Dagblaðið Vísir - DV - 02.11.2012, Side 52
52 Fólk 2.–4. nóvember 2012 Helgarblað
Hvað er að
gerast?
2.–4. nóvember
Föstudagur02
nóv
Laugardagur03
nóv
Sunnudagur04
nóv
Aukasýning á
Nýjustu fréttum
Nýjustu fréttir er nýtt
íslenskt brúðuleik-
húsverk fyrir fullorðna.
Verkið fjallar um áhrif frétta
á einkalíf okkar en flest byrjum við
daginn á því að stinga okkur í samband
við umheiminn með því að kveikja á
útvarpi, sjónvarpi, tölvu eða með því að
opna dagblað. Það er VaVaVoom-leik-
hópurinn sem stendur fyrir sýningunni
í samstarfi við Þjóðleikhúsið og er hún
styrkt af mennta- og menningarmála-
ráðuneytinu. Verkið er spunavinna og
tekið er á efninu á gamansaman og
myndrænan hátt.
Þjóðleikhúsið 17.00
Útgáfutónleikar
Friðriks Ómars
Fyrsta sólóplata
Friðriks Ómars
með einungis
frumsömdu efni
kom út 1. nóvem-
ber og af því tilefni
verða útgáfutónleik-
ar í Hamraborg í Hofi á
laugadagskvöldið. Friðrik flytur efni af
plötunni ásamt hljómsveit í glæsilegri
umgjörð. Platan heitri Outside the Ring
en titillag hennar er þýðing Jóns Óttars
Ragnarssonar á ljóði Steins Steinars,
Utan hringsins.
Hof Akureyri
21.00
Ást í Þjóðleikhúskjallaranum
Ólafía Hrönn Jónsdóttir
og Tómas R. Einarsson
leiða saman hesta
sína í nýjum ein-
leikskabarett. Þar
segir frá söngkonu
á miðjum aldri
sem hefur upplifað
margt ástarævintýrið
en einnig þurft að kljást við ótrygga
elskhuga. Hún bregður sér í ýmis gervi
og hlutverk, jafnt karla sem kvenna.
Í sýningunni hljóma lög af geisladiski
Ólafíu og Tómasar, Kossi, ásamt nýjum
lögum. Titillag sýningarinnar, Ástin,
hlaut Íslensku tónlistarverðlaunin sem
Jazzverk ársins 2004.
Þjóðleikhúskjallarinn 22.00
Sigur Rós á
Airwaves
Tónleikar
Sigur Rósar
eru hluti af
Airwaves-tón-
listarhátíðinni
og fara fram
á síðasta degi
hátíðarinnar en þetta
eru fyrstu tónleikar þeirra á Íslandi í
fjögur ár. Það er ekki skilyrði að eiga
miða á Iceland Airwaves því tónleik-
arnir eru öllum opnir. Vert er þó að taka
fram að miðahafar á Iceland Airwaves
verða að kaupa miða á tónleikana
aukalega. Sigur Rós er með nýja plötu
í farteskinu sem ber heitið Valtari og
munu Sigur Rósarmenn spila efni af
nýju plötunni auk eldra efnis úr sínu
stóra safni.
Laugardalshöll 19.00
Minningartónleik-
ar í Salnum
Kári Þorleifsson
var nemandi í
Tónstofu Valgerðar
frá átta ára aldri og
lék enn fremur með
Bjöllukór Tónstofunnar
frá stofnun hans 1997 til dauðadags
en hann andaðist 16. mars 2011, á 29
ára afmælisdegi sínum. Á tónleikunum
mun Bjöllukórinn leika ásamt öðrum
nemendum Tónstofunnar og gestum,
og sýndar verða upptökur af jóla- og
vortónleikum þar sem Kári kom fram.
Salurinn 15.00
„Við erum eins
og gömul hjón“
n Hitti unnustann í fyrsta skipti eftir tíu mánaða samband
n Líður eins og þau hafi alltaf þekkst n Hafa rætt um brúðkaup
É
g er bara í skýjunum. Ég bara á engin orð til lýsa
því hvað mér líður vel og hvað ég er hamingju-
söm,“ segir Helena Björk Þrastardóttir sem
hitti Augustine Bernard Quillia, kærasta sinn
til rúmlega tíu mánaða, í fyrsta skipti um síðustu
helgi. Augustine hefur verið búsettur á Manhattan
í New York en parið kynntist í gegnum Facebook í
nóvember í fyrra. Eftir að þau höfðu talað saman á
netinu í mánuð spurði Helena hvort hann vildi vera
kærastinn hennar. Augustine vildi það endilega og
þau hafa verið saman síðan, trúlofuðu sig í júlí og
nú er hann kominn til Íslands – loksins.
Skiptust á náttfötum
Helena var í viðtali í DV í sumar, skömmu eftir trú-
lofunina, þar sem hún lýsti því hvernig þau héldu
sambandinu gangandi án þess að hittast. Samskipt-
in fóru að mestu leyti fram í gegnum samskiptafor-
ritið Skype þar sem þau áttu reglulega stefnumót
hvort í sínu landinu. „Við sofum samt stundum
saman. Kveikjum á tölvunni og förum bæði að
sofa. Við reynum að gera allt sem við mögulega
getum. Ég sendi honum bol sem ég svaf í og hann
sendi mér bol þannig að við gátum fundið hvern-
ig við lyktum og svona. Það er allt mögulegt,“ sagði
Helena í samtali við DV í júlí. Þá hafði verið tekin
ákvörðun um að Augustine kæmi hingað til lands
seinna á árinu.
