Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Page 3

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Page 3
Fréttir | 3Miðvikudagur 28. september 2011 n Verðtryggð íbúðalán heimila lækkuðu um helming í bókhaldi bankanna n Erlend íbúðalán lækkuðu minna eða um 45 prósent Verðtryggðu lánin voru seld á hálfvirði L íkt og DV greindi frá síðasta mánudag minnkuðu útlán og kröfur íslenskra innláns- stofnana um 60 prósent á milli september og október árið 2008. Samkvæmt yfirliti frá upp- lýsingasviði Seðlabankans minnk- uðu útlán og kröfur úr nærri 5.500 milljörðum króna í september árið 2008 í 2.250 milljarða króna í október 2008. Lækkuðu skuldir heimila úr 1.000 milljörðum króna í 585 millj- arða króna. Þar af lækkuðu íbúðalán úr 607 milljörðum króna í septem- ber 2008 í 311 milljarða króna mán- uði síðar. Í úttekt DV í dag er leitast við að útskýra þá breytingu sem varð á lækkun lána heimilanna eftir teg- undum þeirra. Þar má segja að það sem veki helst athygli og sé ansi slá- andi sé að verðtryggð íbúðalán lækk- uðu meira á milli mánaða en fast- eignalán heimila í erlendri mynt. Þannig lækkuðu verðtryggð íbúðal- án hjá bönkum og sparisjóðum úr 500 milljörðum króna í september 2008 í 250 milljarða króna mánuði síðar, eða um nærri 50 prósent. Íbúðalán í erlendri mynt lækk- uðu síðan úr 108 milljörðum króna í 60 milljarða króna fyrir sama tímabil, eða um 45 prósent. Virðist staða er- lendra íbúðalána í október 2008 hafa verið færð niður í sömu upphæð og þau voru í janúar árið 2008, sam- kvæmt yfirlitinu frá Seðlabankan- um. Þess skal getið að í byrjun janú- ar 2008 stóð íslenska gengisvísitalan í 120 stigum en var komin í nærri 210 stig í lok október 2008 sem gerir um 70 prósenta veikingu á íslensku krónunni. Misvísandi svör frá SFF og Árna Páli Samkvæmt svari frá Árna Páli Árna- syni, efnahags- og viðskiptaráðherra, við fyrirspurn Einars K. Guðfinns- sonar, þingmanns Sjálfstæðisflokks- ins, afskrifuðu Arion banki, Íslands- banki og Landsbankinn alls 24 milljarða króna af skuldum heim- ila og einstaklinga á árunum 2009 og 2010. Samtök fjármálafyrirtækja (SFF) birtu síðan tölur um að lán heimila hefðu í lok júlí árið 2011 verið færð niður um 144 milljarða króna. Þar af voru 120 milljarðar króna vegna erlendra lána sem voru dæmd ólögleg og því einungis um 24 milljarða króna raunverulegar af- skriftir að ræða. Í samtali við DV segir Marinó G. Njálsson, tölvunarfræðingur og fyrr- verandi stjórnarmaður í Hagsmuna- samtökum heimilanna, að mikið ósamræmi sé á milli þeirra talna sem Seðlabankinn birti mánaðarlega um útlán innlánsstofnana og þeirra svara sem Samtök fjármálafyrirtækja og Árni Páll hafi gefið um afskriftir bankanna eftir bankahrunið haust- ið 2008. „Við þann samanburð sjáum við að bókfært virði lánanna hefur sam- kvæmt tölu Seðlabankans lækkað um nærri 530 milljarða króna en tölur Samtaka fjármálafyrirtækja og Árna Páls gefa til kynna að bankarnir hafi lækkað kröfur um 144 milljarða króna. Mismunurinn þar á milli er um 385 milljarðar króna,“ segir Mar- inó. Hluti af þeirri tölu séu lán hjá fjármálafyrirtækjum í slitameðferð, það er Sparisjóði Reykjavíkur og fé- lögum tengdum honum. Eftir standi þó líklega um 310 milljarðar króna sem bankarnir séu enn að krefja við- skiptavini sína um en séu ekki færðar sem eign í bókhaldi þeirra. 163 milljarðar í hagnað frá hruni Líkt og DV hefur áður greint frá hafa Arion banki, Íslandsbanki og Lands- bankinn skilað 163 milljarða króna hagnaði frá haustinu 2008 þegar þeir voru endurreistir á grunni for- vera sinna sem þá fóru í þrot. Gerir það meira en fimm milljarða króna í hverjum einasta mánuði í þá 32 mánuði sem þeir hafa starfað í nú- verandi mynd. Marinó segir að þegar uppgefnar afskriftir í svörum SFF og Árna Páls séu skoðaðar og bornar saman við upplýsingar í árs- og árshlutareikn- ingum bankanna, þá sjáist vissulega einhverjar afskriftir. Honum segist þó ekki hafa tekist að finna þá 120 milljarða króna sem SFF segist hafa afskrifað vegna gengistryggðra lána né þá 24 milljarða króna sem heimili eigi að hafa fengið afskrifaða. „Nýju bankarnir láta sem þeir séu að af- skrifa, þegar það var í raun