Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Blaðsíða 4

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Blaðsíða 4
4 | Fréttir 10. ágúst 2011 Miðvikudagur Afarkostir Þráins Þráinn Bertelsson, þingmaður Vinstri grænna, segist ekki styðja fjárlög nema fundin verði sanngjörn lausn á málefnum Kvikmyndaskóla Íslands. Þetta sagði Þráinn í samtali við Vísi á þriðjudagskvöld. Málefni Kvikmyndaskólans hafa verið tals- vert í umræðunni upp á síðkastið og vill Þráinn að fjármögnun skólans verði tryggð. Ríkisstjórnin er með minnsta mögulega meirihluta á þinginu og því gæti stuðningur Þrá- ins skipt sköpum þegar upp verður staðið. Hann segist hins vegar bjart- sýnn á lausn málsins, Svandís Svav- arsdóttir, starfandi menntamála- ráðherra, hafi unnið mikið í málinu. „...ég held að lausnin sé í sjónmáli. Hitt er annað mál ef að menn gefast upp á að finna lausn á þessu þá sé ég enga ástæðu til að styðja fjárlögin,“ sagði Þráinn við Vísi.  Sjö króna lækkun á einni viku Íslensk olíufélög hafa lækkað verð á eldnseytislítranum um 7 krónur á einni viku en samkvæmt úttekt DV fyrir nákvæmlega viku síðan kostaði lítrinn af 95 oktana bensíni um 242 krónur. Eftir lækkanir mánudags og þriðjudags er lítraverðið nú komið niður í rúmlega 235 krónur. Í kjölfar óvissu á alþjóðafjár- málamörkuðum hefur heimsmark- aðsverð á olíu hrapað. Íslensku olíufélögin brugðust við þessu á mánudag og þriðjudag með því að lækka verð eftir nær linnulausar hækkanir undanfarin ár. Þrátt fyrir að íslenskir neytendur fagni hverri krónulækkun má geta þess að lítrinn kostaði 113 krónur árið 2007. Á þriðjudag var verð á 95 oktana bensíni lægst hjá Orkunni á höfuð- borgarsvæðinu þar sem lítrinn kost- aði 235,40 krónur. Hjá Atlantsolíu og ÓB kostaði hann 235,60. Viðskiptavinir N1 greiða 235,70 krónur fyrir lítrann og Olís 235,80 Steingrímur J. Sigfússon hafnar því algjörlega að til standi að hækka virðisaukaskatt á matvöru. Fram kom í Fréttablaðinu á þriðjudag að ríkisstjórnarflokkarnir hefðu til skoðunar tillögur sendifulltrúa Al- þjóðagjaldeyrissjóðsins um að sam- ræma virðisaukaskattsþrepin þannig að í framtíðinni yrði 20% flatur virð- isaukaskattur. Ríkisstjórnin leitar nú leiða til aukinnar tekjuöflunar og var þingmannanefnd falið að skoða þennan möguleika. Þeir þingmenn sem DV hefur rætt við telja að ríkis- stjórnin muni frekar reyna að leggja frekari skatta á bankastofnanir en að fara þessa leið. Sigmundur Dav- íð Gunnlaugsson, formaður Fram- sóknarflokksins, stendur hins vegar fast á því að hækkanir á virðisauka- skatti á matvælum hafi komið til greina. Yrði af slíkum skattahækunum myndi það ekki aðeins hækka mat- vöruverð verulega í landinu held- ur einnig skila sér beint í vísitöluna og hækka þannig verðtryggð lán. Raunar hafa skattahækkanir nú- verandi ríkisstjórnar valdið því að skuldir heimilanna í landinu hafa hækkað um 18,3 milljarða króna. Árni Páll Árnason, efnahags- og við- skiptaráðherra, sagði í svari við fyrir- spurn Margrétar Tryggvadóttur á Al- þingi síðasta vetur, að á tveggja ára tímabili hefðu skuldir heimilanna í landinu hækkað samanlagt um 18,3 milljarða króna vegna áhrifa skatta- hækkana. Margrét spurði: „Hve mikið hafa verðtryggð lán íslenskra heimila hækkað á tímabilinu frá 1. febrúar 2009 til 1. febrúar 2011, í krónum annars vegar og prósentum hins vegar, vegna skattahækkana og annarra aukinna álaga af hálfu ríkis- ins sem hafa áhrif á vísitölu neyslu- verðs?“  Árni Páll svaraði: „Áhrif skatta- hækkana á vísitölu neysluverðs eru um 1,50% frá 1. febrúar 2009 til 1. febrúar 2011 samkvæmt mælingum Hagstofu Íslands. Það þýðir að verð- tryggð lán íslenskra heimila hækk- uðu sem því nemur að nafnvirði. Í febrúar voru verðtryggð lán heimil- anna um 1.220 milljarðar kr. og því nemur hækkunin að nafnvirði um 18,3 milljörðum kr. á tímabilinu. Al- menn vörugjöld eru ekki með tal- in þar sem Hagstofan greinir áhrif þeirra ekki með beinum hætti í vísi- tölunni.