Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Page 26

Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Page 26
26 Fólk 25. júlí 2012 Miðvikudagur Með fjölskylduna á Laugaveginum n Jennifer Connelly og Paul Bettany á Íslandi L eikkonan Jennifer Conn­ elly og eiginmaður henn­ ar Paul Bettany eru stödd á Íslandi en Connelly fer með hlutverk í stórmyndinni Noah sem er verið að taka upp hér á landi. Hjónin litu í búð­ ir á Laugaveginum á þriðjudag en þau voru þar ásamt börn­ unum sínum þremur. Conn­ elly og Bettany hafa verið gift frá árinu 2003 en þau léku saman í myndinni Beautiful Mind árið 2001. Í þeirri mynd fór einmitt Russell Crowe með aðal­ hlutverkið en hann er einnig staddur hér á landi eins og greint hefur verið frá. Hjón­ in komu hingað til lands fyrir helgi og hefur fjölskyldan látið lítið fyrir sér fara. Það sama verður ekki sagt um Crowe sem hefur verið ófeiminn að spóka sig á meðal almennings. Hann hefur til að mynda verið við æfingar í bardagaklúbbn­ um Mjölni líkt og DV greindi frá á mánudag. Þá hefur hann hjólað um alla Reykjavík en hann hefur verið duglegur við að greina frá dvöl sinni hér í gegnum samskiptavefinn Twitter.com. Fleiri stórstjörnur eru staddar hér á landi vegna Noah eða eru væntanlegar til landsins. Má þar nefna Ósk­ arsverðlaunaleikarann Anth­ ony Hopkins og Harry Potter­ stjörnuna Emmu Watson. Þá er rúm vika síðan sjálfur leik­ stjórinn, Darren Aronofsky, kom hingað til lands. Aðrar stjörnur hafa ver­ ið hér undanfarið og má þar nefna Ben Stiller og Flea, bassa leikara Red Hot Chili Peppers, en hann kom meðal annars við í Þórsmörk á með­ an á dvöl hans stóð. Þ etta er svona litla barnið mitt sem ég hef gert til hliðar við tón­ listina. Þar sem þetta varpar mynd á áhuga­ mál mín og persónulegar skoð­ anir,“ segir Steinunn Camilla söngkona úr The Charlies en hún opnaði í dag vefversl­ un þar sem hún selur skart­ gripi sem hún gerir í eldhúsinu heima hjá sér í Los Angeles. Hún er búsett þar ásamt þeim Ölmu Guðmundsdóttur og Klöru Elíasdóttur. „Þetta er lítið fyrirtæki og allt sem því tengist geri ég sjálf heima úr eldhúsinu okkar. Frá því að gera hvern skartgrip frá grunni að því að taka allar myndirnar og setja upp heima­ síðuna frá a til ö. Yfir í að pæla í hugmyndafræðinni á bak við hvern grip og tengja það við hluti sem hafa heillað mig í gegnum tíðina,“ en Steinunn segir gripina strax hafa vakið athygli í Hollywood. Steinunn á ekki langt að sækja hæfileikana. „Ég hef alltaf verið að hanna og búa til skartgripi enda kem ég af þremur kynslóðum gull­ smíðameistara, en foreldr­ ar mínir eiga verslunina Gull og silfur á Laugaveginum og því hefur skartgripagerð og hönnun ávallt verið stór partur af lífi mínu.“ Fyrirtæki Steinunnar heitir CarmaCamilla. Sem fyrr sagði opnaði hún vefverslun í dag en slóðin á hana er carmacamilla. com. Steinunn er með fjór­ ar mismunandi skartgripalín­ ur í gangi en þær heitia Liber­ ty, Phoenix, Spikefull og Isis. Eyrnalokkarnir úr Liberty­ línunni hafa verið þeir vinsæl­ ustu hingað til en hver þeirra heitir eftir fyrrverandi forseta Bandaríkjanna. Innblástur línunnar er sóttur í frelsisstytt­ una í New York en göddunum sem eru einkennandi í henni svipar til þeirra sem er að finna á krúnu styttunnar. „Eyrna­ lokkarnir er gerðir úr gödd­ um og eru vinsælasta línan hjá mér. Dans­ og tónlistarsenan hérna í L.A. er virkilega hrifin af þessu. Síðan hef ég fengið athygli frá tískuhúsum og ver­ ið boðið að selja þá í búðum hérna,“ en Steinunn segir hina ýmsu stílista einnig hafa sýnt þeim áhuga og fengið lánaða í myndatökur. „Sjálf hef ég notað lokkana þegar við höfum verið að koma fram, í myndböndun­ um okkar og í myndatökum.