Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2011, Blaðsíða 2

Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2011, Blaðsíða 2
2 | Fréttir 15. ágúst 2011 Mánudagur S amkvæmt samkomulagi sem íslensk stjórnvöld gerðu við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn í nóvember árið 2008 bar þeim að fá erlendan sér- fræðing til að meta regluverk varð- andi lausafjárstýringu banka, lán til tengdra aðila, stórar stöðutökur, krosseignatengsl og mat á hæfi eig- enda og stjórnenda. Finninn Kaarlo Jännäri var fenginn til að vinna mats- skýrslu fyrir íslensk stjórnvöld sem hann kynnti á blaðamannafundi í lok mars árið 2009. Jännäri var með- al annars forstjóri finnska fjármála- eftirlitsins í ellefu ár. Meðal þess sem hann lagði til var að fækka ráðuneytum, sem hefðu með löggjöf á sviði fjármálamarkað- arins að gera, sameina Seðlabank- ann og Fjármálaeftirlitið (FME), auka valdheimildir FME, endurskoð- un á innistæðutryggingakerfinu og virk þátttaka í alþjóðlegu samstarfi á sviði löggjafar og eftirlits með fjár- málastarfsemi. Hann lagði til átta til- lögur sem sjást í töflu með frétt. DV hafði samband við finnska fjármála- eftirlitið til þess að reyna að fá viðtal við Kaarlo Jännäri. Fengust þau svör að hann væri á ferðalagi og tókst ekki að hafa uppi á honum en hann er kominn á eftirlaun. Hafa unnið eftir flestum tillögum hans Daginn eftir að Kaarlo Jännäri hafði skilað skýrslu sinni skipaði ríkis- stjórnin starfshóp til að „vinna úr ábendingum hans svo hrinda megi skynsamlegum tillögum í fram- kvæmd sem fyrst“ eins og segir í til- kynningu á heimasíðu forsætisráðu- neytisins. Hrannar B. Arnarson, aðstoðarmaður forsætisráðherra, var formaður starfshópsins. DV sendi honum fyrirspurn um það hvort starfshópurinn hefði unnið úr ábendingum Kaarlo Jännäri og ef svo er hvort hægt væri að upplýsa um meginatriði þeirrar vinnu. Í svari frá Hrannari kemur fram að starfshópurinn hafi skilað skýrslu tveimur vikum eftir að Karlo Jänn- äri lagði fram tillögur sínar. Í skýrslu starfshópsins lagði hópurinn til margar tillögur sem flestar styðjast við ábendingar Jännäri. Ein sú fyrsta sem komst í framkvæmd var stofnun efnahags- og viðskiptaráðuneytis- ins með frumvarpi um breytingar á stjórnarráði Íslands sem varð að lög- um. Var það eitt af þeim 48 málum sem ríkisstjórnin ætlaði sér að ljúka í 100 daga áætluninni sem hún setti fram þegar hún tók við völdum eftir síðustu Alþingiskosningar árið 2009. Þar var farið eftir tillögu Jännäri um að nauðsynlegt væri að fækka þeim ráðuneytum sem hafa aðkomu að stjórnun efnahagsmála. „Á vettvangi viðkomandi ráðu- neyta hefur síðan verið unnið að eftirfylgni tillagnanna, ekki síst hjá efnahags- og viðskiptaráðu- neyti, en það ráðuneyti var einmitt stofnað á grundvelli tillagnanna. Skýrslan [hans Jännäri, innsk. blm.] hefur verið algert grundvallargagn við þá endurmótun sem fram hefur farið á laga- og regluumhverfi fjár- málamarkaðsins á Íslandi í tíð þess- arar ríkistjórnar og enn er unnið að ýmsum verkefnum sem rekja má til hennar,“ segir í svari frá Hrannari. Seinagangur við skipun nefndar um framtíðarskipan Í lögum númer 75/2010 um fjár- málafyrirtæki, sem samþykkt voru á Alþingi þann 23. júní árið 2010, var bráðabirgðaákvæði um að efna- hags- og viðskiptaráðherra skyldi skipa nefnd sem hefði það hlutverk að móta stefnu um framtíðarupp- byggingu fjármálakerfisins. Árni Páll Árnason, efnahags- og viðskiptaráð- herra, skipaði nefndina eftir að Eygló Harðardóttir, þingmaður Framsókn- arflokksins, hafði kvartaði undan því í mars á þessu ári að umrædd nefnd hefði ekki enn verið skipuð þrátt fyrir að meira en níu mánuðir væru liðn- ir síðan lög um það hefðu verið sam- þykkt. Ástæða kvartana hennar þá voru fréttir af sameiningu SpKef við Landsbankann sem vöktu litla hrifn- ingu hjá stjórnarandstöðunni. Nefnd um framtíðaruppbygg- ingu fjármálakerfisins er meðal ann- ars ætlað að skoða stöðu og starfs- umhverfi sparisjóða, eignarhald fjármálafyrirtækja á vátrygginga- Gengur hægt að vinna úr tillögum Jännäri n Finninn Karlo Jännäri kom með átta tillögur til að bæta regluverk á fjármálamarkaði n Hefur gengið hægt að koma tillögum hans sem hann lagði fram í mars 2009 í framkvæmd Annas Sigmundsson as@dv.is Efnahagsmál 1 Fækka ber ráðuneytum, sem hafa með löggjöf á sviði fjármálamarkaðsins að gera eða tengjast honum með öðrum hætti. 