Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Blaðsíða 20

Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Blaðsíða 20
20 | Sport Umsjón: Tómas Þór Þórðarson tomas@dv.is 28. september 2011 Miðvikudagur Sterkir leikmenn samningslausir Knattspyrnuvertíðinni lýkur á laugardaginn þegar lokaumferð Pepsi-deildarinnar fer fram. Félagaskiptaglugginn opnast svo um miðjan október og þá mega liðin fara að styrkja sig fyrir næsta tímabil. Mikið er um að samningar sterkra leikmanna séu að renna út og birtir DV hér lista yfir alla þá sem verða samningslausir eftir tímabilið. ÍBV Feitasti bitinn: Rasmus Christiansen Eyjamenn þurfa að setjast niður með nokkrum leikmönnum eftir tímabilið en þar verður mikilvægast að halda danska miðverðinum Rasmus Christiansen. Ólíklegt þykir að Bretarnir Matt Garner og Ian Jeffs vilji nokkuð fara og alls er óvíst um áframhald Alberts Sævarssonar í boltanum. Heilt yfir ætti að vera nokkuð auðvelt fyrir Eyjamenn að endur- semja þó mörgum liðum hugnist eflaust að draga Rasmus upp á land. Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls Aaron Spear 29.4.1993 ÍBV 16.11.2011 Albert Sævarsson 18.10.1973 ÍBV 31.12.2011 Denis Sytnik 14.10.1986 ÍBV 16.10.2011 1 100.000 Gauti Þorvarðarson 19.2.1989 ÍBV 31.12.2011 1 100.000 Guðjón Ólafsson 12.4.1989 ÍBV 31.12.2011 1 100.000 Hjálmar Viðarsson 18.1.1991 ÍBV 31.12.2011 1 100.000 Ian David Jeffs 12.10.1982 ÍBV 16.10.2011 3 300.000 Matt Nicholas Paul Garner 9.4.1984 ÍBV 16.10.2011 Pétur Runólfsson 20.11.1981 ÍBV 31.12.2011 1 100.000 Rasmus Steenberg Christiansen 6.10.1989 ÍBV 16.10.2011 3 300.000 Yngvi Magnús Borgþórsson 26.3.1975 ÍBV 31.12.2011 1 100.000 FH Feitasti bitinn: Björn Daníel Sverrisson Margir góðir og áhugaverðir leikmenn eru samningslausir hjá Hafnfirðingum en miðað við aldur og getu þykir Björn Daníel Sverrisson nú feitasti bitinn þar. Afar ólíklegt þykir þó að hann fari í annað lið en FH. Ólafur Páll, Pétur Viðarsson og Atli Guðnason eru þó allt leikmenn sem FH vill eflaust semja við aftur, sem og varnarmennina Viktor Örn, Guðmund Sævarsson og Frey Bjarnason. Ólíklegt þykir að Brynjar Benediktsson fái nýjan samning og ekki er vitað hvert framhaldið verður hjá Bjarka Gunnlaugs- syni. Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls Atli Guðnason 28.9.1984 FH 31.12.2011 3 300.000 Ásgeir Gunnar Ásgeirsson 3.6.1980 FH 31.10.2011 Bjarki Bergmann Gunnlaugsson 6.3.1973 FH 31.12.2011 Björn Daníel Sverrisson 29.5.1990 FH 31.12.2011 3 300.000 Brynjar Benediktsson 7.2.1990 FH 31.12.2011 1 100.000 Freyr Bjarnason 30.6.1977 FH 31.12.2011 1 100.000 Guðmundur Sævarsson 31.7.1978 FH 31.12.2011 1 100.000 Gunnar Sigurðsson 14.8.1975 FH 31.12.2011 Jón Ragnar Jónsson 30.10.1985 FH 31.12.2011 Ólafur Páll Snorrason 22.4.1982 FH 31.12.2011 3 300.000 Pétur Viðarsson 25.11.1987 FH 31.12.2011 1 100.000 Tommy Fredsgaard Nielsen 11.6.1972 FH 31.10.2011 Viktor Örn Guðmundsson 9.11.1989 FH 31.12.2011 1 100.000 Valur Feitasti bitinn: Jón Vilhelm Ákason Listinn hjá Val er nokkuð blekkjandi því eins og knattspyrnu- áhugamenn vita þurftu Valsmenn að lækka laun leikmanna og þannig taka upp alla samninga og endurgera þá. Það þýðir að eflaust eru mun fleiri í raun án samnings eftir tímabilið en þessi listi gerir ráð fyrir. Af þeim fimm sem eru á samningi sem rennur út á þessu ári hlýtur Skagamaðurinn Jón Vilhelm Ákason að teljast eftirsóttastur en hann hefur verið hvað líf- legastur Valsmanna á seinni hluta tímabilsins. Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls Edvard Börkur Óttharsson 23.4.1992 Valur 31.10.2011 1 100.000 Jón Vilhelm Ákason 20.11.1986 Valur 16.10.2011 3 300.000 Magnús Örn Þórsson 14.3.1991 Valur 31.10.2011 1 100.000 Matthías Guðmundsson 1.8.1980 Valur 16.10.2011 3 300.000 Stefán Jóhann Eggertsson 3.5.1984 Valur 16.10.2011 1 100.000 Stjarnan Feitasti bitinn: Daníel Laxdal Bjarni Jóhannsson og félagar þurfa að hafa snarar hendur eftir tímabilið, þá sérstaklega til að halda Daníel Laxdal sem stóru liðin mun án efa horfa til. Eins eru Danirnir sem stóðu sig svo vel í sumar samningslausir sem og bakvörðurinn öflugi Bjarki Páll Eysteinsson. Tryggvi Sveinn Bjarnason er einnig leikmaður sem mörg lið gætu notað og þá eru samningar tveggja ungra leik- manna, Grétars Atla Grétarssonar og Víðis Þorvarðarsonar, að renna út. Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls Atli Jóhannsson 5.10.1982 Stjarnan 16.10.2011 3 300.000 Bjarki Páll Eysteinsson 1.4.1986 Stjarnan 31.12.2011 1 100.000 Daníel Laxdal 22.9.1986 Stjarnan 31.12.2011 3 300.000 Grétar Atli Grétarsson 5.11.1988 Stjarnan 31.12.2011 1 100.000 Hafsteinn Rúnar Helgason 9.6.1985 Stjarnan 1.11.2011 1 100.000 Jesper Holdt Jensen 22.4.1988 Stjarnan 16.10.2011 Magnús Karl Pétursson 30.9.1979 Stjarnan 16.10.2011 Nikolaj Hagelskjaer Pedersen 6.5.1990 Stjarnan 16.10.2011 Sindri Már Sigurþórsson 8.4.1986 Stjarnan 31.10.2011 1 100.000 Tryggvi Sveinn Bjarnason 16.1.1983 Stjarnan 31.10.2011 3 300.000 Víðir Þorvarðarson 7.7.1992 Stjarnan 31.10.2011 1 100.000 Þorvaldur Árnason 25.6.1980 Stjarnan 1.11.2011 1 100.000 Breiðablik Feitasti bitinn: Kristinn Steindórsson Það verður ekki mikið sótt í þá Blika sem eru að verða samningslausir. Miðvarðarp- arið Kári Ársælsson og Þórður Steinar Hreiðarsson hefur engan heillað og þá eru markvörðurinn Vignir Benediktsson og Ágúst Örn Arnarson ekki á ratsjá neinna liða í Pepsi-deildinni. Veturinn mun snúast um eitt: Að halda Kristni Steindórssyni hjá liðinu en samningur albesta leikmanns Breiðabliks er að renna út. Þykja verður þó ansi ólíklegt að þessi uppaldi Bliki vilji spila nokkurs staðar annarsstaðar en á vellinum sem hann hirðir á sumrin. Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls Ágúst Örn Arnarson 15.8.1991 Breiðablik 31.12.2011 1 100.000 Kári Ársælsson 2.7.1985 Breiðablik 16.10.2011 3 300.000 Kristinn Steindórsson 29.4.1990 Breiðablik 16.10.2011 5 500.000 Vignir Benediktsson 2.8.1987 Breiðablik 31.12.2011 1 100.000 Þórður Steinar Hreiðarsson 13.12.1986 Breiðablik 31.12.2011 Listinn er unninn upp úr gagnagrunni KSÍ og er opinn hverjum sem er. Hann er birtur með þeim fyrirvara að einhverjir leikmenn gætu verið búnir að skrifa undir nýja samninga en liðin ekki enn búin að skila þeim inn til Knattspyrnusambands Íslands. KR Feitasti bitinn: Kjartan Henry Finnbogason Samningar fimm leikmanna Íslandsmeistara KR eru að renna út og myndu önnur lið svo sannarlega vilja krækja í þá. Þeir helstu eru auðvitað Kjartan Henry Finnbogason sem hefur farið á kostum í sumar og eins Mývetningurinn öflugi Baldur Sigurðsson. Gunnar Örn Jónsson gæti séð sæng sína útbreidda í Vesturbænum og haldið á önnur mið en hann fékk lítið að spila í sumar. Þá er samkeppnin orðin mikil fyrir Dofra Snorrason í hægri bakverðinum en hann hefur stigið verulega upp undir lok móts. Afar líklegt er þó að allir skrifi undir nýjan samning við KR. Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls Baldur Sigurðsson 24.4.1985 KR 16.10.2011 5 500.000 Dofri Snorrason 21.7.1990 KR 16.10.2011 1 100.000 Einar Már Þórisson 12.8.1991 KR 31.12.2011 1 100.000 Gunnar Örn Jónsson 30.4.1985 KR 31.10.2011 3 300.000 Kjartan Henry Finnbogason 9.7.1986 KR 16.10.2011 5 500.000

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.