Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Blaðsíða 4
4 Fréttir 25. janúar 2012 Miðvikudagur
Dæmdur til að borga milljón
n Karl Steingrímsson fer líklega með málið fyrir Hæstarétt
K
arl Steingrímsson, sem oftast
er kenndur við verslunina
Pelsinn, var á mánudag
dæmdur til að endurgreiða
Arion banka rúmar milljón krónur.
Upphæðin var eftirstöðvar láns sem
eignarhaldsfélagið Vindasúlur ehf.
hafði tekið hjá bankanum og Stein-
grímur, sem var eigandi Vindasúlna
allt þar til fyrirtækið fór í þrot, hafði
gengist í sjálfskuldarábyrgð fyrir.
Málið var tekið fyrir í Héraðs-
dómi Reykjavíkur en dómurinn
lækkaði talsvert þær kröfur sem
Arion banki hafði lagt fram. Sann-
að þótti að búið hefði verið að end-
urgreiða langstærsta hluta láns-
ins, sem hljóðaði upp á tæplega 25
milljónir króna. Í samtali við blaða-
mann sagði lögmaður Karls eftir að
dómurinn var kveðinn upp að hann
teldi líklegt að málinu yrði áfrýjað til
Hæstaréttar.
Eignarhaldsfélagið Vindasúlur
ehf var lýst gjaldþrota í lok janúar
árið 2011. Gríðarlegar skuldir voru í
félaginu, sem áður hét Eignarhalds-
félagið Kirkjuhvoll ehf., og námu
kröfur í þrotabú félagsins 2,9 millj-
arðar króna.
Karl hefur lent í miklum
ógöngum með fjárfestingar sínar
eftir efnahagshrunið sem dundi yfir
haustið 2008. Þetta mál er ekki eina
dómsmálið sem höfðað hefur verið
á hendur Karli vegna fjármálagjörn-
inga hans. Á síðasta ári var Karl
handtekinn og yfirheyrður vegna
gruns um meint fjársvik þegar hann
seldi fasteign að Skúlagötu 51 til kín-
verska sendiráðsins.
adalsteinn@dv.is
Útsala
30 - 70%
Falleg olíumálverk í úrvali
á einstökum verðum
Allt orginal málverk
Skuldar ekki
skýringar
Össur Skarphéðinsson utanríkis-
ráðherra spurði að því í ræðustóli
á Alþingi á þriðjudag hvort ekki
þyrfti að skipta um forystu í Fram-
sóknarflokknum þar sem forystu
flokksins hefði tekist að klúðra
málum meira en nokkru sinni fyrr.
Þetta sagði Össur eftir að Gunn-
ar Bragi Sveinsson, þingflokks-
formaður Framsóknarflokksins,
spurði hann hvers vegna hann
hefði sagt í viðtali við Viðskipta-
blaðið að skipta þyrfti um forystu
í Samfylkingunni, flokki Össurar.
„Ég skulda þessum tvílembing-
um engar skýringar á ummælum
mínum sem varða innanhússmál
Samfylkingarinnar, heldur en þeir
mér gagnvart sínum innri mál-
efnum,“ sagði Össur og bætti við
að ef Gunnar Bragi hefði lesið allt
viðtalið þá hefði hann komist að
því að hann lýsti yfir aðdáun sinni
á því með hvaða hætti forsætisráð-
herrann hefði tekist á við krefjandi
verkefni.
Mörg ungmenni
létust í umferðinni
Alls létust tólf manns í umferðar-
slysum árið 2011. Það er fimm
fleiri en létust í umferðarslysum
árið 2010 en þá höfðu ekki færri
látist í umferðarslysum síðan árið
1968. Þetta kemur fram í tilkynn-
ingu frá Umferðarstofu. Helming-
ur þeirra tólf sem létust á síðasta
ári voru 17 ára eða yngri en það er
óvenjulega hátt hlutfall saman-
borið við fyrri ár. Fjórir þeirra sem
létust voru fótgangandi en það
telst óvenju mikið borið saman
við undanfarin ár. Alls létust átta
karlar og fjórar konur á árinu.
Tveir voru á fimmtugsaldri, þrír á
sjötugsaldri og einn var níræður.
Þrjú banaslys urðu í þéttbýli og
níu utan þéttbýlis. Tvö slys urðu á
höfuðborgarsvæðinu.
