur Franklín Jónsson: Bera
Gylfi Arnbjörns og Jóhanna Sigurðar-
dóttir ábyrgð á því að verðtryggingin var
ekki tekin af í okt. 2008?
Hannes: Ég held, að allir stjórnmálaflokkar
beri ábyrgð á verðtryggingunni, enda var
henni komið á, til að spariféð brynni ekki upp.
Í mikilli verðbólgu hættir fólk að spara, nema
það sé öruggt um ávöxtun.
Fundarstjóri: Af hverju ertu stoltastur á
ferlinum og hverju sérðu mest eftir?
Hannes: Mér finnst tilvitnanasafnið
mitt einna best heppnaða verk mitt, en ég
myndi hafa skrifað fyrsta bindið af ævisögu
Laxness öðru vísi, hefði ég vitað af afleiðing-
unum.
Bjarki Hilmarsson: Hefur þú, helsti
talsmaður einkaframtaksins
einhverntíman haft meirihluta tekna
þinna frá öðrum en ríkinu?
Hannes: Nei, það held ég ekki. En ég get
frætt þig á því, að ég tel samviskusamlega
fram allar mínar tekjur. Ég vona, að þú gerir
það líka.
Ingi Vilhjálmsson: Hvaða skoðun hefur
þú á dómi Hæstaréttar yfir Baldri
Guðlaugssyni? Finnst þér dómurinn
réttur, of þungur of vægur?
Hannes: Mér finnst sérálit Ólafs Barkar vel
rökstutt. Dómstóll á að svara spurningunni:
Hefur tekist að færa sönnur á sekt? Hann á
ekki að svara því, hvort menn hafi gert rétt
eða rangt.
Reynir Traustason: Styður þú að Ólafur
Ragnar Grímsson bjóði sig fram að nýju
sem forseti Íslands?
Hannes: Ég hef ekki tekið ákvörðun um það.
Það fer eftir öðrum frambjóðendum. Ólafur
Ragnar má eiga það, að hann stóð sig vel
síðasta kjörtímabil. En hann er of hégómlegur
og ekki nógu góðgjarn.
Ingi Vilhjálmsson: Þannig að þú ert
sammála sératkvæði Ólafs Barkar og
þar með ósammála niðurstöðu
meirihluta dómsins?
Hannes: Ég er ekki nógu mikill lögfræðingur
til að geta svarað þessari spurningu afdrátt-
arlaust. En Ólafur Börkur sýndi karlmennsku
og kjark með því að fylgja sannfæringu sinni,
en ekki almenningsálitinu.
Atli Fanndal: Áttir þú von á því að
Eimreiðarhópirnn svokallaði myndi hafa
þau áhrif sem raunin varð?
Hannes: Nei, við vorum ungir og saklausir
hugsjónamenn, sem sameinuðumst um að
gefa út tímaritið Eimreiðina 1972 til 1975.
Það var tilviljun, en ekki samsæri, að margir í
hópnum öðluðust frama.
Fundarstjóri: Hvenær voru áhrif þín hér
á landi mest? Varstu valdamikill á bak
við tjöldin í stjórnartíð Davíðs?
Hannes: Davíð Oddsson þarf ekki að láta
neinn ráða fyrir sig, hann er nógu sterkur til
þess. En við vorum og erum góðir vinir, og
sennilega hef ég haft einhver áhrif '91 til '04.
Guðmundur Sigurðsson: Sæll Hannes,
ert þú enn af pennum amx.is?
Hannes: Ég vona svo sannarlega,
að ég hafi haft áhrif á ritstjóra amx.is sem er
gamall aðstoðarmaður minn, tengdasonur
eins besta vinar míns og góður vinur minn
sjálfur. Það er samhljómur í skoðunum okkar.
Natan Kolbeinsson: Tveir kostir og einn
galli við ríkisstjórn Samfylkingar og Vg ?
Hannes: Einn kostur er, að nóg er af
mistökum að læra af, annar, að hún afhjúpar
hugmyndalega auðn vinstri manna. Gallinn
er, að hún er að leggja atvinnulífið í rústir.
Ragnar Ragnarsson: Finnst þér vera
samhljómur milli Lilju M. Og
Sjálfstæðisflokksins?
