Dagblaðið Vísir - DV - 15.08.2011, Side 24
T
ilfinningin er bara
rosagóð. Það er gam-
an að vinna þennan
titil og gaman að taka
þátt í þessum leik,“
sagði Grétar Sigfinnur Sigurðs-
son, leikmaður KR, þegar DV
sló á þráðinn til hans á sunnu-
dag. KR-ingar báru sigurorð
af baráttuglöðum Þórsurum í
úrslitaleik Valitor-bikarsins á
Laugardalsvelli á laugardag.
Grétar var fyrirliði KR-inga í
fjarveru Bjarna Guðjónssonar
sem meiddist fyrir leik. KR-ing-
ar unnu 2–0 sigur en leikurinn
mun væntanlega fara í sögu-
bækurnar fyrir glötuð mark-
tækifæri. Þórsarar fengu mý-
mörg færi og skutu til að mynda
fimm sinnum í slána á KR-
markinu.
Óheppnir Þórsarar
„Við fengum góða mótspyrnu.
Þórsararnir eru með hörkugott
lið og voru óheppnir að skora
ekki. Það gekk ekki upp hjá
þeim en við skoruðum tvö og
vorum bara þrusuflottir,“ segir
Grétar um leikinn.
KR-ingar byrjuðu leikinn
betur en fljótlega tóku Þórsarar
völdin á vellinum og sköpuðu
sér nokkur ágæt færi í fyrri hálf-
leik. Það var því nokkuð gegn
gangi leiksins sem KR-ingar
komust yfir þegar Gunnar Már
Guðmundsson, lánsmaður frá
FH, varð fyrir því óláni að skalla
boltann í eigið mark. Þórsarar
virtust ekki láta markið á sig fá
og byrjuðu síðari hálfleikinn
ágætlega. KR-ingar unnu sig
hins vegar hægt og bítandi inn
í leikinn og virtust vera að ná
völdum á vellinum þegar Skúli
Jón Friðgeirsson fékk sitt annað
gula spjald – og þar með rautt
– fyrir litlar sakir. Seiglan í KR-
ingum hefur hins vegar verið
mikil í sumar og þeim tókst að
klára leikinn 10 mínútum fyrir
leikslok. Þá skoraði Baldur Sig-
urðsson af stuttu færi eftir langt
innkast.
„Ætlum að vinna deildina“
Grétar segir að KR-liðið muni
taka sigurinn með sér í loka-
baráttuna um Íslandsmeist-
aratitilinn. KR-ingar eru í
nokkuð þægilegri stöðu á toppi
Pepsi-deildarinnar með 30 stig
eftir 12 leiki, fjórum stigum
meira en ÍBV sem leikið hefur
13 leiki. „Við ætlum okkur að
vinna þessa deild,“ segir Grétar
en KR-ingar fara einmitt til
Akureyrar á fimmtudag þar
sem þeir mæta Þórsurum. Það
er viðbúið að Þórsarar muni
leggja allt í sölurnar í þann
leik til að hefna fyrir tapið á
laugardag. „Þeir munu reyna
að vinna okkur,“ segir Grétar
léttur.
Engar áhyggjur
KR-ingar hafa misst nokkra
leikmenn í meiðsli á undan-
förnum vikum; Óskar Örn
Hauksson verður ekki meira
með í sumar og þá er óvíst
hversu lengi Bjarni Guðjónsson
verður frá en hann meiddist á
kálfa á æfingu hjá KR á fimmtu-
dag. Skúli Jón verður svo vænt-
anlega í leikbanni í næstu um-
ferð gegn Þór. Aðspurður hvort
meiðsli lykilmanna gætu haft
áhrif á framhaldið segist Grét-
ar ekki óttast neitt. „Ég held
að þetta skipti engu máli. Það
getur hver sem er komið inn
og staðið sig. Menn þekkja sín
hlutverk og það er bara frá-
bært, þetta er svakalega sterk-
ur hópur og það er það sem
er svo flott við þetta; við erum
að missa menn í meiðsli en þá
koma menn inn og við erum að
vinna leiki.“
24 | Sport 15. ágúst 2011 Mánudagur
Einar Þór Sigurðsson
blaðamaður skrifar einar@dv.is
„Ég held að
þetta skipti
engu máli. Það getur
hver sem er komið
inn og staðið sig.
