Hagskýrslur um utanríkisverslun


Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Síða 7

Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Síða 7
Inngangur, lnlroduclion. 1. Greinargerð um tilhögun verzlunarskýrslnanna. Gencral statement. Innflutningurinn er í verzlunarskýrslunum talinn á cif-verði, þ. e. á verði vöru í útflutningslandinu (fob-verð), að viðbættum kostnaði, sem á fellur (aðallega flutningsgjöld og trygging), þar til hún er affermd á ákvörðunarstað. Fær Hagstofan samrit af skýrslu þeirri, sem innflytjandinn gefur tollyfirvöldunum. Fyrir kemur, að tollyfirvöldin áætli cif-verðið, vegna þess að sölureikningur er ekki fyrir hendi, en fjárhæðirnar, sem þar er um að ræða, skipta mjög litlu máli. Skýrslutöku skipa og flugvéla, sem fluttar eru til landsins, er þó öðruvísi háttað. Skýrslu um slíkan innflutning fær Hagstofan yfir- leitt ekki frá tollyfirvöldunum, heldur beint frá hlutaðeigandi innflytj- endum. Upplýsa þeir, hver sé byggingarkostnaður eða kaupverð hvers skips eða flugvélar. Þar við leggst áætlaður heimflutningskostnaður og kemur þá fram verðmætið, sem reiknað er með í verzlunarskýrslunum. Skipainnflutningurinn hefur verið tekinn á skýrslu ársfjórðungslega, þannig að t. d. skip, sem komu til landsins í mánuðunum april—júní, voru öll talin með júníinnflutningnum. í verzlunarskýrslunum fyrir 1049 eru innflutt skip hins vegar tekin með hálfsárslega, þ. e. a. s. með inn- flutningi júnimánaðar og desembermánaðar. Sömu reglu er fylgt um flug- vélainnflutninginn það ár, en áður hefur hann verið tekinn á skýrslu jafnóðum. í kaflanum um innfluttar vörur síðar í innganginum er gerð nánari grein fyrir skipainnflutningnum á árinu 1949. Útflutningurinn er í verzlunarskýrslum talinn á söluverði af- urða með umbúðum, fluttra um borð í skip (fob) á þeirri höfn, er þær fyrst fara frá. Er hér yfirleitt miðað við verðið samkvæmt sölureikningi útflytjanda, og útflutningsgjöld eru ekki meðtalin í fob-verðinu. Sé um að ræða umboðslaun til erlendra aðila, er upphæð þeirra dregin frá, til þess að hreint fob-verð komi fram, þ. e. a. s. ef greiðsla umboðslauna er heimiluð í útflutningsleyfinu. — Fob-verð vöru, sem seld er úr landi með cif-skilmálum, er fundið með því að draga frá cif-verðmætinu flutn- ingskostnað og tryggingu, ásamt umhoðslaunum ef nokkur eru. — Nettó-
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144
Síða 145
Síða 146
Síða 147
Síða 148
Síða 149
Síða 150
Síða 151
Síða 152
Síða 153
Síða 154
Síða 155
Síða 156

x

Hagskýrslur um utanríkisverslun

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Hagskýrslur um utanríkisverslun
https://timarit.is/publication/1123

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.