Dagblaðið Vísir - DV - 28.09.2011, Blaðsíða 21
Sport | 21Miðvikudagur 28. september 2011
Sterkir leikmenn samningslausir
Fylkir
Feitasti bitinn: Albert Brynjar Ingason
Samningar nokkurra góðra leikmanna í Ábænum
eru að renna út en þar sem mörk eru svo dýrmæt og
hvað þá markaskorarar í Pepsi-deildinni verður Albert
Brynjar Ingason að teljast eftirsóttasti Fylkismaðurinn.
Þó er samningur hins eitilharða miðjumanns Ásgeirs
Barkar Ásgeirsson einnig að renna út á samningi sem
og markvörðurinn Fjalar Þorgeirsson en hann vann
markvarðarstöðuna aftur af Bjarna Þórði í sumar. Þá er
Baldur Bett einnig að verða samningslaus sem og Valur
Fannar Gíslason sem í viðtali við fotbolti.net sagðist ætla
að halda áfram í eitt til tvö ár í viðbót.
Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls
Albert Brynjar Ingason 16.1.1986 Fylkir 31.12.2011 3 300.000
Andri Már Hermannsson 2.3.1993 Fylkir 31.12.2011 3 300.000
Ásgeir Börkur Ásgeirsson 16.4.1987 Fylkir 31.12.2011 3 300.000
Baldur Bett 12.4.1980 Fylkir 16.10.2011 1 100.000
Fannar Baldvinsson 13.5.1989 Fylkir 31.12.2011 1 100.000
Fjalar Þorgeirsson 18.1.1977 Fylkir 31.10.2011 1 100.000
Friðrik Ingi Þráinsson 16.1.1990 Fylkir 31.12.2011 1 100.000
Kjartan Ágúst Breiðdal 20.3.1986 Fylkir 31.12.2011 3 300.000
Oddur Ingi Guðmundsson 28.1.1989 Fylkir 31.12.2011 1 100.000
Valur Fannar Gíslason 8.9.1977 Fylkir 16.10.2011 1 100.000
Keflavík
Feitasti bitinn:
Guðmundur Steinarsson
Keflvíkingar gætu átt í vandræðum
með að halda sínum mönnum en
samningur helsta markaskorara
þeirra í gegnum árin, Guðmundar
Steinarssonar, er að renna út. Þá
er einn besti bakvörður deildar-
innar undanfarin ár, Guðjón Árni
Antoníusson, að verða samnings-
laus sem og sóknarmaðurinn
Magnús Sverrir Matthíasson. Þá
eru báðir útlendingarnir hjá liðinu,
Adam Larson og Goran Jovanovski,
aðeins á árs samningi. Til allrar
lukku fyrir Keflvíkinga eru þetta
meira og minna uppaldir og sannir
Keflvíkingar þannig auðveldara
ætti að vera en ella að halda þeim
í bítlabænum. Fari svo að liðið falli
verður sagan þó önnur.
Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls
Adam Larsson 10.5.1989 Keflavík 16.10.2011
Andri Steinn Birgisson 23.12.1983 Keflavík 16.10.2011 1 100.000
Ásgrímur Rúnarsson 22.1.1993 Keflavík 16.10.2011 3 300.000
Goran Jovanovski 26.9.1980 Keflavík 16.10.2011
Grétar Ólafur Hjartarson 26.11.1977 Keflavík 16.10.2011
Guðjón Árni Antoníusson 3.9.1983 Keflavík 16.10.2011 3 300.000
Guðmundur Steinarsson 20.10.1979 Keflavík 16.10.2011 1 100.000
Magnús Sverrir Þorsteinsson 22.9.1982 Keflavík 16.10.2011 3 300.000
Magnús Þórir Matthíasson 22.1.1990 Keflavík 16.10.2011 1 100.000
Sigurður Gunnar Sævarsson 25.7.1990 Keflavík 31.12.2011 1 100.000
Theodór Guðni Halldórsson 24.5.1993 Keflavík 16.10.2011 1 100.000
Þór
Feitasti bitinn: Janez Vrenko
Þórsarar hafa komið á óvart í sumar og
eru afar líklegir til að halda sér í deildinni.
