Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Qupperneq 6
6 Fréttir 30. maí 2012 Miðvikudagur
„Jörðin hvarf undan okkur“
n Fólkið sem hrapaði í Lágey:
H
ollenska konan, sem hrap-
aði með skriðu í Lágey Dyr-
hólaeyjar í síðustu viku
ásamt manni sínum, gekk
hryggbrotin eftir hjálp. Þetta kom
fram í viðtali við hana í kvöldfrétt-
um RÚV á þriðjudag en það var á
fimmtudag í síðustu viku sem þau
féllu 40 metra niður í fjöru með
hundrað metra breiðri skriðu úr
Lágey. „Jörðin bara hvarf und-
an okkur,“ sagði Irmgard Fraune
í samtali við RÚV en það þykir
kraftaverki næst að þau hafi kom-
ist lífs af.
Þau heyrðu háværar drun-
ur áður en skriðan féll en maður
Irmgard, Jeroen De Graf, sagðist
hafa verið farinn að kveðja þetta
líf þegar hann fann jörðina hverfa
undan sér. „Maður hafði einung-
is andartak til að íhuga hvað væri
að gerast. Ég man að jörðin gaf sig
undan okkur og þá kveður mað-
ur því maður heldur að þetta séu
endalokin,“ segir Jeroen sem var
illa fótbrotinn eftir fallið. Irmgard
reyndist vera hryggbrotin en hún
fann mikinn verk í baki þegar hún
ákvað að ganga eftir hjálp.
Það voru þýskir ferðamenn sem
náðu fyrst til þeirra en Jeroen sagð-
ist vera björgunarsveitarmönnum
ævinlega þakklátur fyrir hjálpina.
Árásin á Skúla Eggert Sigurz:
Ótrúlegt að
hann lifði af
Lögmaður Guðgeirs Guðmunds-
sonar óskaði eftir fresti fram á
fimmtudag til að fara yfir ákæruna
og taka afstöðu til hennar þegar
málið var þingfest í Héraðsdómi
Reykjavíkur á þriðjudag. Guðgeir,
sem leiddur var fyrir dóminn í
járnum, er ákærður fyrir tilraun til
manndráps með því að hafa veist
að Skúla Eggerts Sigurz, fram-
kvæmdastjóra lögmannsstofunn-
ar Lagastoðar, með hnífi í byrjun
mars síðastliðinn. Þá er hann
einnig ákærður fyrir hættulega
líkamsárás með því að hafa veist
að Guðna Bergssyni, lögmanni
og fyrrverandi knattspyrnukappa,
sem kom Skúla til bjargar. Guðgeir
stakk Guðna tvisvar í vinstra lærið.
Í ákæru málsins sem gerð var
opinber í kjölfar þingfestingar-
innar gefur að líta hversu alvarleg
árásin á Skúla var og hversu ótrú-
legt það er að hann hafi hreinlega
lifað hana af. Skúli hlaut 5 stungu-
sár í árásinni, víða um líkamann.
Gekk hnífurinn gegnum
þindina og í lungu bæði hægra
og vinstra megin, gegnum hægra
nýra, í lifur og í gallblöðru, missti
Skúli mikið blóð og þurfti að nota
um 50 lítra af blóði meðan gert var
að sárum hans.
Þá kemur þar fram að fjarlægja
hafi þurft hægra nýrað og gall-
blöðru Skúla auk þess sem bæði
lungu hans sködduðust, tvö göt
hafi komið á þind hans auk áverka
á lifur. Segir að fjögur hinna fimm
stungusára hafi verið lífshættuleg
ein og sér, þó aðrir áverkar hefðu
ekki komið til. Skúli krefst þriggja
milljóna í miskabætur og Guðni
rúmlega milljónar.
Þ
að verður að líta á slík glæpa-
samtök sem krabbamein í
samfélaginu sem eitri út frá
sér,“ segir Helgi Gunnlaugs-
son, prófessor í félagsfræði
við Háskóla Íslands og afbrotafræðing-
ur, um mótorhjólasamtök á við Hells
Angels, Black Pistons og MC Mongols.
MC Mongols hefur hingað til ekki
verið með starfsemi hér á landi, en nú
er leitað að meðlimum til að ganga í
samtökin hér á Íslandi. Lögreglan hef-
ur sérstakar gætur á nokkrum hópum
sem hún telur að tengist skipulagðri
glæpastarfsemi. Hún gerir greinar-
mun á vélhjólasamtökum og vélhjóla-
gengjum, en þau síðarnefndu eru talin
tengjast glæpastarfsemi. Alls eru taldir
vera 89 meðlimir í íslenskum vélhjóla-
gengjum.
Black Pistons, Hells Angels og MC
Mongols tilheyra svokölluðu „eina
prósentinu“, en það hugtak er notað
yfir þau samtök véhjólamanna sem
fara ekki að lögum og reglum – hin 99
prósent vélhjólaklúbbanna geri það
hins vegar.
