Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Blaðsíða 27

Dagblaðið Vísir - DV - 30.05.2012, Blaðsíða 27
Fólk 27Miðvikudagur 30. maí 2012 „Ég skil þessa gagnrýni“ n Kveður „Dirty Nights“ og heldur Keflavík Music Festival M iðað við blómstrandi tónlistarlíf í bæn- um er hálfótrúlegt að það hafi aldrei ver- ið haldin tónlistarhátíð hér áður,“ segir Ólafur Geir Jóns- son sem stendur fyrir Keflavík Music Festival í júní. Óli Geir, eins og hann er þekktur, segist hafa fengið mjög góð viðbrögð við hátíðinni. „Alveg rosalega góð! Þarna verða frábær nöfn á borð við Retro Stefson, Valdi- mar og Klassart auk þess sem við höfum fengið yfir 200 um- sóknir frá böndum sem vilja vera með. Þarna verður öll flór- an svo það er pottþétt eitthvað fyrir alla auk þess sem ég á von á einu risastóru nafni í viðbót sem er þó ekki tímabært að nefna strax.“ Óli Geir hefur verið harka- lega gagnrýndur fyrir svoköll- uð Dirty Nights þar sem boð- ið var upp á undirfatasýningar, dansbúr, dansandi fáklæddar stelpur, erótískar kvikmyndir á breiðtjaldi og drykki sem gest- ir drukku af líkömum stúlkna. Gagnrýnin varð til þess að hann ákvað að draga sig út úr slíku. „Svo hefur maður bara þrosk- ast, bæði sem einstaklingur og líka í þessum bransa. Þegar maður var yngri fannst manni svona klámkvöld flott en í dag lítur þetta allt öðruvísi út fyrir mér. Ég skil þessa gagnrýni.“ Kærasta Óla Geirs heitir Ás- dís Lísa en parið hefur verið saman í þrjú ár. „Hún er dugleg að hjálpa mér við skipulagn- inguna á hátíðinni. Bæði hún og kærasta félaga míns sem vinnur með mér í Agent. Það er gott að eiga góða konu,“ segir Óli Geir og heldur áfram. „Mig langar bara að fara að taka að mér stærri og flottari verk- efni,“ segir hann en neit- ar að hann sé næsti Ein- ar Bárðarson. „Ég fer bara mínar eigin leiðir. Einar er toppgæi en ég er miklu flottari,“ segir hann hlæjandi. Hægt er að skoða dagskrá Keflavík Mu- sic Festival á Facebook. indiana@dv.is Smáauglýsingar smaar@dv.is sími 512 7004 Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00 BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900 M.BENZ C 200 KOMPRESSOR CLASSIC 06/2005, ekinn 86 Þ.km, sjálfskiptur, mjög fallegt eintak! Verð 2.390.000. Raðnr. 283563 - Bíllinn er á staðnum! KIA SORENTO EX 05/2007, ekinn 69 Þ.km, dísel, 170hö sjálfskiptur. Verð 3.290.000. Raðnr. 322093 - Jeppinn er á staðnum! FORD EXPLORER LTD 4X4 Árgerð 2006, ekinn 86 Þ.km, sjálfskiptur, leður, sóllúga ofl. Tilboðsverð 2.790.000. Raðnr. 283890 - Jeppinn er á staðnum! PORSCHE BOXSTER CONVERTIBLE Árgerð 2000, ekinn 112 Þ.km, sjálf- skiptur, leður ofl. Flottur í sum- arið! Verð 2.890.000. Raðnr. 135490 - Sportarinn er í salnum! M.BENZ CLS 500 AMG-útlit Árgerð 2005, ekinn 107 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Mjög flottur bíll! Verð 5.990.000. Raðnr. 250237 - Kagginn er í salnum! VW CARAVELLA 8 manna dísel sjálfskiptur. 07/2006, ekinn 230 Þ.km, webasto miðstöð. Fallegt eintak! Verð 3.290.000. Raðnr. 310015 Bíllinn er á staðnum og það er pláss fyrir alla! JEEP GRAND CHEROKEE LIMITED 4WD 5,7 HEMI Árgerð 2005, ekinn 112 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Verð 2.390.000. Raðnr. 322160 Jeppinn fallegi er á staðnum! AUDI A4 SEDAN 130 HÖ 11/2006, ekinn aðeins 54 Þ.km, sjálfskiptur, leður, sóllúga ofl. Verð 3.190.000. Raðnr. 