Dagblaðið Vísir - DV - 10.08.2011, Síða 26
26 | Fólk 10. ágúst 2011 Miðvikudagur
Heitir eftir
langömmu
Dóttir fegurðardrottningar-
innar Unnar Birnu Vilhjálms-
dóttur og Péturs Rúnars Heim-
issonar fékk nafn um helgina.
Sú litla, sem er fyrsta barn
þeirra beggja, hlaut nafnið
Erla Rún og er það í höfuðið
á föðurömmu Unnar Birnu,
Erlu Vilhjálmsdóttur. Erla er
eigandi Tékk Kristal og hafa
fjölmargir Íslendingar verslað
af henni gjafavöru í gegnum
árin. Hún er einnig systir Vil-
hjálms Vilhjálmssonar, fyrr-
um borgarstjóra Reyjavíkur.
Unnur Birna heitir eftir móður
sinni fegurðardrottningunni
Unni Steinsson og margir
voru búnir að búast við því að
þriðja Unnur-in myndi bætast
í hópinn.
Akureyri
kemur út
á morgun
Rithöfundurinn og fjölmiðla-
maðurinn Björn Þorláks-
son ritstýrir vikuritinu Akur-
eyri, nýju tímariti sem verður
dreift í öll hús á Akureyri. Það
er greinilega nóg að gera hjá
Birni því auk blaðsins mun
koma út bók eftir hann sem
Salka gefur út fyrir jólin auk
þess sem hann ætlar að setj-
ast á skólabekk að nýju þegar
haustar. Fyrsta tölublað Akur-
eyrar kemur út á morgun og
eru bæjarbúar eflaust spenntir
að fylgjast með nýjasta verk-
efni þessa reynda fjölmiðla-
manns.
Fékk loksins
súkkulaði-
köku
Heimsmeistarinn í crossfit,
Annie Mist Þórisdóttir, nýtur
lífsins þessa dagana í Boston
þar sem hún er í boði íþrótta-
vöruframleiðandans Reebok
sem er einnig helsti styrktar-
aðili hennar. Þar er hún við
æfingar og hefur einnig nýtt
tímann til að versla. Annie
hefur ekki getað látið margt
eftir sér í mataræði undan-
farna mánuði vegna undir-
búnings fyrir heimsmeist-
aramótið en nú gerir Annie
vel við sig. Á Facebook-síðu
hennar er mynd af henni
með risastóra súkkulaðiköku
og sleikir hún út um. „Kakan
sem Annie hefur dreymt um í
marga mánuði,“ stendur undir
myndinni. Megi einhver gera
vel við sig hlýtur það að vera
heimsmeistarinn í crossfit.
n Ritstjóraskipti á Nýju Lífi, Séð og heyrt og Mannlífi
„Þetta kom mér mjög á óvart“
Þ
etta kom mér mjög á
óvart verð ég að segja,“
segir Kolbrún Pálína
Helgadóttir, fráfarandi
ritstjóri tímaritsins
Nýs Lífs, en henni hefur verið
sagt upp störfum. Það er Birt-
íngur útgáfufélag sem gefur
blaðið út en Þóra Tómasdóttir
mun setjast í ritstjórastólinn
í stað Kolbrúnar. „Það var í
raun enginn fyrirvari á þessu,“
heldur Kolbrún áfram en sam-
kvæmt heimildum DV hefur
ríkt nokkuð ósætti innan fyrir-
tækisins undanfarið.
Til að mynda var Svani Má
Snorrasyni sagt upp störfum
sem ritstjóra Séð og heyrt
eftir aðeins tvo mánuði í
starfi en nú hefur eftirmaður
hans, Ragnheiður M. Krist-
jónsdóttir, sagt upp störf-
um. Við hennar starfi tekur
Lilja Katrín Gunnarsdóttir
sem hefur starfað á blaðinu
um nokkurt skeið en hún er
einnig leikkona og fór með
aðalhlutverkið í þáttunum
Makalaus. Þá hefur Hrund
Þórisdóttir tekið við sem rit-
stjóri Mannlífs af Karli Stein-
ari Óskarssyni sem einnig er
framleiðslu-, markaðs- og
sölustjóri Birtíngs.
Kolla gefur lítið fyrir deilur
innan fyrirtækisins og segist
yfirgefa fyrirtækið sátt þrátt
fyrir allt. „Ég mun skila mínu
síðasta blaði með sóma og
skoða svo mín mál. Þetta hef-
ur verið frábær skóli og það
hefur tekist að byggja blaðið
mikið upp á skömmum tíma.
Ég á eftir að sakna hópsins því
það var góður andi í honum.
Við höfðum fundið mikinn
meðbyr frá konum, og konur
voru ánægðar með að fá al-
vöru tískublað á Íslandi. Ég lít
ekki á þetta sem nein endalok
heldur taka bara við önnur
spennandi verkefni. Ég óska
svo bara Þóru góðs gengis.“
asgeir@dv.is
Kolbrún Pálína og Þóra
Tómasdóttir Tíð ritstjóraskipti
hafa verið á Birtíngi undanfarið.
