Dagblaðið Vísir - DV - 19.09.2011, Page 14
Frí þjónusta
n Lofið fær Tímadjásn í Glæsibæ fyrir
frábæra þjónustu. „Ég fór þangað um
daginn með bilað úr og vildi athuga
hvort hægt væri að gera við það. Þeg-
ar ég kom í Tímadjásn var afgreiðslu-
maðurinn snöggur að laga það
með því að setja nýjan pinna í.
Ekki nóg með að hann lagaði
það fyrir mig á staðnum held-
ur vildi hann ekki taka
neitt fyrir aðstoðina,“
segir viðskiptavinurinn
ánægði.
Dýr baka
n Lastið að þessu sinni fær Kaffi María
í Vestmannaeyjum. Viðskiptavinur
kaffihússins vill láta vita af óánægju
sinni með hátt verðlag
þar. „Ein eplakaka með
smá rjóma kostar 1.250
krónur sem er fáheyrt
okur að mínu mati,“
segir hann ósáttur við
þessa dýru böku.
14 | Neytendur 19. september 2011 Mánudagur
E
ld
sn
ey
ti Bensín Dísilolía
Algengt verð 233,2 kr. 233,2 kr.
Skeifunni verð 235,9 kr. 235,9 kr.
Dalvegi. 235,8 kr. 235,8 kr.
Algengt verð 236,2 kr. 236,2 kr.
Algengt verð 238,0 kr. 238,6 kr.
Fjarðarkaupum 235,9 kr. 235,9 kr.
SENDIÐ LOF EÐA LAST Á NEYTENDUR@DV.IS
Lof&Last
Varað við
kræklingi
Við þörungaeitursgreiningar Mat-
vælastofnunar fyrr í mánuðinum
kom í ljós að PSP (lömunareitur)
og DSP (niðurgangseitur) hefur
greinst í kræklingi úr Eyjafirðinum.
Á mast.is segir að í sýnum sem ný-
lega hafi verið tekin til þörungaeit-
ursgreiningar hafi magn PSP og DSP
reynst vera yfir viðmiðunarmörk-
um. Stofnunin varar því við sterk-
lega við neyslu og tínslu á kræklingi
og öðrum skelfiski úr Eyjafirði. Þar
er fólki einnig bent á að allar upp-
lýsingar um mælingar á eiturþör-
ungum og þörungaeitri megi finna
á heimasíðunni. Þá er tekið fram að
á sama tíma og mikið magn af eitr-
uðum þörungum hafi greinst í Eyja-
firði hafa þeir varla sést í Breiðafirði
og því hafi ræktunarsvæðin þar verið
opin til uppskeru í allt sumar.
Á
rleg Samgönguvika er haldin
um þessar mundir en hún
hófst á föstudaginn var og
lýkur þann 22. september.
Samkvæmt rvk.is er þetta evrópskt
átak um bættar samgöngur í borg-
um og bæjum en markmið vikunn-
ar að hvetja fólk til umhugsunar um
eigin ferðavenjur og virkja það til að
nota almenningssamgöngur, hjóla
eða ganga.
Fleiri en 2.000 sveitarfélög taka
þátt í Samgönguvikunni í ár og
þema vikunnar er „Alternative
Mobility“ sem þýðist sem alls konar
ferðamátar. Stjórnvöld eru hvött til
að stuðla að notkun þessara sam-
göngumáta og fjárfesta í nauðsyn-
legum aðbúnaði.
Á heimasíðu Reykjavíkurborg-
ar segir að boðið verði upp á ýmsa
viðburði sem tengjast alls konar
ferðamátum. Þá verði boðið upp
á hjólatúra, nýir hjólastígar verði
opnaðir, Strætódagur fjölskyldunn-
ar verður haldinn sem og Bíllausi
dagurinn. Í tilefni af því verði riðið á
vaðið með stæðaæði í miðborginni
en þar muni samtök um bíllausan
lífsstíl gera bílastæðum borgarinn-
ar í miðborginni hátt undir höfði á
óhefðbundinn hátt og lífga hressi-
lega upp á hjarta borgarinnar í leið-
inni.
„Margt annað verður í boði á
samgönguviku. Því er um að gera
að smyrja hjólið, taka fram göngu-
eða hlaupagallann, prófa að taka
strætó á höfuðborgarsvæðinu eða
einfaldlega setjast niður og leggja
heilann í bleyti um það hvernig eig-
in ferðavenjum er háttað og hvernig
mögulegt er að breyta til þannig að
þær verði vistvænar og heilnæmar,“
segir á rvk.is. Þá verður einnig efnt
til ljósmyndasamkeppni sem nefn-
ist Ég hjóla, en hægt er að senda inn
myndir meðan á Samgönguvikunni
stendur.
gunnhildur@dv.is
Alls konar ferðamátar
n Árleg Samgönguvika haldin í 2.000 sveitarfélögum í Evrópu
Alls konar ferðamátar Samgönguvika er haldin til að vekja fólk til umhugsunar um eigin
ferðamáta. MYND phOTOS.cOM
Talsambands-
laust við Tal
É
g er eiginlega búin að fá nóg.
