Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1914, Síða 9
Inng,ang,ur.
Introduclion.
I. Athugasemdir um tilhögun skýrslnanna.
Remavqu.es préliminaives.
Verslunarskýrslueyðublöðin fyrir árið 1912 voru í sama formi
eins og næstu árin á undan, og við samtalningu skýrslnanna
hefur verið fylgl sömu niðurröðun, sem tíðkast hefur að undanförnu.
Par sem um tollvörur er að ræða liafa skýrslurnar úr hverri sýslu
verið bornar saman við tollreikningana eins og gert var 1911 og þar
sem skýrslurnar reyndust lægri heldur en innflutningur hafði numið
samkvæmt tollreikningunum, hefur mismuninum verið bætt við
skýrslurnar.
Einn liðurinn á verslunarskýrslueyðublöðunum eru »peningar«.
Hefur sá liður venjulega verið mjög hár bæði að því er aðflutning
og útflutning snertir síðan 1895, er skýrslunum var breytt þannig,
að kaupmenn voru sjálíir látnir gefa upp verð aðfluttu og útfluttu
vörunnar. En einkum liefur þó kveðið að því á árunum 1903—09,
er aðfluttir og útfluttir peningar töldust jafnvel í miljónum króna.
Síðustu árin hafa aftur á móti verið gerðar sjerstakar fyrirspurnir
til allmargi'a kaupmanna um peninga þá, sem þeir töldu inn- eða
.útílutta, og hefur það þá komið í Ijós, að enda þótt á skýrslueyðu-
hlöðunum standi berum orðum »peningar (ekki ávísanir)«, þá hefur
því nær alt, sem þar undir hefur verið tilfært, einmitt verið ávísanir
(hankaávísanir eða póstávísanir), en ekki peningamynt. Með því að
líklegt er, að liður þessi sje engu áreiðanlegri hjá þeim inn- og út-
flytjendum, sem ekki hefur náðst að gera fyrirspurnir til, og gera
má ráð fyrir, að mest af því, sem þar er talið, sjeu ávísanir, þá
hefur að þessu sinni verið tekið það ráð að sleppa þessum lið al-
gerlega, því að bersýnilegt þykir, að það valdi miklu minni villu
en að halda honum.