Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2012, Side 16
16 Fréttir 2.–4. nóvember 2012 Helgarblað
Þ
essir peningar sem um
ræðir voru ekki fengn
ir til fasteignaviðskipta í
Los Angeles. Þetta var bara
gjaldeyrisbrask, mjög einfalt gjald
eyrisbrask sem hleypur á milljörð
um. Ég er peð á taflborði; mér er
stýrt og stjórnað af öðrum mönn
um. Ég er ekki að draga úr eigin
ábyrgð á því að ég hef brotið lög.
Ég er búinn að standa í gjaldeyris
braski og ég er búinn að viður
kenna það fyrir lögreglunni, segir
Bóas Ragnar Bóasson, fyrrverandi
viðskiptafélagi Guðmundar Arnar
Jóhannssonar, fráfarandi fram
kvæmdastjóra Landsbjargar. Bóas
segist hins vegar aðeins hafa stýrt
hluta gjaldeyrisbrasksins sem um
tólf einstaklingar hafi tekið þátt í.
„Þetta eru allt nafntogaðir einstak
lingar og peningarnir sem notað
ir eru í þessu gjaldeyrisbraski eru
ekki illa fengnir: Þetta er ekki illa
fengið fé,“ segir Bóas.
Guðmundur Örn hætti sem
framkvæmdastjóri Landsbjargar í
vikunni eftir að Bóas Ragnar hafði
sett myndband á Youtube þar sem
meðal annars er spiluð hljóðupp
taka þar sem hann og Guðmundur
ræða um fjármagnsflutninga. Í
myndbandinu kemur fram að
Bóas telji að Guðmundur Örn hafi
notað stöðu sína hjá Landsbjörg til
að stunda gjaldeyrisbrask í gegn
um slysavarnafélagið.
Viðskipti með gjaldeyri
Bóas segir athafnamanninn Sigurð
Kolbeinsson, sem búsettur er í
Danmörku, Guðmund Örn Jó
hannsson og hann sjálfan hafa séð
um gjaldeyrisviðskiptin. „Ég hitti
Sigga í nóvember í fyrra og var með
milljónir króna í plastpoka. Í svona
viðskiptum vilja menn fá pening
ana sína í reiðufé, ekki með milli
færslum.“ Sigurður er gjaldeyr
ismiðlari hjá fyrirtæki sem heitir
Schneider Foreign Exchange sem
er með höfuðstöðvar í London.
Sjálfur er Sigurður búsettur í Kaup
mannahöfn þar sem hann starfar
í hótelbransanum. Bóas tiltekur
dæmi þar sem hann hafi látið Sig
urð og Guðmund fá fjármuni sem
voru hagnaður þeirra af viðskipt
unum.
Bóas segir að hægt sé að stunda
gjaldeyrisbrask með löglegum og
ólöglegum hætti. „Þú getur stund
að gjaldeyrisbrask með löglegum
og ólöglegum hætti. Ég hef verið
á grárri línu, ég get viðurkennt
það. Sums staðar hef ég farið yfir
þessa línu.“ Í viðtalinu við DV á
þriðjudaginn sagði Guðmundur
Örn að samræðurnar á mynd
bandinu snérust „í þessu tilfelli“
ekki um fjármagnsflutninga til og
frá Íslandi. „Það voru gjaldeyris
höft í gangi þegar Ísland hrundi
og það var gat í kerfinu […] Ég var
minn eigin herra á sínum tíma og
var í þessum viðskiptum. Ég var
minn eigin herra. Ég hef aldrei
verið dæmdur eða neitt slíkt og
ég er með hreint sakavottorð. Það
er í rauninni verið að taka af mér
djobbið,“ sagði Guðmundur Örn
við DV.
Ólafur Hauksson, sérstakur
saksóknari, sagði í viðtali við DV
á miðvikudaginn að umfjöllun af
því tagi sem fram kemur á mynd
bandinu kalli yfirleitt á athugun.
„En umfjöllun af þessu tagi kall
ar almennt séð nú yfirleitt á ein
hvers konar eftirgrennslan af hálfu
lögreglu,“ sagði Ólafur. DV hefur
ekki heimildir fyrir því hvort og þá
hversu langt sú athugun er komin.
Sór af sér aðstöðubrask
Í viðtali við DV á miðvikudaginn
sór Guðmundur Örn af sér að hafa
misnotað aðstöðu sína hjá Lands
björg til að stunda gjaldeyrisbrask.
Bar hann því meðal annars við að
hann hefði ekki verið orðinn fram
kvæmdastjóri Landsbjargar þegar
hljóðupptakan var gerð árið 2010.
„Ég sver af mér að hafa misnotað
stöðu mína hjá Landsbjörg.
Hvernig ætti ég að geta þvegið
peninga í gegnum Landsbjörg?
Þetta er absúrd. Þetta mál tengist
Landsbjörg ekki neitt en samt er
búið að draga félagið inn í þetta.
Ég er valinn sem skotmark af því
að ég er í viðkvæmu starfi hjá þess
um félagasamtökum.“
Bóas fullyrðir að samtalið sem
spilað er í myndbandinu hafi átt
sér stað í fundarherbergi Lands
bjargar í júní árið 2010 þar sem
Guðmundur Örn hafi starfað hjá
samtökunum um árabil sem verk
taki. Aðspurður segir hann að
staðhæfing í myndbandinu, sem
höfð er eftir Guðmundi Erni, um
að hann teldi sig vera kominn í
góða stöðu til að þvo peninga hjá
Landsbjörg, hafi fallið í samtali
þeirra á milli en að hann eigi ekki
upptöku af þeim orðum.