Hannes: Nei. Lilja Mósesdóttir er mjög langt
til vinstri. Sjálfstæðisflokkurinn er hægri- og
miðflokkur. En Lilja gengur þó ekki erinda
annarra og er sjálfstæð í hugsun. Fyrir það má
virða hana.
Arnar Sigurðsson: Ættu Íslendingar að
hætta veiðum á langreyði þar sem ekki
virðist vera neinn markaður fyrir hana í
Japan sem virðist vera eini staðurinn sem Hvalur
hf. hefur flutt út til?
Hannes: Nei, ég tel, að fæðuskortur kunni
að vofa yfir heiminum, og hvalkjöt er gott og
hollt og næringarríkt. T. d. er það afbragð í
sashimi og grillað.
Hafsteinn Árnason: Telur þú það hafa
verið mistök, hvernig var staðið að
einkavæðingu Búnaðarbankans?
Hannes: Það voru gerðar tvær nákvæmar
skýrslur um þetta hjá Ríkisendurskoðun, sem
aðgengilegar eru á Netinu. Samkvæmt þeim
voru engin sérstök mistök gerð. Ég hefði samt
kosið dreifða eignaraðild.
Ingi Vilhjálmsson: Hvaða einstaklingur
ber mesta ábyrgð á íslenska hruninu að
þínu mati og af hverju?
Hannes: Þetta var aðallega alþjóðleg láns-
fjárbóla, sem sprakk af meiri þunga framan í
Íslendinga en aðra í bili (nú eru aðrar þjóðir að
finna fyrir henni). En Jón Ásgeir á sennilega
mestu sök.
Hallur Guðmundsson: Hvaða ráðherra
núverandi ríkisstjórnar telur þú að hafi
staðið sig best? Og ef til kosninga kæmi,
hvaða stjórnarmynstur heldur þú að komi til með
að henta þjóðinni best?
Hannes: Katrín Jakobsdóttir er einna lausust
við það hatur, sem einkennir núverandi
ríkisstjórn. Væri ég Sjálfstæðisflokkurinn,
myndi ég segja: Til í allt nema sjálfsmorð og
hjónaband.
Árni Sveinsson: Hver er lykilinn að því
að vera svona fyndinn og hress?
Hannes: Ég er hvorki fyndinn né
hress. Ég er hógvær fræðimaður, sem gerði
smáhlé á grúski mínu á Þjóðarbókhlöðunni til
þess að sitja hér fyrir svörum.
Ásgeir Jónsson: Hversu mikla sök á
Davíð Oddsson á hruninu ef Jón Ásgeir á
þá mestu?
Hannes: Davíð Oddsson varaði við lánsfjár-
þenslunni á mörgum fundum. Hann varaði
við ójafnvæginu í stjórnmálunum, þegar aðrir
dönsuðu í kringum gullkálfinn.
Sigurjón Guðmundsson: Hver er þín
afstaða með að Bjarni Ben fái ennþá að
sitja sem formaður Sjálfstæðisflokksins
þó það sé ekki búið að greiða úr hans flækjum,
samanber Vafningsmálið? Ætti hann ekki að
víkja undir eðlilegum kringumstæðum?
Hannes: Það er ekkert Vafningsmál til nema
í hugskoti DV og Lilju Skaftadóttur, eiganda
DV og Smugunnar (sem hún á með þremur
ráðherrum). Bjarni hefur skýrt þetta full-
komlega.
Finnbogi Steinarsson: Telur þú að
aukið eftirlit með fjármálastofnunum
hefði getið komið í veg fyrir hrunið?
Hannes: Nei. Hér voru sömu leikreglur og
annars staðar á EES-svæðinu. Hins vegar var
Fjármálaeftirlitið ekki nógu hart gegn kross-
eignatengslum og útblásnu eigin fé.
Ólafur Ólafur: Hvað finnst þér um
afskriftir til útgerða án þess að gengið sé
að kvótaveðum og þau gerð upptæk?
Hannes: Afskriftir geta verið eðlilegar. Eru
útgerðarfyrirtæki eitthvað réttminni en aðrir?
Hafa þau svipaða réttarstöðu og gyðingar í
Hitlers-Þýskalandi? Hvaða vitleysa er þetta?
