Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2011, Qupperneq 2
2 | Fréttir 22. ágúst 2011 Mánudagur
Stríðið um Evrópusambandið
F
lestir af helstu áhrifa-
mönnum Íslands hafa
gefið upp skýra afstöðu
til mögulegrar aðildar
Íslands að Evrópusam-
bandinu. Víglínur eru skýrar.
Stjórnmálamenn, fjölmiðla-
menn, listamenn, formenn í
ýmsum almenningssamtök-
um, prestar og háskólamenn
hafa undanfarna mánuði fært
rök fyrir því afhverju Ísland
ætti að ganga í Evrópusam-
bandið eða af hverju við ættum
að halda okkur fyrir utan það.
Áherslur stjórnmálaflokk-
anna eru að verða enn skýr-
ari. Sumir teljast eindregnir
stuðningsmenn aðildar. Má
þar nefna helstu forkólfa Sam-
fylkingarinnar, fólk á borð við
Jóhönnu Sigurðardóttur og
Össur Skarphéðinsson. Síðan
eru þeir sem áður voru mildari
í afstöðu sinni til ESB en hafa
nú lagst eindregið gegn aðild.
Má þar nefna Bjarna Bene-
diktsson, formann Sjálfstæð-
isflokksins, og Sigmund Dav-
íð Gunnlaugsson, formann
Framsóknarflokksins. Báðir
hafa þeir lagt til að aðildarum-
sóknin verði dregin til baka.
Tengsl hagsmunahópa
Á meðfylgjandi korti má sjá
hvaða afstöðu margir máls-
metandi Íslendingar hafa gef-
ið upp til aðildar að ESB. Þeir
sem eru lengst vinstra megin
á kortinu eru harðir andstæð-
ingar aðildar. Afstöðu fólks til
aðildar er einnig áhugavert
að skoða í samhengi við hvað
það starfar og hvaða tengsl það
hefur við hagsmunaöfl, fjöl-
miðla eða stjórnmálaflokka,
svo dæmi séu tekin.
Fjölmiðlar hafa tekið skýra
afstöðu til aðildar og áróð-
ur dynur á almenningi úr
báðum herbúðum. Á meðan
Morgun blaðið spáir endalok-
um sambandsins, koma allt
önnur sjónarmið fram í Frétta-
blaðinu.
Háskóli Íslands kemur
einnig talsvert við sögu í áróð-
ursstríðinu um ESB. Þann-
ig hefur Baldur Þórhallsson,
próf essor í stjórnmálafræði,
verið einn ötulasti talsmað-
ur þess að Ísland gangi í ESB.
Baldur hefur einnig kennt
námskeið í skólanum þar sem
fjallað er um hvernig smá-
ríki geta haft raunveruleg völd
innan sambandsins, en það
eru einmitt ein helstu rök nei-
sinna að Ísland verði valda-
laust í stóru bákni. Starfsbróð-
ir hans, Hannes Hólmsteinn
Gissurarson, hefur síðan iðu-
lega lýst sterkri andstöðu við
aðild.
Segja má að aðrir sem hafa
tjáð sig um Evrópusambandið
hafi frekar hlutlausa afstöðu.
Þannig hefur Jón Gnarr borgar-
stjóri sagt að hann skipti reglu-
lega um skoðun á ESB. Ólafur
Ragnar Grímsson, forseti Ís-
lands, hefur heldur ekki lýst yfir
eindreginni afstöðu í málinu.
Spurning um
grundvallarviðhorf
Á endanum verða það hins
„Reyndar held
ég að það sé
líklegra að þeir máls-
metandi menn sem
eru á móti nái meiri
árangri en hinir.
n Áróðurinn um aðild Íslands að ESB stigmagnast n Áhrifamenn taka þátt í rökræðunni n Prófessor telur það litlu skipta n ESB er spurning um grundvallarviðhorf
Valgeir Örn Ragnarsson
blaðamaður skrifar valgeir@dv.is
Björn Teitsson
blaðamaður skrifar bjorn@dv.is
vegar ekki þingmenn og ráð-
herrar, rithöfundar og verka-
lýðsformenn, sem munu taka
ákvörðun um hvort Ísland
gengur í ESB. Almenningur
þarf að samþykkja aðildar-
samninginn í þjóðaratkvæða-
greiðslu til þess að Ísland gerist
aðili. Hvaða áhrif hefur það þá
á almenningsálitið að frægðar-
menni og áhrifafólk beiti sér í
umræðunni í jafn ríkum mæli
og gert hefur verið undanfar-
in misseri? Skiptir það máli
fyrir fólk að LÍÚ vill ekki ganga
í ESB en Samtök iðnaðarins
vilja það? Mun söngkonan
Björk hafa áhrif á atkvæði al-
mennings?
Grétar Þór Eyþórsson,
prófessor í stjórnmálafræði
við Háskólann á Akureyri, tel-
ur svo ekki vera. „Ég er ekki
viss um að þetta skipti svo
miklu máli, allavega í Evrópu-
málum. Ég byggi þá skoðun á
því að þessi spurning um Evr-
ópusambandsaðildina, hún
er grundvallarviðhorf í huga
fólks,“ segir Grétar. „Það eru
mjög margir sem eru andvíg-
ir aðild á þeim forsendum að
við séum að hverfa þarna und-
ir hælinn á stóru erlendu valdi
þar sem við erum eiginlega
ekki neitt. Það er þetta grund-
vallarviðhorf sem ég held að
hafi komið fram í Icesave-
kosningunum að sumu leyti.
Ég ætla að rifja það upp að þó
að margt þekkt fólk hafi verið
að hvetja fólk til að kjósa já, þá
hafi það verið eins og skvetta
vatni á gæs.“
Andvígur
Eindregnir andstæðingar ESB-aðildar Andstæðingar ESB-aðildar Hlutlaus afstaða
Björn Bjarnason
Sigmundur Davíð
Gunnlaugsson
Samband
ungra sjálf-
stæðismanna
(SUS) Framsóknar-
flokkurinn
Þjóðkirkjan
Háskóli Íslands
Samband íslenskra
sveitarfélaga
Silja Bára
Ómarsdóttir
Sjálfstæðis-
flokkurinn
Vinstri Grænir
Ólafur Ragnar
Grímsson
Arnþrúður
Karlsdóttir
Steingrímur J.
Sigfússon
Sr. Þórhallur
Heimisson
Birgitta
Jónsdóttir
Alfreð Gíslason
Erpur
Eyvindarson
LÍU
Vigdís
Hauksdóttir
Omega
Sigurður Kári
Kristjánsson
Atli Gíslason
Bjarni
Benediktsson
Jón Bjarnason
Ingvi Hrafn
Jónsson Ragnar Arnalds
Heimssýn
Friðbjörn
Orri Ketilsson
Hjörleifur
Guttormsson
Hannes
Hólmsteinn
Bændasamtök
Íslands
Kristján Loftsson
Helgi Áss
Grétarsson
Pétur H.
Blöndal
Styrmir
Gunnarsson
Morgunblaðið
Davíð Oddsson