Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Blaðsíða 10

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Blaðsíða 10
Grasrótin er Ögmundi reið 10 Fréttir 25. janúar 2012 Miðvikudagur Ö gmundur Jónasson innan­ ríkisráðherra hefur vafalaust gert sér grein fyrir að ákvörð­ un hans um að styðja tillögu Bjarna Benediktssonar, for­ manns Sjálfstæðisflokks, um aftur­ köllun landsdómsákæru á hendur Geir H. Haarde yrði ekki líkleg til vin­ sælda frá grasrót eigin flokks. Hann hefur þó varla átt von á jafn þungri undiröldu frá grasrótinni og raunin hefur orðið. Hættan á algjörum klofn­ ingi í VG er hugsanlega meiri nú en nokkurn tímann áður en ólíklegt þyk­ ir að Ögmundur Jónasson muni hafa frumkvæði að því að kljúfa flokkinn. Þá verður að benda á að ríkisstjórn­ in hefur það ekki að stefnu sinni að ákæra Geir H. Haarde, þótt innan VG og Samfylkingarinnar hallist margir að þeirri skoðun. Kvartað yfir aðför „Þetta er hluti af aðför til losa sig við öfluga félaga úr trúnaðarstörfum eða ýta þeim úr flokknum,“ skrifar Jón Bjarnason, þingmaður VG, á vef sinni á fimmtudag. Tilefnið var umræðan um hvort falla skuli frá ákæru á hend­ ur Geir H. Haarde forsætisráðherra. Greina mátti mikinn hita í VG vegna málsins. Ýmsir flokksfélagar hafa gagnrýnt afstöðu þingmannanna og sérstak­ lega Ögmundar. Sérstaklega er gagn­ rýnd sú ákvörðun Ögmundar að birta greinina þar sem hann tilkynnti um afstöðu sína fyrst í Morgunblaðinu. „Svo vil ég óska félögum mínum í VG sem hafa gert Morgunblaðið að fjöl­ miðli sínum til hamingju með hversu vel þeir eru metnir í þeim búðum. Það er gott að búa í Hádegismóum,“ skrif­ ar Erling Ólafsson á Smuguna, sem að hluta til er í eigu VG. Erling ger­ ir nokkuð mikið úr vali Ögmundar á miðli. Sömu sögu má segja um Kol­ bein Stefánsson sem skrifar um óró­ lega deild VG. „Fyrir þá sem hafa fylgst með Ög­ mundi Jónassyni á þessu kjörtímabili kemur þetta vart á óvart. Ögmundur hefur nefnilega verið ansi duglegur við að sá í akur íhaldsins. Hann skrif­ aði til dæmis ritdóm um Umsátrið eft­ ir Styrmi Gunnarsson sem var birtur í tímaritinu Þjóðmál, málgagni frjáls­ hyggjumanna á Íslandi, og fór lof­ samlegum orðum um samsæriskenn­ ingar eins af helstu þjónum gamla valdakerfisins.“ Róttækasti róttæklingurinn Ritstjóri Morgunblaðsins, Davíð Oddsson, hefur ekki verið talinn til helstu aðdáenda VG og innan flokks­ ins er hann ekki í miklum metum. Það er ekki óalgeng skoðun í flokknum að um leið og Davíð og Morgunblað­ ið sýni áhuga á einhverjum, sé það merki um að viðkomandi sé á rangri vegferð. Afar ólíklegt er að Ögmund­ ur hafi ekki áttað sig á þessu. Ef til vill hefur hann þó metið málin svo að hann ætti bestan möguleika á að ná til hörðustu Evrópuandstæðinga með grein í blaði sem hefur verið sakað um að leggjast á sveif gegn ESB. Það kann að koma spánskt fyrir sjónir þeirra sem ekki starfa í VG að falist geti stórkostleg pólitísk yfirlýs­ ing í að birta grein í Morgunblaðinu. Ástæðan kann að vera sú að innan hópa sem talist geta róttækir getur myndast einhvers konar fegurðar­ samkeppni í róttækni. Í slíkum félags­ skap flokkast