Það er ekki lengur hægt að
hringja í Tal nema í bilana-
vakt. Ég tel þá hafa minnkað
þjónustu sína við viðskipta-
vini alvarlega mikið“ segir María Ás-
mundsdóttir. Í ágúst ákvað símafyrir-
tækið að minnka þjónustu sína við
viðskiptavini og tekur ekki lengur á
móti símtölum. Hægt er að hringja í
bilanavaktina en annars er einungis
hægt að hafa samband með tölvu-
pósti eða netspjalli.
Taka sér þrjá daga til að svara
„Við létum geyma netið og símana á
heimilinu í júlímánuði en svo fékk ég
óvenju háan reikning fyrir það tíma-
bil. Ég hafði athugasemdir vegna
þess og reyndi ítrekað að hafa sam-
band, bæði með tölvupósti og í gegn-
um netspjallið. Ég komst einu sinni
inn á netspjallið, sem er opið á milli 9
og 15, en fékk þær upplýsingar að ég
þyrfti að senda tölvupóst.“ María seg-
ir að starfsmenn fyrirtækisins auglýsi
að þeir gefi sér þrjá daga til að svara
fyrirspurnum sem henni finnst ansi
léleg þjónusta. Hún hafi fengið svar
fyrir nokkrum dögum að reikningur-
inn hafi verið leiðréttur og gefin var
upp upphæðin sem hún á að greiða.
„Ég fékk hvorki að sjá reikninginn
né upplýsingar um hvernig ég eigi að
greiða hann. Nú þarf ég að byrja eina
ferðina enn að reyna að komast að í
netspjallinu eða senda tölvupóst,“
segir hún og bætir við að svona þjón-
usta þekkist ekki í dag nema kannski
hjá ríkisbatteríinu. Hún hafði sam-
band við önnur símafyrirtæki og fékk
þau svör að það væri ekki á dagskrá
hjá þeim að skerða þjónustu við við-
skiptavini á þennan hátt.
Einungis netsamskipti
María bendir einnig á að hún hafi lent
í því að verða inneignarlaus úti á víða-
vangi. Áður fyrr gat hún hringt í Tal
og beðið um áfyllingu en sú þjónusta
sé ekki fyrir hendi lengur. Hún segir
að þetta hljóti að vera bagalegt til að
mynda fyrir eldra fólk sem er ekki vel
að sér í netsamskiptum.
„Eina leiðin er að senda tölvupóst
eða mæta á staðinn. Mér finnst bara
lágmark að geta hringt í fyrirtæki sem
maður er í viðskiptum við. Ég hef allt-
af verið ánægð með viðskipti mín við
Tal þar til þeir breyttu þessu í ágúst.
Þetta virkar svolítið eins og aftan úr
símafornöld,“ segir hún að lokum.
Engin svör
Á heimasíðu Tals eru engin síma-
númer gefin upp fyrir utan bilana-
númerið. Þar stendur að fyrirtækið
haldi ekki úti þjónustuveri þar sem
það sé dýrt í rekstri og fyrirtækið vilji
halda kostnaði niðri fyrir viðskipta-
vini. Blaðamaður sendi því fyrir-
spurn til Tals vegna málsins með
tölvupósti og á netspjalli en fékk þær
stöðluðu upplýsingar að fyrirtækið
tæki sér þrjá daga til að svara fyrir-
spurnum.
Eftir krókaleiðum komst blaða-
maður í samband við starfsmann
Tals á Akureyri og fékk símanúm-
er hjá yfirmanni hjá fyrirtækinu í
Reykjavík. Ítrekað var hringt í það
númer en án árangurs. Tekið skal
fram að áfram geta viðskiptavinir
Tals farið í verslanir fyrirtækisins og
fengið þjónustu en þetta kemur fram
á tal.is.
„Mér finnst lágmark
að geta hringt í
fyrirtæki sem maður er í
viðskiptum við.
n Fyrirtækið hefur minnkað þjónustu við viðskiptavini n Einungis hægt að
hafa samband með tölvupósti eða netspjalli n Viðskiptavinur afar ósáttur
Gunnhildur Steinarsdóttir
gunnhildur@dv.is
Fjarskipti
María Ásmundsdóttir Ósátt
við skerta þjónustu fjarskiptafyrir-
tækisins Tals. MYND: GUNNAR GUNNARSSON