Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Qupperneq 27
Fólk 27Miðvikudagur 25. júlí 2012
Smáauglýsingar
smaar@dv.is
sími 512 7004
Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00
BÍLALIND.is - Funahöfða 1 - 110 Reykjavík - S: 580-8900
TOYOTA AURIS TERRA DIESEL
11/2007, ekinn aðeins 82 Þ.km, dísel,
5 gíra. Verð 1.990.000. Raðnr. 103707 -
Smart og hagkvæmur á staðnum!
NISSAN X-TRAIL AUTO 09/2003, ek-
inn 113 Þ.km, bensín, sjálfskiptur, leður,
glertoppur ofl. Verð 1.390.000. Raðnr.
192653 - Sumarjeppinn er á staðnum!
FORD FOCUS TREND 09/2004, ekinn
aðeins 59 Þ.km, 5 gíra. Verð 1.070.000.
Raðnr. 322393 - Ákaflega snyrtilegur
bílL!
SKODA OCTAVIA AMBIENTE
COMBI 4X4 12/2003, ekinn 163 Þ.KM,
bensín, 5 gíra. Verð 850.000. Raðnr.
310312 - Sjóðheitur á staðnum!
CHEVROLET LACETTI STATION
09/2007, ekinn AÐEINS 29 Þ.km, 5 gíra.
Verð 1.599.000. Raðnr. 290098 - Þessi
var að koma!
YAMAHA FZ6 NAKED 07/2008,
ekinn 12 Þ.km, flott útlit og ástand!
Verð 1.190.000. Raðnr. 310322 - Hjólið
er í salnum!
CHEVROLET SUBURBAN 1500
4X4 Árgerð 2000, ekinn 158 Þ.km,
bensín, sjálfskiptur, flott eintak! Verð
1.990.000. Raðnr. 284484 - Sá stóri er
á staðnum!
AUDI A6 1,8L TURBO QUATTRO
06/2000, ekinn 200 Þ.km, sjálfskiptur,
ný tímareim ofl. Verð 1.390.000. Raðnr.
322334 - Þýskur eðalfákur!
VW GOLF TRENDLINE 04/2005,
ekinn 90 Þ.km, sjálfskiptur. Verð
1.190.000. Raðnr. 284321- Bíllinn var að
koma í sölu!
Tek að mér að hreinsa
þakrennur, laga riðbletti á þökum,
gluggaþvottur, hreinsa lóðir og tek að
mér ýmiss smærri verkefni. Upplýsingar í
síma 847-8704 eða á manninn@
hotmail.com
Funahöfða 1, 110 Reykjavík
S. 567 4840 www.hofdahollin.is
Flutningar
Gerum tilboð í alla flutninga. Frysti-
vagnar, malarvagnar, flatvagnar, gröfur
,kranabílar." Silfri ehf - s: 894-9690
HUMMER H2. Árgerð 2005, ekinn
53 Þ.km, sjálfskiptur, leður og fullt af
flottu skrauti! Verð 5.300.000. Raðnr.
310305 - Surturinn er á staðnum!
SUBARU LEGACY SPORT WAGON
06/2008, ekinn 99 Þ.km, sjálfskiptur,
álfelgur ofl. Verð 2.650.000. Raðnr.
310324 - Þessi flotti var að koma!
BMW Z4 M COUPE 07/2007, ekinn
49 Þ.km, 6 gíra, leður, umboðsbíll.
Verð 10.300.000. Raðnr. 310298 Sá
geggjaði er í salnum!
Tilboð
Nokia E51
Óska eftir notuðum Symbian
Nokia E51 síma í nothæfu ástandi.
Upplýsingar í síma 864-6223.
Til sölu vegna
flutninga Vandað
hjónarúm 160 cm breitt. Er frá
Svefni og heilsu. Chiropractor dýna.
Til afhendingar frá þriðjud. 24. Júlí
nk. Verð 60.000 kr Upplýsingar hjá
doriogmunda@gmail.com
Skartgripaverk-
stæði í eldhúsinu Ekki tilbúnir
fyrir Jón Gnarr
B
orgarstjórinn í Reykja-
vík er í opinberri
heimsókn í Færeyj-
um og notar tækifærið
til að taka þátt í gleði-
göngunni Faroe Pride sem
fram fer á föstudaginn. Borg-
arstjórinn vill þannig styðja
réttindabaráttu hinsegin fólks
í Færeyjum.
Í Færeyjum er umburðar-
lyndi gagnvart samkynhneigð
minna en hér á landi. Árni
Grétar Jóhannsson, fram-
kvæmdastjóri Samtakanna 78,
segir illa komið fyrir mann-
réttindum samkynhneigðra
Færeyinga og að hingað til hafi
þeir í flestum tilfellum flúið til
Danmerkur eða kosið að lifa í
leynd með sína samkynhneigð.
Heimsókn Jóns Gnarr skipti
því miklu máli. „Þjóðin virð-
ist skipt í sinni afstöðu og það
endurspeglast mjög á þinginu.
