Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2012, Síða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2012, Síða 10
10 Fréttir 27. febrúar 2012 Mánudagur legókallar með mitti og brjóst F riends-lína Lego hefur vakið mikið umtal en línan er sér- staklega ætluð stelpum. Í ljósi þessa umtals efndi Háskólinn á Bifröst til hádegismálþings um Lego, þar sem þau Jóhann Breið- fjörð, fyrrverandi hönnuður, hug- myndasmiður og ráðgjafi hjá Lego, og Sóley Tómasdóttir ræddu um leik- fangakubbana. Erindi þeirra tveggja voru mjög ólík í eðli sínu en Sóley lagði áherslu á það hvernig börn þroska með sér áhugamál og tækifæri út frá þeim áhrifum sem þau verða fyrir í sam- félaginu, meðal annars út frá legó. „Þetta er bara pínulítill hluti af þess- ari þróun en krakkar fá skýr skilaboð um það hvernig þau eiga að vera, líta út, á hverju þau eiga að hafa áhuga, hvað þau eiga að gera og hvað þeim á að finnast. Það sem verra er er að um leið fá þau skýr skilaboð um það sem þeim á ekki að langa, hvernig þau eiga ekki að líta út, hvað þeim á ekki að þykja og hvernig þau eigi ekki að vera,“ segir Sóley sem í raun beindi sjónum sínum lítið að legó, sem slíku. „Ég tók Lego inn í miklu stærri grúppu áhrifavalda á áhugamál og tækifæri barna og það hvernig við þroskumst alveg frá leikskólaaldri og förum að tileinka okkur þau hlutverk sem samfélagið ætlast til af okkur. Ég held að börn séu í kringum fimm ára þegar þau fara að velja frekar að leika sér með einstaklingum af sama kyni.“ Kynbundin áhugamál Máli sínu til stuðnings bendir hún á skýringarmyndir af áhugamálum barna í fimmta til sjötta bekk og svo aftur eldri barna. „Þessar myndir sýna að áhugamál fólks eru mjög kyn- bundin strax frá þessum aldri. Sjálf- sagt er hægt að finna tölur um yngri hópa en ég er ekki með þær, þetta eru einu tölurnar sem ég er með. Ég set þetta í samhengi við atvinnulífið þar sem 75 prósent allra vinnustaða eru annaðhvort karlavinnustaður eða kvennavinnustaður, sem þýðir að innan við þriðjungur starfsfólksins er af öðru kyninu. Við getum velt því fyr- ir okkur hvort það sé samfélagið sem við viljum í raun. Við viljum flest búa í norrænu vel- ferðarríki þar sem jafnrétti ríkir og við vinnum saman að því að skapa verð- mæti. Þar sem allir hafa sömu tæki- færi og möguleika. Samt erum við á sama tíma að kenna börnum að þau hafi alls ekki nægilega marga mögu- leika. Að þau hafi bara möguleikana sem annað hvort stelpur eða strákar hafa. Því að í gegnum uppeldið erum við í rauninni að skerða tækifæri og möguleika barna til að þroska með sér áhugamál og hæfileika af því að við erum alltaf að passa að þau fari ekki inn á brautir sem eru ætlaðar hinu kyninu. Það er alvarlegt. Ég held að samfélagið væri bæði betra og skemmtilegra og meira skap- andi ef við leyfðum fólki að njóta sín á eigin forsendum ekki á forsendum þeirra hugmynda sem við höfum um kynið sem það tilheyrir.“ Fastmótaðar hugmyndir „Af því að Lego var umfjöllunarefnið á málþinginu sýndi ég þátt Lego í þessari þróun. Lego beitir nákvæm- lega sömu aðferðum og fer inn á sömu brautir og flestir leikfangafram- leiðendur, sjónvarpsframleiðendur, kvikmyndagerðarmenn og fjölmiðlar, netaheimar, foreldrar, fyrirmyndir, íþróttafélög, æskulýðsfélög og allt hitt. Öll erum við með fastmótaðar hugmyndir um það hvað tilheyrir stelpum og hvað tilheyrir strákum. Hvað stelpur mega og hvað strákar mega. Það keppast allir við að koma þessum skilaboðum til barnanna og Lego er ekkert undanskilið því. Lego hefur tekið þátt í þessu með því að framleiða kubba sem eru sérstaklega ætlaðir stelpum og aðra sem eru ætl- aðir strákum, vitandi hvaða áhrif það hefur þegar það gefur sig út fyrir að framleiða þroskaleikföng. Markmiðið er að koma því til skila hvað það er margt sem hefur áhrif á það hvernig við þroskumst og verð- um meðvituð um kyn okkar til að byrja með og förum síðan frá því að vera stelpur yfir í það að vera konur, eða strákar sem verða að mönnum. Eitt af því er legó.