Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Side 17

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Side 17
E inu sinni völdu Íslending- ar sér bensínstöðvar eftir því hvaða flokk þeir kusu. Fólk sem brá sér í banka til þess að biðja um lán gat búist við því að þurfa að ganga í viðeigandi stjórn- málaflokk. Að velja hveiti til baksturs var hápólitísk ákvörðun. Stjórnmálaflokkarnir voru sam- ofnir daglegu lífi. Fyrirtæki voru póli- tísk. Vörur pólitískar. Starf stjórn- málaflokkanna var varðstaða um hagsmuni. Í slíkri baráttu var mikil- vægt að enginn svikist undan merkj- um. Flokkarnir urðu maskínur. Með- limirnir tannhjól. Svo fór að molna undan þessu. Fyrirtæki urðu minna pólitísk. Eign- arhaldið breyttist á bensínstöðv- unum. Fólk varð frjálsara. Það fór að hugsa sjálfstæðara. Bankastjórar gátu ekki lengur gert kröfu til við- skiptavina um félagsskírteini í flokki. Ungt fólk kom heim úr námi. Fag- mennska jókst. Hið hólfaskipta pólitíska samfé- lag varð smám saman úrelt. Fleiri og fleiri vildu einfaldlega taka ákvarð- anir, eins og um hveiti, lán og bensín, á grunni eigin hentugleika, smekks, rannsókna og upplýsinga. Google varð til. Smám saman erum við flest hætt því í daglega lífinu að velta fyrir okk- ur hvaða flokka hver kýs. Breytt samfélag, sömu stjórn- málin Stjórnmálin niðri á þingi hafa ekki breyst nægilega mikið til samræm- is við þetta. Á þingi er allt meira og minna enn í hólfum. Flokksleiðtog- um er uppálagt að flytja ræður um yfirburði eigin flokks og um meinta vitleysu í öðrum. Aðrir fylgja í kjöl- farið í sama stíl. Þetta er nánast eins og hlutverkaleikur. Áhugafólk um yf- irvegaða umræðu byggða á upplýs- ingum og þekkingu hristir höfuðið. Það reynir kannski að breyta þessu en lendir númer 25 á mælendaskrá í málþófi. Djörf tilraun endar sem ein- manaleg ræða um nótt. Pælingin um samræðu sjálf- stæðra einstaklinga með frjálsar skoðanir virðist ekki hafa skotið rót- um í þingsalnum líkt og úti í samfé- laginu. Ekki vantar einstaklingana, ekki vantar skoðanirnar, ekki vantar hæfileikana. En pólitíkin, hún ein- hvern veginn virkar ekki. Í þingsal er bannað að gúggla. Köngulóarvef- ir áratugagamalla hagsmuna hanga í hverju horni. Mér líður stundum eins og umræða um lífskjör endi sí- fellt í einhverju undarlegu tali um lambakjöt. Og hvað? Hvað er að? Hvað þarf að gerast? Ég held að flokkar séu nauðsynlegir. Ég vinn að stofnun flokks ásamt öðr- um þessa dagana. Ég held að það sé nauðsynlegt lýðræðinu að fólk sem hefur svipaðar skoðanir hittist og móti stefnu á grunni hugsjóna sinna og bjóði fram sameiginlega. Það fólk sem nú er að hittast upplifi ég sem frjálslynt, víðsýnt, óhrætt og hug- myndaríkt fólk sem vill gera gagn, að gefnu tilefni. Nýr og góður, málefna- legur valkostur verður vonandi til. En eitt er ekki síður mikilvægt, talandi um pólitísku menninguna: Ef við erum sammála því að flokk- unum sem eru á sviðinu sé um megn einum og sér að losa pólitíkina úr vef gamalla hagsmuna og úreltrar orð- ræðu, þá stendur það auðvitað upp á okkur sem viljum gera hlutina öðru- vísi, að sýna að annars konar póli- tík sé möguleg. Það held ég að sé vel hægt. Úti um allt land hefur hæfa- leikaríkt fólk kosið að finna kröft- um sínum farveg utan hefðbundnu flokkanna og haft áhrif á samfélagið með góðum árangri. Stjórnlagaráðið er dæmi um það sama. Tvö prinsipp Á þingi hefur hins vegar hreiðrað um sig of mikil hræðsla við frjálsa hugsun. Það skrifast, held ég, á upp- runa flokkanna sem hagsmuna- bandalaga. Sú hugsun virðist vera of rótgróin innan þeirra, að þeim beri „að standa vörð“, eins og það er orð- að. Varðstaðan, sem kúltúr, hefur því miður í allt of mörgum tilvikum þró- ast upp í einhvers konar varðstöðu stjórnmálamanna gegn öðru fólki, gegn breyttum vinnubrögðum, gegn gleði, gegn uppbyggilegri og ögrandi