Þá sagði Guðmundur Örn að
hann og viðskiptafélagar hans
hefðu kært Bóas fyrir skjalafals
vegna fasteignaviðskipta í Los
Angeles upp á 170 milljónir króna.
Guðmundur Örn sagðist þá hafa
lagt sex milljónir í viðskiptin. Sagði
Guðmundur að Bóas hefði haft af
þeim þessar 170 milljónir króna.
„Þetta voru lánasamningar sem
við skrifuðum upp, þar sem okkur
var boðin mjög góð ávöxtun. Hann
var með ákveðna díla sem hann
kynnti fyrir okkur og sagðist vanta
fjármagn í þá. Við lítum svo á að
þetta hafi verið Ponzisvikamylla.“
Bóas segir hins vegar að hann
hafi ekki tekið þátt í fasteigna
viðskiptum með Guðmundi Erni
heldur aðeins „gjaldeyrisbraski“.
Hann segir jafnframt að Guð
mundur Örn hafi heldur ekki lagt
sex milljónir í gjaldeyrisbraskið
heldur „margfalt meira“.
Gjaldeyrisbrask
Deilan á milli Bóasar og Guð
mundar Arnar virðist því snúast
um peninga sem notaðir voru í
gjaldeyrisbrask en ekki fasteigna
viðskipti. Eftir orðum Guðmundar
Arnar að dæma telur hann að Bóas
hafi haldið þessum fjármunum
eftir. Á þessum forsendum hefur
Bóas verið kærður til lögreglunnar
á höfuðborgarsvæðinu. Um þetta
sagði Guðmundur Örn í samtali
við DV á þriðjudaginn: „Ég tapaði
þessum sex milljónum, plús það
að ég átti að fá í vexti. Við erum fé
lagar sem setjum peninga í þetta
sem við fáum ekki til baka,“ sagði
Guðmundur Örn.
Í viðtali við DV á miðvikudaginn
sagði Bóas Ragnar að handrukk
arar hefðu verið á eftir sér út af
deilunum um fjármunina sem við
skiptin við Guðmund Örn og Sig
urð snérust um. „Þeir hótuðu mér
bara. Þetta er afar óþægileg staða
sem ég er settur í. Það er verið að
segja mér að ég þurfi að borga
peninga til að fá vernd,“ sagði Bóas
Ragnar um samskipti sín við rukk
arana. Hann sagði þá hafa verið á
eftir sér í um tvo mánuði.
Segir markaðsstjóra Lands-
bjargar tengjast málinu
Þá vísar Bóas til tölvupósts frá því
í júní 2011 sem Guðmundur Örn
sendi til hans þar sem nafn Jóns
Inga Sigvaldasonar, markaðs og
sölustjóra Landsbjargar kemur
fram. Þar segir meðal annars: „Jón
Ingi hringir í þig á eftir og kemur á
þig pening. Þar sem mikið gengur á
á öllum vígstöðvum þætti mér gott
að hafa samskipti okkar á eftirfar
andi hátt ef þú ert sáttur við það.
40 milljónir þurfa að fara í gegnum
þig, 6 milljónir komnar til þín og
svo færðu 4 milljónir í dag. Þú tek
ur þinn hluta út af þessu jafnóðum
eða 1%. Á meðan þú ert úti þarf ég
að leggja inn á reikning hjá þér og
þú þarft að gefa mér upplýsingar
um það og bankareikning.“
Jón Ingi mun sjálfur hafa neitað
því að hafa átt í samskiptum eða
viðskiptum við Bóas, samkvæmt
heimildum DV.
Rætt um misnotkun á við-
skiptasamböndum
Í sama tölvupósti er vísað til þeirra
orða í tölvupósti Guðmundar
Arnar að Landsbjörg kaupi flug
elda af manni í Hong Kong og að
hægt sé að nota hann í viðskipt
in. Þar vísar Guðmundur Örn til
Jóns Inga: „Svo veistu af því að ég
er með þennan í Kína sem á fyrir
tæki í Hong Kong en hann tekur
1% fyrir sinn gjörning en er áreið
anlegur og hann klikkar ekki þar
sem Jón Ingi kaupir alla flugelda
af honum fyrir Björgunarsveitir,
á bak við það er 20 ára viðskipta
saga. Ef þú lendir í vandræðum þá
getum við notað hann.“
Þarna vísar Guðmundur Örn til
þess aðila í Hong Kong sem selur
Landsbjörg flugelda og að hægt
sé að nota þau viðskiptasambönd
Landsbjargar í viðskiptunum.
Hörður stjórnarformaður segir að
sá aðili sé Kínverji að nafni Shan.
Þegar ofangreindur tölvupóstur
Guðmundar Arnar, þar sem rætt
er um að nota flugeldasölu Lands
bjargar í viðskiptum, er lesinn upp
fyrir Hörð segir hann: „Ef þetta
reynist vera rétt sem þú ert að
segja mér núna þá eru menn bara
að nota viðskiptasambönd Lands
bjargar sjálfum sér til framdráttar.
,,Þetta var bara gjaldeyrisbrask“
n Nafntogaðir einstaklingar í gjaldeyrisbraski n Þingmaður Sjálfstæðisflokksins fékk Guðmund til Landsbjargar n „Þetta er ekki illa fengið fé“
Ingi Freyr Vilhjálmsson
fréttastjóri skrifar ingi@dv.is
„Ég er búinn
að standa í
gjaldeyrisbraski
og ég er búinn að
viðurkenna það
fyrir lögreglunni.
Bóas Ragnar Bóasson
„Ef ég hefði
vitað þetta
á sínum tíma þá
hefði hann aldrei
sest í þennan fram-
kvæmdastjóra-
stól.
Hörður Már Harðarson