Óheppnir Þórsarar
en KR hafði gæðin
n KR-ingar bikarmeistarar eftir sigur á óheppnum Þórsurum n Grétar
Sigfinnur ætlar líka að vinna deildina n „Þetta er svakalega sterkur hópur“
S
toke og Chelsea gerðu
markalaust jafntefli í
fyrstu umferð ensku
úrvalsdeildarinnar á
sunnudag. Um var að ræða
fyrsta mótsleik nýja stjórans
hjá Chelsea, Andre Villas-
Boas. Chelsea-menn voru mun
sterkari í leiknum og héldu
boltanum afar vel á meðan
leikmenn Stoke treystu, eins
og svo oft áður, á föst leikatriði.
Þrátt fyrir mýmörg marktæki-
færi tókst leikmönnum Chel-
sea ekki að koma boltanum í
netið og varð niðurstaðan því
markalaust jafntefli. Villas-
Boas gagnrýndi leikstíl Stoke-
manna harðlega eftir leik.
„Það er klikkun hvað
þeir fengu að ýta og grípa í
okkar menn inni í teig. Við
vorum búnir undir leikstíl
Stoke-liðsins en það eru tak-
mörk fyrir því hvaða brögð-
um má beita,“ sagði Villas-
Boas í leikslok en Tony Pulis,
stjóri Stoke, hefur sankað að
sér stórum og sterkum leik-
mönnum undanfarin miss-
eri. Chelsea-menn virtust þó
ráða vel við föst atriði Stoke-
liðsins sem ógnaði sjaldan
marki Chelsea.
„Mér finnst mikilvægt að
vekja athygli á þessu. Dómar-
ar tala sífellt um að þeir muni
taka á þessu og mér finnst það
alvarlegt þegar þeir segja eitt
en gera annað.“
Þegar Villas-Boas var
spurður að því eftir leik hvort
hann væri sáttur við stigið
sagði hinn metnaðarfulli stjóri
Chelsea: „Nei, þú getur aldrei
verið sáttur við eitt stig. Það er
erfitt að spila við Stoke á þeirra
heimavelli. Þeir náðu góðum
árangri í fyrra og þeir eru með
gott lið.“
n Nýr stjóri Chelsea afar ósáttur við leikstíl Stoke
Fyrsta stigið í hús hjá Boas
Baráttuleikur Það var hart
barist í leik Stoke og Chelsea
og gagnrýndi Villas-Boas, stjóri
Chelsea, leikstíl Stoke í leikslok.
MyNd REutERS
Úrslit
Stoltur fyrirliði Grétar var fyrirliði í fjarveru Bjarna Guðjónssonar.
MyNd EyÞÓR áRNaSoN
Góður hópur KR-ingar
fagna eftir sigurinn á Þór.
