Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Síða 8

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Síða 8
8 | Fréttir 10. ágúst 2011 Miðvikudagur „Ríkissjóður er skuldlaus, lífeyris- sjóðir eru sterkir og eignir bankanna eru miklar og öruggar. Baklandið er sterkt en það dregur ekki úr alvöru þess ástands sem ríkir og að veru- leg verðmæti eru í húfi ef mönn- um verða mislagðar hendur,“ sagði Björgólfur Thor Björgólfsson, fyrr- verandi aðaleigandi Landsbankans, í viðtali við Frjálsa verslun á vor- mánuðum 2008. Staða Landsbank- ans á þeim tíma var orðin grafal- varleg, en Björgólfur var hins vegar kokhraustur. Björgólfur var spurð- ur hversu sterkt bakland íslensku bankanna væri, en viðtalið bar yf- irskriftina „árásin á Ísland“. Athygli vekur að Björgólfur nefndi skuld- lausan ríkissjóð fyrst í upptalningu sinni. Eftir að Landsbankinn féll og Icesave-málið kom upp, hefur Björgólfur haldið því fram að ekki hafi verið ríkisábyrgð á innistæðum, en af orðum hans að dæma var ljóst að hann treysti hins vegar á stuðn- ing ríkisins. Björgólfur var spurður hvort hann teldi að í kjölfar lausafjárvanda bankanna og skorts á lánsfé að út- rás íslenskra banka og fyrirtækja yrði stopp í bili. „Það hægir verulega á, en hvort allt verði stopp er annað mál.“ Ljóst var að höfundur greinar hafði bullandi trú á bönkunum því í spurningum sínum talaði hann um „alþjóðlegt fjármálasamsæri“ gegn Íslandi og „móðursýki“ erlendra lán- veitenda. Björgólfur taldi að fyrir utan lausafjárvanda bankanna þá væru „aðrir þættir í starfi þeirra fullkom- lega sambærilegir við það sem nú gerist hjá virtustu og bestu bönkum heims.“ Útlendingar áttu að skilja að íslenskir bankar myndu ekki skaðast umfram aðra: „Sambærilegir“ við bestu banka heims Brattur Skömmu fyrir hrun taldi Björg- ólfur Thor Björg- ólfsson íslensku bankanna að mestu leyti sambærilega við virtustu og bestu banka heims. Frítt í Bláa lónið, hótel og leigubíl n Farþegum Sumarferða, sem lentu í 17 tíma seinkun, voru boðin ýmis fríðindi n Frábær þjónusta kom Barböru Howard á óvart n Segir farþegana hafa verið þreytta en ánægða „Það kom mér bara svo á óvart hvað það var vel að þessu staðið,“ segir Barbara Howard sem fór til Almería á Spáni í síðustu viku á vegum Sum- arferða. Sautján klukkutíma seinkun var á fluginu vegna bilunar í leigu- flugvél sem átti að fljúga með farþeg- ana frá Íslandi og á áfangastað. Bar- bara, sem stödd var á Almería þegar blaðamaður náði tali af henni, gat ekki á sér setið og vildi hrósa starfs- fólki Sumarferða, sem eru í eigu Ferðaskrifstofu Íslands ehf., fyrir að hafa brugðist hárrétt við aðstæðum og að upplýsingagjöf til farþega hafi verið til fyrirmyndar. Vélin biluð á Egilsstöðum „Vélin átti að fara í loftið klukkan tíu en upp úr klukkan ellefu var til- kynnt að einhver seinkun yrði og þá var farþegum strax boðið upp á 1.500 króna úttektarmiða á veitingar í Leifsstöð,“ segir Barbara. Farþegar fengu þær upplýsingar frá starfsfólki Sumarferða að vélin væri staðsett á Egilsstöðum og að það væri ver- ið að koma flugvirkja þangað til að líta á hana. Eftir að flugvirkinn hafði yfir farið vélina varð ljóst að töluvert meiri seinkun yrði á fluginu þar sem hún var metin óflughæf. Samkvæmt upplýsingum til farþega þurfti því að fá aðra leiguflugvél til sækja ferða- langa á vegum Sumarferða til Al- mería og sú flugvél átti svo að flytja farþegana sem biðu á Íslandi út. Bláa lónið, leigubíll og hótel- herbergi „Það var farið með okkur, fljótlega eftir að þetta kom upp, í Bláa lónið og þar vorum við til þrjú. Eftir það var ekið með okkur út á Keflavíkurflug- völl og við látin sækja töskurnar okk- ar því það er einhver sex tíma regla og töskurnar mega ekki vera lengur á vellinum ef vél fer ekki í loftið. Ég sjálf ákvað að fara heim til Reykjavík- ur, tók bara leigubíl fram og til baka sem Sumarferðir greiddu.