Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2012, Page 24
24 Úttekt 2.–4. nóvember 2012 Helgarblað
„Við Viljum fá tækifæri“
Þ
ann 1. september 2013 taka
gildi lög um lágmarkshlutfall
kynjanna í stjórnum fyrir-
tækja. Markmið laganna
er að jafna hlut kynjanna í
stjórnum fyrirtækja.
223 konur vantar nú í stjórnir fyr-
irtækja samkvæmt þeim kröfum sem
lög munu gera til fyrirtækja um 40%
kynjakvóta. Emblur er félag kvenna
sem hafa lokið eða eru í MBA-nám-
inu í Háskólanum í Reykjavík og
þær hafa tekið saman lista yfir rúm-
lega 80 félagskonur sem gefa kost á
sér til stjórnarstarfa í fyrirtækjum.
„Við viljum fá tækifæri,“ segir Herdís
Þorvaldsdóttir, framkvæmdastjóri
Þyrluþjónustunnar og formaður
stjórnar Embla, sem segir í samtali
við DV að á listanum séu konur sem
séu bæði viljugar og telji sig hafa getu
til að starfa í stjórnum fyrirtækja.
Hefðin fyrir körlum löng
Herdís segist hafa fengið mikil og já-
kvæð viðbrögð víðsvegar að úr sam-
félaginu eftir að Emblur kynntu list-
ann og greinilegt að framtakið vakti
athygli þó hún hafi ekki heyrt af
neinni Emblu ennþá sem hafi verið
boðin stjórnarseta. „Við lítum á list-
ann sem verkfæri til að leiða saman
fyrirtæki og konur en svo taka þau
sjálf við ferlinu.“
Aðspurð um hvers vegna hún
telji stjórnir karla almennt fjölskip-
aðri körlum segir hún margar ástæð-
ur liggja að baki því, aðal ástæðan sé
þó bara vani, því nú sé nóg framboð
af hæfum konum. „Ég tel líka að það
hafi áhrif hvernig staðið sé að ráðn-
ingum í stjórnir, líklega er það ferli
ekki nógu faglegt. Þá held ég að inn
í þetta spili að í mörgum stórum fyr-
irtækjum séu karlæg gildi ríkjandi
hvort sem stjórnendur séu kvenkyns
eða karlkyns. Á meðan kvenlæg
gildi eru ekki samþykkt og meðtekin
sem gildi sem virka við stjórnun fyr-
irtækja, þá er á sama tíma ekki eins
augljós kostur að leita til kvenna eftir
sérfræðiþekkingu.“
Fjölbreytileiki skiptir máli
Herdísi finnst áhugavert að sjá hvort
lögin um kynjakvóta muni nú því
fram að jafna stöðu kynjanna og
hlutfall þeirra í stjórnunarstöðu.
„Ég held að fjölbreytileiki í stjórnum
skipti máli í því markmiði að bæta
stjórnarhætti. Það mun líklega taka
þónokkur ár áður en hægt verður að
greina einhvern árangur af lögunum
og þá verður spennandi að sjá hver
áhrifin verða á stjórnarhætti fyrir-
tækja og hvort aukið hlutfall kvenna
í stjórnum eigi eftir að smita nið-
ur á við í stjórnskipan fyrirtækisins
og jafnvel stuðla að bættri fyrirtækja
menningu.“
Sérstaða Embla
Hún nefnir að Emblur hafi ákveðna
sérstöðu í heiminum. „Það er ekki al-
gilt að það sé sérstakt „alumni“ fyr-
ir konur. MBA-námið sem við höfum
sótt í HR nýtur alþjóðlegrar viður-
kenningar og það er óvenju hátt hlut-
fall kvenna sem leggur námið fyr-
ir sig hér á landi. Í dag trúi ég að þær
séu í meirihluta. Það sem við viljum
benda á í Emblunum er að við erum
útskrifaðar úr þessu námi og erum
þar af leiðandi mjög hæfar til að vera
í stjórnum fyrirtækja. Og viljum tæki-
færi.
Það er fullt af flottum konum sem
eru reiðubúnar til starfa og þarna
erum við með allar upplýsingar, svo
það ætti ekki að vera nokkur vandi
að ná sambandi við okkur. Félag
kvenna í atvinnurekstri er einnig
með lista af hæfum konum til stjórn-
arsetu og ég hvet aðrar konur sem
vilja gefa kost á sér í stjórnir fyrir-
tækja til þess að vekja athygli á sér,“
segir Herdís.
Vantar konur í stjórn
Í þeim sama skóla og Emblur hafa
sótt nám í til að verða gjaldgengar í
stjórnir og stjórnunarstöður hallar
á konur í stjórn. Í Háskólanum í
Reykjavík ehf. eru nú 6 karlar í há-
skólaráði og 2 konur. Ein kona er
varamaður og einn karl.