MyNd EyÞÓR áRNaSoN
Enska úrvalsdeildin
Liverpool - Sunderland 1-1
1-0 Luis Suarez (́ 11), 1-1 Sebastian Larsson
(́ 57)
Blackburn - Wolves 1-2
1-0 Mauro Formica (́ 20), 1-1 Steven
Fletcher (́ 22), 1-2 Stephen Ward (́ 48)
QPR - Bolton 0-4
0-1 Gary Cahill (́ 45), 0-2 Danny Gabidon
(́ 68) (Sjálfsmark), 0-3 Ivan Klasnic (́ 70),
0-4 Fabrice Muamba (́ 79)
Fulham 0 - 0 Aston Villa 0-0
Wigan - Norwich 1-1
0-1 Ben Watson (́ 21) (Vítaspyna), 1-1
Wesley Hoolahan (́ 45)
Newcastle - Arsenal 0-0
n Gervinho (́ 76) (Arsenal)
Stoke - Chelsea 0-0
West Brom - Manchester United 1-2
0-1 Wayne Rooney (13), 1-1 Shane Long
(37), 1-2 Stephen Reid (81) (Sjálfsmark)
Staðan
1 Bolton 1 1 0 0 4:0 3
2 Man.Utd 1 1 0 0 2:1 3
3 Wolves 1 1 0 0 2:1 3
4 Liverpool 1 0 1 0 1:1 1
5 Norwich 1 0 1 0 1:1 1
6 Sunderland 1 0 1 0 1:1 1
7 Wigan 1 0 1 0 1:1 1
8 Arsenal 1 0 1 0 0:0 1
9 Aston Villa 1 0 1 0 0:0 1
10 Chelsea 1 0 1 0 0:0 1
11 Fulham 1 0 1 0 0:0 1
12 Newcastle 1 0 1 0 0:0 1
13 Stoke 1 0 1 0 0:0 1
14 Everton 0 0 0 0 -:- 0
15 Man.City 0 0 0 0 -:- 0
16 Swansea 0 0 0 0 -:- 0
17 Tottenham 0 0 0 0 -:- 0
18 Blackburn 1 0 0 1 1:2 0
19 WBA 1 0 0 1 1:2 0
20 QPR 1 0 0 1 0:4 0
Enska B-deildin
Birmingham - Coventry 1-0
Barnsley - Southampton 0-1
Watford - Derby 0-1
Leeds - Middlesbrough 0-1
Portsmouth - Brighton 0-1
Millwall - Nottingham F. 2-0
Leicester - Reading 0-2
Ipswich - Hull 0-1
Doncaster - West Ham 0-1
Cr.Palace - Burnley 2-0
Blackpool - Peterborough 2-1
Cardiff - Bristol City 3-1
Staðan
1 Cardiff 2 2 0 0 4:1 6
2 Southampton 2 2 0 0 4:1 6
3 Blackpool 2 2 0 0 3:1 6
4 Brighton 2 2 0 0 3:1 6
5 Derby 2 2 0 0 3:1 6
6 Millwall 2 1 1 0 4:2 4
7 Reading 2 1 1 0 4:2 4
8 Middlesbrough 2 1 1 0 3:2 4
9 Ipswich 2 1 0 1 3:1 3
10 Cr.Palace 2 1 0 1 3:2 3
11 Peterborough 2 1 0 1 3:3 3
12 Birmingham 2 1 0 1 2:2 3
13 Hull 2 1 0 1 1:1 3
14 West Ham 2 1 0 1 1:1 3
15 Leicester 2 1 0 1 1:2 3
16 Portsmouth 2 0 1 1 2:3 1
17 Watford 2 0 1 1 2:3 1
18 Barnsley 2 0 1 1 0:1 1
19 Burnley 2 0 1 1 2:4 1
20 Nottingham F. 2 0 1 1 0:2 1
21 Doncaster 2 0 0 2 1:3 0
22 Coventry 2 0 0 2 0:2 0
23 Leeds 2 0 0 2 1:4 0
24 Bristol City 2 0 0 2 1:6 0
Kolbeinn á
skotskónum
Kolbeinn Sigþórsson, sem gekk
í raðir Hollandsmeistara Ajax í
sumar, var á skotskónum með
liði sínu á sunnudag þegar Ajax
burstaði Hereenveen á heima-
velli sínum, 5–1. Kolbeinn skor-
aði fyrsta mark leiksins á 37.
mínútu. Þetta var fyrsta mark
Kolbeins í mótsleik með Ajax
frá því hann kom til félagsins
frá AZ Alkmaar. Kollega hans,
Jóhann Berg Guðmundsson,
sem leikur með AZ
Alkmaar var í byrj-
unarliðinu þegar
lið hans tapaði fyrir
Twente á útivelli,
2–0. Jóhann lék á
hægri kanti
en var tek-
inn af velli
á 68. mín-
útu.