það sem virðingarleysi að nýta fjölmiðil hægriflokks og borg­ arastéttarinnar til að útlista umdeild­ ar ákvarðanir sínar. Oft fengið betra færi Ögmundur hefur oftar en öðrum inn­ an VG boðist tækifæri til að kljúfa flokkinn og taka þá með sér nokk­ uð fylgi. Afstaða hans í landsdóms­ málinu er ekki til þess fallin að draga marga úr grasrót flokksins með sér. Staðan er því sú að Ögmundur gæti yfirgefið VG eða aðeins þingflokkinn, líkt og Atli Gíslason og Lilja Móses­ dóttir gerðu á sínum tíma. Mögulegt er að þau Guðfríður Lilja Gísladóttir og Jón Bjarnason ákvæðu að fylgja Ögmundi úr flokknum, kysi hann að gera slíkt. Þau gætu þá myndað eigin þingflokk sem ljáð gæti ríkisstjórninni hlutleysi, stutt áfram eða fellt. Af öllum þeim málum sem Vinstri grænir hafa deilt um er afstaða þremenninganna til landsdóms­ ákæru ekki heppileg til að sópa fylgi frá Steingrímsarmi VG, yfir til nýs klofningsflokks. Klýfur stjórnina ekki viljandi Þeir sem til Ögmundar þekkja segja algjörlega ljóst að hann muni sjálfur ekki vilja fella núverandi ríkisstjórn. Slík ákvörðun verði ekki tekin af hon­ um. Hvort þreyta samstarfsfólks Ög­ mundar á hans stjórnmálum verði til þess að ríkisstjórnin springi er óráðið. Ögmundur er sá stjórnmálamað­ ur sem dansað hefur á klofningslínu ríkisstjórnarflokkanna umfram aðra. Þrátt fyrir það hefur hann haldið sæti sínu í ríkisstjórn og fer fyrir öflugu ráðuneyti. Löggjafanum ekkert óviðkomandi Stjórnmál Ögmundar einkennast af áherslu hans á að Alþingi geti sem löggjafi tekið nánast hvaða mál fyrir. Afstaða hans til umræðu um lands­ dómstillögu Bjarna Benediktssonar er því ekkert sérstaklega ný sé litið til fyrri orða hans um verksvið þingsins. Þau verða þó undarleg sé litið til þess að Ögmundur er innanríkisráðherra og fer sem slíkur með málefni dóms­ stóla fyrir hönd framkvæmdavaldsins og hefur áður tjáð sig um dómsmál. Þegar skorað var á hann að hlutast til um mál níumenninganna svonefndu sagðist hann sem dóms­ málaráðherra ekki geta slíkt. Því skal þó haldið til haga að ríkissaksóknari n Ólíklegt að Ögmundur yfirgefi VG núna n Gagnrýndur fyrir að sá í akur íhaldsins Ögmundur Jónasson Hefur varla átt von á jafn þungri undiröldu frá grasrótinni og raunin varð. Atli Þór Fanndal blaðamaður skrifar atli@dv.is Svavarssamningur n n n n n n Seinni samningur n n n n n n ESB-umsókn n n n n n n Vantraust n n n n n n Fjárlög 2011 n n n n n n n Nei n Já n Greiddi ekki atkvæði n Fjarverandi Ósammála innbyrðis Þingmenn órólegu deildarinnar eru ekki alltaf sammála innbyrðis. Það sem sameinar þau fyrst og fremst er andstaða þeirra við það sem þau kalla foringjaræði í VG. Þau þrjú sem þegar hafa yfirgefið VG hafa þannig ekki endað saman í flokki þótt vinskapur ríki á milli þeirra. Um þetta er deilt Evrópusambandið Ekkert einstaka mál hefur reynst VG eins erfitt og aðildarumsóknin að ESB. Þrír þingmenn hafa sagt sig frá flokknum, meðal annars vegna umsóknarinnar, auk fjölda trúnaðarfólks og flokks- félaga. Bæði Ögmundur og Lilja Móses- dóttir veittu umsókn Íslands brautar- gengi í atkvæðagreiðslu á Alþingi. Þótt Lilja hafi á sínum tíma lýst