“ Í takt við samþykkt hlutverk Hún segir að hugmyndin að mál- þinginu hafi kviknað í kringum um- ræðurnar um Friends-línu Lego en hún var gagnrýnd víða og út frá ýms- um sjónarhornum. „Bæði vegna út- lits þessar fígúra og viðfangsefnum þeirra. Eins hefur þeirri spurningu verið varpað fram af hverju það þurfi stelpu- og strákalegó. Það er ótrúlega margt í þessu.“ Lego Friends-línan snýst um fimm vinkonur, þær Miu, Emmu, Andreu, Stephanie og Oliviu sem búa í HeartLake City. Línunni fylgir meðal annars fallegt heimili með fallegum garði, snyrtistofa og sund- laug, saumastofa, dýragarður, fjólu- blár bíll og fjórhjól með gæludýr- um. Línan hefur meðal annars verið gagnrýnd fyrir að ýta undir hefð- bundin kynhlutverk – litina – en bleikur og fjólublár eru áberandi í þessari línu en þá er varla að finna í öðru legódóti, og vegna þess að fígúrurnar eru með línur og klæð- ast stuttum pilsum. Það er því ekki hægt að nota þær með öðru legódóti Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is „Ég held að sam- félagið væri bæði betra og skemmtilegra og meira skapandi ef við leyfðum fólki að njóta sín á eigin forsendum ekki á forsendum þeirra hug- mynda sem við höfum um kynið sem það tilheyrir. n Sóley Tómasdóttir segir að leikföng hafi áhrif á það hvernig börn þroski með sér áhugamál og tækifæri n Stöðug skilaboð um hlutverk kynjanna Ætlað strákum Markaðssetning Lego hefur í auknum mæli beinst að strákum á síðustu árum auk þess sem fyrirtækið hefur farið að tengjast öðrum vörumerkjum. Hálfskipaður Hæstiréttur Aðeins sex dómarar dæma í Hæstarétti á næstu vikum, þar sem helmingur dómaranna er frá vegna landsdómsmálsins. Þetta kemur fram á vefsíðu Viðskipta- blaðsins. Jafnframt kemur fram að hæstaréttardómararnir hafi hafið undirbúning fyrir landsdóm þann 10. febrúar síðastliðinn en þá hlýddu þeir á síðasta málflutning í Hæstarétti. Þeir verða frá þar til landsdómi lýkur. Viðskiptablaðið vitnar í Þor- steinn A. Jónsson, skrifstofustjóra Hæstaréttar, sem segir að nú sé unnið í tveimur þriggja manna teymum. Hann sagði aðspurður hvort þetta hefði áhrif á afgreiðslu mála að svo sé, þar sem helming- ur af dómurum sé ekki við réttinn. Það sé því ljóst að stærri mál verða ekki á dagskrá Hæstaréttar á með- an landsdómur situr. Bankar og fjár- málafyrirtæki beita þvingunum „Þetta jaðrar við að vera, vil ég nú meina, ákveðin fjárkúgun. Það er verið að innheimta ólögleg- ar kröfur. Þessi fyrirtæki hlusta ekki á Hæstarétt, eða virðast sum hver ekki ætla að gera það. Þau ætla að halda áfram og þau ætla að beita þvingunum; vörslu- sviptingu, nauðungarsölu, gjald- þrotamálum. Þessu ætla þeir að beita til að fá fólk til að greiða kröfur sem eru ólöglegar,“ sagði Sævar Þór Jónsson í Silfri Egils á sunnudag en hann hefur aðstoðað fjölda einstaklinga og fyrirtækja við að fá lausn sinna mála. Hann segir að stjórnvöld verði að grípa í taumana því bankar og fjármögn- unarfyrirtæki gangi fram af allt of mikilli hörku gagnvart skuldurum og ætli sér ekki að slaka á kröfum sínum þrátt fyrir nýgenginn dóm Hæstaréttar. Hættulegir hitastillar Helmingur brunaslysa á börn- um verða inni á heimilum, samkvæmt rannsókn nokkurra lækna og hjúkrunarfræðinga. Heitt vatn er ástæða brunans hjá meirihluta barna fjögurra ára og yngri. Í mörgum tilvik- um er það heitt vatn úr krana, sem getur verið hátt í 80 gráðu heitt.Til eru dæmi um að börn hafi brunnið vegna bilunar í hitastillum blöndunartækja. Herdís Storgaard, forvarn- arhjúkrunarfræðingur og for- stöðumaður Slysavarnahúss- ins, sagði á RÚV að fólk teldi sig gjarnan vera með örugg blöndunartæki, sem hætti síðan að virka og valdi mikilli slysahættu. Hitastillibúnaður í blöndunartækjum geti bilað mjög skyndilega. Dæmi eru um alvarleg slys hjá börnum og öldruðum vegna bilaðra tækja.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.