Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Side 16
Sandkorn
A
lþjóðlegu kortafyrirtækin
VISA og Mastercard eru á
hrikalegri braut þegar þau
leyfa sér í krafti stærðar og
einokunar að loka á við
skipti eftir geðþótta. Aðför alþjóð
legu kortarisanna að uppljóstrunar
samtökunum WikiLeaks er af þeirri
stærðargráðu siðleysis og ofbeldis að
fólk hlýtur að staldra við. Með einni
ákvörðun gerðu kortarisarnir út um
tekjumöguleika WikiLeaks sem fá
framlög sín í gegnum netið frá þeim
sem vilja styðja við bak þeirra sem
vinna að uppljóstrunum. Undirréttur
á Íslandi dæmdi WikiLeaks í hag. „Ég
vona að þetta verði tímamótadóm
ur og að Valitor hunskist til að una
dómnum, enda engin efnisrök til
að áfrýja,“ sagði Kristinn Hrafnsson,
talsmaður WikiLeaks, á Beinni línu
DV. Það er ástæða til að taka und
ir þetta með Kristni sem því miður
varð ekki að ósk sinni þar sem korta
risarnir hafa áfrýjað til Hæstaréttar.
Valdi fylgir ábyrgð. Ofbeld
isseggir kortafyrirtækjanna sem
stóðu fyrir banninu gera sér aug
ljóslega ekki grein fyrir því að þeir
eiga að vera í þjónustuhlutverki í
þágu almennings. Þeir eiga ekki að
láta pólitískar skoðanir sínar eða
væntingar hafa áhrif á dagleg störf
sín. Kortafyrirtæki á ekki, fremur en
bensínsjoppa, að vinna á pólitískum
nótum þótt almennt siðgæði eigi að
vera til staðar.
Saga VISA og hinna kortafyrir
tækjanna er vörðuð milligöngu um
alls konar vafasöm viðskipti. Með
milligöngu þeirra hefur verið hægt
að kaupa klám og menn hafa get
að komið sér upp vopnum. Þá hafa
kortafyrirtækin þjónustað haturs
samtök á borð við Ku Klux Klan. Og
þeir rísa gegn WikiLeaks sem hefur
aðeins gegnt þeirri skyldu sinni að
halda almenningi sem mest og best
upplýstum.
Ofbeldi VISA er grímulaus
þöggun til að stöðva upplýsingar
til almennings. Að vísu hefur Við
ar Þorkelsson, forstjóri Valitor á
Ísland, eiganda VISA, ekki mann
dóm til að viðurkenna að þarna sé
um að ræða þöggun. Hann þótt
ist ekkert vita um ástæðurnar. „En
við höfum enga sérstaka skoðun á
WikiLeaks,“ bætti hann við í sam
tali við RÚV, spurður um álit sitt á
WikiLeaks. Það er vonandi að VISA
tapi þessum málum víða um heim.
Það er nauðsynlegt að refsa mönn
um og fyrirtækjum sem grípa til
þöggunar með ofbeldi. Það má ekki
vera á valdi kortarisanna að ákveða
hvaða samtök eða fjölmiðlar lifa
eða deyja. Og það verður að koma
til kasta almennings og heiðarlegra
stjórnvalda til að tryggja að siðleys
ið haldi ekki áfram. Fólk verður að
standa við bakið á Kristni og félög
um hans hjá WikiLeaks.
Áfall Dögunar
n Brotthvarf Birgittu Jóns-
dóttur úr Dögun þykir vera
nokkurt áfall fyrir hin nýju
regnhlífarsamtök. Einn
helsti gallinn á flokknum
þykir vera sá hve litaður
hann er af ráðamönnum
Frjálslynda flokksins forna.
Það þykir þannig ekki sér
lega fallið til árangursríkra
atkvæðaveiða að vera með
Sigurjón Þórðarson í stafni.
Sigurjón hefur verið for
maður Frjálslynda flokksins
með þeim sýnilega árangri
að flokkurinn hvarf af þingi.
Rokkrúta læknisins
n Það er mikill hugur í
forsvarsmönnum Dögunar.
Flokkurinn hefur komið sér
upp rútu sem
rokkuð verð
ur upp og
merkt með
einkennum
flokksins. Í
september
er áform
að að halda í fundaherferð
hringinn í kringum landið.
Sá sem leiðir för er Lýður
Árnason, læknir og verð
andi frambjóðandi. Lýður
er jafnframt tónlistarmaður
góður og víst að hann mun
beita töfrum sínum til að að
freista þess að laða kjósend
ur til fylgilags við flokkinn.
Egill í sjóbaði
n Sjónvarpsmaðurinn Egill
Helgason lætur sér fátt fyrir
brjósti brenna. Hann stend
ur í ströngu stóran hluta
ársins í vinsælum sjónvarps
þáttum sínum. Að sumrinu
skellir hann sér gjarnan til
Grikklands þaðan sem hann
skrifar gjarnan kostulegar
lýsingar á Eyjubloggi sínu
af mannlífi og náttúru ytra.