Formaður háskólaráðs er Finnur
Oddsson, sem er jafnframt fram-
kvæmdastjóri sjálfseignarstofnunar
Viðskiptaráðs Íslands um Viðskipta-
menntun, sem er stærsti hluthafi
HR. Finnur bendir á að hlutfallið í
háskólaráði HR sé gott miðað við
hvernig staðan sé almennt. „Há-
skólaráðið er skipað af SVÍV, Samtök-
um atvinnulífs og Samtökum Iðnað-
ar. Í dag er það þannig að 3 af 10 í
háskólaráði eru konur. Það vantar
því að minnsta kosti eina miðað við
þau lög sem taka gildi 2013,“ útskýr-
ir Finnur og bætir við að slík breyting
verði á stjórn á næsta ári.
Kynjahlutfallið ójafnt
Spurður hvort það skjóti ekki skökku
við að kynjahlutfallið sé ójafnt í
þeim sama skóla og markaðsset-
ur nám til stjórnarstarfa og er fjöl-
setið af konum, segir Finnur svo ekki
vera. „Við skipan háskólaráðs hefur
verið lögð áhersla á að tryggja fjöl-
breytni, þá sérstaklega með tilliti til
þeirra fag sviða sem skólinn sérhæf-
ir sig í. Þau eru tæknigreinar, við-
skipti og lög. Að auki er mikið lagt
upp úr því að í háskólaráði sitji fólk
með þekkingu á skólastarfinu, hafi
reynslu af framhaldsnámi og rann-
sóknum, sem nemendur eða starfs-
menn. Svo er tæpast eftirsóknarvert
að umbylta stjórnum á stuttum tíma.
Þar sem þessi lög hafa verið sett hef-
ur verið gefinn rýmri tími en hér, sem
er heldur naumur. Aðalatriðið er að
háskólaráð sé sterkt og endurspegli
fjölbreytt sjónarmið, sem það ger-
ir nú. Jafnt hlutfall kynja er vissulega
einn þeirra þátta fjölbreytni sem við
horfum til, en ekki sá eini.“
Skortur á upplýsingum
Finnur er hrifinn af framtaki
Emblanna. Helsti vandinn við að finna
konur í stjórn sé skortur á upplýsing-
um. „Mér finnst yfirleitt allt sem þær
gera flott og það á við um þetta fram-
tak þeirra. Eitt af því sem stendur í vegi
þess að okkur takist að jafna kynja-
hlutföll í stjórnum er skortur á upplýs-
ingum. Fyrirtæki þurfa að geta nálg-
ast upplýsingar um eftirsóknarverðar
stjórnarkonur án skuldbindingar. Til
að mynda hjá ráðningarmiðlun,
Emblurnar vekja athygli á þessum
skorti á upplýsingum og það er vel.“
Hverjir falla
undir kröfu
um lágmark
40 prósent
Hlutafélög
Á við félög þar sem starfa fleiri en
50 starfsmenn að jafnaði á árs-
grundvelli. Hvort kyn skal eiga
fulltrúa í stjórn þegar stjórn er
skipuð þremur stjórnarmönnum.
Séu stjórnarmenn fleiri en þrír
skal tryggt að hlutfall hvors kyns
sé ekki lægra en 40%. Sama gild-
ir um kynjahlutföll varamanna
en hlutföllin í stjórn og varastjórn
skulu þó í heild vera sem jöfnust.
Einkahlutafélög
Á við félög þar sem starfa fleiri en
50 starfsmenn að jafnaði á árs-
grundvelli. Ef stjórnarmenn eru
tveir eða þrír skal hvort kyn eiga
fulltrúa í stjórn en ef stjórnar-
menn eru fleiri en þrír skal hlutfall
hvors kyns ekki vera lægra en 40%.
Sama gildir um kynjahlutföll með-
al varamanna en hlutföllin í stjórn
og varastjórn skulu þó í heild vera
sem jöfnust.
Opinber hlutafélög
Á við félög þar sem starfa fleiri en
50 staSkiptar skoðanir
Skoðunarfyrirtæki sem sérhæfa
sig í skoðun ökutækja eru ósátt við
svokallaða samanburðarskoðun
Umferðarstofu.
50 starfsmenn að jafnaði á árs-
grundvelli. Hvort kyn skal eiga
fulltrúa í stjórn þegar stjórn er
skipuð þremur stjórnarmönnum.
Séu stjórnarmenn fleiri en þrír
skal tryggt að hlutfall hvors kyns
sé ekki lægra en 40%. Sama gild-
ir um kynjahlutföll varamanna
en hlutföllin í stjórn og varastjórn
skulu þó í heild vera
sem jöfnust.
Lífeyrissjóðir
Gildir um alla lífeyr-
issjóði óháð starfs-
mannafjölda. Hvort kyn
skal eiga fulltrúa í stjórn. Ef stjórn-
armenn eru fleiri en þrír skal hlut-
fall hvors kyns ekki vera lægra en
40%. Sama gildir um kynjahlut-
föll meðal varamanna en hlutföll-
in í stjórn og varastjórn skulu þó í
heild vera sem jöfnust.
n Vantar 223 konur í stjórnir til að 40% kynjakvóta verði náð að ári n 80 konur bjóða sig fram til stjórnarsetu n „Enginn hefur haft samband“
„Fyrirtæki þurfa að
geta nálgast upp-
lýsingar um eftirsóknar-
verðar stjórnarkonur án
skuldbindingar.