Aðalatriðið verður að halda varnarmann-
inum Janez Vrenko hjá liðinu, hvort sem
það fellur eða ekki, og einnig þarf það að
halda ungverska markaskoraranum Dávid
Disztl. Falli Þór eru þetta báðir leikmenn
sem lið í Pepsi-deildinni gætu notað og þó
að liðið haldi sér uppi þurfa norðanmenn
að vera fljótir að fá þá til að setja penna
við blað.
Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls
Aleksandar Linta 22.10.1975 Þór 16.10.2011
Björn Hákon Sveinsson 5.6.1984 Þór 31.10.2011
Clark Keltie 31.8.1983 Þór 16.10.2011
Dávid Disztl 5.1.1985 Þór 16.10.2011
Janez Vrenko 17.8.1982 Þór 16.10.2011
Fram
Feitasti bitinn: Halldór Hermann Jónsson
Samningur Halldórs Hermanns Jónssonar hjá Fram er að renna út en þessi flotti leikmaður hefur verið hjartað í
liðinu undanfarin ár á miðjunni. Ljóst er að mörg lið hefðu áhuga að fá hann til sín. Bretarnir þrír, Lowing, Lennon og
Hewson, gerðu allir bara samning út tímabilið þó Hewson sé reyndar ekki skráður á heimasíðu KSÍ. Hvort Hjálmar
Þórarinsson og Tómas Leifsson rói á önnur mið nú þar sem þeir eru að verða samningslausir er líka spurning.
Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls
Alan Lowing 7.1.1988 Fram 31.10.2011
Arnar Bergmann Gunnlaugsson 6.3.1973 Fram 31.10.2011
Halldór Hermann Jónsson 1.10.1984 Fram 31.10.2011
Hjálmar Þórarinsson 16.2.1986 Fram 31.10.2011
Ívar Björnsson 12.1.1985 Fram 31.12.2011 3 300.000
Steven Lennon 20.1.1988 Fram 16.10.2011
Tómas Leifsson 1.5.1985 Fram 31.12.2011
Grindavík
Feitasti bitinn:
Haukur Ingi Guðnason
Grindavík er í verstu stöðunni
hvað varðar að halda sér uppi
fyrir lokaumferðina. Ætla má
að einhverjir leikmenn séu með
klásúlu í samningi sínum að þeir
geti losnað falli liðið niður um deild
en það er afar algengt á Íslandi.
Af þeim tveimur samningum sem
eru að renna út telst Haukur Ingi
Guðnason feitari bitinn enda ein-
faldlega töluvert betri leikmaður
en Matthías Örn Friðriksson.
Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls
Haukur Ingi Guðnason 8.9.1978 Grindavík 16.10.2011
Matthías Örn Friðriksson 9.9.1986 Grindavík 31.10.2011 1 100.000
Víkingur
Feitasti bitinn:
Mark Rutgers
Víkingar eru nú þegar fallnir og má
ætla að fleiri leikmenn geti losnað
vegna klásúlu um fall í næstefstu
deild. Þeirra langbesti leikmaður
í sumar, hollenski miðvörðurinn
Mark Rutgers, gerði aðeins eins
árs samning við liðið og verður því
samningslaus um miðjan október.
Það myndi teljast kraftaverk
takist Víkingum að halda honum
í 1. deildinni en ljóst er að mörg
lið í Pepsi-deildinni geti notað
hann. Miðjumaðurinn Halldór
Smári Sigurðsson sem hefur verið
geymdur í frystikistunni undir
stjórn Bjarnólfs Lárussonar er
einnig að verða samningslaus.
Nafn Fæddur Félag Til Stuðull Verðmæti stuðuls
Halldór Smári Sigurðsson 4.10.1988 Víkingur R. 31.12.2011 1 100.000
Hjalti Már Hauksson 26.7.1986 Víkingur R. 31.12.2011 1 100.000
Mark Richard Rutgers 26.9.1986 Víkingur R. 16.10.2011
Milos Milojevic 29.9.1982 Víkingur R. 31.10.2011
Svavar Sesar Hjaltested 26.8.1992 Víkingur R. 31.12.2011 1 100.000
Gunnar Einarsson 7.7.1976 Víkingur R. 31.12.2011