Henrý Baldursson: Er það ekki hræsni
að vera talsmaður frjáls markaðar, en
láta aldrei reyna á sjálfan sig undir þeim
formerkjum, heldur koma sér fyrir í þægilegri
innivinnu, fastráðinn á kostnað skattborgara?
Hannes: Þegar ég kom frá námi, var aðeins
einn háskóli hér, og hann var ríkisháskóli.
Hvað átti ég að gera? Svelta til þess að þú
yrðir ánægður? Og þú hefðir hvort sem er ekki
orðið ánægður.
Ólafur Ólafur: Er það réttlætanlegt að
veðsetja kvóta i eigu þjóðarinnar og
kalla eiginfé útgerðafyrirtækja?
Hannes: Núverandi fiskveiðistjórnunarkerfi
er hið skilvirkasta og hagkvæmasta í heimi.
Er það áhyggjuefni, að útgerðarmenn græði?
Auðvitað eiga þeir að geta fjárfest eins og
aðrir.
Reynir Traustason: Telur þú raunhæft
að Davíð Oddsson snúi aftur í
stjórnmálin?
Hannes: Ég myndi telja það mjög ólíklegt. Í
stjórnmálum er Davíð saddur lífdaga. Hann
var borgarstjóri og forsætisráðherra lengi.
Einu vonbrigðin hljóta að vera starfslokin í
Seðlabankanum.
Ingi Vilhjálmsson: Þannig að ákæra
sérstaks saksóknara í Vafningsmálinu,
gegn Lárusi Welding og Guðmundi
Hjaltasyni, er þá heldur ekki til nema í hugskoti
einhvers?
Hannes: Ég átti við Vafningsmál tengt
Bjarna Benediktssyni. Árásirnar á hann eru
fáránlegar, en hann hefur svarað vel fyrir sig.
Hann hefur vaxið af þessu.
Lára Hanna Einarsdóttir: Nú hóf DV
umfjöllun um Vafning og Bjarna Ben í
desember 2009. Þá átti sjálfstæðis-
maðurinn Hreinn Loftsson DV. Hvernig
samræmist það þeirri fullyrðingu að Lilja
Skaftadóttir komi málinu við?
Hannes: Já, það er alveg rétt. Hreinn Lofts-
son lagði sama botnlausa hatrið á Bjarna
Benediktsson og Lilja Skaftadóttir gerir.
Öfunda þau hann ekki af því, að hann hefur
fengið meira í vöggugjöf en þau??
Fundarstjóri: Hver er öflugasti
þingmaður á Íslandi í dag?
Hannes: Bjarni Benediktsson veitir Stein-
grími J. Sigfússyni núna öfluga samkeppni. En
Steingrímur er auðvitað mikill mælskugarpur,
þótt honum sé ósýnt um að stjórna.
Bergsteinn Sigurðsson: Hannes,
hefurðu íhugað að sækjast eftir
þingsæti?
Hannes: Nei, eina sætið, sem ég kann vel við
mig í, er á Þjóðarbókhlöðunni í mínu grúski.
En ég er þakklátur þeim, sem leggja það á sig
að keppa að þingsætum, það er vanþakklátt
starf.
Hallur Guðmundsson: Ef þú fengir að
ráða, hvern myndir vilja sjá sem forseta
Íslands, ákveði Ólafur Ragnar að stíga til
hliðar?
Hannes: Það veist þú jafnvel og ég.
Fundarstjóri: Davíð?
Hannes: Þú sagðir það.
Marvin Dupree: Plató eða Aristóteles?
Hvor var meiri spekingur?
Hannes: Aristóteles. Hann var
jarðbundnari. Mér finnst líka fullkomnunar-
kenning hans um margt áhugaverð: Að
maðurinn verði að vaxa upp í eðli sitt. En hún
er ekki vandræðalaus.
Hafsteinn Árnason: Þar sem þú telur
Morgunblaðið vera áreiðanlegasta
blaðið, hverjir standa sig best í
umræðunni í útvarpi og sjónvarpi?
Hannes: Mér finnst þáttur Björns Bjarna-
sonar á ÍNN ágætur. Kastljósi er ekki heldur
alls varnað, þótt sumir vinir mínir gagnrýni
það með réttu.
