Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Page 17
Fréttir | 17Miðvikudagur 10. ágúst 2011
Allt á einum stað!
Bílaverkstæði | Dekkjaverkstæði | Smurstöð | Varahlutir
Þú færð fría olíusíu ef þú lætur
smyrja bílinn hjá okkur
Komdu með bílinn til okkar og
þú færð fría ástandsskoðun
Ó
eirðirnar í Lundúnum
síðustu daga þykja þær
mestu í manna minnum.
Ástandið í borginni þykir
svo alvarlegt að embætt-
ismenn eru farnir að íhuga herlög og
útgöngubann.
Einn maður hefur látist í óeirðun-
um en hann lést í gær, þriðjudag, af
skotsárum sem hann hlaut degi áður.
Fangaklefar eru yfirfullir en hundruð
manna hafa nú verið handtekin, þar á
meðal 11 ára drengur. Lögreglan hef-
ur átt fullt í fangi með mótmælend-
ur og meira að segja óeirðalögreglan
þurfti að flýja mótmælendur aðfara-
nótt þriðjudags þar sem þeir voru of
margir. Yfir 16 þúsund lögreglumenn
hafa verið settir á vakt, sumir hverjir
með nánast enga reynslu.
Óeirðirnar hafa tekið á sig alls
konar ljótar myndir. Logandi bygg-
ingar eru nú algeng sjón sem og
glæpagengi sem ráfa um rænandi og
ruplandi. Til dæmis náðist á mynd-
band atvik þar sem særðum dreng
var hjálpað á fætur til þess eins að
vera rændur.
Óeirðirnar hafa nú breiðst út víða
um Lundúnir og einnig til annarra
borga, meðal annars Birmingham og
Liverpool.
Treysta ekki lögreglunni
Margir fordæma óeirðirnar og segja
enga ástæðu fyrir þeim. Öðrum finnst
hins vegar slík nálgun full mikil ein-
földun og leita skýringa á því hvers
vegna ástandið er orðið svona alvar-
legt. Til dæmis benda sumir á að fólk-
ið á bak við óeirðirnar finnist samfé-
lagið ekkert gera fyrir það og það hafi
í raun engu að tapa. Þannig vilja sum-
ir tala um borgaralega óhlýðni reiðra
ungmenna.
Aðspurður hvort óeirðirnar skil-
uðu einhverju sagði einn þátttak-
andi: „Já, annars værirðu ekki að tala
við mig.“ Hann tók sem dæmi 2.000
manna friðsamleg mótmæli við höf-
uðstöðvar Scotland Yard sem fóru
fram án þess að svo mikið sem einn
stafur yrði skrifaður um þau.
Ætlaði að hefja nýtt líf
með fjölskyldunni
Kveikjan að öllum þessum óeirðum
var dráp lögreglu á Mark Duggan, 29
ára, fjögurra barna föður.
Duggan var stöðvaður á fimmtu-
daginn fyrir viku í aðgerðum lögregl-
unnar sem rannsakaði hann vegna
meintrar vopnasölu. Hann var einn-
ig sagður hafa stundað sölu á fíkni-
efnum og vera meðlimur í glæpa-
gengi.
Nánustu ættingjar hans neit-
uðu að tala við fjölmiðla, þegar þeir
mættu til minningarathafnar, vegna
þess að þeim fannst fjölmiðlar fara
frjálslega með sannleikann um
hann. Þau lýstu honum sem ástrík-
um föður sem dýrkaði börnin sín.
Unnusta hans sagði að þau hefðu
vonast til að geta gifst innan tíðar,
flutt frá Tottenham-hverfinu og haf-
ið nýtt líf.
Í fyrstu var talið að hann hefði
látist eftir skotbardaga við lögreglu.
Sú kenning var byggð á því að skot
hefði lent í talstöð lögreglumanns.
Nú virðist hins vegar sem skotið
hafi komið úr byssu lögreglunnar og
Duggan hafi verið óvopaður.
Taka átti málið til rannsóknar
á þriðjudaginn en það hefur tafist
vegna deilna á milli Scotland Yard og
IPCC, óháðrar nefndar sem tekur á
kvörtunum gagnvart lögreglu. Sam-
kvæmt IPCC gæti rannsóknin tekið
fjóra til sex mánuði. Þetta er langt
frá því að vera fyrsta dauðsfallið sem
lögreglan veldur. Frá árinu 1998 hafa
333 látist í haldi lögreglu, samkvæmt
fréttum breskra fjölmiðla.
Friðsöm mótmæli fóru
úr böndunum
Mótmælin á laugardagskvöldið áttu
að standa í einungis klukkutíma
en mikill hiti var í mótmælendum
sem voru óánægðir með óskýr svör
lögreglu. Ýmsar sögusagnir gengu
manna á milli og voru þær ekki til
að bæta ástandið sem endanlega fór
úr böndunum þegar lögreglan réðst
að 16 ára stúlku. Stúlkan steig fram
og hrópaði slagorð og var barin með
kylfum. Vitni segir hana hafa kastað
bæklingum og einhverju sem líktist
múrsteini að lögreglu. Ekki er vitað
nákvæmlega hvað rétt er í þessu en
óeirðir brutust út í kjölfarið og entust
alla nóttina.