380004 - Sá fallegi er á staðnum! VOLVO S60 TURBO 20V 02/2004, ekinn 112 Þ.km, sjálfskiptur, leður ofl. Verð 1.890.000. Raðnr. 322195 - Bíllinn var að koma í sölu! Tek að mér Hreinsa þakrennur, laga riðbletti á þökum, gluggaþvottur, hreinsa lóðir og tek að mér ýmiss smærri verkefni. Upplýsingar í síma 847-8704 eða á manninn@hotmail.com Funahöfða 1, 110 Reykjavík S. 567 4840 www.hofdahollin.is Minkapels til sölu, ný yfirfarinn Upplýsingar í síma: 898-2993 Beinteinn. Gerum tilboð í alla flutninga. Frysti- vagnar, malarvagnar, flatvagnar, gröfur ,kranabílar." Silfri ehf - s: 894-9690 PIAGGIO VESPA 125 cc 06/2008, ekið aðeins 1300 KM, mikið af aukahlutum, mjög fallegt hjól! Til- boðsverð 490.000 stgr. Raðnr. 116520 - Hjólið er í salnum! TOYOTA LAND CRUISER 90 01/2002, ekinn 198 Þ.km, dísel, sjálf- skiptur, 33“, grind, kastarar ofl. Virkilega fallegur! Verð 2.490.000. Raðnr. 310139 - Jeppinn fagri er á staðnum! SKODA OCTAVIA ELEGANCE 07/2004, ekinn 152 Þ.km, bensín, sjálfskiptur, álfelgur. Verð 1.090.000. Raðnr. 310152 - Bíllinn er á staðnum en varla lengi! Til leigu 3ja herbergja, 90fm efri hæð í litlu húsi 105 Rvk. Geymsla á lofti, aðgangur að þvottahúsi í kjallara og garður. Gæludýr velkomin. Reyklaus. Verð kr. 120.000- á mánuði án rafmagns og hita. Bakaábyrgð og meðmæli. Upplýsingar sendist á leiga105rvk@gmail.com Ný verkefni Óli Geir hefur kvatt klámkvöldin. KviKmyndaveisla á patreKsfirði n Gestir á Skjaldborgarhátíð á Patreksfirði skemmtu sér vel Þ að var gott veður og mikill fjöldi fólks lagði leið sína á hátíðina,“ segir Tinna Ottesen, einn aðstandenda Skjaldborgarhátíðarinnar sem haldin var á Patreksfirði yfir hvítasunnuhelgina. Tinna segir hátíðina hafa þroskast með hverju árinu, nú þegar hún hafi verið haldin í sjötta sinn hafi íbúar á nærliggjandi svæðum tekið virkan þátt. „Það er virkilega gaman að sjá hvernig hátíðin hefur þróast og hversu mikil þekking hefur orðið til á heimildamyndum. Íbúar hér í nágrenninu eru afar áhugasamir,“ segir hún. Mikið af kvikmyndagerðar- fólki lagði leið sína á hátíðina að vanda og skemmti sér sam- an í blíðu sólskini. Heimilda- myndir voru sýndar frá föstu- degi til sunnudags, boðið var upp á plokkfisk, haldin sjávar- réttaveisla og sveitaball. Þá fór fram hin árlega limbókeppni sem er orðin fastur liður há- tíðarinnar. Einn gesta var ljósmynd- arinn Friðrik Örn Hjaltested, sem myndaði stemninguna á hátíðinni og var reyndar sjálf- ur í aðalhlutverki í mynd vina sinna, Hafsteins Gunnars Sig- urðssonar og Huldars Breið- fjörð, Filmu. Í myndinni er Friðrik Örn í aðalhlutverki ásamt flækings- kettinum Filmu. Kvikmynda- gerðarmennirnir fylgdu hon- um og kettinum eftir í ferð þeirra eftir suðurströnd Ís- lands en Friðrik ætlaði sér að taka mynd af vitanum í Hroll- laugseyjum. „Þessi mynd kom mér fyllilega á óvart,“ segir Friðrik Örn sem var kampakát- ur með uppátæki vina sinna. Mynd hátíðarinnar var val- in af gestum, Hreint hjarta eft- ir Grím Hákonarson. Myndin fjallar um séra Kristinn Ágúst Friðfinnsson sem hefur verið prestur á Selfossi og nágrenni í 20 ár. Limbó Ragnar, kynnir hátíðarinnar, dró gesti í limbó með sérstaka limbó­ stöng Skjaldborgar. Spengilegur Jón Karl Helgason kvikmyndagerðarmaður sýndi sund­ bolatísku í lauginni auk kvikmyndar á hátíðinni. Hlé í Skjaldborgarbíó Hátíðin hefur vaxið ár frá ári með dyggum stuðningi bæjarbúa.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.