Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Síða 20
20 | Fókus 10. ágúst 2011 Miðvikudagur
V
ið erum á leiðinni í
tónleikaferðalag um
Vestfirði þar sem
aðalmarkmiðið er
að kynnast matarmenningu
Vestfjarða og greiða fyrir okk-
ur með því að leika tónlist,“
segir Svavar Pétur Eysteins-
son, forsprakki hljómsveitar-
innar Prins Póló. Hljómsveitin
hyggst fara á tónleikaferðalag
um Vestfirðina þar sem tvinn-
að verður saman tónlist og
mat. „Við erum frekar léleg
í uppvaski en getum borgað
fyrir okkur með tónlist,“ segir
Svavar.
Hugmyndin að ferðalaginu
kviknaði fyrr í sumar. „Okk-
ur langaði á Vestfirði og við
ákváðum bara að gera þetta
svona. Fara í ferðalag vest-
ur og halda nokkra tónleika
í leiðinni. Þetta verða þrenn-
ir tónleikar. Við verðum á
Hólmavík seinnipartinn á
fimmtudaginn og svo „krús-
um“ við inn á Ísafjörð og það-
an yfir á Flateyri þar sem við
endum í sunnudags-„brunch“
á Vagninum.“
Svavar segir að hljómsveit-
armeðlimir séu spenntir fyrir
ferðalaginu og sérstaklega fyr-
ir matnum sem borinn verð-
ur á borð. „Við ætlum bara að
borða það sem er sett á disk-
inn okkar og ég held að það sé
oftast eitthvað sem er dregið
upp úr sjónum.“
Aðgangseyri inn á tón-
leikana verður stillt í hóf og
hljómsveitin býður einnig
upp á sérstakt tilboð kjósi fólk
að fylgja henni á milli staða.
„Það kostar 1.000 krónur inn
á hverja tónleika en ef fólk
mætir á alla tónleikana þá
kostar bara 333,33 krónur inn
á hverja tónleika. Það er ódýr-
ara en pylsa og kók. Við viljum
endilega fá sem flesta og það
eru allir velkomnir með okkur
á rúntinn.“ viktoria@dv.is
Léleg í uppvaski Hljómsveitin Prins Póló ákvað að skella sér í ferðalag um Vestfirði. Sveitin ætlar að borga fyrir
matinn með því að spila því að uppvask er ekki hennar sterka hlið, að sögn Svavars.
Hljómsveitin Prins Póló spilar fyrir mat
n Fer í óvenjulegt tónleikaferðalag um Vestfirði
H
ugmyndin kom
þannig upp að við
vorum nokkrir fé-
lagar að keyra milli
Sauðárkróks og Reykjavík-
ur og fórum að tala um hvað
það væri skrýtið að það væri
engin tónlistarhátíð á Norð-
urlandi eins og er á Vestur-
landi og Austurlandi. Við
hugsuðum með okkur hvern-
ig væri að við myndum bara
halda tónlistarhátíð á Krókn-
um. Við héldum að þetta
væri lítið mál og skelltum
okkur bara í þetta og héld-
um fyrstu hátíðina í fyrra,“
segir Stefán Friðrik Friðriks-
son einn af skipuleggjendum
tónlistarhátíðarinnar Gær-
an. Hátíðin er haldin í annað
sinn á Sauðárkróki um næstu
helgi.
„Við héldum þetta í fyrsta
skipti í fyrra og vorum með
21 hljómsveit að mig minn-
ir og heimildamyndir um ís-
lenska tónlist. Það tókst mjög
vel til í fyrra, svo vel að við
ákváðum að halda þetta aft-
ur. Það voru allir gestir rosa-
lega ánægðir og hljómsveit-
irnar sem spiluðu líka.“
Hátíðin verður með
svipuðu sniði í ár. Um 20
hljómsveitir koma fram.