sig viljuga til að ganga í sambandið hefur hún að eigin sögn nú skipt um skoðun. Andstaðan við ESB-aðild er almenn innan VG en ágrein- ingurinn innan flokksins hefur snúist um hvort ríkisstjórnarsamstarfið sé ef til vill of háu verði keypt með umsókn að sambandinu. Alþjóðagjaldeyrissjóðurinn Fyrir kosningar 2009 fór flokkurinn mikinn í andstöðu sinni við samstarf Íslands og AGS. Steingrímur varaði við lántökum frá sjóðnum og sagði þær þungan bagga að bera fyrir komandi kynslóðir og landsmenn alla. Það var því ekki til vinsælda í VG fyrir hann þegar samstarf við AGS var meðal skilyrða um ríkisstjórnarsamstarf. Nokkrir órólegir þingmenn tóku harða afstöðu gegn áframhaldandi samstarfi við sjóðinn. Þar á meðal Lilja Mósesdóttir og Ögmundur. Icesave Flokksfélagar í VG voru margir hverjir æfir yfir fyrstu og öðrum drögum Icesave-samkomulagsins. Svavar Gestsson var skipaður formaður Icesave-nefndarinnar svokölluðu við aðkomu VG í ríkisstjórn. Skipunin var gagnrýnd víða en Steingrímur varði hana og sagði við eitt tækifæri að hann ætti von á „glæsilegri“ niðurstöðu. Bæði Ögmundur og Jón Bjarnason greiddu at- kvæði gegn samningnum. Atli Gíslason, þá þingmaður VG, var fjarverandi. Atli var þá sá þingmaður sem lýsti hvað mestum efasemdum um frumvarpið við meðferð þess í þinginu. Ásmundur, Lilja og Guðfríður Lilja greiddu atkvæði með Svavarssamningnum. Þegar kom að seinni samningnum ákvað Ásmundur að segja nei við samkomulaginu, sem og Lilja, en Atli, Jón og Ögmundur greiddu honum atkvæði. Magma-málið Andstaðan við sölu HS Orku til Magma Energy er almenn innan VG. Steingríms- arminn og órólegu deildina greinir fyrst og fremst á um viðbrögð ríkisstjórnar- innar við málinu. Steingrímsarmurinn taldi aðkomu ríkisins ekki mögulega. Mikil tortryggni myndaðist í þing- flokknum vegna málsins og var Stein- grímur J. Sigfússon, formaður flokksins, meðal annars sakaður um að beita sér ekki nóg í málinu. Vitnað hefur verið til þess að sem fjármálaráðherra hafi Steingrímur ekki gert kauptilboð í hlut Reykjavíkurborgar í HS Orku þegar það bauðst árið 2009. Sjálfur hefur hann sagt að peningar hafi ekki verið til fyrir þeim kaupum. Vantraust Bjarni Benediktsson, formaður Sjálf- stæðisflokksins, lagði fram vantraust á ríkisstjórn Samfylkingar og VG í apríl í fyrra. Stuttu áður höfðu þau Atli Gíslason og Lilja Mósesdóttir sagt sig úr þingflokki VG. Ásmundur Einar Daðason hafði þá ekki sagt sig frá flokknum en sat hjá þegar á reyndi. Ögmundur, Guðfríður Lilja og Jón Bjarnason greiddu atkvæði gegn vantrausti á sínum tíma. Landsdómur Afstaða VG til landsdómsákæru á hendur fyrrverandi ráðherra er skýr. Allir þingmenn flokksins sögðu já við öllum ákærum. Guðfríður Lilja sat ekki á þingi þegar atkvæðagreiðslan fór fram en aðrir meðlimir órólegu deildarinnar sögðu já við að ákæra fjóra ráðherra. Svo fór að aðeins Geir H. Haarde, fyrr- verandi forsætisráðherra, var ákærður. Sexmenningarnir ákváðu allir að greiða atkvæði gegn dagskrártillögu um frávísun á tillögu Bjarna Benediktssonar sem falla vill frá ákæru á hendur Geir.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.