Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1914, Side 31
29'
skipað á land úr skipum og úr landi út i skip á hverri höfn.
Skýrslur þessar hafa hingað til ekki verið svo fullkomnar seiii æski-
legt væri. Þannig hefur æfmlega orðið að ætlast á um uppskipaðar
og útskipaðar vörur í Reykjavík eftir því sem talið er aðílutt og út-
Ilutt til og frá Rej'kjavík i verslunarskýrslunum. Annars eiga skýrsl-
ur þessar ekki aðeins að sýna þyngd flutningsins til og frá landinu
heldur einnig þyngd llutninganna innanlands hafna á milli. En með
því að þeir eru litlir i samanburði við flulningana til og frá land-
inu og hinsvegar koma ekki öll kurl til grafar i skýrslunum, má
búast við, að útkoman úr þeim geri varla meira en svara til þyngd-
arinnar á aðfluttu og útfluttu vörunni.
Skýrsla um uppskipaðar og útskipaðar vörur á hverri höfn
árið 1912 er í töílu IX (bls. 74—75). Á öllu landinu voru uppskip-
aðar og útskipaðar vörur tvö síðustu árin samkvæmt skýrslunum :
1011 1012
Uppskipað......... 181 587 lestir 176 583 lestir
Útskipað ......... 52 967 — 58 867 —
Samtals 234 554 lestir 235 450 lestir
Samkvæmt verslunarskýrslunum 1912 fluttist það ár til lands-
ins 77,600 leslir af kolum, 37,600 lestir af salti og 9,600 lestir af
kornvörum. Þessir þrír vörullokkar námu því samtals tæpl. 125,000
lestum. Eftir verða þá rúml. 50,000 lestir, sem skiflast niður á allar
aðrar aðllultar vörur bæði frá útlöndum og öðrum innanlandshöfn-
um. Sama ár flultist út samkvæmt verslunarskýrslunum 41,600
lestir af allskonar liski, 3,800 lestir af lýsi, 2,000 lestir af hvalaf-
urðum, 2,400 lestir af saltkjöti, eða af öllum þessum vörutegundum
samtals nálægt 50,000 lestir. Eru þá eftir 9,000 lestir er falla á aðr-
ar útfluttar vörur og vörur fluttar lil annara liafna innanlands.
Flutningarnir frá og til eftirfarandi hafna námu yfir 10 þús.
leslum árið 1912 samkv. skýrslunum :
Uppskipnð Clskipaö Samtals
lestir lcstir lestir
Reykjavik............... 70000 11 100 81 100
Viðey..................... 14 819 3 429 18 248
Akureyri.................. 11 270 5 232 16 502
Seyðisfjörður........... 11856 3940 15796
Siglufjörður............... 6 867 8 845 15 712
ísafjörður................ 10 661 3 722 14 383
Hafnarfjörður.............. 9 425 1 879 11 304
Samkvæmt því koma 3/i hlutar af öllum flutningunum á þess-
ar 7 hafnir.