Nánasta fjölskylda Duggins var
viðstödd mótmælin en hvarf á brott
þegar mótmælin leystust upp í óeirð-
ir. Bróðir Duggans, Shaun Hall, sagði
ofbeldið hugsanlega vera afleiðingu
einhvers konar dómínóáhrifa sem
sköpuðust vegna lélegra samskipta
af hálfu lögreglunnar. Hann sagði
fjölskylduna hins vegar ekki sam-
þykkja ofbeldið.
Hreinsa til í Lundúnum
Hópur manna hefur tekið sig sam-
an og boðað til allsherjarhreinsun-
ar á götum Lundúna og fleiri borga.
Á vefsíðunni riotcleanup.co.uk. eru
Lundúnabúar hvattir til að sýna
samfélagsvitund í verki og hreinsa
til á götum úti. „Þetta snýst ekki um
óeirðirnar, heldur að hreinsa til,“
stendur á heimasíðunni. Fólki er
bent á að taka með sér, meðal ann-
ars, stóra ruslapoka, kústa, hanska
og límbönd. Þá hefur verið settur
upp listi yfir staði sem hreinsa þarf
og getur hver sem er bætt við listann.
Telja sig
hafa engu
að Tapa
Björn Reynir Halldórsson
blaðamaður skrifar bjornreynir@dv.is
Óeirðalögregla í
viðbragðsstöðu
Óeirðalögreglan hefur
tekist á við mótmæl-
endur sem kveikt hafa í
allnokkrum byggingum.
n Miklar óeirðir breiðast út um Bretland n Óeirðirnar má rekja til dráps lögreglu
á fjögurra barna föður n Íbúar hreinsa til: „Þetta snýst ekki um óeirðirnar“
asdgLasdg
„Fangaklefar eru
yfirfullir en hund
ruð manna hafa nú verið
handtekin, þar á meðal 11
ára drengur.
CONTEXT
Rioting and looting spread across and beyond London on Monday as
hooded youths set fire to cars and buildings, smashed shop windows
and hurled bottles and stones at police in a third night of violence in
Britain’s worst unrest in decades
Graphic
Story
Size
Artist
Date
Reporter
Research
Code
BRITAIN-RIOT/UPDATE2
BRITAIN-RIOT/
15 x 14.5 cm
Kinyen Pong, Brice Hall
09 / 08 / 11
-
K. Pong
VIO
© Copyright Reuters 2011. All rights reserved.
http://thomsonreuters.com/products_services/media/media_products/graphics/
5 km
Birmingham
Bristol
Lundúnir
Liverpool
Manchester
Bretland
2 mi
Enfield
Ponders End
Tottenham
Islington
Hackney
Oxford Circus
Brixton
Lewisham
Croydon
Peckham Woolwich
Clapham
Ealing
Walthamstow
Waltham
Forest
Chingford
Mount
River Thames
6. ágúst, laugardagur
Tottenham
Yfir 200 mótmælendur safnast saman fyrir
utan lögreglustöð.
Laugardagskvöld
Mótmælendur kasta bensínsprengjum í átt
að lögreglustöð, kveikja í lögreglubílum,
byggingum og ýmsu lauslegu.
7. ágúst, sunnudagur
Tottenham
Ofbeldið heldur áfram
Óeirðirnar dreifast um Lundúnir
Enfield Hópur ungmenna veldur tjóni á
verslunum og lögreglubílum.
Chingford Mount Þrír lögregluþjónar slasast
þegar ekið er á þá.
Ponders End/ Walthamstow/
Waltham Forest/Oxford Circus
Brotist inn í verslanir og vörum stolið.
Islington Lögreglubíll skemmdur.
Brixton 200 ungmenni ráðast á
lögreglustöð og brjótast inn í verslanir.
8. ágúst, mánudagur
Hackney
Mótmælendur leggja verslanir í rúst.
Peckham Kveikt í strætisvögnum.
Lewisham Kveikt í bifreiðum.
Woolwich Kveikt í tveimur húsum, brotist
inn í verslanir og skemmdarverk unnin.
Clapham Verslanir rændar.
Ealing Skemmdarverk.
Croydon Eldar kveiktir víðs vegar um hverfið
með tilheyrandi eyðileggingu. Áfram brotist
inn í verslanir.
Óeirðirnar dreifast um landið
Birmingham/Liverpool
Skemmdarverk og innbrot í verslanir.
Manchester Bílar skemmdir.
Bristol Skemmdarverk og innbrot.
Dagur 1
Dagur 2
Dagur 3
Óeirðirnar í Lundúnum
Heimild: BBC, Reuters
LU N D Ú N I R
4. ágúst,
fimmtudagur
Ferry Lane,
Tottenham
Mark Duggan, 29
ára, er skotinn til
bana af lögreglu.
35 lögregluþjónar
slasaðir
Handteknir:
344 í London
100 í Birmingham
69 kærðir
eirðirnar í L ndúnum