Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Page 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 10. ágúst 2011
ENGEYINGAR Í VEL-
LYSTINGUM EN RÍKIÐ
TEKUR TJÓN SJÓVÁR
n Bjarni Benediktsson sagði við DV 2009 að tjón ríkisins af Sjóvá yrði ekkert n Félög Einars og
Benedikts Sveinssona skildu eftir milljarða tjón fyrir Sjóvá n Einar og Benedikt sitja á sex milljörðum
Umdeild sala á Sjóvá 2005
Árið 2005 var Einar aftur í lykilhlut-
verki þegar Íslandsbanki seldi 66,6
prósenta hlut bankans í Sjóvá til
einkahlutafélagsins Þáttar sem var í
eigu Milestone á 17,5 milljarða króna.
Nokkur átök voru um söluna í stjórn
Íslandsbanka og þá staðreynd að
kaupin voru fjármögnuð af bankan-
um. Var meðal annars fjallað um það
í skýrslu rannsóknarnefndar Alþing-
is. Karl Wernersson, einn aðaleigandi
Milestone, hafði setið í stjórn Íslands-
banka í rúmt ár þegar ákveðið var að
selja félagi hans tryggingafélagið.
Steinunn Jónsdóttir, dóttir Jóns
Helga Guðmundssonar, sat í stjórn
Íslandsbanka á þessum tíma. Hún
sagði sig úr stjórninni og seldi hlut
sinn í bankanum með tveggja millj-
arða hagnaði eftir að hafa rifist við
Karl Wernersson, meðal annars um
þau áform hans að yfirtaka Sjóvá.
Þegar salan á hlut Íslandsbanka til
Milestone var tekin fyrir á stjórnar-
fundi hjá Íslandsbanka sat Steinunn
hjá. Lét hún bóka á stjórnarfundi
sama dag og Milestone keypti hlutinn
í Sjóvá að „…ástæða hlutleysis síns
í málinu væri trú á að sala á Sjóvá í
heild sinni væri hagkvæmasti kostur-
inn fyrir hluthafa bankans.“
Straumur-Burðarás fór síðar fram
á rannsókn á umræddri sölu þar sem
fleiri en Milestone var ekki gefinn
kostur á að bjóða í hlut Íslandsbanka
í Sjóvá. Þess skal getið að Steinunn
er í dag stór hluthafi í Sjóvá í gegnum
einkahlutafélagið Ark. Er hún á með-
al efnameiri Íslendinga. Það var ein-
mitt umrætt einkahlutfélag hennar
sem hagnaðist um tvo milljarða króna
á sölunni á hlut sínum í Íslandsbanka
árið 2005.
Fyrrverandi Glitnistoppar í
hluthafahópi Sjóvár
Einnig má nefna að Steinunn Jóns-
dóttir er gift Finni Reyr Stefánssyni,
fyrrverandi framkvæmdastjóra hjá
Glitni. Þegar umrædd sala á hlut Ís-
landsbanka á hlutnum í Sjóvá fór fram
árið 2005 sat Finnur í áhættunefnd Ís-
landsbanka sem fór yfir lán til Mile-
stone. Stuttu eftir að umrædd sala fór
fram keyptu einkahlutafélög nokkurra
stjórnenda Íslandsbanka hlutabréf í
bankanum með lánum sem að hluta
til komu frá Milestone. Í skýrslu rann-
sóknarnefndar Alþingis voru þessir
hagsmunaárekstrar gagnrýndir.
Þeir Finnur, Tómas Kristjánsson
og Jón Diðrik Jónsson voru árið 2005
framkvæmdastjórar hjá Íslandsbanka
en einkahlutafélög þeirra högnuðust
vel á umræddum hlutabréfakaupum.
Finnur og Tómas eru í dag á meðal
hluthafa í Sjóvá í gegnum félagið Siglu
og Jón Diðrik á líka í Sjóvá í gegnum
Draupni fjárfestingafélag. Situr Tómas
nú í stjórn Sjóvár.
Tómas, Finnur og Jón Diðrik voru
allir á meðal nánustu samstarfsmanna
Bjarna Ármannssonar hjá Glitni og
hættu þeir allir á sama tíma og hann
þegar Lárus Welding tók við forstjóra-
starfinu hjá bankanum í maí árið
2007. Högnuðust þeir þá gríðarlega á
sölu á hlutabréfum sínum í Glitni, líkt
og Bjarni Ármannsson. Keyptu Tóm-
as og Finnur sig inn í fasteignafélagið
Klasa sem Þorgils Óttar Mathiesen átti
ásamt Sjóvá á þeim tíma. Þriðjungs-
hlutur Þorgils í Klasa var hins vegar
yfirtekinn af Íslandsbanka í fyrra.