Alls staðar fylgja glæpir
Helgi varar við því sé því ekki tekið al-
varlega af almenningi að slík samtök
nái fótfestu hér á landi. Helgi vísar í
rannsókn sem gerð var við Háskóla Ís-
lands þar sem niðurstöðurnar voru að
hvar sem slík samtök stinga niður fæti
fylgir slóð afbrota í kjölfarið. Alls staðar
tengist félagsmenn afbrotum af ýmsu
tagi. Þar kemur fram að það sé á tæru
að brotastarfsemi og meðlimir sam-
takanna fylgist að, alls staðar. Þar að
auki laðist einstaklingar sem séu með
brotasögu að samtökum af þessu tagi
og myndi þar hagsmunabandalög.
Helgi ítrekar að aldrei sé hægt að
segja að allir meðlimir samtakanna
tengist afbrotum, en þorri þeirra eigi
sér brotasögu að baki. „Þeir hópar
ungra karla sem líklegastir eru til að
ganga í samtök af þessu tagi eru iðu-
lega utanveltu og á jaðri samfélags-
ins – innan gengisins öðlast þeir
status og virðingu sem þeir fá ekki
annars staðar. Það eru yfirleitt þeir
sem lengst ganga gegn viðmiðum og
gildum samfélagsins sem verða leið-
togar og óttablandin virðing er borin
fyrir þeim,“ segir Helgi. Innan samtak-
anna fylgi ákveðinn stuðningur, með-
al annars ef meðlimir komist í kast
við lögin. Hann segir að það sé hægt
að sporna við fótfestu slíkra samtaka
á Íslandi. „Við höfum ágæta mögu-
leika á að koma í veg fyrir að þau nái
að festa sig í sessi, meðal annars með
því að draga úr aðdráttarafli samtak-
anna og gera það ekki eftirsóknarvert
að vera í þeim,“ segir hann og bend-
ir á að það sé meðal annars hægt að
gera með að veita hópnum sem sæk-
ir í samtökin betra aðhald svo að þeir
þurfi ekki að leiðast út á slíka braut.
Segjast ekki vilja „wannabe
gangstera“
Samtökin Black Pistons og MC Mon-
gols auglýsa um þessar mundir eftir
meðlimum á Facebook. MC Mongols
óska eftir nokkrum meðlimum, en
Black Pistons gefa ekkert upp um það
hversu marga þeir ætli sér að taka inn.
Black Pistons-samtökin segjast ekki
vilja „wannabe gangstera“ og segir að
viðkomandi þurfi „… helst að stunda
vinnu af einhverju tagi og vita að þetta
er ALL inn eða ekki.“ Þá segir einnig:
„Að lokum Black Pistons er mótor-
hjólaklúbbur og bræðralag, ekki
Skipulöggð [sic] glæpasamtök, hafið
það hugfast áður en sótt er um.“ Það
samrýmist þó ekki sögu Black Pistons
hér á landi, en sem dæmi má nefna
að forseti Black Pistons á Íslandi, Rík-
harð Ríkharðsson afplánar nú dóm
sem hann fékk síðastliðið haust fyrir
hættulega líkamsárás og frelsissvipt-
ingu. Talið er að um uppgjör innan
Black Pistons hafi verið að ræða.
Nálgast Ísland
Lögregla hefur talið að samtökin MC
Mongols séu að skjóta rótum hér á
landi. „Við vitum að þeir hafa verið að
þreifa fyrir sér hér á landi,“ segir Karl
Steinar Valsson aðstoðaryfirlögreglu-
þjónn sem vildi ekki gefa blaðamanni
upplýsingar um það hvort samtökin
hafi verið stofnuð formlega eða hver
væri forsprakki þeirra. Það má ætla af
auglýsingu MC Mongols á Facebook
að þeir ætli að ná fótfestu hérlendis á
næstunni. DV hefur heimildir fyrir því
að einstaklingur, sem hefur verið við-
loðandi hin ýmsu glæpasamtök hér á
landi og hefur áður tekið þátt í stofn-
un slíkra samtaka, ætli sér að verða
forsprakki samtakanna.
MC Mongols
skjóta rótuM
Komnir til landsins
MC Mongols leita að
meðlimum á Íslandi.
n Vélhjólagengi krabbamein í samfélaginu„… helst að stunda
vinnu af einhverju
tagi og vita að þetta er
ALL in eða ekki.
Þakklát Hollensku hjónin í viðtali við RÚV.
Sjávarútvegur
eyðilagður
Friðrik J. Arngrímsson, fram-
kvæmdastjóri Landssambands
íslenskra útvegsmanna, segir
að jafnvel með breytingatil-
lögum stjórnarliða á veiði-
frumvarpinu sé verið að eyði-
leggja íslenskan sjávarútveg.
„Til lengri tíma litið þá er þetta
nánast sama eyðileggingin,“ er
haft eftir honum á mbl.is. Hann
segir breytinguna felast í því að
65 prósent hagnaðarins verði
skattlögð, þegar frumvarpið
verður að fullu komið til fram-
kvæmda, í stað 70 prósent eins
og frumvarpið væri óbreytt.