Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2012, Page 20

Dagblaðið Vísir - DV - 27.02.2012, Page 20
20 Sport 27. febrúar 2012 Mánudagur fyrir lífiðfjárfesting gluggar og hurðir Faris ehf. Gylfaflöt 16-18 112 Reykjavík s: 5710910 www.faris.is 10 ára ábyrgð Skoðaðu lausnir fyrir ný og eldri hús á faris.is Þ egar liðið er í svona gír þá erum við erfiðir,“ segir Sveinn Þorgeirsson, skytta nýkrýndra bikarmeistara Hauka í hand- bolta. Sveinn fór á kostum í bikarúrslitunum þar sem Haukar völt- uðu yfir Framara, 31–23. Hann skoraði átta mörk úr tíu skotum og spilaði góða vörn eins og hann er þekktur fyrir. Það bjuggust fáir við því að Sveinn myndi stíga upp og vera besti maður liðsins í leiknum en aðeins eru tvö ár síðan hann kom úr 1. deildinni. Hann starfar einnig sem yfirþjálfari Fjölnis og er þar að byggja upp ungt og efnilegt lið. Gaman að vera nálægt Aroni Framarar áttu aldrei möguleika í Hauka í bikarúrslitunum. Hauka- vörnin var eins góð og hún verður og þegar þannig er í pottinn búið fer fátt í gegn. „Vörn og markvarsla er okkar aðalsmerki. Aron var í stuði og vörnin funkeraði vel. Þegar liðið er að spila svona agaðan og ákveðinn bolta líður okkur vel. Maður hugsar bara um eina sókn í einu, eina vörn í einu og lítur svo á töfluna í lokin,“ segir Sveinn, en hversu stóran þátt í velgengni Hauka í vetur á þjálfarinn, Aron Kristjánsson? „Mjög stóran. Ég er sjálfur íþrótta- fræðingur og er að klára meistara- námið. Það er mjög gaman fyrir mig að vera í svona miklu návígi við þennan mann. Maður lærir af honum alla daga hvernig á að halda utan um svona hóp. Við erum með skemmti- lega blöndu af eldri leikmönnum eins og Birki Ívari og Frey, svo allt niður í 2. flokks kjúklinga,“ segir Sveinn. Kom að endastöð hjá Víkingi Sveinn er uppalinn Fjölnismaður og hóf að leika í úrvalsdeild með samein- uðu liði Fjölnis og Víkings sem fljótlega varð aftur bara Víkingur. Þar var hann ávallt á meðal bestu manna 1. deildar- innar, stórskytta og fantagóður varnar- maður. „Hugsunin var alltaf sú með verunni í Víkingi að fá að spila enda- laust mikið. Ég var með frábæra þjálf- ara þar eins og Róbert Sighvatsson og Reyni Reynisson. Þar fékk ég stórt hlut- verk og því sætti maður sig við að vera í 1. deildinni. Ég vildi taka mikla ábyrgð og fá að gera mín mistök,“ segir Sveinn. „Þegar ég skipti svo yfir í Hauka fyrir tveimur árum var kominn ákveðinn endapunktur á það ferli og þá þurfti ég að flytja mig upp um deild.“ Göfugt markmið í Grafarvogi Sveinn hefur ekki gleymt rótunum í Grafarvogi og starfar hjá Fjölni sem yfirþjálfari. Þar vinnur hann að mark- miðinu „Fjölnir 2014“ með Ragnari Hermannssyni en þeir stefna á að meistaraflokkur Fjölnis verði skipaður ungum heimamönnum sem hafi lengi spilað saman árið 2014. „Þetta verk- efni var smíðað utan um leikmenn sem ég var að þjálfa í sex ár. Við viljum koma þeim upp í meistaraflokk þann- ig að árið 2014 verði þar öflugur hópur stráka. Það er oft þannig að þegar það koma upp góðir leikmenn í litlu lið- unum éta stóru liðin þá upp. En við viljum halda þessum strákum saman og Raggi sér um það núna. Ég steig aðeins til hliðar en er að sýsla svona í kringum þetta,“ segir Sveinn. Mikilvægt að halda haus Sveinn segir að það verði erfitt verk- efni fyrir Haukana núna að koma sér niður á jörðina áður en liðið mæt- ir Val í N1-deildinni í næstu umferð en Valsmenn eru á mikilli siglingu. Sveinn fagnaði ekki lengi. Hann var mættur í vinnu að lokaverkefni sínu í HR þegar DV talaði við hann. „Þetta verður mikið verkefni, sérstaklega hugarfarslega að mæta rétt stemmd- ir gegn Völsurunum í næstu umferð. Þeir eru á blússandi siglingu og við þurfum aldeilis að eiga góðan leik til að vinna þá. Þetta er það jöfn deild,“ segir Sveinn en Haukarnir eru efstir í deildinni og stefna nú hraðbyri að þrennunni. Vinnur titla í Hafnarfirði – býr til lið í Grafarvogi n Sveinn Þorgeirsson ólíkleg hetja í bikarsigri Hauka á Fram n Er yfirþjálfari Fjölnis Meistaranemi og stórskytta Sveinn var frábær í bikarúrslitaleiknum. Mynd Eyþór ÁrnAson Sambandið slæmt Frank Lampard, miðjumað- ur Chelsea, viðurkennir fús- lega að samband sitt hans við knattspyrnustjórann Andre Villas-Boas sé ekki upp á það besta. Lamp- ard, sem er aðeins ári yngri en Villas-Boas, var bæði á bekknum í jafntefli gegn Birmingham í bikarnum og þegar Chelsea tapaði, 3–1, gegn Napoli í Meistaradeild- inni. „Það sjá allir að sam- bandið er ekkert sérstakt en það mikilvæga er að einblína ekki á sambönd einstakra leikmanna. Það verður bara neikvætt og við megum ekki hugsa of neikvætt,“ sagði Lampard við fréttamenn. „Það hafa verið ákveðin vandamál með vissa leik- menn sem við viljum nota. Það er samt ekki þannig að menn hugsi um sig frekar en félagið. Það eina sem við getum gert núna er að koma okkur áfram í Meistaradeild- inni, komast áfram í bik- arnum og ná fjórða sætinu í deildinni. Það yrði jákvætt og við þurfum jákvæða hluti núna,“ sagði Frank Lampard. Tómas Þór Þórðarson blaðamaður skrifar tomas@dv.is

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.