Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Blaðsíða 24
24 | Sport 10. ágúst 2011 Miðvikudagur
Erfitt hjá HK
Sumarið hefur verið hræði-
legt hjá HK í 1. deildinni en
liðið er enn án stiga eftir 15
umferðir. Sextánda umferðin
heldur áfram á fimmtudags-
kvöldið en þá fær HK einmitt
Selfoss í heimsókn en Selfyss-
ingar stefna hraðbyri upp í
Pepsi-deildina með Skagan-
um. Á fimmtudagskvöldið er
einnig fallslagur á Nesinu þar
sem Grótta tekur á móti ÍR,
Ólafsvíkingar fara í heimsókn í
Breiðholtið og KA tekur á móti
Þrótti. Allir leikirnir hefjast
klukkan 19.00.
Spila meira
á Parken
Danska meistaraliðið AG
Kaupmannahöfn ætlar að
spila stærri leiki sína í Meist-
aradeildinni á komandi tíma-
bili á Parken. Liðið vakti mikla
athygli þegar það sló heims-
metið í áhorfendafjölda er það
spilaði á Parken í vor þegar
það tryggði sér danska meist-
aratitilinn. Stefnt er þó að því
að nota aðeins hálfan Parken
svo allir áhorfendur sjái vel
en svæðið rúmar á milli 15–
18.000 áhorfendur. Með liðinu
spila landsliðsmennirnir Arn-
ór Atlason, Snorri Steinn Guð-
jónsson, Guðjón Valur Sig-
urðsson og Ólafur Stefánsson.
Tennur brotnar
í dómara
Portúgalski dómarinn Pedro
Proenca varð fyrir líkamsárás
þegar hann var við innkaup
í verslunarmiðstöð í Portú-
gal. Árásarmaðurinn kýldi
Proenca í andlitið og braut
við það tvær tennur í dómar-
anum. Ofbeldismaðurinn
flúði vettvanginn en lögreglan
handsamaði hann og kærði
Proenca hann fyrir líkamsárás.
Proenca er hæstskrifaðasti
dómari Portúgals og dæmdi
bikarúrslitaleikinn þar í landi
í vor. Hann er einnig alþjóð-
legur dómari og dæmdi meðal
annars annan undanúrslita-
leik Man. United og Schalke
í Meistaradeildinni á síðasta
keppnistímabili.
A
lþjóðaólympíunefnd-
in sagði í gær að það
væri fullvíst að Ól-
ympíuleikarnir sem
fara fram í Lundún-
um að ári verði öruggir þrátt
fyrir óeirðirnar sem geisað hafa
í borginni undanfarna sólar-
hringa. Mikið hefur verið um
ofbeldi og íkveikjur í Lundún-
um undanfarna daga eftir að
það sem hófst sem friðsam-
leg mótmæli, vegna dauðdaga
fjögurra barna föður sem lög-
reglan í Lundúnum skaut
til bana, breyttist í allsherjar
óeirðir.
„Öryggi á Ólympíuleikun-
um er algjört forgangsatriði fyr-
ir nefndina. Það er samt sem
áður í höndum borgarinnar
sem heldur leikana að sjá til að
allt fari almennilega fram. Við
erum handviss um að Lund-
únir muni standa sig vel í þeim
efnum,“ sagði í tilkynningu Ól-
ympíunefndarinnar í gær, og
var þar væntanlega mörgum
létt.
Locog, nefndin sem sér um
að skipuleggja leikana eftir ár,
segir að engin vandamál verði
og var keppt á nýja strandblak-
vellinum nærri Downing Street
í Lundúnum í gær en verið var
að kynna íþróttina fyrir borgar-
búum.
„Það er mikið af smáatrið-
um sem þarf að fara yfir hvað
varðar öryggismálin á Ólymp-
íuleikunum. Við munum halda
áfram að fara yfir þau með lög-
reglunni og innanríkisráðu-
neytinu á þessu ári sem eftir
er fram að leikunum sjálfum,“
sagði í tilkynningu Locog.
