Dagblaðið Vísir - DV - 22.08.2011, Side 20
20 | Fókus 22. ágúst 2011 Mánudagur
Markaðsvæðing metsöluhöfunda
G
ullöld bókasölu er á
enda. Sala á bókum í
harðbandi hefur verið í
frjálsu falli síðustu ár. Í
Bandaríkjunum minnkaði sala
þeirra um 23% árið 2011. Árið
áður hafði sala þeirra dregist
saman um fimm prósent.
Þrátt fyrir þetta eru met-
söluhöfundar eins og Steph-
enie Meyer, Stephen King, Ja-
net Evanovich og sér í lagi
James Patterson á grænni
grein og betur staddir en áður.
Hagnast á netútgáfu og
ýmiss konar varningi
Hvernig er það mögulegt?
spyrja margir. Svarið felst í
markaðsvæðingu rithöfund-
anna. Þeir hafa allir hagnast
á netútgáfu bóka sinna, með
risasamningum við útgefend-
ur og með því að selja áfram
rétt á bókum sínum ásamt
framleiðslu á vörum þeim
tengdum.
Hæst launaði rithöfundur
heims
James Patterson er gott dæmi.
Hann er einn vinsælasti
spennusagnahöfundur heims
en bækur hans hafa selst í
um 130 milljónum eintaka
á heimsvísu. Patterson hef-
ur einnig skrifað barnabækur
og er fyrsti höfundurinn sem
hefur átt bók samtímis á met-
sölulista barnabóka New York
Times og listanum yfir full-
orðinsbækur. Frá árinu 2010 til
2011 var hann hæstlaunaði rit-
höfundur heims. Tekjur hans
voru 84 milljónir dollara. Árið
áður hafði hann hagnast um
70 milljónir dollara. Ástæð-
an fyrir þessum ofurtekjum er
17 bóka samningur sem Pat-
terson skrifaði undir við for-
lag sitt, Hachette Book Group,
árið 2009. Öllum skilst að ein-
um rithöfundi er slíkur samn-
ingur fullkomlega ofviða. En
Patterson leysir málið með því
að ráða til sín penna sem að-
stoða hann við að dæla út efni
en á þessu tímabili gaf hann út
alls 10 titla. Alls hefur Patter-
son gefið út hátt í 50 bækur frá
upphafi ferils síns.
n Sala á bókum í harðbandi hefur verið í frjálsu falli síðustu ár
Rafmagnsgítar er uppáhalds-
hljóðfærið mitt,“ segir tónlist-
arkonan Brynhildur Ingibjörg
Oddsdóttir sem er komin inn
í rafgítardeild Tónlistarskóla
FÍH en samkvæmt heimild-
um blaðsins er Brynhildur sú
eina sem komst inn í deild-
ina. Brynhildur, sem spilaði á
rafmagnsgítar með stelpna-
hljómsveitinni Elektru, spilar
og syngur blús með hljóm-
veitinni Bibi and the Bluebirds
en sveitin er á leið í upptökur.
Brynhildur hefur alla tíð haft
áhuga á blús og finnst best að
semja á gítarinn sinn en hún
er einnig með fiðlunám að
baki og framhaldspróf í klass-
ískum söng auk þess sem hún
lauk nýverið prófi í tónsmíð-
um frá Listaháskóla Íslands.
„Ég hlustaði mikið á Evu Cass-
idy og Arethu Franklin í æsku.
Það er þessi tilfinning sem
listamennirnir skila frá sér
sem heillar mig. Blúsinn er í
raun einfaldur en á sama tíma
er erfitt að syngja hann. Það
þarf að gefa svo miklar tilfinn-
ingar í hann,“ segir Brynhildur
sem lýsir tónlist Bibi and the
Bluebirds sem blúsaðri dæg-
urlagatónlist. Aðspurð segir
hún Íslendinga þyrsta í blús.
„Það er alltaf markaður fyrir
blús og það eru rosalega marg-
ar hljómsveitir, bæði gömul
bönd og ný, sem fara einhvern
tímann á ferlinum í blúsinn
enda hefur þessi stefna haft
gífurleg áhrif á vestræna tón-
list,“ segir Brynhildur og bætir
við að draumurinn sé að geta
lifað á tónlistinni. „Líf mitt
snýst um tónlist. Það kemst
voðalega fátt annað að og það
væri æðislegt að geta spilað
og sungið svo mikið að ég gæti
lifað á því.“
indiana@dv.is
James Patterson Hann er einn
vinsælasti spennusagnahöfundur
heims en bækur hans hafa selst í um
130 milljónum eintaka á heimsvísu
Rafmagns-
gítarinn í
uppáhaldi
Þ
ema Menningarnæt-
ur í ár var „Gakktu
í bæinn!“ Dagur B.
Eggertsson, borgar-
fulltrúi Samfylking-
ar, var einn þeirra sem bauð
fólk velkomið á heimili sitt
og gerði vel við gesti sína.
Hann reiknar með að hann
hafi bakað um 800 vöfflur.
„Við bökuðum úr 50 lítrum
og reiknast okkur til að við
höfum bakað 800 vöfflur. Við
höfum ekki tölu á gestum á
heimili okkar því gestabók-
in fylltist. Heimsmetabók
Guinn ess er þannig ólíkleg
til að votta met til eða frá um
heimsins stærsta vöffluboð,“
segir Dagur og skellir upp úr.
Dagur var að þrífa heimili sitt
þegar blaðamaður hafði sam-
band við hann. Þrifin urðu
hans hlutskipti vegna þess að
hann sullaði mest við bakst-
urinn. „Það er keppt í því hver
sullar minnst, sá sem slettir
mest fær að þrífa járnin sem
eru 8 talsins. Ég sletti mest í ár
og þess vegna er ég að þrífa.“
Bakaði 800 vöfflur
n Dagur Eggertsson borgarfulltrúi gerði vel við gesti sína á Menningarnótt
Dagur hrærði í deigi
Dagur Eggertsson var
stórtækur í vöfflubakstri.
Biðröð í vöfflur Heimili Dags við
Óðinstorg var umsetið gestum sem
runnu á vöffluilminn.„Ég bara skaut og
skaut“ Jón Gnarr
ræsti skemmtiskokk
á Menningarnótt og
sagðist hafa freistast
til þess að skjóta öllum
skotunum úr byssunni.
Dansað á Ingólfstorgi Ungir sem
aldnir tóku sporið á Ingólfstorgi.
Ljósin í Hörpu tendruð Hápunktur Menningarnætur var þegar ljósin á
Hörpu voru tendruð og flugeldasýning lýsti upp himininn.
Spariklæddir Reykvíkingar Margir Reykvíkingar klæddust sínu fínasta
pússi á þessum góðviðrisdegi.