Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Page 10
F
yrr í sumar var gerð könnun á
viðhorfum heimilismanna á
Hrafnistu til vínveitingaleyfis
ins. Í ljós kom að yfirgnæfandi
meirihluti var hlynntur veitingu
leyfisins, eða 76 prósent. Þeir heim
ilismenn sem DV ræddi við á Hrafn
istu voru þó ekki á eitt sáttir um
hvort afgreiðsla víns væri breyting
til batnaðar.
Þekkir enga alkóhólista
á Hrafnistu
Jóna Stefánsdóttir er 86 ára göm
ul fyrrverandi afgreiðsludama. Hún
vill ekki sjá vín
sölu á Hrafn
istu. „Þetta er
elliheimili – ekki
krá. Það passar
ekki að vera með
vínveitingaleyfi
á elliheimili. Ef
einhver er veikur
fyrir þá er alltof
stutt að fara að fá sér einn,“ seg
ir Jóna sem tekur þó fram að hún
þekki engan alkóhólista á Hrafnistu.
Helga vill gleðja gesti
„Það er alltaf gott að fá sér smá
sérrí. Það er líka gott að geta glatt
gesti sem koma í
heimsókn,“ segir
Helga Jónsdótt
ir, fyrrverandi
sundlaugar
starfsmaður. Hún
kannast ekki við
neinn drykkju
vanda á meðal
heimilismanna.
Í sama streng taka vinkonur henn
ar á Hrafnistu, sem voru í vaxmeð
ferð á meðan þær ræddu við blaða
mann DV.
Á móti ofdrykkju
„Ég hef ekki orðið var við það og ég
álít svo ekki vera,“ segir Ingibjörg
Björnsdóttir, fyrrverandi barna
skólakennari, aðspurð hvort margir
heimilismenn glími við drykkju
vandamál. Hún segist eftir sem áður
engum treysta í
þessum efnum.
„Nema auðvit
að föður mínum.
Hann var trausts
ins verður þegar
kom að víni; ég
vissi það.“ Ingi
björg telur að
roskið fólk eins
og hún hafi ekkert með vín að gera
og því sé hún á móti vínveitingaleyf
inu. „Ég er fylgjandi hófdrykkju en
mótfallin ofdrykkju.“
Gaman að dansa
„Konan mín fær sér nánast aldrei
vín en finnst rosalega gott að fá sér
smá víndreitil
með matnum
og ég segi það
sama; það er gott
að geta sest nið
ur með kunn
ingja sínum og
fengið sér smá
léttvín eða bjór,“
segir Jóhannes
Ingibergsson, fyrrverandi sjómað
ur til fimmtíu ára og pípulagninga
maður í hjáverkum, um málið. Hann
kveðst aldrei sjá heimilismenn undir
verulegum áhrifum áfengis, jafnvel
þótt drykkja sé leyfileg á Hrafnistu.
„Menn fá sér stundum einn og einn
bjór hérna. Ég get ekki séð að það
hafi valdið vandræðum.“ Jóhannes
er að eigin sögn mikill dansáhuga
maður og segir dansiböll Hrafn
istu hafa farið vel fram, jafnvel þótt
þar hafi vín verið veitt. „Fólkið þarf
ekki nema einn drykk og þá eru
allir byrjaðir að dansa.“ Jóhannes,
sem varð níræður í maí, bendir líka
á, að ef einhver myndi missa sig í
gleði vínveitinga matsölunnar þá sé
Hrafnista gífurlega vel mannað öldr
unarheimili: „Hér er besta starfsfólk
í heimi sem gæti tekið á vandanum
af mikilli fagmennsku.“ Aðspurð
ur um ofangreind ummæli Gunnars
Smára segir Jóhannes: „Það verða
alltaf til menn sem vilja helst að fólk
megi ekki gera eitt né neitt.“
M
aður er kannski að bjóða
fólki hingað í mat og svo
getur maður ekki boð
ið þeim upp á smá létt
vín með. Það finnst mér
ekki gott,“ segir Þorgrímur Pálsson,
fyrrverandi sjómaður og heimilis
maður á Hrafnistu í Reykjavík. Fyrir
hugað er að bjóða upp á léttvín og
bjór í nýrri matsölu Hrafnistu sem
opnar í lok ágúst. Sitt sýnist hverjum
um þessi áform og eru skiptar skoð
anir meðal heimilismanna á Hrafn
istu. Blaðamaður fór á Hrafnistu á
dögunum og ræddi þar við heimilis
menn og forstjóra Hrafnistu.