Tónleikarnir fara fram í sút-
unarverksmiðjunni Loð-
skinn sem er eina sútun-
arverksmiðja landsins og
heimildamyndir um íslenska
tónlist verða sýndar í Sauð-
árkróksbíói. „Þetta verður
svipað í ár og í fyrra. Það eru
svipað margar hljómsveitir
að spila en við bættum við
fimmtudeginum. Þá verða
skagfirskir sólólistamenn að
spila á Mælifelli sem er bar
hérna.“
Stefán segir markmið há-
tíðarinnar vera að leyfa ung-
um tónlistarmönnum að
spreyta sig. „Markmiðið með
hátíðinni er að gefa ungum
tónlistarmönnmum færi á
að spila í góðu kerfi fyrir fullt
af fólki og spila með þekktari
tónlistarmönnum og hljóm-
sveitum.“
Fjölmargir tónlistarmenn
koma fram á hátíðinni og
má þar meðal annars nefna
hljómsveitina Valdimar, Blaz
Roca, Bigga Bix og marga
fleiri. Hátíðin hefst á fimmtu-
daginn og kostar 4.000 krón-
ur inn á hana. Miðinn gildir
á alla daga hátíðarinnar sem
og aðgangsmiði á heimilda-
myndirnar sem sýndar eru í
Sauðárkróksbíói.
viktoria@dv.is
Gæran haldin í annað sinn
n Tónlistarhátíðin Gæran haldin á Sauðárkróki um helgina
Tónlist og bíó Gæran
verður haldin í annað sinn
um helgina. Fjölmargir tón-
listarmenn koma fram auk
þess sem heimildamyndir um
íslenska tónlist eru sýndar.
Tómas R. á
heimaslóðum
Bassaleikarinn Tómas R.
Einarsson mun ásamt slag-
verksleikaranum Matthíasi
M.D. Hemstock, flytja laga-
flokk Tómasar, Streng, á Hótel
Eddu á Laugum í Dalabyggð
fimmtudaginn 11. ágúst.
Tómas er alinn upp á Laugum
og tók upp vatnshljóð í nátt-
úrunni þar og notaði í Streng.
Strengur er óður Tómasar til
fólksins sem hann er kom-
inn af og persónulegt mynd-
bandsverk bætir sjónrænni
upplifun við þessa óvenjulegu
tónlist. Tónleikarnir hefjast
klukkan 21.
Makedónísk
magadans-
tónlist
Stuðbandið Skuggamyndir
frá Býsans stendur fyrir tón-
leikum í Deiglunni á Akur-
eyri fimmtudaginn 11. ágúst.
Tónleikarnir fara fram í tón-
leikröð sem kallast Heit-
ir fimmtudagar og er þetta
sjöundi fimmtudagurinn
í þessari röð. Hljómsveit-
in mun flytja makedóníska
magadanstónlist sem er að
sögn tónleikahaldara mjög
dansvæn. Tónleikarnir hefj-
ast klukkan 21.30. Almennt
miðaverð er 2.000 krónur en
1.000 krónur fyrir meðlimi í
Jazzklúbbi Akureyrar.
Kvennarokk
á Sódómu
Miðvikudagskvöldið 10. ágúst
verða tónleikar tileinkaðir
rokksöngkonum á skemmti-
staðnum Sódómu. Söngkonan
Lísa Einarsdóttir stígur á svið
ásamt hljómsveit og ætla þau
að taka vel valin lög sem sum-
ar hverjar af frægustu söng-
konum rokksögunnar hafa
gert ódauðleg. Lög eftir söng-
konur eins og Suzi Quatro, Pat
Benatar, Joan Jett og fleiri góð-
ar. Fimm manna hljómsveit
spilar undir ásamt tveimur
bak röddum og svo forsöng-
konunni Lísu. Húsið er opnað
klukkan 21 en tónleikarnir
hefjast klukkan 22. Aðgangs-
eyrir er 1.000 krónur.
Í
fyrra vorum við í takt við
ástandið í samfélaginu
en núna er komin meiri
jákvæðni og bjartsýni í
landsmenn og við spil-
um með. Þess vegna ætlum við
að vera djörf og halda risatón-
leika í þessu flottasta menn-
ingarhúsi Norðurlandanna.