Réttindamál til að bæta stöðu
samkynhneigðra tapast með
naumum meirihluta,“ segir
Árni Grétar.
„Við höfum boðið Fær-
eyingum aðstoð. Félag hinseg-
in fólks í Færeyjum heitir LGBT
Føroyar og starf þess verið öfl-
ugt og borið árangur.
Færeyingar eru sú þjóð sem
er okkur næst, þetta eru bræð-
ur okkar og systur. Það skipt-
ir máli fyrir samkynhneigða
að vita af stuðningi okkar. Það
hefur vakið heimsathygli að
gagnkynhneigður karlmaður í
áberandi valdastöðu tekur þátt
í gleðigöngu hinsegin daga.
Þátttaka Jóns Gnarr komst í
fjölmiðla um allan heim og
auðvitað skiptir það miklu
máli í litlu samfélagi eins og
Færeyjum að hann taki einnig
þátt þar.“
n Réttindum samkynhneigðra í Færeyjum ábótavant
Hvað finnst Færeyingum?
„Skil ekki af
hverju hann
gerir þetta“
Poul Mohr, fyrrverandi
ræðismaður Íslendinga
„Mér finnst mjög gott að borgar-
stjórinn kemur í heimsókn en mér
líst ekki á það að hann taki þátt í
þessari göngu. Samkynhneigðir
hafa rétt á því að lifa sínu lífi í
friði, það er allt í lagi í mínum
heimi, en þeir eiga ekki að vera
að auglýsa það. Ég er á móti því.
Ég skil ekki af hverju hann gerir
þetta.“
Poul, sem var ræðismaður á
Íslandi í 24 ár, sagðist biðja að
heilsa Íslendingum. „Ég kann
mjög vel við Íslendinga og vil
biðja að heilsa þeim öllum, ég
hef unnið með þeim í mörg ár.
Borgarstjórinn er ágætur líka
en ég skil ekki hvers vegna hann
tekur upp á þessu.“
Hann segist finna fyrir almennri
andstöðu gegn þátttöku Jóns
Gnarr. „Ég finn fyrir því að fólk er
andsnúið því að hann nýti heim-
sókn sína til þess að taka þátt í
mótmælafundi. En unga fólkið,
það vill taka þátt, því það er lífleg
tónlist og skemmtiatriði.“
Mohr tekur fram að þrátt
fyrir að hann vilji ekki styðja við
gleðigönguna þá styðji hann í
sjálfu sér rétt samkynhneigðra.
„Allir eiga að gera eins og þeir
vilja sjálfir. Þetta er þeirra líf ekki
mitt líf.“
Færeyingar
ekki tilbúnir
Ónafngreind kona í Færeyjum
„Ég held að Færeyingar séu ekki
tilbúnir að sjá borgarstjóra Reyk-
víkinga ganga um borgina þeirra í
drag-búningi. Stór partur af ungu
fólki elst upp í kristnu samfélagi, er í
sértrúarsöfnuðum og þannig háttar.
Færeyingar eru ekki eins neikvæðir
og áður en þeir eru öðruvísi en
Íslendingar.
Ég held ekki að uppátækið eigi eftir
að vekja mikla athygli. Færeyingar
vita ekki hver hann er, hann hefur
ekki verið áberandi í umræðunni.“
Viðmælandi DV vildi ekki koma fram undir nafni af
ótta við að verða fyrir aðkasti
Finnst þetta
hressilegt
uppátæki
Jóhanna Nilsen
„Færeyingar eru svo langt á eftir
í þessari þróun. Það er ekki hægt
að bera þetta saman við stöðuna
á Íslandi. Maður hefur fylgst með
þessum í blöðunum. Gangan verður
ekki fjölmenn, hún hefur ekki
verið það síðustu ár. Það eru helst
samkynhneigðir og ættingjar þeirra
sem taka þátt. Mér finnst þetta
hressilegt uppátæki en því miður á
Færeyingum líkast til ekki eftir að
finnast það sama.“
Flott
framtak
Þóra Þóroddsdóttir
„Mér finnst þetta flott framtak.
Samkynhneigðir í Færeyjum fá
lítinn stuðning framámanna.
Ég veit að mér og þeim sem ég
umgengst finnst þetta í lagi og
þorra Færeyinga. Það eru helst
stjórnmálamenn sem setja sig
upp á móti samkynhneigðum og
þeir eru þá alltaf að hugsa um
næstu kosningar.“
„Það eru helst
stjórnmála-
menn sem setja
sig upp á móti
samkynhneigðum
Jón Gnarr Brá sér í drag
á Gay Pride á fyrsta emb-
ættisári sínu í Reykjavík til
að sýna stuðning sinn við
samkynhneigða í verki.
Réttindabarátta samkyn-
hneigðra Ástandið í Færeyjum
er líkt og það var hér á landi fyrir
40 árum þegar Kaupmannahöfn
var full af landflótta Íslendingum.