„Það skilur mig enginn“
É
g er alveg hættur að
syngja. Ég vil helst
gleyma öllu, lífinu, til-
verunni og öllu. Ég er
bara leiður á þessu,
bara orðinn leiður á lífinu,“
segir kúreki norðursins, Hall-
björn Hjartarson, í samtali við
DV. Hallbjörn er líklega þekkt-
asti kántrýsöngvari landsins
og flestir setja samasemmerki
milli hans og hátíðarinnar
á Skagaströnd enda var það
hann sem setti hátíðina á lagg-
irnar. Hann er frumkvöðull á
sviði kántrýtónlistar á Íslandi
og stofnaði Kántrýbæ á Skaga-
strönd auk þess sem hann hef-
ur rekið útvarpsstöðina Útvarp
Kántrýbæ í mörg ár. Skaga-
strönd hefur verið þekkt und-
anfarin ár fyrir tengingu sína
við kántrý og þá sérstaklega
Kántrýbæ. Hallbjörn segist þó
ekki tengjast hátíðinni á nokk-
urn hátt, og kemur ekki fram á
henni, í kjölfar þess að hátíð-
in var lögð niður og endurreist
án hans.
Hallbjörn segist vera alfarið
hættur að syngja en smellir
eins og Komdu í Kántrýbæ,
Sannur vinur og Hundurinn
Húgó eru lög sem margir
landsmenn kannast við. „Ég er
orðinn of gamall til að syngja
og búinn að missa áhugann
á því eins og öllu öðru,“ segir
Hallbjörn heldur svartsýnn.
Fannst hann vera of
stórt númer
„Ég er bara í leti heima. Hátíð-
in er ekki á mínum vegum og
kemur mér ekkert við. Ég verð
bara í mínu hlutastarfi í út-
varpinu og kem ekkert nálægt
þessu að öðru leyti,“ segir Hall-
björn, sem er ekki par sátt-
ur við bæjaryfirvöld á Skaga-
strönd. „Kántrýhátíðin sem
slík stóð í níu ár og hún var
mín hugmynd upphaflega og
mitt framtak. Síðan var henni
slitið hér af hreppsnefnd-
inni. Svo var hún lögð niður í
einhver ár vegna einhverrar
meinsemdar og öfundsemi í
minn garð. Þeir fóru að sjá eft-
ir þessu síðar og fengu leyfi hjá
mér til að kalla þetta Kántrý-
daga. Ég á einkarétt á nafninu
og leyfði þeim að nota það en
að öðru leyti hef ég ekki komið
nálægt þeim síðan. Þeir byrj-
uðu aftur með hátíðina fyrir
nokkrum árum og hafa haldið
hana í nokkur ár en ég skipti
mér ekkert af þessu.“
Fyrirgefur ekki
Hann segir það hafa verið von-
brigði þegar hátíðin var sett
af á sínum tíma enda hafði
hann eytt mikilli vinnu í hana
sem og að kynna bæinn sem
Kántrý bæ Íslands. „Ég var
náttúrulega ósáttur við þetta.
Ég var búinn að gefa allt mitt
líf í þetta ásamt tilveru Kántrý-
bæjar og öllu því sem ég hef
gert til að auglýsa staðinn og
annað slíkt. Þetta var kom-
ið á þann háa punkt að það
komu hingað um 14–15 þús-
und manns á sumri en vegna
öfundsýki og afbrýðisemi út í
mig þá var þessu slitið. Þetta
er bara eins og ég segi, hvort
sem þeir vilja viðurkenna það
eða ekki, þeim fannst ég bara
vera orðinn of stórt númer.
Maður tekur ekki við þegjandi
og hljóðalaust og maður fyrir-
gefur ekki svona einn, tveir og
þrír. Þetta var of mikið. Það er
alltaf hægt að vera vitur eftir á,
segir gamalt málstæki og þeir
virðast núna vera að vitkast.
Þeir hefðu kannski betur gert
það fyrr.“
Hallbjörn segist hafa gert
margt fyrir bæinn. „Það var ég
n Hallbjörn Hjartarson, kúreki norðursins, er ósáttur vegna Kántrýdaga n Segir Kántrýhátíðina hafa verið slegna af vegna
öfundar í hans garð n Segir Skagstrendinga hafa álitið hann „hálfvita“ n Orðinn þreyttur á lífinu og syngur ekki lengur
Syngur ekki lengur Hallbjörn
segist vera orðinn þreyttur á lífinu
og tilverunni og er alveg hættur að
syngja.
Ósáttur Hallbjörn er ekki
sáttur við hvernig hætt
var með Kántrýhátíðina á
sínum tíma. Hann kemur
ekki nálægt þeirri hátíð
sem haldin er núna.