Þeir sem koma fram verða
meðal annarra Diddú, Krist-
ján Jóhannsson, Egill Ólafs-
son, Gissur Páll, Richard Sco-
bie, Geir Ólafs, Margrét Eir,
Slim Jim og Karlakór Reykja-
víkur auk þess sem Fjallabræð-
ur og Friðrik Ómar hafa tekið
vel í að vera með,“ segir Ragn-
heiður Guðfinna Guðnadóttir,
framkvæmdastjóri forvarna-
og fræðslusjóðsins Þú getur!,
en sjóðurinn mun halda stór-
tónleika í Hörpunni laugardag-
inn 27. ágúst til eflingar geð-
heilsu. „Okkar markmið er að
fylla Eldborgarsalinn og miðað
við dagskrána trúi ég ekki öðru
en að það heppnist. Í rauninni
er hægt að segja að við lofum
tónleikagestum góðri skemmt-
un um leið og þeir styrkja gott
málefni svo þarna verða tvær
flugur slegnar í einu höggi,“
segir Ragnheiður Guðfinna.
„Sjóðurinn Þú getur! er til
fyrir tilstilli tónlistarfólks. Eng-
inn þeirra sem koma fram fær
greitt fyrir vinnu sína og fyr-
ir það erum við afar þakklát,“
segir Ólafur Þór Ævarsson,
geðlæknir og stofnandi sjóðs-
ins. Hann segir sjóðinn hafa
þrenns konar markmið: „Við
erum að styðja ungt fólk, sem
hefur átt við geðræn veikindi
að stríða, til náms, við erum
að veita styrki til þeirra sem
hafa unnið gott starf í geðheil-
brigðisþjónustu og við viljum
eyða fordómum með umræðu.
Þjóðfélagið er í einhvers kon-
ar bóndabeygju í neikvæðni
og því viljum við líka minna á
mikilvægi geðheilsu fyrir okk-
ur öll. Fjöldi þeirra sem þjást
af geðrænum veikindum er lík-
lega einn af hverjum tíu, ef ekki
fleiri, og einhver í fjórðu hverri
fjölskyldu stríðir við geðræn
vandamál svo þetta er mál sem
snertir okkur öll.“
Aðspurður segir Ólafur við-
horfið gagnvart geðsjúkdóm-
um hafa breyst. „Umræðan
er orðin opnari en það þarf
að auka hana enn frekar til að
eyða fordómum. Í meðferðum
er svo mikil þörf á jákvæðni og
hvatningu en ekki ótta og nei-
kvæðni og þess vegna förum
við af stað með þessa tónleika
með jákvæðnina að vopni.“
Ragnheiður Guðfinna
minnir á heimasíðu Þú getur!
en sjóðurinn er einnig með
síðu á Facebook. „Auðvitað
getur dagskráin í svona góð-
gerðastarfsemi alltaf breyst og
vonandi er fullur skilningur
á því. Það er hins vegar aldrei
vandamál að fylla upp í skörð.
Listamennirnir eru algjörlega
kóngar og drottningar kvölds-
ins en auk þeirra íslensku lista-
manna sem þarna koma fram
verður bandaríska stjarnan
Don Randi á píanóinu. Hann
flýgur beint frá Los Angeles til
að vera með okkur en hann
hefur spilað með ekki minni
kóngum en Michael Jackson
og Frank Sinatra.“ indiana@dv.is
Geðræn vandamál
snerta okkur öll
n Tónleikar til eflingar geðheilsu
n Diddú og Egill Ólafsson syngja
Flott saman Ragnheiður Guðfinna Guðnadóttir, framkvæmdastjóri Þú getur!, ásamt Ólafi Þór Ævarssyni geðlækni
og Kötlu Margréti Þorgeirsdóttur, sem var kynnir tónleikanna í fyrra.
Verndari sjóðsins Vigdís Finnbogadóttir er verndari tónleikanna. Hér er hún ásamt
Pálma Matthíassyni.