Meðal þess sem hann fæst
við ytra eru sjóböð. „Það
er fátt sem ég veit hollara
og betra en að synda í sjó.
Þegar ég dvel í Grikklandi
reyni ég að fara á hverj
um degi í sjóinn og ég er oft
lengi þar úti,“ bloggar hann.
DNA Guðmundar
n Baráttujaxlinn og útgerðar
maðurinn Guðmundur Krist-
jánsson, sem kenndur er við
Brim, hefur
smám saman
verið að fóta
sig sem helsti
og magnað
asti talsmað
ur útgerðar
manna.
Guðmundur hefur yfir sér
blæ kímni og visku sem þyk
ir tilbreyting frá hörkunni og
áróðrinum sem þykir ein
kenna LÍÚ. Guðmundur er
upphafsmaður þeirra hug
myndar að senda makríl af
Íslandsmiðum í DNAgrein
ingu og skáka þannig Írum og
öðrum þeim sem þykjast eiga
þennan stofn. Milljarðahags
munir eru undir í málinu.
Ég get verið
fjósamaður
Ég á ekki að þurfa
að fara til Íslands
Hannes Bjarnason ætlar að flytja í skagafjörð. – DV Trausti Hraunfjörð fær ekki nýtt vegabréf og hefur verið fastur í Perú síðan 2009. – DV
Grímulaus þöggun VISA
„Ég vona
að Valitor
hunskist til að
una dómnum
Sannir Íslendingar
E
nginn er spámaður í eigin föð
urlandi. Sannir Íslendingar
sem aðhyllast hefðbund
in fjölskyldugildi eiga ekki í
nokkur hús að venda.
Öðru máli gegnir um Bandaríkja
menn. Annar af tveimur stærstu
flokkunum þar í landi stendur vörð
um hið gamla og góða. Repúblik
anar berjast gegn fóstureyðingum,
kynfrelsi kvenna, hjónaböndum
samkynhneigðra, aumingjabótum,
innflytjendum, veimiltítuskap á al
þjóðavettvangi og tekjujöfnun. Aftur
á móti beita þeir sér fyrir dauðarefs
ingum, kristilegum gildum, óheftri
byssueign og herskárri og töff utan
ríkisstefnu. Sönn karlmennska er að
alsmerki Repúblikanaflokksins.
Hér á Íslandi sárvantar slíkan
flokk. Hér eru aðallega lúðaflokkar –
og í besta falli hálfkákarar. Vart þarf
að minnast á Samfylkingu og Vinstri
græna, en því miður eru hin stjórn
málaöflin lítt skárri.
Framsóknarflokkinn á góða
spretti þegar kemur að kristilegum
gildum, innflytjendamálum og fé
lagslegri íhaldssemi. Og slagorðið
„Ísland í vonanna birtu“ hljómar vel.
En hvað hin réttlætismálin varðar eru
framsóknarmenn bölvaðar mjölkisur.
Sum hinna nýju framboða lofa
góðu. Formaður Hægri grænna hef
ur hvatt stjórnvöld til að draga úr
þróunaraðstoð og hjálpa frekar Ís
lendingum. Bjartsýnisflokkurinn
boðar „hófsama þjóðernishyggju“
og vill stöðva streymi innflytjenda til
landsins. Gott og blessað, en betur
má ef duga skal.
Sjálfstæðisflokkurinn fær nokkur
prik. Hann aðhyllist herskáa utan
ríkisstefnu, fílar NATO í botn og
studdi Íraksstríðið. Flokkurinn hafn
ar sósíalískri tekjujöfnun og á árun
um fyrir hrun var íslenska skattkerf
ið meira að segja hægrisinnaðra
en það bandaríska. Þá hafa eflaust
Sarah Palin og Mitt Romney öfund
að okkur. Sjálfstæðisflokkurinn hefur
beitt sér fyrir hagsmunum stóreigna
manna, einkavæðingu og frelsinu til
að græða á daginn og grilla á kvöldin.
En að öðru leyti einkennist hann af
hálfkáki. Kommon, hvar eru dauðar
efsingarnar og byssurnar?
Bæði á Íslandi og í Bandaríkj
unum tvinnast stjórnmálin og við
skiptalífið saman á undursamlegan
hátt. Því ber að fagna. En hugmynda
fræðilega séð eigum við langt í land
ef við viljum líkjast besta landi í
heimi. Íslendingar þurfa raunveru
legan valkost, flokk sem stendur
vörð um hefðbundin fjölskyldugildi
og karlmennsku. Sannir Íslendingar
sameinist!
Svarthöfði
Leiðari
Reynir Traustason
rt@dv.is
Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Ólafur M. Magnússon Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is)
Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is)
Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is
F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð
Heimilisfang
Tryggvagötu 11
Hafnarhvoli, 2. hæð
101 Reykjavík
FRéTTASkoT
512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis.
512 7000
512 7010
512 7080
512 7050
AÐALnúmeR
RiTSTJÓRn
ÁSkRiFTARSími
AuGLýSinGAR
16 25. júlí 2012 Miðvikudagur