“ Þeim far- þegum sem ekki fóru til síns heima var boðið upp á herbergi á Hótel Keflavík og Hótel Keili og einnig kvöldverð. Það var svo klukkan þrjú um nóttina, 17 tímum eftir áætlaða brottför, að vélin fór í loftið. Láta ekki fólk sitja og bíða „Fólkið var ánægt og fór ánægt í vél- ina. Auðvitað sváfu flestir í vélinni og auðvitað vorum við dauðþreytt, því er ekki að neita, en við fengum svo drykk og mat um borð áður en við sofnuðum,“ segir Barbara. „Það var alveg haft ofan af fyrir okkur þannig að ég get ekki annað en verið mjög sátt,“ bætir hún við. Þá segir Barbara að fararstjórar Sumarferða hafi einnig talað um að ferðalangarnir komi til með að fá bætur eða einhverja endurgreiðslu vegna seinkunarinnar. Upplýsingar um það eigi að berast með bréfi fljótlega. Barbara telur að önnur þjónustufyrirtæki geti jafnvel tekið vinnubrögð Sumarferða sér til fyrir- myndar. Þorsteinn Guðjónsson, fram- kvæmdastjóri Sumarferða, segir að mál sem þessi komi sem betur fer ekki oft upp. Þeir hafi þó sérstaka aðgerðaáætlun til að fara eftir þegar slíkt gerist. Farþegum hefur til dæm- is áður verið boðið í Bláa lónið ef flugi seinkar. „Það versta sem þú ger- ir fólki er að láta það sitja og bíða,“ sagði Þorsteinn í samtali við DV. Óánægja með skort á upp- lýsingum Töluvert hefur verið fjallað um ein- stök mál sem komið hafa upp hjá fyrirtækinu Iceland Express upp á síðkastið. Mest áberandi hafa verið fréttir af óánægju farþega með skort á upplýsingum frá fyrirtækinu þeg- ar vandamál hafa komið upp, líkt og seinkun eða niðurfelling á flugi. Síðast var það mál 14 ára stúlku sem skilin var eftir í Danmörku því vél Iceland Express var yfirbókuð. Upp- lýsingafulltrúi fyrirtækins sagði að þar hefði þjónustuaðilinn erlendis klikkað. Svipað var uppi á teningn- um þegar farþegar sátu fastir í Frakk- landi í einn og hálfan sólarhring eft- ir að vél Iceland Express hafði verið kyrrsett vegna þess að hún uppfyllti ekki skoðunarreglur, fyrr í sumar. Þjónustan kom á óvart Barbara How- ard var virkilega ánægð með frammistöðu starfsfólks Sumarferða. Hún segir upp- lýsingagjöf hafa verið til fyrirmyndar. Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is „Það var alveg haft ofan af fyrir okkur þannig ég get ekki annað en verið mjög sátt. Hótaði að stefna Birni Val Gíslasyni: Enn engin stefna Björn Valur Gíslason, þingmaður Vinstri grænna, segist hafa verið búinn að gleyma deilum sínum við Guðlaug Þór Þórðarson, þingmann Sjálfstæðis- flokksins, þegar blaðamaður DV hafði samband við hann. Guð- laugur Þór hótaði Birni Val meið- yrðamáli vegna orða hans um að sá fyrrnefndi hefði þegið mútur í prófkjörsbaráttu sinni árið 2006. Guðlaugur þáði um 25 milljónir króna í styrki á árunum 2005 til 2007. Ummælin umræddu ritaði Björn Valur á bloggsíðu sína þann 21. des- ember síðastliðinn. Þá skrifaði hann: „Engan veit ég þingmann um utan umræddan Guðlaug Þór sem er með landsfundarályktun síns eigin flokks á bakinu um að hann skuli hætta sem þingmaður flokksins. Og hvers- vegna ætli það sé? Jú, vegna mútu- greiðslna sem þingmaðurinn þáði og komu honum til þeirra valda sem hann hafði sem ráðherra í ríkisstjórn Geirs H. Haarde.“ Lögfræðingur Guðlaugs Þórs veitti Birni Val fimm daga frest til þess að fjarlægja ummælin af vef- síðu sinni og draga þau til baka í apríl á þessu ári. Björn Valur gerði það ekki og sagðist í samtali við DV ekki ætla sér að gera það. Guðlaugur sagðist í kjölfarið ætla að stefna Birni Val. Enn sem komið er hefur engin stefna borist sem fyrr segir. Guðlaugur Þór vildi ekki tjá sig um málið þegar DV hafði samband við hann en sagði að það myndi skýrast á haustmánuðum hvenær og þá hvort Birni Val verður stefnt vegna ummælanna. astasigrun@dv.is Á bólakafi í Blautulónum: Rútan dregin á þurrt Björgunaraðgerðir við að ná rútunni sem fór á bólakaf í Blautulónum á laugardaginn fóru fram á þriðjudag. Líkt og fram hefur komið er rútan í eigu tékknesks ferðafyrirtækis og voru 22 tékkneskir ferðamenn að ferðast í henni en aðeins helmingur þeirra var í henni þegar hún sökk. Ferðamennirnir ellefu sem um borð voru náðu að bjarga sér við illan leik. DV greindi frá því á mánudag að ábendingar hefðu borist um að rútunni hefði reglulega verið ekið býsna glannalega. Lögreglan á Hvolsvelli hyggst kanna akstursskífu fjallarútunnar þegar henni hefur verið komið á þurrt til að athuga hvort glæfralegt aksturslag hafi átt þátt í slysinu. Fyrirtækið Tarabus mun standa straum af kostnaðinum við björgun- araðgerðirnar. Sóldís Helga Sigur- geirsdóttir úr Flugbjörgunarsveitinni Hellu tók meðfylgjandi myndir á þriðjudag en flugbjörgunarsveitin er þessa dagana á hálendisvakt björg- unarsveita að Fjallabaki. Aðgerðaráætlun Framkvæmdastjóri Sumar- ferða segir að það versta sem hægt er að gera þegar flugi seinkar sé að láta fólk sitja og bíða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.