Breska Ólympíusambandið
hittist á þriðjudaginn og fór þar
yfir hvernig best væri að standa
að málum komi upp mál eins
og óeirðirnar sem nú standa
yfir. Á heildina litið ganga fram-
kvæmdir þó vel í Ólympíuþorp-
inu og á öðrum stöðum þar sem
keppt verður á í Lundúnaborg.
tomas@dv.is
Óeirðirnar hafa ekki áhrif á ÓL 2012
n Engar áhyggjur af öryggi almennings í Lundúnum að ári
Ekkert vesen Ólympíuleikarnir
fara fram eftir ár og engar áhyggjur
eru af öryggismálum.
Þ
að er hugur í mönn-
um,“ segir landsliðs-
þjálfarinn í knatt-
spyrnu, Ólafur
Jóhannesson, en Ís-
land mætir Ungverjalandi í
vináttulandsleik í kvöld, mið-
vikudagskvöld. Leikurinn fer
fram á Puskás Ferenc-vellin-
um í Búdapest en Ólafur segi
aðstæður góðar og veðrið ynd-
islegt. „Við erum búnir að æfa
einu sinni og hér eru flottar að-
stæður. Það er flott veður, sól
og blíða. Það er svolítið mikill
hiti en með honum er gola og
svo rigndi aðeins í gær þannig
að þetta er fínt,“ segir Ólafur.
Fái Ólafur ekki áframhaldandi
samning hjá KSÍ verður þetta
þriðji síðasti landsleikur hans
en eftir eru tveir leikir í undan-
keppni EM gegn Noregi ytra og
Kýpur heima.
Miklar breytingar á
hópnum
Enn einu sinni eru mik-
il forföll í hópnum en Ólafur
þurfti að gera miklar breyt-
ingar á hópnum fyrir leikinn
gegn Ungverjum. Fimm leik-
menn drógu sig út úr hópnum
vegna meiðsla. Fyrst þeir Gylfi
Sigurðsson og Sölvi Geir Otte-
sen sem báðir eru meiddir. Svo
heltust úr lestinni þrír í viðbót
á sunnudagskvöldið, þeir Kol-
beinn Sigþórsson, framherji
Ajax, og KR-ingarnir Guð-
mundur Reynir Gunnarsson
og Hannes Þór Halldórsson.
„Þetta er það sem gerist
í þessu. Menn meiðast. Það
koma samt aðrir menn inn í
staðinn og við erum með fín-
an hóp,“ segir Ólafur en hvað
finnst honum um þessi for-
föll sem virðast alltaf vera fyrir
hvern leik? „Þetta bara gerist.
Menn eru að spila með sínum
félagsliðum. Ágúst hefur oft
verið sérstaklega erfiður því
leikmenn eru á undirbúnings-
tímabili þar sem mikið er æft.
Þá koma upp ýmis eymsl hér
og þar. Þetta kemur ekkert á
óvart,“ segir hann.
Hugsum meira um okkur
„Við erum búnir að skoða
Ungverjana á myndbandi.
Þeir eru fín knattspyrnuþjóð
og með fínt lið,“ segir þjálf-
arinn um mótherja kvölds-
ins. Hann er þó minna að
spá í mótherjunn fyrir leik-
inn í kvöld. Við ætlum núna
að hugsa meira um okkur en
hina. Við dettum stundum í
að hugsa aðeins of mikið um
andstæðingana,“ segir Ólafur
en hvað er þá það sem hann
vill sjá gegn Ungverjalandi?
„Ég var óánægður með það
í Danaleiknum hvað við vorum
að kýla boltann mikið fram.
Það var aldrei lagt upp með
það. Svo vorum við alltof langt
frá þegar seinni boltinn kom
og því áttum við litla mögu-
leika. Núna ætlum við að reyna
að spila boltanum og halda
honum aðeins aftar á vellin-
um,“ segir Ólafur Jóhannesson.
n Ísland mætir Ungverjalandi í vináttulandsleik n Mikil forföll
í hópnum n Landsliðsþjálfarinn vill halda boltanum betur
Vill engin
háloftaspörk
Mættur Indriði
Sigurðsson verður
með Íslandi gegn
Ungverjum í kvöld.
Tómas Þór Þórðarson
tomas@dv.is
Fótbolti Vill halda boltanum
Landsliðsþjálfarinn var
óánægður með leikinn
gegn Dönum.