Lánuðu áfram eftir rannsókn FME
Þegar rætt er um hugsanlegt tap ís-
lenska ríkisins á sölunni á Sjóvá er vert
að rifja upp hvernig rekstri félagsins
var háttað fyrir bankahrunið. Sama ár
og Milestone keypti 66,7 prósenta hlut
Íslandsbanka, árið 2005, fékk fjárfest-
ingafélagið 14 milljarða króna lán hjá
Íslandsbanka. Í maí árið 2006 keypti
Milestone síðan 33,3 prósenta hlut
Íslandsbanka í Sjóvá á 9,5 milljarða
króna. Stór hluti af yfirtöku Milestone
á Sjóvá var fjármagnaður af Íslands-
banka.
Milestone hélt áfram að lána pen-
inga út úr tryggingafélaginu Sjóvá eftir
að Fjármálaeftirlitið byrjaði að skoða
fjárhagsstöðu félagsins á fyrri hluta árs
2008. Stærsta gatið í eignasafni Sjóvár,
sem Milestone skildi eftir án þess að
félagið uppfyllti skilyrði um lágmarks-
gjaldþol tryggingafélaga, var tilkom-
ið vegna lánveitinga út úr trygginga-
félaginu upp á um 26 milljarða króna í
febrúar 2008. Þessar lánveitingar urðu
meðal annars til þess að eftir hrunið
haustið 2008 vantaði nærri 11 millj-
arða króna í eignasafn Sjóvár, svokall-
aðan bótasjóð, til að félagið gæti stað-
ið við vátryggingaskuldbindingar sínar
gagnvart viðskiptavinum trygginga-
félagsins.
Milestone fékk 17,4 milljarða
arð frá Sjóvá
Milestone tók sér 17,4 milljarða
króna lán út úr Sjóvá á árunum 2005,
2006 og 2007. Sjóvá er talið hafa tap-
að um þremur milljörðum króna á
fasteignaviðskiptum í Makaó eins og
áður kom fram. Samkvæmt ársreikn-
ingi Sjóvár tapaði félagið 30 milljörð-
um króna árið 2008. Í sama ársreikn-
ingi kemur fram að Sjóvá hafi tapað
1.800 milljónum króna árið 2008 á
eignarhlut sínum í einkahlutafélag-
inu Skeggja, en það félag átti í Vafn-
ingi og Þætti International, félögum
Steingríms og Karls Wernerssona,
og bræðranna Einars og Benedikts
Sveinssona.
Þá tapaði Sjóvá 2,6 milljörðum
króna á hlut sínum í Þætti Inter-
national árið 2008. Þáttur var líka í
eigu Wern ers- og Sveinssona. Þátt-
ur var úrskurðaður gjaldþrota í fyrra
og skilur eftir sig tugmilljarða króna
skuldir. Félagið var stofnað árið 2007
til að halda utan um sjö prósenta
eign þeirra í Glitni sem fjármögn-
uð var með láni frá Morgan Stanley.
Þáttur tapaði þessum hlut í banka-
hruninu árið 2008.
Hlutabréf Þáttar í Glitni voru
endur fjármögnuð í febrúar 2008.
Þá var eignarhaldsfélagið Vafn-
ingur notað til að taka við láni frá
Glitni sem síðan var endurlánað til
Þáttar International. Þáttur greiddi
svo Morgan Stanley skuldina vegna
Glitnisbréfanna.
Þá tapaði Sjóvá 2,5 milljörðum
króna á hlut sínum í Fjárfestinga-
félaginu Mætti árið 2008. Máttur átti
hlut í Vafningi og í fyrirtækjum eins
og Icelandair og BNT. Íslandsbanki
leysti til sín hlut Máttar í Icelandair
árið 2009. Máttur var úrskurðaður
gjaldþrota í fyrra. Gunnlaugur Sig-
mundsson var framkvæmdastjóri
Máttar og sat Bjarni Benedikts-
son, formaður Sjálfstæðisflokksins, í
stjórn þess ásamt Einari Sveinssyni,
Karli Wernerssyni og Guðmundi Óla-
syni, fyrrverandi forstjóra Milestone.
Sérstakur saksóknari
rannsakar Sjóvá
Ólafur Þór Hauksson, sérstakur sak-
sóknari, hefur rannsakað lánveit-
ingar Sjóvár til eignarhaldsfélagsins
Vafnings og Racon AB sem veitt voru
þann 29. febrúar árið 2008. Lánveit-
ingarnar frá Sjóvá til Vafnings voru
samtals upp á 10,5 milljarða króna.
