Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Page 6

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Page 6
6 | Fréttir 28. september 2011 Miðvikudagur Margrét Tryggvadóttir skammast sín fyrir að sitja á Alþingi: Óar við þingsetningunni Margrét Tryggvadóttir, alþingis- maður Hreyfingarinnar, segist ótt- ast það versta við þingsetninguna á laugardaginn. Margrét bloggar á vefsíðu sinni að hún hlakki ekki til að hefjast handa við störf vetrarins á þingi. „Upplifunin af hinu ömurlega septemberþingi er enn of yfirþyrm- andi í huga mér. Það er illa komið fyrir þjóð sem býr við þing þar sem andlegt ofbeldi, einelti, tilgangs- laust þvaður og bakstungur teljast til viðtekinna vinnubragða. Ég á erf- itt með að réttlæta það fyrir sjálfri mér að vera hluti af slíku, því þrátt fyrir að við, þingmenn Hreyfingar- innar, og fleiri hafni alfarið slíkum vinnubrögðum gegnsýra þau öll okkar störf. Ég hef alltaf verið stolt af því að vera þjóðkjörinn fulltrúi og reynt að sinna skyldum mínum eins vel og ég get en ég skammast mín fyrir að tilheyra þessum hópi,“ skrif- ar Margrét. Hún segist búast við því að marg- ir muni koma til með að sýna sam- stöðu við þingsetninguna 1. október, hún voni að allt fari friðsamlega fram en óttist það versta og furði sig reyndar oft á því að reiðin og örvæntingin sem hún segist skynja svo sterkt hafi ekki fundið sér farveg með þeim hætti að skaðinn verði óbætanlegur: „Að ein- hver verði hreinlega drepinn,“ skrifar hún og bætir við að daglega séu sagð- ar fréttir um hvernig Íslendingar hafi verið rændir, ekki aðeins ævisparn- aðinum sem lagður var í heimili fjöl- skyldunnar heldur einnig velferðinni, lífsgleðinni og því sem sé mikilvægast, tilfinningunni fyrir því að búa í réttlátu samfélagi. Margrét Tryggva- dóttir Furðar sig á því að reiðin og örvæntingin hafi ekki fundið sér þann farveg að skaðinn verði óbætanlegur. Börnum líður betur 11 til 13 ára börnum í grunnskólum landsins líður betur nú en árið 2007. Þetta sýnir ný könnun um hegðun og líðan barna sem unnin var fyrir mennta- og menningarmálaráðu- neytið. Þau verja meiri tíma með foreldrum sínum en áður og hafa sterkari sjálfsmynd. Könnunin nær til barna í 5.–7. bekk í grunnskóla, slík könnun hefur verið gerð annað hvert ár í að verða 20 ár. Í könnuninni kemur fram að fleiri börn hreyfa sig og gera það í meira mæli nú en áður. Þá kemur fram að börn eru almennt síður einmana, en 10 prósent þeirra segjast þó eiga fáa vini og sama hlut- fall segir að sér sé ekki óhætt á skóla- lóðinni. Þrátt fyrir það kemur fram að færri taka þátt í stríðni og einelti. 92 prósent barna á þessum aldri eiga farsíma. Þá segist hátt í fjórðungur nemanda engan tíma nota í lestur annarra bóka en skólabóka, strákar eru fleiri en stelpur í þessum hópi. Sýknaður af líkamsárás Héraðsdómur Reykjaness hefur fundið mann sekan um að ráðast á annan mann á götu á Suðurnesj- um í lok síðasta árs. Maðurinn var dæmdur til að greiða sekt og máls- kostnað. Haldi hann skilorð næstu tvö árin verður honum ekki gerð refsing. Ákærði hafði lesið reynslu- sögur tveggja kvenna á netinu um að maðurinn væri barnaníð- ingur. Hann fór því til mannsins og spurði hann út í þetta en hann svaraði því til að hann ætti ekki að trúa öllu sem hann læsi. Þá sakaði hann manninn einnig um að hafa haft í hótunum við börn í hverfinu. Ákærði var sakaður um að hafa slegið manninn með krepptum hnefa að minnsta kosti einu sinni með þeim afleiðingum að hann féll í götuna. Þá mun hann einnig hafa lagst ofan á manninn, haldið honum niðri með hné sínu og mun maðurinn við það hafa fengið bæði blóðnasir og marbletti. Í nið- urstöðu dómsins segir að ekkert vitni hafi borið um það að ákærði hafi kýlt hann í andlitið og enginn læknir hafi getað staðfest ástæður fyrir blóðnösunum. Ákærði var því sýknaður af því að hafa kýlt manninn, en sakfelldur fyrir að hafa haldið manninum niðri enda bentu áverkar til þess. Hann var því fundinn sekur um líkamsárás. Þ að eru allt of margir villi- kettir og þeir eru í raun líka hættulegir heimiliskött- unum ef út í það er farið,“ segir Eyrún Arnardóttir, dýralæknir og bæjarfulltrúi í Fljóts- dalshéraði. „Það verður því eiginlega að fara í átak gegn þeim,“ bætir hún við. Fljótsdalshérað hyggst fara í átak á næstu vikum til að fækka óskráðum köttum. Villiköttum verður lógað og meiri áhersla lögð á skráningu heim- iliskatta, en 