Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Side 18
18 | Umræða 10. ágúst 2011 Miðvikudagur
tryggvagötu 11, 101 reykjavík
Útgáfufélag: Dv ehf.
Stjórnarformaður:
Lilja Skaftadóttir
Ritstjórar:
jón trausti reynisson, jontrausti@dv.is
og reynir traustason, rt@dv.is
Fréttastjóri:
Ingi Freyr vilhjálmsson, ingi@dv.is
Umsjón helgarblaðs:
Ingibjörg Dögg kjartansdóttir, ingibjorg@dv.is
Umsjón innblaðs:
Ásgeir jónsson, asgeir@dv.is
DV á netinu: dv.is
Aðalnúmer: 512 7000, Ritstjórn: 512 7010,
Áskriftarsími: 512 7080, Auglýsingar: 512 7050.
Smáauglýsingar: 512 7004.
Umbrot: Dv. Prentvinnsla: Landsprent. Dreifing: Árvakur.
DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins
á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds.
Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð.
trúðar og galgopar
Leiðari Reynir Traustason ritstjóri skrifar:
Bókstaflega
Andri slær í gegn
n Útvarpsmaðurinn Andri Freyr Við-
arsson hefur slegið í gegn með sjón
varpsþáttum sínum, Andri á flandri. Í
þáttunum þvælist
Andri um landið
í húsbíl með
hundinn Tómas
sér við hlið. Mæl
ingar sýna að
fjölmenni horfir á
þáttinn þótt kurr
hafi verið uppi
um gæði hans.
Þá er víst að þátturinn höfðar til aug
lýsenda því Andri hefur fengið sem
bónus að tala inn á auglýsingu fyrir
hundamat. Hann fetar þar í slóð Páls
Magnússonar útvarpsstjóra sem seldi
sinn einfalda smekk til fatabúðar
Sævars Karls.
Skapvondur
talsmaður
n Heimir Már Pétursson, fyrrverandi
fréttamaður Stöðvar 2, er nú að nýju
genginn í raðir spunameistara og
ætlar að bjarga
Iceland Express
frá því umtali
sem fylgir stöðug
um röskunum á
áætlunum. Þetta
fyrirtæki Pálma
Haraldssonar lenti
í ógöngum um
verslunarmanna
helgina. Blaðamaður DV hringdi þá
í Heimi talsmann sem brást ókvæða
við. Frábað hann sér svona símtöl þar
sem hann myndi ekki byrja í starfinu
fyrr en daginn eftir. Þótti þetta ekki
boða gott varðandi framhaldið en
félagið er þekkt fyrir að forstjórinn,
Matthías Imsland, svarar ævinlega af
ljúfmennsku, sama hvað á dynur í
sveiflukenndum áætlunum.
Skúli í skjóli
n Björn Snæbjörnsson, formaður
Starfsgreinasambandsins, liggur
undir ámæli fyrir að hafa látið Skúla
Thoroddsen, fyrrverandi fram
kvæmdastjóra, hafa sem nemur 9
milljónum króna við starfslok hans.
Fjórtán félagsmenn í Starfsgreina
sambandinu krefja formanninn svara
en grunur er um að Skúli hefði framið
refsiverð brot í starfi. Er hann grun
aður um að hafa dregið sér fé og eru
margir innan Starfsgreinsambands
ins furðulostnir yfir því að lögreglan
sé ekki komin í málið.
Strangtrúaður
skuldari
n Mál Sparisjóðs Keflavíkur stækkar
stöðugt. Nú er ljóst að bankinn var
rekinn af miklu gáleysi og með þeim
afleiðingum að
milljarðar króna
hafa fallið á al
menning. Óvíst
er hvort rann
sókn muni fara
fram á aðkomu
innansveitar
pólitíkusa í Kefla
vík að sukkinu. Á
meðal stærri viðskiptavina bankans
var Steinþór Jónsson, bæjarfulltrúi og
hótelstjóri, sem var stórtækur í um
deildum fjárfestingum á Vellinum.
Steinþór er strangtrúaður aðventisti
og er það trú vina hans og félaga að
hann hafi ekkert misjafnt aðhafst.