Einu sinni séð drukkinn mann
„Ég hef bara einu sinni séð drukk
inn mann á Hrafnistu og ég er bú
inn að vera hérna í 10 ár,“ seg
ir Þorgrímur um það hvort hann
telji marga heimilismenn glíma við
drykkjuvandamál. Formaður SÁÁ,
Gunnar Smári Egilsson, hefur lýst
harðri andstöðu við veitingu vín
veitingaleyfisins. Hann segir á Face
booksíðu sinni: „Erlendar rann
sóknir sýna að 1/3 þeirra sem glíma
við áfengis eða lyfjasýki á efri árum
þróuðu sjúkdóminn með sér eft
ir að þeir hættu að vinna. Áfengi
er því hættulegra eldra fólki en því
sem yngra er; aukinn persónuþroski
nær ekki að verja fólk fyrir hættunni
(enda liggja orsök áfengis og lyfja
sýki ekki í þroskaskorti).“
Gunnar segir enn fremur að í
stað þess að opna bar á Hrafnistu
væri réttast að hefja vitundarvakn
ingu um gildi vímulausra efri ára.
Gamla fólkið ekki hellt fullt
Pétur Magnússon, forstjóri Hrafn
istu, er ósammála Gunnari Smára.
Hann segir að fjöldi drykkju
sjúklinga muni ekki aukast með
þessari breytingu. „Með þessu vín
veitingaleyfi verður engin sérstök
breyting á því. Hrafnista er heim
ili fólks og hér er að sjálfsögðu ekk
ert vínbann. Fólki er frjálst að kaupa
sér vín í ríkinu eða fá ættingja til
að kaupa fyrir sig. Það eru ákveðin
mannréttindi fólgin í því að fólk,
sem kemst ekki út á kaffihús sökum
hás aldurs, geti nálgast sambæri
lega þjónustu hjá okkur,“ segir Pétur
sem segir þó kjarna málsins vera eft
irfarandi: „Þetta snýst um valfrelsi
en ekki það að við ætlum að fara að
hella áfengi ofan í gamla fólkið.“
Pétur segir að bjórinn verði
einungis seldur á afgreiðslutím
um matsölunnar. Aðspurður hvort
heimilismenn geti keypt nokkra
bjóra rétt fyrir lokun og tekið með
sér upp á herbergi segir Pétur: „Já,
það væri örugglega hægt.“ Pétur
segir að lokum að hann hafi ferðast
um víða veröld og heimsótt þar
fjölmörg elliheimili. Langflest
þeirra hafi vínveitingaleyfi. n
10 Fréttir 25. júlí 2012 Miðvikudagur
Einn drykkur og
allir byrja að dansa
n Enginn drykkjuvandi á Hrafnistu n Heimilismenn vilja vín n Frelsi til að velja
„Þetta
snýst
um valfrelsi
Baldur Eiríksson
blaðamaður skrifar baldure@dv.is Kannast ekki við
drykkjuvanda
Sá drukkinn mann Þorgrímur Pálsson hefur verið á Hrafnistu í 10 ár. Mynd EyÞór ÁrnaSon
Með „barinn“ í
bakgrunni Pétur
Magnússon ætlar ekki
að hella áfengi ofan í
gamla fólkið.
Mynd EyÞór ÁrnaSon