Hver er hinn
íslenski stjórn-
armaður?
n 51–60 ára karlmaður
n Viðskiptafræði-
menntaður og hefur
lokið framhaldsnámi í
háskóla
n Fær greitt 50.00–
150.000 kr. á mánuði
n Situr í einni stjórn í dag og hefur verið
eitt ár í stjórninni
n Hefur setið í 10 eða fleiri stjórnum á
starfsferli sínum
n Telur sig þekkja lagalega ábyrgð sína
n Er framkvæmdastjóri/forstjóri að
aðalstarfi
n Telst vera óháður stjórnarmaður
n Nýtir sér handbók stjórnarmanna
og leiðbeiningar um stjórnarhætti
fyrirtækja.
Gögn og tölfræði:
Berglind Ósk Guðmundsdóttir, lögfræðing-
ur á fyrirtækjasviði KPMG
n Menntun: MBA, BS í Alþjóðavið-
skiptum.
Stjórnarseta: Mannréttindaráð
Reykjavíkurborgar, Leikskóla-
ráð Reykjavíkurborgar, Myndstef,
Hönnunarsjóður Auroru, Yoga
Shala, UN Women, Ólöf ríka ehf.,
V-dagssamtökin, Eskimo Models
Russia.
Fyrri starfstitlar: Fram-
kvæmdastjóri, verkefnastjóri
ráðgjafi, stofnandi og eigandi fyrir-
tækja, þáttastjórnandi.
Hvers vegna fórstu í MBA-nám
í HR?
„Það heillaði mig hversu alþjóð-
legt námið er og ég nýtti mér það
að vera eina önn í CEIBS í Shang-
haí í Kína.“
Hvað finnst þér um að konur
séu í minnihluta í stjórn HR?
„Skólinn hlýtur að sjá tækifærið
sem felst í því að hafa jöfn kynja-
hlutföll í stjórn. Það skilar betri ár-
angri.“
Hvernig svarar þú símtalinu
sem þú færð vonandi brátt
og þér verður boðið í stjórn
fyrirtækis?
„Allar sem eru á listanum ætla
væntanlega að segja já, til
þess er þetta nú gert.“ n
Jafnari hlutföll – betri árangur
n Þórey Vilhjálmsdóttir framkvæmdastjóri
Kristjana Guðbrandsdóttir
blaðamaður skrifar kristjana@dv.is
Hefðin fyrir körlum „Hefðin fyrir því að karlar sitji í stjórnum fyrirtækja er löng og það er
ekki leitað út fyrir karlamenninguna í leit að konum til stjórnarsetu,“ segir Herdís Þorvalds-
dóttir formaður stjórnar Embla og framkvæmdastjóri Þyrluþjónustunnar. Mynd SigtRygguR ARi
Löggjöf um kynjakvóta
Löggjöf um kynjakvóta í stjórnum lífeyrissjóða
Staða lífeyrissjóða 1.9 2012 1.1 2012
Fjöldi lífeyrissjóða í Landssamtökum lífeyrissjóða 31 32
Fjöldi lífeyrissjóða sem nú þegar uppfylla skilyrðin 13 13
Hlutfall lífeyrissjóða sem nú þegar uppfylla skilyrðin 42% 41%
Fjöldi lífeyrissjóða sem uppfylla ekki skilyrðin 18 19
Hlutfall lífeyrissjóða sem uppfylla ekki skilyrðin 58% 59%
Fjöldi kvenna sem vantar í stjórnir 21 29
Fjöldi karla sem vantar í stjórnir 1 1
n Núverandi kynjahlutfall er 33% konur og 67% karlar
n Kynjahlutfallið 2011 var 28% konur og 72% karlar
n Kynjahlutfallið 2010 var 26% konur og 74% karlar
Löggjöf um kynjakvóta í stjórnum fyrirtækja
Staða þeirra fyrirtækja sem falla undir löggjöfina 1.9 2012 1.1 2012
Fjöldi fyrirtækja sem falla undir löggjöfina 321 285
Fjöldi fyrirtækja sem nú þegar uppfylla skilyrðin 152 128
Hlutfall fyrirtækja sem nú þegar uppfylla skilyrðin 47% 45%
Fjöldi fyrirtækja sem uppfylla ekki skilyrðin 169 157
Hlutfall fyrirtækja sem uppfylla ekki skilyrðin 53% 55%
Fjöldi kvenna sem vantar í stjórnir 202 192
Fjöldi karla sem vantar í stjórnir 2% 1%
Konur í stjórnum fyrirtækja sem falla undir löggjöfina 21% 20%
n Félag sem greiddu fleiri en 50 starfsmönnum laun á ársgrundvelli miðað við stað-
greiðsluskrá í lok árs 2010 og 2011.
n Upplýsingar um stjórnarmenn fengnar hjá Creditinfo og miðast við skráða aðalmenn í
stjórn í árslok 2011 og 1. september 2012.