Sandkorn
A
lltaf snúast vopnin í höndun
um á Jóhönnu Sigurðardóttur
forsætisráðherra. Langþráð
ur draumur hennar og Sam
fylkingarinnar um nýja stjórnarskrá
leiddi hana til þess að efna til kosn
inga um stjórnlagaþing. Jóhanna
skapaði fyrirbæri sem átti að búa til
æðislega stjórnarskrá og leggja síð
an niður laupana. Stjórnlagaráð átti
aldrei að þvælast fyrir henni og öðr
um stjórnmálamönnum til lengri
tíma.
N
ú er stjórnlagaráð búið að skila
af sér stjórnarskrá og meðlim
ir þess hafa fundið það á eig
in skinni hvað það er gaman
að vera í vel borgaðri innivinnu hjá
ríkinu við að búa til reglur fyrir hina.
Sérstaklega þegar vel gengur og allir
eru ánægðir með mann.
Eftir að stjórnarskráin var klár og
ráðið búið að afhenda hana Alþingi,
ætlaði Jóhanna að leggja ráðið niður.
Takk fyrir þjónustuna og látið ykk
ur nú hverfa. En bíðið við, nú neit
ar sköpunarverkið að láta leysa sig
upp. Stjórnlagaráð ætlar að lifa sjálf
stæðu lífi og ætlar að stofna nýjan
stjórnmálaflokk verði ekki farið að
vilja þess. Hvernig gat þetta gerst?
Sköpunarverk Jóhönnu er farið að
hóta henni andstöðu hlýði hún því
ekki! Nú situr forsætisráðherrann
uppi með stjórnlagaráð sem neitar
að láta leysa sig upp og ætlar að berj
ast áfram.
L
esandi góður, þú ert pottþétt að
hugsa það sama og Svarthöfði.
Það eru sláandi líkindi með
þessari atburðarás og sögunni
af vísindamanninum Dr. Franken
stein og hvernig sköpunarverk hans
snérist gegn honum og gerði síðan
allt gjörsamlega vitlaust. Að minnsta
kosti í þeim skilningi að sköpunar
verkið hlýðir ekki húsbónda sínum
og er meira að segja með derring
við hann. Samlíkingin á ekki við um
þann hluta sögunnar af Franken
stein þegar sköpunarverkið fór að
drepa fólk. Jæja, þetta eru þá kannski
ekki sláandi líkindi, en líkindi engu
að síður.
Aldrei hefði Jóhanna getað séð
þetta fyrir. Hvernig átti henni að detta
það í hug að með því taka 25 ein
staklinga utan úr bæ, setja þá tíma
bundið í virðingarstöðu og gefa þeim
mikil óbein völd, myndi það leiða til
þess að þeir neituðu að láta af hendi
nýfengna samfélagsstöðu sína og
ákveða að skora hana á hólm? Sjald
an launar kálfurinn ofeldið, hlýtur
hún að tauta við skrifborðið í Stjórn
arráðinu.
J
óhanna er í undarlegri stöðu. Ef
hún hlýðir ekki stjórnlagaráði
fer stjórnlagaráð í hart. Ef hún
hlýðir stjórnlagaráði vex því ás
megin og það heldur áfram störfum
sínum. Fram undan er því epískur
bardagi (félags)vísindamannsins
Jóhönnu við sköpunarverk sitt sem
framlengdi líftíma sinn án þess að
hún fengi nokkuð við ráðið. Hún setti
þetta saman, hún hlýtur að kunna að
taka það í sundur.
H
ugmyndir um að rjóminn af
stjórnlagaráði bjóði sig fram til
Alþingis eru af hinu góða. Víst
er að Þorvaldur Gylfason og
aðrir ráðsmenn eiga fullt erindi á Al
þingi Íslendinga.