Hélt þetta yrði meira mál
„Þetta er eins og í draumi, eftir allan þennan tíma,“
segir Helena hlæjandi. Blaðamaður náði tali af
henni þar sem hún og unnustinn sátu saman í eld-
húsinu hennar á Ísafirði og drukku morgunkaffi,
ástfangin upp fyrir haus.
Helena viðurkennir að hún hafi verið dálítið
stressuð á sunnudaginn þar sem hún beið í Leifs-
stöð eftir því að hitta unnustann í fyrsta skipti. „Ég
hélt að þetta myndi verða meira mál. En svo þegar
hann birtist þá var þetta bara eins og við hefðum
alltaf þekkst. Þetta var ekkert vandræðalegt, ekkert
skrýtið og ég þarf ekkert að tipla á tánum í kring-
um hann. Ég get bara verið eins og ég er. Engir leikir
eins og svo oft fylgja nýjum samböndum. Við erum
bara eins og gömul hjón. Ótrúlega hamingjusöm.“
Líst vel á Ísland
Parið keyrði vestur á þriðjudag eftir að hafa eytt
tveimur dögum í Reykjavík þar sem Helena sýndi
honum helstu ferðamannastaðina. Vetur konungur
er aðeins farinn að gera vart við sig víða um land og
veðrið var ansi hráslagalegt á leiðinni vestur. Helena
segir Augustine þó bara hafa þótt það spennandi.
Hann hafi tekið margar myndir á leiðinni og lítist
strax vel á Ísland.
Þegar blaðamaður ræddi við Helenu á miðviku-
dag var Augustine varla búinn að sjá Ísafjörð – stað-
inn sem hann kemur til með að búa á, að minnsta
kosti næstu þrjá mánuðina. Þau komu í bæinn seint
á þriðjudagskvöld þegar komið var myrkur og fóru
fljótlega að sofa. Á dagskránni á miðvikudag var því
skoðunarferð um bæinn. „Ég er samt með rosa-
legt útsýni úr glugganum hjá mér og hann er búinn
að standa og dást að umhverfinu. Það er líka smá
munur fyrir hann að koma í svona náttúru frá Man-
hattan þar sem er svo mikil traffík og mikið af fólki,“
segir Helena.
Hafa rætt giftingu
Augustine ætlar að dvelja á Íslandi í þrjá mánuði til
byrja með, en þar sem hann er Bandaríkjamaður
þarf hann að fá dvalarleyfi til að vera hér leng-
ur í einu. „Hann ætlar að vera hjá mér í fulla þrjá
mánuði, eins og hann má, og svo fer hann aftur
heim. Hann þarf hvort eð er að ganga frá ýmsum
hlutum heima hjá sér í New York. En svo ætlar hann
að koma aftur og þá finnum við út úr því hvernig
hann getur fengið dvalarleyfi. Mögulega giftum við
okkur bara,“ segir Helena glaðlega. „Okkur líður svo
vel saman,“ bætir hún við.
Þau hafa velt þeim möguleika alvarlega fyrir
sér að gifta sig og Helena er nú þegar komin með
trúlofunarhring á fingur sér, eins og lofaðri konu
sæmir. Þau ætla þó að bíða aðeins með svo stóra
ákvörðun og sjá hvernig sambandið þróast næstu
þrjá mánuðina.
„Ég er bara ógeðslega hamingjusöm og hann er
það líka. Hann lætur mig alveg vita að hann sé glað-
ur og sáttur. Hann er svo góður við mig og æðisleg-
ur,“ segir Helena sem er líka mjög ánægð með hvað
unnustinn tekur kettinum hennar vel. Að hann sé
góður við köttinn skiptir hana miklu máli.
Afstaða fjölskyldunnar breytt
Helena, er bókasafnsvörður á bókasafninu á Ísa-
firði, er í nokkurra daga fríi til að geta eytt tíma með
kærastanum. Hún segir þau ætla að hafa það gott
næstu dagana og njóta þess að vera saman. „Við
ætlum bara að slappa af, ekkert stress. Taka því
rólega, fara í fjölskylduboð og göngutúra.“
Helena greindi frá því í júlí að fjölskyldan og
margir vinir hefðu efasemdir um samband hennar
og Augustine, og vildu sem minnst af því vita. Henni
fannst sem fólki þætti sambandið ekki alvöru því
þau hefðu ekki hist. Þessi afstaða hefur hins vegar
breyst. „Vá, hvað það hefur breyst,“ segir Helena
með þakklæti í röddinni. Strax sama kvöld og þau
komu vestur var móðir hennar til að mynda ólm í
að hitta hann. „Og þegar við komum þá fylltist húsið
af fjölskyldumeðlimum sem vildu allir hitta hann.
Það er rosa mikil jákvæðni í gangi og þeim líst vel
á hann.“
Helenu finnst mjög gaman að sjá hvað margir
sýna sambandinu áhuga, til dæmis á Facebook.
„Ég setti fyrstu myndina sem ég tók af honum inn
á Facebook til að sýna umheiminum að hann væri
til og ég held að ég hafi fengið yfir hundrað „like“
á þessa mynd á nokkrum klukkutímum,“ segir hún
hlæjandi að lokum. n
solrun@dv.is
Ástfangin Helena og
Augustine hittust í fyrsta skipti
á sunnudaginn en hafa verið
kærustupar í tæpa 10 mánuði.
LjóSmyndAri: HALLdór SveinbjörnSSon