gamli bankinn sem gerði það. Ég mótmæli því ekki að afskriftir hafi átt sér stað og fólk og fyrirtæki séu að fá lækk- un lána sinna. Þær afskriftir eru þó langt undir þeirri tölu sem bókfært virði lækkaði milli september 2008 og júlí 2011 og nýju bankarnir eru að skreyta sig með stolnum fjöðrum,“ segir Marinó að lokum. Breytingar á útlánum bankanna til heimila 2008–2011: Verðtryggð skuldabréf Sept. 2008 Okt. 2008 Lækkun Okt. 2008 Júlí 2011 Lækkun Heimili 627 346 45% 346 290 16% Þar af íbúðalán 499 252 49% 252 203 19% *Allar tölur í milljörðum króna Lán í erlendri mynt Sept. 2008 Okt. 2008 Lækkun Okt. 2008 Júlí 2011 Lækkun Heimili 272 146 46% 146 55 62% Þar af íbúðalán 108 59 45% 59 21 64% *Allar tölur í milljörðum króna Óverðtryggð skuldabréf Sept. 2008 Okt. 2008 Lækkun Okt. 2008 Júlí 2011 Hækkun Heimili 27 18 33% 18 88 389% *Allar tölur í milljörðum króna Yfirdráttalán Sept. 2008 Okt. 2008 Lækkun Okt. 2008 Júlí 2011 Lækkun Heimili 78 60 23% 60 43 28% *Allar tölur í milljörðum króna Breytingar 2008–2011 Annas Sigmundsson blaðamaður skrifar as@dv.is Bankar skreyta sig með stolnum fjöðrum Marinó G. Njálsson tölvunarfræð- ingur segir að 163 milljarða króna hagnaður stóru bankanna þriggja eftir hrun sýni að þeir séu að skreyta sig með stolnum fjöðrum. Ósamræmi á milli talna Seðlabankans og ársreikninga bankanna sýni fram á það. Fært niður Staða erlendra íbúðalána í október 2008 virðist hafa verið færð niður í sömu upphæð og þau voru í janúar árið 2008. Börnin fengu áfall Fleiri fjölskyldur kvarta Móðirin segist hafa fullan skilning á því að konur sem beittar eru of- beldi vilji oft á tíðum ekki viður- kenna það. Hún fullyrðir að eig- inmaður hennar hafi aldrei beitt hana eða börnin ofbeldi og gremst að Hildur Jakobína þráist við að halda málinu til streitu með jafn lít- ið fyrir sér og raun beri vitni. „Það eru engin áverkavottorð til og aldrei hefur neitt þessu líkt komið upp fyrr en hún kom hingað til starfa og fór að gruna hálfan bæinn um að hafa orðið fyrir einhvers konar of- beldi.“ Fleiri fjölskyldur í Hólmavík hafa kvartað undan vinnubrögðum hennar og telja hana hafa gengið fram af offorsi. Í ljós kom að ekk- ert misjafnt hafði átt sér stað í þeim tilfellum. Faðirinn sem sjálf- ur var fjarlægður af heimili sínu í æsku segist vilja vernda börnin sín en hann fór á milli fósturheimila í æsku og hefur ekki góða reynslu af kerfinu. „Maður hefði haldið að í svona málum þyrfti að ganga eitthvað aðeins meira á en ásakan- ir til þess að farið væri að fjarlægja börnin með þessum hætti. Áverka- vottorð eða eitthvað. Við erum ekki dópistar. Við erum bara venjulegt fólk.“ Aðspurður hvort hann hafi lagt hendur á börnin sín svarar hann neitandi. „Það er ekki neitt til í þessum ásökunum. Ég meina, ef þú mátt ekki orðið skamma barnið þitt, þá veit ég ekki hvað er í gangi. Þessi barnaverndaryfirvöld fá núll í einkunn frá mér þegar þau hafa ekki meira í hendi sér en þetta og fara fram með þessum hætti.“ Börnin neita að fara í skólann Hann viðurkennir að hafa ekki tek- ið vel í fyrirmæli Hildar um að fara til sálfræðings en segist hafa sam- þykkt það á endanum og tilkynnt henni það með smáskilaboðum. „Hún sendi mér þá SMS og vildi hafa það skriflegt, að ég myndi skrifa undir skjal, en ég vildi ekki skrifa undir neitt hjá þessari konu. Síðan fór þetta allt af stað.“ Börnin eru sem stendur heima hjá foreldrum sínum. Þau eru hrædd og vilja ekki fara út úr húsi. Neita að fara í leikskóla og skóla. Foreldrarnir ætla að kvarta undan vinnubrögðum Hildar Jakobínu og vona að barnverndarnefnd fari yfir vinnulag hennar, því slík vinnu- brögð eigi ekki að líðast. „Þetta var hræðilegt, alveg hræðilegt. Lög- maður okkar er kominn í málið og við ætlum að kvarta formlega yfir vinnubrögðum Hildar Jakobínu.“ Standa saman Grunur vaknaði hjá lögreglumanni sem vann í afleys- ingum á staðnum í sumar um að faðir barnanna beitti þau líkamlegu ofbeldi þegar hann skammaði yngstu dóttir sína að honum ásjáandi. MYnd ingiMundur „Bæði yngsta stelpan og sú elsta köstuðu upp þegar þær komu heim, þær voru í svo miklu uppnámi. Þær titruðu og skulfu.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.