F
ulltrúum Næst besta flokks-
ins og Lista Kópavogsbúa
verður að öllum líkindum
ekki hleypt inn í meirihluta-
samstarf í Kópavogsbæ það
sem eftir er kjörtímabilsins. Sam-
fylkingin og Vinstri grænir vinna nú
að því að ná sáttum um helstu mál
til að hægt sé að mynda starfhæfan
meirihluta í bænum. Meirihluta-
samstarf allra flokka nema Sjálf-
stæðisflokks og Framsóknarflokks
sprakk eftir að Hjálmar Hjálmars-
son, fulltrúi Næst besta flokksins,
sleit samstarfinu við meirihlutann
vegna óánægju sinnar varðandi yf-
irvofandi bæjarstjóraskipti. Sjálf-
stæðisflokkurinn hefur meirihluta-
samstarfið í hendi sér.
Óvissa meðal starfsmanna
Málið hefur valdið miklum titr-
ingi innan meirihlutans og hafa
starfsmenn Kópavogsbæjar þurft
að starfa við óvissu um hvert
framhaldið verður. Guðrún Páls-
dóttir, bæjarstjóri í Kópavogi, var
ráðin til starfsins eftir síðustu
sveitarstjórnar kosningar. Meiri-
hlutinn sem starfað hefur í stjórn
bæjarins síðustu mánuði sam-
mæltist um að segja Guðrúnu upp
sem bæjarstjóra og finna nýjan ein-
stakling í starfið.
Ósætti var hins vegar um hvern-
ig staðið var að því að tilkynna Guð-
rúnu þetta. Samkvæmt heimildum
DV mátu flestir bæjarfulltrúanna
það svo að Guðríður Arnardóttir,
oddviti Samfylkingarinnar í Kópa-
vogi, ætti að ræða við Guðrúnu
áður en hún myndi heyra af yfir-
vofandi uppsögn sinni frá öðrum
en þeim sjálfum. Guðrún er hins
vegar enn starfandi sem bæjarstjóri
og ekki er útlit fyrir að það breytist
á næstunni þar sem enn er óvíst
hvaða flokkar eiga eftir að mynda
meirihluta og hvort vilji sé til að
ráða nýjan bæjarstjóra innan þess
nýja meirihluta sem myndast.
Vilji fyrir pólitískum
bæjarstjóra
Það má þó nær fullyrða að pólitískur
bæjarstjóri verði fenginn í starf-
ið eftir að nýr meirihluti verður
myndaður. Aðeins Listi Kópavogs-
búa gerði þá ófrávíkjanlegu kröfu
að bæjarstjóri yrði fengin utan raða
pólitískt kjörinna fulltrúa. Í raun var
listinn ástæða þess að Guðríður
var ekki gerð að bæjarstjóra eins
og Samfylkingin lagði upp með
í kosningunum og meirihluta-
viðræðunum strax eftir kosning-
ar. Sú hugmynd kom einnig upp
þegar ákvörðun var tekin um að
segja Guðrúnu upp störfum.
Gera má ráð fyrir því að Sam-
fylkingin geri aftur kröfu um að
bæjarstjórastólinn komi í þeirra
hlut en það verður þó að teljast
ólíkleg útkoma. Sjálfstæðisflokk-
urinn er með einum fleiri full-
trúa í bæjarstjórninni og hefur
í raun meirihlutasamstarf-
ið í hendi sér eftir að Listi
Kópavogsbúa hafnaði
samstarfi við Sam-
fylkinguna og upp
úr slitnaði í meiri-
hlutaviðræðum
listans við Sjálf-
stæðisflokkinn
og Næst besta
flokkinn.
n Guðrún missir líklega starfið n Bæjarstjórinn líklega pólitískur
Sjálfstæðismenn
ráða í Kópavogi
Aðalsteinn Kjartansson
blaðamaður skrifar adalsteinn@dv.is
Ármann Kr. Ólafsson
Sjálfstæðismenn hafa flesta
bæjarfulltrúa og eru því í
sterkri stöðu.
Ósætti um Guðrúnu Það var ósætti um hvernig staðið var að því
að tilkynna Guðrúnu að henni yrði sagt upp störfum sem sprengdi
meirihlutann. MYND BENT MARINÓSSON / KÓPAVOGSBÆR
Guðríður ekki kki bæjarstjóri
Listi Kópavogsbúa gerði ófrávíkjanlega
kröfu um ópólitískan bæjarstjóra.