Dagblaðið Vísir - DV

Ulloq
Ataaseq assigiiaat ilaat
Tidligere udgivet som

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Qupperneq 25

Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Qupperneq 25
Sport | 25Miðvikudagur 10. ágúst 2011 Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is Fótbolti n Lið á Ítalíu að hagræða úrslitum n Leikmenn í bann og stig dregin af liðum n Markvörður byrlaði samherjum sínum ólyfjan fyrir leik n Aðeins fimm ár frá síðasta stóra hneykslismáli U pp er komið annað hneyksli í knattspyrn- unni á Ítalíu og aftur hafa menn og lið ver- ið dæmd fyrir að hag- ræða úrslitum leikja eða hafa áhrif á þau með ólögmætum hætti. Knattspyrnusamband Ít- alíu telur að í yfir átján leikjum í B-deildinni, þeirri næstefstu, og í deildum enn neðar hafi úr- slitum verið hagrætt. Þeir ein- staklingar sem hljóta refsingu í málinu eru leikmenn liðanna, bæði núverandi og fyrrverandi. Þeir eru sagðir hafa verið í samstarfi við veðmálafyrirtæki í að hafa áhrif á úrslit leikjanna og hagræða þeim. Nýliðarnir í vondum málum Eitt lið fer sérstaklega illa út úr dóminum en það eru ný- liðar Atalanta sem unnu sér inn sæti í efstu deild á síðasta keppnistímabili. Liðið missir fyrirliða sinn, Cristiano Doni, sem er fyrrverandi landsliðs- maður Ítalíu, í þriggja og hálfs árs bann. Þess utan byrjar lið- ið með sex stig í mínus þegar A-deildin hefst seinna í mán- uðinum. Stærsta nafnið sem kemur við sögu í hneykslismálinu er Giuseppe Signori, fyrrverandi fyrirliði Lazio og landsliðs- maður Ítalíu til margra ára. Hann hlaut bann við knatt- spyrnuiðkun og öllum störf- um sem knattspyrnu tengj- ast í fimm ár. Marco Paoloni, markvörður liðsins Bene- vento, var einnig dæmdur í fimm ára bann. Paoloni er gefið að sök að hafa byrlað samherjum sínum ólyfjan fyr- ir einn leik á síðasta tímabili í þeim tilgangi að hagræða úr- slitum leiksins. Stig voru einnig dregin af fleiri liðum en Benevento hefur leiktíðina með níu stig í mínus, dregin voru sex stig af Ascoli og Piacenza verður með fjögur stig í mínus þegar leiktíðin hefst. Fjársektum var einnig beitt á liðin. Stutt síðan síðast Aðeins fimm áru eru síðan síðast komst upp um mikið hneykslismál í ítalska boltan- um. Árið 2006 komst ítalska lögreglan að því að lið í A- og B-deildunum væru að hag- ræða úrslitum leikja og velja sér dómara sem vitað væri að myndu hjálpa þeim í leiknum. Mörg stórlið voru flækt í það mál, meðal annars þáverandi meistarar Juventus, AC Milan, Fiorentina, Lazio og Reggina. Upp komst um málið þegar lögreglan komst á snoðir um símtöl milli framkvæmda- stjóra liðanna og yfirmanna dómaramála á Ítalíu. Juventus fór einstaklega illa út úr því máli en liðið var sent niður í B-deildina, Ítalíu- meistaratitlarnir árin 2005 og 2006 voru teknir af liðinu, því var hent úr Meistaradeildinni það árið og gert að spila þrjá heimaleiki fyrir luktum dyr- um. Í lÍ Ósáttir Stuðningsmenn Atalanta mættu fyrir utan dómhúsið í Bergamo og mótmælu því að lið þeirra væri bendlað við hneykslið. Langt bann Cristiano Doni má ekki koma nálægt knattspyrnu í þrjú og hálft ár. aftur hneyksli á Schumacher gæti hætt aftur Sjöfaldur heimsmeistari í Formúlu 1, Michael Schu- macher, er ekki viss um að hann muni keyra áfram fyrir Mercedes-liðið á næsta ári þrátt fyrir að vera með samn- ing þess efnis. „Ég kom til Mercedes með ákveðið plan: Ekki að vinna allar keppnir heldur að þróa liðið,“ segir hann við ítalska blaðið Cor- riere dello Sport. „Ef eitthvað er, þá er ég vandamálið. Það er