Hagskýrslur um utanríkisverslun - 1951, Blaðsíða 11
Verzíunarskýrslur 1949
9*
fellt gagnvart dollar, urn 30%, og var krónan þegar látin fylgja sterl-
ingspundinu. Fólst í þessu 44% hækkun dollaragengisins hér, aulc þess
sem meiri eða minni hækkun varð á gengi ýmiss annars gjaldeyris,
sem hélzt í sama verðhlutfalli við dollar eða verðfelldur var minna en
pundið var fellt. Var hér aðallega um að ræða gjaldeyri eftirtalinna
landa: Belgíu, Frakklands, Ivanada, Sviss og Tékkóslóvakíu. Séu verð-
vísitölur innflutnings og útflutnings 1949 umreiknaðar svo, að áhrif
gengisbreytingarinnar hverfi, verður verðvísitala innflutnings
341 og útflutnings 341. Eru verðvísitölurnar fyrir 1949, hvor um sig,
þannig ekki nema 4 stiguin liærri en þær hefðu verið, ef gengisbreyt-
ingin í septemher 1949 hefði elcki komið til. — Af 35,2 millj. kr. inn-
l'lutningi frá ofangreindum löndum i mánuðunum september til des-
ember 1949 og voru ekki nema 20,2 millj. kr. afleiðing umreiknings yfir
í íslenzka mynt með nýja genginu. Ástæðan fyrir þessu var sú, að vörur
sem komu til landsins fyrir 21. septemher 1949 voru tollafgreiddar —
og þar af leiðandi teknar á skýrslu — ineð lægra genginu, samkvæmt
venju, sem fylgt hefur verið í þessu efni, þegar gengisbreyting á sér stað.
Síðan 1935 liefur þ y n g d a 11 s i n n f 1 u t n i n g s o g ú t f I u t n i n g s
verið talin saman. Er þyngdin eins og fyrr getur nettóþyngd. En þar
eð ýmsar vörur hafa ekki verið gefnar upp i þyngd, heldur stykkjatölu,
rúmmetrum eða öðrum einingum, hefur þessum einingum verið hreytt
í þyngd eflir áætluðum hlutföllum. Auk þess hefur þyngdin á ýmsum
vörum oft verið ótilgreind í skýrslum að nokkru eða öllu leyti, svo að
orðið hefur að setja hana eftir ágizkun. Heildarlölurnar fyrir þyngd
innflutnings og litflutnings síðan 1935 hafa orðið sem hér segir og
jafnframt sýnd brevtingin hvert ár, miðað við 1935 = 100:
Innflutmngur Útflutningur
1000 kg Hlutfall 1000 kg Hlutfall
1935 333 665 100,0 117 127 100,0
1930 321 853 99,5 134 403 114,3
1937 333 970 100,1 148 657 127,9
1938 337 237 101,1 158 689 135,6
1939 341 856 102,5 150 474 128,5
1940 226 928 68,0 186 317 159,1
1941 231 486 69,4 204 410 174,5
1942 320 837 96,1 203 373 173,6
1943 305 279 91,5 209 940 179,2
1944 302 934 90,8 234 972 200,6
1945 329 344 98,7 199 985 170,7
1946 436 639 130,9 174 884 149,3
1947 530 561 159,0 171 606 146,5
1948 486 985 145,9 262 676 242,3
1949 499 194 149,6 211910 180,9
Árið 1949 hefur heildarþyngd innflulningsins verið aðeins um 50%
meiri heldur en árið 1935, sem miðað er við, en vörumagnsvísitalan
sýnir upp undir þrefalt vörumagn árið 1949 á móts við 1935. Þetta virð-
ist slríða hvað á móti öðru, en svo er þó ekki í raun og veru, því að
2