Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2012, Side 13
Mánudagur 27. febrúar 2012
n Vísindamenn þróa byltingarkennt efni fyrir eiturlyfjafíkla
Þ
að er augljóst að súrefnis-
skorturinn hefur valdið
miklum heilaskemmdum,“
segir Wolfgang Koller, sér-
fræðilæknir á sjúkrahúsinu í
Innsbruck í Austurríki, um batahorf-
ur hollenska prinsins Johans Friso.
Friso lenti í snjóflóði í fjöllum Lech
í Austurríki þann 17. febrúar. Snjó-
flóðið var um þrjátíu metra breitt
og fjörutíu metra langt og er talið að
prinsinn hafi legið á kafi í flóðinu í
um tuttugu mínútur áður en honum
var bjargað. Hann var fluttur með
þyrlu á sjúkrahúsið í Innsbruck. Síð-
an þá hefur hann verið í dauðadái og
óttast læknar að hann muni aldrei
vakna aftur.
50 mínútur í endurlífgun
„Eins og staðan er núna er ómögu-
legt að segja til um hvort hann kom-
ist til meðvitundar,“ sagði Koller á
blaðamannafundi um stöðu mála
en fundurinn var sýndur í beinni út-
sendingu hjá hollenskum sjónvarps-
stöðvum. Friso er næstelsti sonur
Beatrix Hollandsdrottningar. Á fund-
inum sagði Koller að endurlífgunar-
tilraunir hefðu ekki borið árangur
fyrr en 50 mínútum eftir að Friso var
bjargað úr flóðinu.
Prinsinn var á skíðum í Lech þeg-
ar slysið varð en hann hafði farið á
svæði sem var ekki rutt og raunar
ekki ætlað skíðafólki.
Stefan Jochum, talsmaður skíða-
svæðisins í Lech, segir í samtali við
hollenska fjölmiðla að metúrkoma
hafi verið á svæðinu vikurnar fyrir
slysið. Meðlimir konungsfjölskyld-
unnar voru með í för en þó ekki á
sama svæði og prinsinn var á þegar
slysið varð.
Umdeild ákvörðun
Friso, sem er kvæntur tveggja barna
faðir, verður fluttur á sérstaka end-
urhæfingardeild þar sem hann verð-
ur undir eftirliti lækna næstu daga
og vikur. Koller sagði á blaðamanna-
fundinum að fólk ætti ekki að vera
of bjartsýnt um batahorfur prinsins.
Sagði hann að það gætu liðið ár þar til
Friso, sem er 43 ára, vaknar úr dáinu –
ef hann vaknar þá á annað borð.
Friso kvæntist eiginkonu sinni,
Mabel Wisse Smit, árið 2004 en þurfti
að færa nokkrar fórnir til að ganga í
hjónabandið. Ríkisstjórn Hollands
gaf ekki leyfi fyrir hjónabandinu
vegna þess að Mabel hafði áður átt í
nánu sambandi við Klaas Bruinisma,
þekktan eiturlyfjabarón í Hollandi
sem var skotinn til bana árið 1991.
Friso ákvað þó að láta slag standa
en til að hjónabandið gæti gengið í
gegn þurfti hann að afsala sér mögu-
legu tilkalli til krúnunnar en málið
vakti mikla athygli í Hollandi þegar
það kom upp. Jóhann og Mabel eiga
tvær dætur saman. Friso starfaði síð-
ast sem fjármálastjóri hjá Urenco sem
meðal annars framleiðir kjarnorku-
eldsneyti.
er vart hugað líf
n Læknir segir alls óvíst hvort prinsinn Johan Friso vakni úr dauðadái
„Eins og staðan er
núna er ómögu-
legt að segja til um hvort
hann muni komast til
meðvitundar.
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
Á skíðum Hér sést Johan Friso á skíðum ásamt eiginkonu sinni og tveimur dætrum. Prins-
inum er vart hugað líf. Mynd ReUteRs
Útlitið svart Wolfgang Koller ræðir hér við
blaðamenn um stöðu mála. Hann segir að
óvíst sé hvort Friso vakni úr dáinu. Mynd ReUteRs
Stigahlíð 45-47 | Sími 553 8890
Erlent 13