“ Steinunn segir áhugann fyrir eyrnalokkunum og tíð­ ar fyrirspurnir vegna þeirra vera ástæðuna fyrir því að hún ákvað loksins að fara alla leið með hönnunina. „Ég hef í raun ekki getað farið neitt án þess að fá fyrirspurnir um lokkana og í kjölfarið á því hafa stelpurnar og vinir mín­ ir hér hvatt mig til að setja upp verslun. Ég ákvað bara að kýla á það.“ asgeir@dv.is Skartgripaverk- stæði í eldhúsinu n Steinunn Camilla hannar skartgripi n „Litla barnið mitt“ Fjórar mismunandi línur Liberty, Phoenix, Spikefull og Isis. Mynd CarMaCaMillia.CoM Steinunn Camilla Hefur lengi hannað sitt eigið skart og fékk svo mikið af fyrirspurnum að hún opnaði netverslun. Mynd CarMaCaMillia.CoM Allt í plati Tónlistar­ og kvikmynda­ gerðarkonan Vera Sölvadótt­ ir plataði Facebook­vini sína upp úr skónum fyrir helgi þegar hún birti mynd af sér og frönskum vini sínum fyrir framan kapellu í Las Vegas og tilkynnti að nú væri hún gift. Mörgum brá eðlilega í brún og óskuðu henni var­ færnislega til hamingju með áfangann. Vinur hennar og samstarfsfélagi, Magnús Jónsson tónlistarmaður, sagðist hlakka til að hitta manninn í lífi hennar og sendi þeim kveðju sína. Vera gerði út um gabbið góða eftir helgi og sagði frá því að nú væri hún skilin og þeirri niðurstöðu var fagnað af vinum sem var ekki farið að standa á sama. Saman á Súðavík Glamúrfyrirsætan og móðirin Ósk Norðfjörð eignaðist sitt sjötta barn í júní síðastliðn­ um með kærasta sínum, frjálsíþróttamanninum Sveini Helga Elíassyni. Hann er töluvert yngri en Ósk, 23 ára gamall, en hann tók á móti barninu þeirra sjálfur heima hjá þeim. Eftirminnilegt er þegar Séð og heyrt greindi frá því, fyrr á þessu ári, að Sveinn kom Ósk á óvart og lét húð­ flúra nafn hennar á handlegg sinn og svo lét hann húðflúra nöfn barnanna hennar fimm á brjóstkassann. Skötuhjúin voru á Súða­ vík um helgina og fór vel á með þeim og sáust þau á labbi með hluta af stórfjöl­ skyldunni. Þórunn á faraldsfæti Söngdívan Þórunn Antonía Magnúsdóttir hefur verið á faraldsfæti. Hún var í London og síðan í Los Ang­ eles en hún hefur verið þar með vini sínum Dhani Harri­ son sem er sonur Bítilsins George Harrison, en hann gekk að eiga Sólveigu Kára­ dóttur í júní og Þórunn Ant­ onía söng í brúðkaupi þeirra. Þórunn Antonía hefur verið að gera það gott í tón­ listinni en hún fékk verð­ laun sem besta söngkon­ an á Hlustendaverðlaunum FM957 auk þess sem hún hefur fengið mikið lof fyrir lagið sitt Too Late á spænskri tónlistarsíðu, en hún var í efsta sæti á vinsældalista þeirra. Nýja plata Þórunnar, Star­Crossed, er nýkomin út en hún og Davíð Berndsen sömdu lögin á henni í sam­ einingu. Jennifer Connelly og Paul Bettany Spókuðu sig á Laugaveginum ásamt börnum sínum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.