“ Fjármálaráðherra þvertekur fyrir að til standi að hækka virðisaukaskatt: Skattar hækka skuldir um 18 milljarða Steingrímur J. Sigfússon Þingmenn telja að frekari skattahækkanir í landinu einskorðist við banka og fjármálastofnanir en ekki virðisaukaskattshækkun. K atrín Pétursdóttir, forstjóri Lýsis, stendur í miklum framkvæmdum á landareign sinni í Fljótshlíðinni þessa dagana. Katrín hyggst reisa reiðhöll á landareigninni Velli 1, en þar hafa iðnaðarmenn haft í nógu að snúast að undanförnu. Þegar ljós- myndara og blaðamann bar að garði voru framkvæmdir við grunn reið- hallarinnar í fullum gangi. Óljóst er hvenær reiðhöll Katrínar verður til- búin en ekki náðist í hana við vinnslu fréttarinnar. DV hefur greint frá því að Katrínu hafi tekist að semja um um afskrifitir á skuldum sínum við Glitni. Samkvæmt heimildum DV var hún í persónulegum ábyrgðum fyrir um milljarði króna vegna lána sem eignarhaldsfélag hennar, Hnot- skurn, fékk hjá Glitni árið fyrir hrun. Félagið skuldaði 2,8 milljarða króna í lok árs 2007. Reiðhöll rís á Velli Ljóst er að þrátt fyrir mikla skulda- söfnun og persónulegar ábyrgðir er Katrín ekki illa stödd fjárhagslega, að minnsta kosti ef marka má þær miklu framkvæmdir sem eiga sér stað á landareign hennar þessa dag- ana. Völlur 1 er landareign í henn- ar eigu en þar er nú þegar rekið hrossaræktarbú. Á landinu er þegar eitt hesthús, lítil reiðhöll og íbúðar- hús ásamt litlum skúr. Heimildir DV herma að Katrín og fjölskylda hygg- ist nota reiðhöllina til einkanota og til að sinna sínu helsta áhugamáli – hestamennskunni. Katrín á aðra landareign í nágrenninu, Þórunúp. Katrín hefur setið í stjórnum fjölda fyrirtækja og situr ennþá í mörgum þeirra. Hún var meðal annars meðstjórnandi í stjórn í FL Group, í stjórn Glitnis allt til ársins 2008, og í Bakkavör Group til ársins 2011. Hún á og rekur einkahlutafyrir- tæki eins og Þórunúp, Hex og Bol. Óljóst er hvort og þá hvaða fyrirtæki í hennar eigu kemur að framkvæmd- unum við reiðhöllina. Þurfti að víkja úr stjórn Í janúar síðastliðinn greindi DV frá því að eignarhaldsfélagið Hnotskurn væri á lokasprettinum við að semja um skuldir félagsins sem nema 2,8 milljörðum króna. Eignir félagsins námu þá ekki nema 244 milljónum í fasteignum og lóðum. Félagið fékk lán til hlutabréfakaupa í Trygginga- miðstöðinni. Það eignaðist síðan hlutabréf í FL Group þegar það fé- lag keypti Tryggingamiðstöðina. Auk þess að vera í eigu Katrínar, var fé- lagið einnig í eigu Gunnlaugs Sævars Gunnlaugssonar, fjárhaldsmanns Guðbjargar Matthíasdóttur í Vest- mannaeyjum til margra ára. Samkvæmt heimildum DV varð Katrín að víkja úr stjórn Glitnis í lok febrúar 2008 þar sem Hnotskurn var komið í vanskil með lán sín við bank- ann. Enda hafði hlutur Hnotskurnar í FL Group rýrnað mjög mikið. Mark- aðsverðmæti hlutarins sem Hnot- skurn átti í FL Group nam um 1.195 milljónum króna í september 2007. Í lok desember sama ár var hlut- ur félagsins metinn á 993 milljónir króna en þá hafði það verið þvingað til að selja um 20 prósent af bréfum sínum í FL Group. Persónulegar ábyrgðir Gunnlaugur Sævar og Katrín voru í persónulegum ábyrgðum vegna skulda sinna við Glitni, samkvæmt heimildum DV. Ekkert bendir til að ábyrgðirnar hafi verið greiddar. Þau fengu lánafyrirgreiðslu til að kaupa hlutabréf í FL Group. Vera má að uppgjör þeirra á skuldinni við Ís- landsbanka tengist sölu þeirra á Lýsi til Guðbjargar Matthíasdóttur með einum eða öðrum hætti. Eftir því sem DV kemst næst gátu eða vildu þau Gunnlaugur og Katrín ekki greiða skuldina sem þau voru í persónulegum ábyrgðum fyrir og leituðu því til starfsmanna Íslands- banka eftir skuldaafskrift á meiri- hluta skuldarinnar gegn því að þau myndu greiða hluta hennar. Ekki er vitað hvernig málið endaði hjá Ís- landsbanka en ljóst er að Gunnlaug- ur og Katrín ætluðu sér ekki eða gátu ekki greitt skuldina til fulls. Reikna má með að þau hafi fengið sínu framgengt. Lendingin í málinu hjá Gunn- laugi og Katrínu hefur því hugsan- lega verið svipuð og í afskriftamáli Bjarna Ármannssonar við skilanefnd Glitnis í fyrra, sem greint hefur verið frá í DV, en hann fékk um 800 millj- ónir króna afskrifaðar gegn því að greiða bankanum nokkra tugi millj- óna króna. Reisir reiðhöll í skugga afskrifta n Fékk milljarða afskrifaða en reisir nú reiðhöll n Var í persónuleg- um ábyrgðum n Reiðhöllin til einkanota, samkvæmt heimildum Jón Bjarki Magnússon blaðamaður skrifar jonbjarki@dv.is Afskriftir Katrín Pétursdóttir fékk afskrif- aðar milljarðaskuldir við Glitni en hún var í persónulegri ábyrgð fyrir hluta þeirra. Framkvæmdir Þegar ljósmyndara bar að garði voru iðnaðarmenn á fullu við að leggja grunn að nýrri reiðhöll Katrínar. Mynd EyÞóR ÁRnASon „Heimildir DV herma að Katrín og fjölskylda hyggist nota reiðhöllina til einkanota og til að sinna sínu helsta áhugamáli – hesta- mennskunni.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.