staðreynd að ég er rólegri en áður og kannski ekki með rétt hugarfar. Á einhverjum tíma- punkti mun ég taka ákvörðun um hvort ég haldi áfram eða hreinlega hætti aftur,“ segir Michael Schumacher. Mertesacker vill til Arsenal Miðvörðurinn hávaxni Per Mertesacker, sem leikur með Werder Bremen í Þýskalandi, gerir nú hvað hann getur til að láta Arsenal vita af sér. „Fyrir landsliðsmann eins og mig er gott að leika utan heima- landsins. Ég verð að segja að England vekur áhuga hjá mér,“ segir hann í viðtali við þýska miðla en breska blaðið Daily Mail greinir frá því að Merte- sacker hafi mikinn áhuga á að ganga í raðir Arsenal. Werder Bremen að sama skapi vill losna við Mertesacker núna og fá greiðslu fyrir hann frekar en að missa hann frítt næsta sumar. Kjarninn í landsliðinu Ashley Young, leikmað- ur Manchester United, var ánægður með ákvörðun landsliðsþjálfarans Fabio Capello að kalla hinn unga Tom Cleverley í hópinn eftir frammistöðu hans í Sam- félagsskildinum gegn Man. City. Leikurinn gegn Hollandi fer þó ekki fram vegna óeirð- anna í Lundúnum. Clever- ley var sjötti United-maður- inn í hópnum á eftir Smalling, Jones, Welbeck, Rooney og Young en allir eru þeir 26 ára eða yngri. „Kannski gæti þetta orðið kjarninn í nýju lands- liði Englands,“ sagði Young á blaðamannafundi, ánægður með liðsfélaga sína. Í leikmannahópi QPR, nýlið- anna í ensku úrvalsdeildinni, er einn mest spennandi leik- maður deildarinnar, Mar- okkómaðurinn Adel Taarabt. Taarabt var kjörinn besti leik- maður Championship-deild- arinnar í fyrra en hann var stórkostlegur á síðasta tíma- bili sem endaði með því að QPR rúllaði upp næstefstu deild. Taarabt var við það að ganga í raðir hins ný- ríka franska liðs Paris Sa- int-Germain en ekkert varð úr því. Hann hefur ekki ver- ið spenntur fyrir því að vera áfram í röðum QPR. „Ég verð bara að reikna með honum fram til jóla í það minnsta. Pilturinn var virkilega spennt- ur fyrir PSG því hann á fjöl- skyldu nálægt París. Hann veit samt að ef hann vill láta alvöru lið vita af sér verður hann að spila hálft til eitt ár í úrvals- deildinni,“ segir hinn málglaði stjóri QPR, Neil Warnock. Warnock verður seint sagður annað en opinskár en aðspurður í spjallþætti á Sky Sports-sjónvarpsstöð- inni hvernig væri að vera með Taarabt í hóp svaraði stjór- inn: „Þegar maður tekur við honum verður maður bara að þola það.“ Taarabt var oft með stjörnustæla í herbúð- um QPR og lét Warnock hann einu sinni klára leik þrátt fyrir að hann hefði beðið um skipt- ingu vegna meiðsla. „Það er erfitt fyrir mig líka að halda hinum leikmönnun- um rólegum því mann lang- ar bara að negla hann niður á æfingum. Ég verð að halda fundi með nokkrum litlum hópum leikmanna og biðja þá um að kýla hann ekki,“ seg- ir Warnock og önnur lögmál gilda í kringum Taarabt en aðra þegar kemur að kerfinu sem QPR spilar. „Hann vill ekki fá boltann á okkar vallarhelmingi. Varnar- menn eru sektaðir ef þeir gefa á hann,“ segir Warnock sem hrósaði samt hæfileikum Taa- rabts. „Hann er ótrúlega spenn- andi leikmaður og getur búið sér til endalaust af plássi inn á vellinum. Þess vegna held ég að úrvalsdeildin verði jafnvel auðveldari fyrir hann,“ segir Neil Warnock en þess ber að geta að með QPR leikur auðvi- tað landsliðsmaðurinn Heið- ar Helguson tomas@v.is Biður leikmenn um að kýla ekki Taarabt n Neil Warnock reiknar með að halda sinni skærustu stjörnu Óþolandi en góður Taarabt getur gert liðsfélaga sína brjálaða.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.