Dagblaðið Vísir - DV - 25.07.2012, Side 29
C
ybill Shepherd er 62 ára og
hefur fundið ástina. Hún er
nú trúlofuð skartgripasalan-
um og sálfræðingnum And-
rei Nikolajevic. Cybill er tví-
fráskilin, var áður gift David Ford og
Bruce Oppenheim. Áður hafði hún
oft sagt frá því að hún hefði misst
trúna á sanna ást. „Ég hélt ég myndi
aldrei giftast aftur,“ sagði þessi fyrr-
verandi sjónvarpsstjarna þáttanna
Moonlighting. „Bónorðið var afar
rómantískt og hann fór á hnén,“ sagði
Cybill.
Fólk 29Miðvikudagur 25. júlí 2012
Endurnærir og hreinsar ristilinn
Í boði eru 60-150 töflu skammtar
+
Betr i apotekin og Maður l i fandi www.sologhei lsa. is
OXYTARM
Sól og
heilsa ehf
30
=
Losnið við hættulega
kviðfitu og komið maganum
í lag með því að nota náttúrulyfin
Oxytarm og 30 days saman120 töflu skammtur
days
detox
www.birkiaska.is
Bodyflex Strong vinnur gegn stirðleika
og verkjum í liðamótum og styrkir
heilbrigði burðarvefja líkamans.
2 hylki tvisvar á dag í tíu daga. Síðan er hægt
að minnka skammt í 2 hylki á dag. Inniheldur
hvorki laktósa, ger, glúten né sætuefni.
Bodyflex
Strong
www.birkiaska.is
Minnistöflur
Bætir skammtímaminnið. Nýtist
fólki sem er undir álagi og fæst
við flókin verkefni. Hentar vel
fyrir eldri borgara, lesblinda og
nemendur í prófum. Dregur úr
streitu, eykur ró og bætir skap.
www.birkiaska.is
Birkilauf (Betulic) hefur góð áhrif á bæði
vökvajafnvægi líkamans og húð, örvar
starfsemi nýrna og þvagfæra. Hraðar
efnaskiptum og losar vatn úr líkamanum,
dregur úr bólgum og afeitrar líkamann (detox).
Birkilaufstöflur
Mynduðu ástarleiki
n Minka Kelly í vanda
E
nn eitt kynlífsmyndbandið
virðist ætla að skjóta upp koll-
inum í Hollywood. Frá þessu
greinir TMZ en nú er það leik-
konan Minka Kelly sem er
í vanda. Greint er frá því að til sé 30
mínútna myndband með leikkon-
unni þar sem hún tekur upp ástarleiki
ásamt kærasta sínum. Myndbandið
er sagt „semi-professional“ og byggir
TMZ það mat sitt á því að myndatöku-
vélin er á þrífæti og tengd við sjón-
varpsskjá.
Ljóst er að myndbandið er meira
en 10 ára gamalt en Minka er 32 ára
í dag. Getgátur eru uppi um að hún
gæti jafnvel verið yngri en 18 ára og þá
varðar útgáfa þess við lög. Samkvæmt
heimildum TMZ dansar Minka og
syngur með laginu Never Say Never
með tónlistarkonunni Brandy en það
er á plötu sem kom úr tveimur vikum
áður en leikkonan varð 18 ára.
Minka Kelly Bætist hún í
hópinn með Paris Hilton, Kim
Kardashian og fleiri?
134 milljónir kusu
n Kristen Stewart hlaut heiðursverðlaun
E
nginn skyldi vanmeta mátt
unglinganna í kvikmynda-
iðnaði. Það kom í ljós á Teen
Choice Awards-hátíðinni sem
var haldin um liðna helgi.
134 milljónir táninga kusu upp-
áhaldsstjörnuna sína í kvikmynd-
um, sjónvarpi, tónlist, íþróttum og
tísku. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá FOX-sjónvarpsstöðinni
Það voru þau Demi Lovato og
Kevin McHale sem kynntu á há-
tíðinni og meðal þeirra fjölmörgu
sem fengu verðlaun voru Kristen
Stewart sem fékk heiðursverðlaun
hátíðarinnar.
Bieber-ást Youtube-stjörnurnar Sophia Grace Brownlee og Rosie McClelland fá
knús frá súperstjörnunni Justin Bieber.
Demi Lovato Tilbúin í slaginn. Sviðs-
búningur Demi var hálfógurlegur og hún
virtist bókstaflega klædd fyrir slagsmál.
Taylor Swift Taylor var ein
heitasta stjarna kvöldsins í hvítum
kjól frá Mariu Luciu Hohan.
Svala gengið Taylor Lautner, Kristen Stewart og Robert Pattinson eru öll dulúðug
á svip eins og sæmir stjörnum í kvikmyndum um vampírur.
Selena
Gomez
Selena
klæddist
bleikum,
einföldum
kjól frá
Dsqu-
ared2.
Flestar
stelp-
ur á
hátíðinni
klædd-
ust afar
stuttum
kjólum.
Lucy Hale Krúttlega
leikkonan úr The
Pretty Little Liars,
í sætum, rauðum
kjól frá Wes
Gordon.
Carly Rae
Jepsen Söng-
konan knáa og
ofurvinsæla
tróð upp á
verðlauna-
hátíðinni.
Klæddist
sum-
arlegri
stutt-
buxna-
dragt úr
smiðju
Lisu Ho
og Aldo-
sandölum.
Giftist á gamals aldri
n Cybill Shepherd er ekki dauð úr öllum æðum
Gerði garðinn frægan Cybill Shepherd
var ein af helstu stjörnum sjöunda og
áttunda áratugarins og þótti afbragðsgóð í
þáttunum Moonlighting.
Ástfangin á ný Það má finna
ástina á gamals aldri. Cybill
fann ástina á ný 62 ára gömul.