2 Sameina ber SÍ og FME eða færa stofnanirnar undir sömu yfirstjórn (eins og í Finnland og Írlandi). 3 Auka ber valdheimildir FME og hvetja ber stofnunina til að beita sér af meiri krafti. 4 Koma ber upp útlánaskrá (e. national credit registry) hjá FME til að draga úr útlánaáhættu í kerfinu og til að betri yfirsýn fáist yfir stórar áhættuskuldbind- ingar á landsvísu. 5 Setja ber strangari reglur um stórar áhættuskuldbindingar, lán til tengdra aðila og hæfi eigenda. Jafnframt ber að herða framkvæmd slíkra reglna, eftir atvikum á grundvelli matskenndra heim- ilda í samræmi við heilbrigða dómgreind. 6 Framkvæma ber fleiri vettvangs-kannanir hjá eftirlitsskyldum aðilum í því skyni að sannreyna veittar upplýsingar vegna eftirlits með fjármálastarfsemi og efni skýrslna, einkum að því er varðar útlánaáhættu, lausafjáráhættu og gjald- eyrisáhættu. 7 Innstæðutryggingakerfið ber að endur-skoða og bæta, í nánu samhengi við þróun mála á þessu sviði innan ESB. 8 Virk þátttaka í alþjóðlegu samstarfi á sviði löggjafar og eftirlits með fjár- málastarfsemi er mikilvæg, einkum innan EES og ESB. Helstu tillögur Jännäri Finninn Kaarlo Jännäri gerði skýrslu fyrir forsætisráðuneytið um reglur og eftirlit með bankastarfsemi. Var skýrslan hluti af samkomulagi Íslands og Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og skilaði hann henni þann 30. mars árið 2009. Kaarlo Jännari var forstjóri finnska fjármálaeftirlitsins í 11 ár, einn af yfirmönnum finnska seðlabankans um tíma og hefur einnig reynslu af rekstri einkabanka eftir að hafa verið stjórnarformaður og framkvæmdastjóri SKOP-bankans 1991–1993, árin sem bankakreppan var hvað dýpst í Finnlandi. Hann hefur m.a. verið Alþjóðagjaldeyris- sjóðnum til ráðgjafar og sinnt nefndar- og stjórnarstörfum fyrir OECD og evrópska seðlabankann. Átta tillögur að bættu regluverki Finninn Kaarlo Jännäri kom með átta tillögur, í skýrslu sem hann vann fyrir stjórnvöld sem hann skilaði í lok mars 2009, um hvernig bæta mætti framtíðarskipan fjármálamarkaðarins á Íslandi. Mynd Fréttablaðið / 365 Hjálmur bjargaði lífi Reiðhjólaslys varð í brekkunni við Fjölbrautaskóla Sauðárkróks á fimmtudag er unglingur á reiðhjóli hjólaði á bifreið. Unglingurinn var að hjóla niður brekkuna og náði ekki að stoppa í tæka tíð og hafnaði því á bílnum. Hjálmur drengsins brotnaði illa við fallið og talið er að hann hafi bjargað lífi hans og heilsu. „Hjálm- urinn er ónýtur en hefur klárlega bjargað drengnum,“ segir vaktstjóri lögreglunnar á Sauðárkróki. Skattar í stað spilapeninga Ögmundur Jónasson innanríkis- ráðherra sagði í útvarpsþættinum Sirrý á sunnudagsmorgnum á Rás 2 að hann vildi losa Rauða krossinn, SÁÁ og Háskóla Íslands undan þeirri áþján að þiggja fjármuni af rekstri spilakassa og finnst fara betur á því að skattgreiðendur borgi. Hagn- aður Íslandsspila var í fyrra um 850 milljónir króna og skiptist þannig að Rauði krossinn hlaut 60% eða rúmar 500 milljónir króna. Slysavarnar- félagið Landsbjörg fékk 30% eða um 250 milljónir og SÁÁ fékk 10% eða um 85 milljónir. Happdrætti Há- skóla Íslands greiddi Háskólanum 600 milljónir króna samkvæmt ríkis- reikningi í fyrra. Lést eftir bílslys Ungur maður sem slasaðist alvar- lega í bílslysi á Geirsgötu á föstu- dagskvöldið lést á sunnudag á gjör- gæsludeild Landspítalans. Hann komst aldrei til meðvitundar eftir slysið. Ekki er hægt að greina frá nafni hans að svo stöddu. Slysið varð með þeim hætti að ökumaður missti stjórn á bíl sem hafnaði á vegg gömlu Hafnarbúðarinnar á tíunda tímanum á föstudagskvöldið. Þrír voru í bifreiðinni. Tveir þeirra slös- uðust ekki alvarlega.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.