Samtals lánveitingar Sjóvár til félag-
anna tveggja námu 15,7 milljörðum
þennan dag og fékk Racon því um 5
milljarða króna. Upphæðin jafngilti
150 prósentum af öllu eigin fé Sjóvár
á þessum tíma og nærri 70 prósent-
um af vátryggingaskuld trygginga-
félagsins. Í samtali við DV segir Ólafur
að rannsóknin sé enn í gangi og hafi
verið óslitið frá því að embættið fram-
kvæmdi húsleitir í tengslum við mál-
ið árið 2009. „Rannsóknin er vel á veg
komin þótt ekki sé hægt að gefa það
út hvenær henni lýkur,“ segir hann.
Bjarni Benediktsson var ósáttur við umfjöllun DV í desember 2009:
Taldi ríkið ekki tapa á Sjóvá
Líklega muna flestir eftir umfjöllun DV um
eignarhaldsfélagið Vafning sem fékk 10,5 millj-
arða króna lán hjá Sjóvá. Einnig tapaði Sjóvá
um þremur milljörðum króna á fasteignavið-
skiptum í Makaó sem einnig tengdust Vafningi.
Bjarni Benediktsson, formaður Sjálfstæðis-
flokksins og þáverandi stjórnarformaður N1,
fékk umboð frá föður sínum og frænda sem
áttu hlut í Vafningi í gegnum Skeggja ehf. og
Mátt ehf. til að veðsetja hlutabréfin í Vafningi
fyrir milljarðaláni frá Glitni. Í samtali við DV
fullyrti hann að íslenska ríkið myndi ekki tapa
neinur fjármunum vegna 12 milljarða króna láns sem ríkið veitti Sjóvá.
Eftirfarandi er hluti af samtali Inga Freys Vilhjálmssonar, fréttastjóra DV,
við Bjarna Benediktsson í desember 2009:
Bjarni: „Útskýrðu fyrir mér af hverju íslenskir skattgreiðendur munu þurfa að borga 10
þúsund á mann út af þessu félagi?“
Blaðamaður: „Íslenska ríkið þurfti að leggja 12 milljarða króna inn í Sjóvá í sumar.“
Bjarni: „Það er rangt.“
Blaðamaður: „Er það rangt?“
Bjarni: „Já, já. Íslenska ríkið lánaði Glitni peninga sem það mun fá aftur. Íslenska ríkið
hefur ekki lagt neitt fram. Þetta er bara bull í þér. Þú átt að vinna vinnuna þína eins og
maður.“
Blaðamaður: „Sjóvá tapaði rúmum 3 milljörðum á þessari fjárfestingu í Makaó.“
Bjarni: „Hvenær lagði ríkið fram peninga sem það fær ekki til baka? Væntanlega mun
ríkið ekki bera neinn skaða af þessu. Þegar þú segir að ríkið tapi þeim peningum þá
verður það að vera komið í ljós að ríkið fái þá peningana ekki til baka. Þegar maður tapar
einhverju þá fær maður það ekki endurgreitt sem maður lánar. Er það ekki satt?“
Einar afhenti Karli Sjóvá Einar Sveinsson
sat í stjórn Íslandsbanka árið 2003 þegar
bankinn keypti hlut hans og fjölskyldu hans í
tryggingafyrirtækinu fyrir 5,2 milljarða króna.
Hann var síðan stjórnarformaður Íslandsbanka
og sat í stjórn með Karli Wernerssyni þegar Ís-
landsbanki seldi Milestone Sjóvá árið 2005.
Mikið tap Seðlabankinn
telur að tap ríkisins á Sjóvá
nemi 4,3 milljörðum króna.
Tölur úr rekstri Sjóvár 2004–2008
2004 2005 2006 2007 2008 2009* 2010
Eignir 33.877 35.281 77.312 98.894 25.212 1.753 36.681
Eigið fé 8.468 6.737 12.799 10.656 -16.088 -34.460 12.292
Eiginfjárhlutfall 25% 19% 17% 11% -16% -1966% 34%
Hagnaður 3.590 3.762 11.946 4.300 -29.92 -18.371 811
Arður 3.500 4.120 6.000 7.300 0 0 0
*Í ársreikningnum 2009 er ekki tekið tillit til 16 milljarða króna
eiginfjárframlags frá ríkinu og Íslandsbanka.