Atli Þorsteinsson: Þú varst dæmdur
sekur fyrir ritstuld en heldur enn starfi
þínu sem prófessor í HÍ. Er það
sanngjarnt?
Hannes: Ég var dæmdur fyrir höfundar-
réttarbrot, ekki ritstuld. Skv. lögum hefði ekki
verið hægt að reka mig nema að undan-
genginni áminningu. Vildir þú, að rektor bryti
lög, Atli Þorsteinsson?
Lára Hanna Einarsdóttir: Hefurðu enga
tilfinningu fyrir sannleika og réttlæti? Ég
er stolt af myndböndum mínum.
Sérstaklega af að koma á framfæri möntrunni um
að græða á daginn og grilla á kvöldin.
Hannes: Þú ert að endurtaka þig eins og er
háttur biturra kvenna. En flestir vilja græða á
daginn og grilla á kvöldin, lifa hamingjusamir
í skauti fjölskyldunnar og losna við nöldur úr
þér og þínum líkum.
Erna Magnúsdóttir: Hvað hefðir þú
gert öðruvísi í aðdraganda hrunsins ef þú
gætir breytt eigin gerðum eftirá?
Hannes: Annaðhvort minnkað bankana
eða tryggt meiri þrautalánaforða með
samningum við seðlabanka í Bandaríkjunum,
á Norðurlöndum og í ESB
Brynjar Brynjólfsson: Telur þú að Davíð
Oddsson hafi axlað ábyrgð og
viðurkennt sína ábyrgð á hruninu ?
Hannes: Hann ber enga ábyrgð á hruninu,
enda varaði hann við áhættufíkn auðjöfr-
anna, sem tóku hér öll völd og stjórnuðu
hér öllum fjölmiðlum. Hvernig væri, að þú
viðurkenndir, að þú hefur rangt fyrir þér?
Ingi Vilhjálmsson: Samkvæmt skoðun
þinni á skrifum DV um Vafningsmálið
stenst það ekki að umfjöllunin sé
flokkspólitísk. Hreinn Loftsson er ekki vinstrimað-
ur eða stuðningsmaður VG. Er þetta ekki mótsögn
hjá þér?
Hannes: Hreinn Loftsson tók því miður í sig
hatur á forystu Sjálfstæðisflokksins, Davíð
og Bjarna. Það er raunasaga. Sjálfstæðis-
flokkurinn á aldrei að taka við skipunum frá
auðjöfrum.
Hallur Guðmundsson: ESB - já eða nei?
Hannes: Nei. En væri ég Eistlending-
ur, þá myndi ég sennilega kjósa aðild að
ESB.
Franz Gunnarsson: Hvernig getur þú
réttlætt að Davíð beri enga ábyrgð á
hruninu? Hvað finnst þér um
rannsóknarskýrslu Alþingis?
Hannes: Það var margt fróðlegt í skýrslunni,
en hún bar of mikil einkenni þúfnasjónar-
miða. Sjónarhornið var of þröngt. Þetta var
alþjóðleg lánsfjárkreppa.
Erna Sigurgeirsdóttir: Telur þú að
ríkisstjórnin muni halda út kjörtímabilið?
Hannes: Ef hún gerir það, þá er
það aðeins vegna þess, að hatrið á Sjálf-
stæðisflokknum heldur lífinu í henni. Það er
furðulegt og órökrétt.
Jónas Halldorsson: Geturðu nefnt 3
atriði sem myndu auðvelda okkur leiðina
útúr þeirri niðursveiflu sem við erum í?
Hannes: Lægri skatta, traustari um-
hverfi í sjávarútvegi og breytt eignarhald á
bönkunum, sem vinstri stjórnin setti í hendur
erlendra okurkarla.
Hannesi Hólmsteinn vill sjá Davíð Oddsson sem næsta forseta Íslands og dáist að hæstaréttardómaranum sem vildi vísa máli Baldurs Guð-
laugssonar frá. Hann segir ekkert Vafningsmál vera til nema í hugskoti DV og eins eigenda blaðsins. Hér er hluti spurninga og svara af Beinni línu DV.
Nafn: Hannes Hólmsteinn Gissurarson
Aldur: 59 ára
Starf: Prófessor í stjórnmálafræði við HÍ
Menntun: Doktorspróf í stjórnmálafræði.