hugsun, víðsýni og gagnrýni. Flest er talið ógn. Nýr flokkur má því ekki vera sam- tök um hagsmuni. Hlutverk hans ætti ekki að vera varðstaða, held- ur að vera vettvangur eða farvegur. A.m.k. tvennt held ég að sé lykilat- riði: Nýr flokkur má ekki þiggja fé frá hagsmunaðilum. Og nýr flokkur má heldur ekki breytast í virki fyrir þá sem ætla að gera pólitík að ævi- starfi. Nýr flokkur á að vera farvegur fyrir þá sem líta á pólitík sem tíma- bundna þjónustu við þjóðfélagið. Fyrir þá sem vilja bara gera gagn, á grunni sameiginlegra hugsjóna. Þannig getur orðið til, að ég held, hin nýja, frjálsa pólitík sem okkur vantar svo sárlega á Íslandi. Umræða | 17Miðvikudagur 28. september 2011 Viltu láta banna lausagöngu katta? „Nei, alls ekki.“ Hrefna Hagalín 22 ára, kvikmyndagerðamaður „Nei.“ Víðir Ísfeld Ingþórsson 23 ára, framkvæmdastjóri „Nei.“ Hrefna Sigurjónsdóttir 33 ára, framkvæmdastjóri „Já.“ Einar Másson 43 ára, starfsmaður Byko. „Já, þeir geta bara verið í ól eins og hund- arnir.“ Sigmundur Heiðar Valdimarsson 56 ára, atvinnulaus 1 Ég er ekki þunn! Tobba Marinós svarar fyrir dóm Páls Baldvins Baldvinssonar í Fréttablaðinu. 2 Snéri á klúbbinn og keypti nafniðSvavar Þór Svavarsson greip til sinna ráða þegar honum var meinuð inn- ganga í mótorhjólaklúbb í Grindavík. 3 Sláandi upplýsingar um afskriftir Vigdísi Hauksdóttur þingmanni er brugðið yfir fréttum af afskriftum íslenskra banka. 4 Lögreglumenn með 512 þúsund í laun að jafnaði Bloggarinn Agnar Kristján Þorsteinsson tók saman tölur um heildarlaun lögreglumanna. 5 „Átta sig ekki á afleiðingum gjörða sinna“ Séra Halldór Reynis- son um sjálfsvíg ungra barna. 6 Nirvana-barnið orðið tvítugtLitli allsberi strákurinn framan á einni frægustu rokkplötu sögunnar, Nevermind með Nirvana, er orðinn tvítugur 7 Setningu Alþingis flýtt Ákveðið hefur verið að flýta setningu Alþingis til klukkan tíu á laugardag í staðinn fyrir klukkan 13.30. Mest lesið á dv.is Myndin Við öllu búin Þessi öndvegishjón létu rigninguna í miðbænum ekki á sig fá og klæddu sig í gular og glæsilegar regnslár. Haustlægðir herja nú á landið hver á fætur annarri. Mynd gunnar gunnarSSOn Maður dagsins Ætlaði að verða bóndi Bjarni Guðjónsson Bjarni Guðjónsson, fyrirliði KR, fagnar sigri með félögum sínum. Hver er maðurinn? „32 árs faðir, fyrirliði, eiginmaður og versl- unarstjóri.“ Hvað drífur þig áfram? „Fjölskyldan og sigurviljinn.“ Hvar ert þú uppalinn? „Akranesi.“ Hvað gerir þú þegar þú ert ekki að spila fótbolta? „Er verslunarstjóri í Ellingsen og er með fjöl- skyldunni minni.“ Hvaða kostum þarf góður fyrirliði að búa yfir? „Hann þarf að vera góður leiðtogi og helst að leiða sem fyrirmynd.“ Hvaða ókostum má hann ekki búa yfir? „Fyrirliði ætti að taka hagsmuni liðsins fram yfir eiginhagsmuni.“ Hver er uppáhaldsknattspyrnu- maðurinn? „Jóhannes Kristinn Bjarnason.“ Ertu laus við meiðsli? „Alls ekki, held að enginn knattspyrnu- maður sé alveg laus við þau.“ Hvernig tilfinning var að halda loks á bikarnum? „Ólýsanleg. Mig hefur dreymt um það lengi.“ Ef ekki fótbolti, hvað þá? „Erfitt að ímynda mér líf án fótboltans. Sagði samt alltaf einu sinni að ég ætlaði að verða bóndi.“ Á Kr einstaka aðdáendur? „Langbestu áhorfendur sem ég hef spilað fyrir. Mæta alltaf á völlinn og styðja við bakið á okkur. Heiður að fá að vera KR-ingur og spila í Frostaskjólinu.“ Er eitthvað sem þú vilt segja við unga knattspyrnuiðkendur? „Hafa gaman að því að spila fótbolta og æfa sig allan daginn, alla daga. Stór partur af fótbolta er að hafa trú á sér og gefast aldrei upp, alveg sama þó að á móti blási.“ Hin nýja frjálsa pólitík Dómstóll götunnar Guðmundur Steingrímsson Kjallari „Stjórnmálin niðri á þingi hafa ekki breyst nægilega mikið til samræmis við þetta. Á þingi er allt meira og minna enn í hólfum.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.