Það er ákall í landinu eftir heil
brigðu og nýju stjórnmálaafli sem
vinnur í þágu fólksins í landinu en
ekki við að ota sínum tota. Þessi þrá
þjóðarinnar eftir nýju blóði kom fram
í því að Borgarahreyfingin náði góðu
fylgi í síðustu þingkosningum og Besti
flokkurinn seinna í borgarstjórnar
kosningum. Vandinn er hins vegar sá
að framboðin voru sett fram í gríni
eða besta falli hálfkæringi. Borgara
hreyfingin er enda splundruð og eftir
stendur fyrirbærið Hreyfingin sem fáir
vita fyrir hvað stendur. Gamla Borg
arahreyfingin lifir af almannafé og
logar í innbyrðis átökum um sponsur
fyrir gæðinga. Þar er litla von að finna
um siðvæðingu í stjórnmálum. Besti
flokkurinn er með þeim ósköpum að
grínið er efst á baugi. Borgarstjórinn
slær í gegn í skrúðgöngum en ekki
þess í milli. Orkan fer í að reyna að
þjappa borgarfulltrúum saman í gervi
gæsa. Meirihluti borgarstjórnar brýtur
lög með því að skila ekki rekstraráætl
unum. Á meðan stendur fjárhagur
Borgarinnar í ljósum logum. Ábyrgð
arleysið tröllríður Ráðhúsinu.
Fjórflokkurinn er ekki sérlega trú
verðugur. Þar er flest við það sama
þótt í einhverjum tilvikum hafi átt sér
stað hreinsun. Óþroskuð umræðu
hefð ræður ríkjum á Alþingi Íslend
inga. Tekist er á um tittlingaskít dag
ana langa en kjarni málsins gjarnan
sniðgenginn. Almenningur hefur
enda misst trúna á þingið. Það er því
lykilatriði að fólkið í landinu taki hlut
verk sitt sem kjósendur alvarlega og
vindi ofan af vitleysunni. Það er óboð
legt að fólk sýni atkvæðisréttinum þá
fyrirlitningu að kjósa ábyrgðarlausa
trúða til forystu.
Stjórnlagaráðið sýndi í störfum
sínum að þar fór fólk sem hafði vit
og þroska til að takast á um kjarn
ann í stjórnmálunum, sjálfa stjórnar
skrána. Þótt auðvitað hafi einhverjir
hefðbundnir flokkadrættir til hægri
og vinstri átt sér stað, þá var vinna
ráðsins í það heila til fyrirmyndar.
Ráðið skilaði samhljóða niðurstöðu
sem er í raun kraftaverk. Það er því
fín hugmynd að þetta fólk komi sér
saman um að bjóða fram til þing
kosninga og færa þannig blæ sam
lyndis yfir þingheim. Sundrungin og
upphrópanapólitík galgopanna yrði
þá vonandi sett til hliðar. Aðalatrið
ið er að koma þingheimi í það horf
að almenningur eignist að nýju trú á
fulltrúum sínum. Í stað þess að kjósa
trúða þarf þjóðin að finna verðuga
fulltrúa sem treystandi er fyrir fjör
eggi örþjóðar við ysta haf.
Það lifnaði við
Svarthöfði
„Það bitnar allt
harkalega á
heimilunum
og fyrirtækj-
unum í land-
inu á meðan
það er nánast stefna að
það megi ekki auka hag-
vöxtinn.“
n Vilhjálmur Egilsson, framkvæmda-
stjóri Samtaka atvinnulífsins, segir tíma
skattahækkana liðinn. – mbl.is
„Einu sinni fékk ég svo
mikið ógeð á karli að ég
hringdi í konuna hans og
sagði henni frá þessu.“
n Fimm barna móðir sem hefur
stundað vændi í 16 ár. – DV
„Aðkoman í
morgun var
vægast sagt
ógeðsleg
– einhver
fremur illa
gefinn hafði þá reddað sér
smá kúk og sett á glæsi-
legan bakka; lok af rækju-
salati frá Bónus – og
smurt á bílinn minn – sér-
staklega á handfangið.“
n Þorbjörg Marinósdóttir bloggaði um
að einhver óprúttinn aðili hefði smurt skít
yfir bíl hennar. – DV.is
„Ég er búinn að vera að
díla við streit, hvíta
karlmenn frá blautu
barnsbeini og er ég með
fordóma ef ég loksins fer
að setja þeim mörk?“
n Páll Óskar Hjálmtýsson segist ekki
haldinn fordómum. – DV
Ert þú að hætta
á toppnum?
„Nei, ég á eftir
að verða Íslands-
meistari með
Völsungi. Það
er toppurinn.“
Pálmar Péturs-
son, sem varð
íslandsmeistari
með hand-
knattleiksliði
FH á síðustu leiktíð, hefur látið í það
skína að hann hyggist taka sér hlé
frá handboltanum, í það minnsta
um sinn.
Spurningin
„Tekist er á um
tittlingaskít
dagana langa.