88 heimiliskettir eru skráðir í Fljótsdalshéraði samkvæmt upplýsingum frá bæjarskrifstofunni. Eyrún telur að það sé aðeins helm- ingur heimiliskatta í héraðinu. Þá telur hún að um 100 villikettir haldi til á Egilsstöðum og þar í kring, sem hún segir alltof marga miðað við stærð bæjarfélagsins. Taka málin í sínar hendur Heitar umræður hafa skapast um meinta „kattaplágu“ í Fljótsdalshér- aði síðustu daga í kjölfar þess að Þór- hallur Þorsteinsson afhenti bæjar- yfirvöldum undirskriftalista með 26 nöfnum þar sem krafist er að „katta- plágu sem herji á íbúa linni“. Þór- hallur sagði í samtali við Fréttablað- ið síðastliðinn laugardag að ef ekkert yrði að gert tækju íbúarnir til sinna ráða. „Það er ekki nema nokkurra daga verk að útrýma þessu,“ sagði hann en útskýrði það ekki nánar. Það fer fyrir brjóstið á Þórhalli að kettir „virði engin lóðamörk“, eins og hann orðaði það. Illframkvæmanlegt er þó að setja bann við lausagöngu katta að því er fram kemur í bókun forseta bæjarstjórnar og stangast það jafn- vel á við dýraverndunarlög. Fleiri sveitarfélög hafa rætt um að banna lausagöngu katta en því hefur hvergi verið fylgt eftir. Köttum misþyrmt Eyrún segir að það komi alltaf upp einhver tilfelli á hverju ári þar sem köttum hefur verið misþyrmt og tel- ur hún að þar séu að verki fullorðn- ir einstaklingar sem geri sér fylli- lega grein því að þeir séu að skaða dýrin. Hún man þó ekki eftir að hafa þurft að aflífa kött eftir misþyrming- ar. „Það var einn sem var bundinn í poka þannig að hausinn stóð upp úr og hent í ruslagám. Hann hefði drep- ist fyrir rest en hann fannst. Hann var kominn með blæðingar innan á augnlok og eitt og annað. Það var frost og svona þannig að hann var hrakinn og aumur. En það var ekki það slæmt að það væri ekki nóg fyr- ir hann að fara heim og á sýklalyfja- kúr.“ Þannig lýsir Eyrún einu tilfelli sem hún fékk til sín og var þar um að ræða heimiliskött sem eigandinn leitaði að. Dýraníðingar sem vilja gera köttum mein virðast því ekki gera greinarmun á heimilis- og villi- köttum. Fjórir kettir drepnir Tilfelli hafa þó komið upp á Egilsstöð- um þar sem heimiliskettir hafa verið drepnir af dýraníðingum. Kristinn Kristmundsson, sem er betur þekkt- ur undir nafninu Kiddi videofluga, hefur orðið fyrir þeirri óskemmti- legu lífsreynslu fjórum sinnum að kettir í hans eigu hafa verið drepnir. Einn var skotinn, annar virtist hafa verið stunginn með rýtingi í höf- uðið og tveimur var byrlað eitur eða sterk svefnlyf. Málin voru öll kærð til lögreglu en eru óupplýst. „Það er til hérna ákveðið fólk sem er kattahatar- ar, ég er búinn að komast að því,“ seg- ir Kiddi í samtali við DV. Hann þorir ekki lengur að hleypa köttunum sín- um út í bænum heldur fer hann með þá upp í sveit og leyfir þeim að hlaupa um þar. Hann segir þó að besta ráð- ið til að halda köttum inni á sinni lóð sé að hella úr katta sandskassanum í runna og setja mold yfir. Kötturinn rennur þannig beint á lyktina og gerir þarfir sínar þar. Kiddi segist hafa gert tilraunir með þetta í 15 ár og fullyrðir að þetta virki. 200 köttum lógað í Kattholti Ljóst er að offjölgun katta er vandamál en viðmælendur DV voru sammála um að vandinn lægi helst í því að eigendur létu ekki gelda kettina sína eða gera þá ófrjóa. Fólk væri því ekki að fyrir- byggja vandann heldur að reyna að takast á við hann eftir á með því að losa sig við ketti á einn eða annan hátt. Villikettir verða meðal annars til þegar köttum er sleppt úti í nátt- úrunni og þeir hafðir afskiptir þar. Þeir fjölga sér svo og vandamálið verður ennþá stærra. Elín G. Folha, starfsmaður Katt- holts, segir að um 500 kettir hafi komið inn til þeirra það sem af er ári og að yfir 200 hafi verið lóg- að. Er það um 20 til 30 prósenta aukning frá síðasta ári. Hún seg- ir út í hött að einstaklingar séu að hóta því að taka málin í sínar eig- in hendur til að fækka köttum. Slíkt varði við lög. „Það er til hérna ákveðið fólk sem er kattahatarar, ég er bú- inn að komast að því. Dýraníðingar misþyrma og Drepa ketti n 100 villikettir á Egilsstöðum n 4 kettir Kidda viedoflugu hafa verið drepnir n 200 köttum lógað í Kattholti á árinu Sólrún Lilja Ragnarsdóttir blaðamaður skrifar solrun@dv.is Kiddi videofluga Dýraníðingar hafa drepið fjóra ketti hans. Hann kærði öll málin en þau voru aldrei upplýst.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.