Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Blaðsíða 16

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Blaðsíða 16
Sandkorn S vo getur farið að meirihluti Al­ þingis taki sér það dómsvald að hætta við málarekstur á hend­ ur Geir Haarde, fyrrverandi forsætisráðherra og þeim sem stýrði íslenska ríkinu inn í efnahags­ hrunið 2008. Það var sami þingheimur sem ákvað í atkvæðagreiðslu að máli Geirs skyldi vísað til réttlætisgyðjunnar með það fyrir augum að skera úr um sekt eða sýknu þessa manns sem er sá gæfusnauðasti í embætti frá stofnun lýðveldis. Landsdómur hefur þegar verið skipaður og málarekstur er þegar kominn í fullan gang. Þá stígur Bjarni Benediktsson, sonur útrásar og sér­ fræðingur viðskiptavafninga, fram og krefst þess að Alþingi sýkni Geir með frávísun. Formaður Sjálfstæðisflokks­ ins og félagar hans láta sem hrein ill­ mennska sé að baki því að málinu var vísað til landsdóms. Þeir æpa um pólitísk réttarhöld og láta sem mað­ urinn sem stýrði Íslandi á bólakaf sé fórnarlamb ofsókna. Fjöldi dæma er um það á Íslandi að einstakar starfsstéttir séu kallað­ ar til ábyrgðar fyrir meint mistök og réttað yfir þeim. Hundruð skipstjóra hafa verið kölluð fyrir sjórétt og þeir dæmdir án þess að stéttarfélag þeirra eða kollegar teldu að um aðför væri að ræða. Skipstjóri sem strandar skipi sínu eða veldur tjóni þarf að svara fyrir slíkt gagnvart dómsvaldinu. Það er ekki á færi stéttarfélags hans að sýkna hann. Hann fær hlutlausa og réttláta máls­ meðferð. Fjöldi íslenskra blaðamanna hefur verið dæmdur til greiðslu hárra bóta og sumir í fangelsi vegna skrifa sinna. Alþingi Íslendinga hefur ekki lyft litlafingri til þess að stöðva þau réttar­ höld. Og það er ekki á færi annarra blaðamanna eða stéttarfélags þeirra að sýkna undir slíkum kringumstæðum. Þeir eru sendir fyrir dóm. Maðurinn sem lofaði Íslendingum styrkri efnahagsstjórn og fékk efnahag lýðveldisins til varðveislu brást aug­ ljóslega sem kristallaðist svo átakan­ lega í orðum hans, Guð blessi Ísland. En það má ekki rýna í ástæðurnar. Þingmaðurinn Þráinn Bertelsson lýsti því einhvern tímann að fimm prósent þjóðarinnar væru fávitar. Miðað við framgöngu stórs hluta þingheims, sem vill taka sér dómsvald í máli Geirs Haarde, er þingið á mörkum þess að skilja muninn á réttu og röngu. Meira að segja ráðherra dóms­ mála sér ekkert athugavert við það að taka að sér persónulega að sýkna sinn gamla félaga. Og sjáið þið alla hina vinina á þingi. Blygðunarlaust beita þeir atkvæðum sínum til að létta líf og lund vinarins og gefa skít í fólkið sem kallar eftir réttlæti. Það er fokið í flest skjól hjá þjóð sem helst þarf á réttlátu uppgjöri að halda. Það má ekki gerast að Geir njóti þess ekki að fá heiðarleg réttar­ höld þar sem úrskurðað verður um það hvort hann sé saklaus. Fari svo að Geir verði sýknaður af félögum sínum verður þjóðin að láta til sín taka og knýja fram kosningar. Það er óboðlegt að á æðstu löggjafar­ samkomu þjóðarinnar viðgangist vinavæðing réttlætisins og að þar séu afglapar og spillingarforkólfar í meirihluta. Og kjósendur verða að fleygja þeim fulltrúum út í hafsauga sem taka laun fyrir að gera okkur hin að fíflum. Þjóðin verður einfaldlega að rétta kúrsinn með þeim ráðum sem duga. Það verður að hreinsa þingið af óværunni og koma til valda heiðarlegu og velmeinandi fólki. Jóhanna Sigurðardóttir forsætisráð­ herra mætti þá gjarna láta það verða sitt síðasta embættisverk að rjúfa þing og efna til kosninga. Smáfuglar um smáfugl n Einhver afkastamesti pró­ fessor Íslands er sá umdeildi Hannes Hólmsteinn Gissurarson sem ritar ár­ lega fjölda rit­ gerða og jafn­ vel bók auk þess að það eru almennar grunsemdir um að hann haldi úti að hluta skrifum á amx.is og sé þar skilgreind­ ur sem smáfugl. Á þeim vef var á dögunum vakin athygli á miklum afköstum Hann­ esar og að hann hefði skilað skýrslu „Listinn telur yfir 70 verk. Nú bíða smáfuglarnir spenntir eftir að aðrir prófess­ orar við Háskóla Íslands skili sambærilegu yfirliti yfir verk sín,“ segja smáfuglar stoltir. Góðhjartaður auðmaður n Erfitt hefur verið hjá Vef­ pressunni eftir að Steingrímur S. Ólafsson, ritstjóri Pressunn­ ar, birti mynd af meintu fórnarlambi Egils Gillz Einarssonar með þeim af­ leiðingum að fjöldi auglýs­ enda hvarf á braut. Síðan hef­ ur verið stöðugur samdrátt­ ur og fólki sagt upp. Nýjasta aðgerðin er að leggja niður vefinn menn.is og setja undir Pressuna. Fyrirtækið leigir fokdýra hæð í Turninum í Kópavogi. Kostnaðurinn mun þó ekki vera áhyggjuefni þar sem hermt er að auðmaður­ inn góðhjartaði Róbert Wess- mann sé leigutakinn og fram­ leigi Birni Inga Hrafnssyni og félögum. „Guð blessi Sandgerði“ n Á meðal þeirra sveitar­ félaga sem eru hvað verst rekin er Sandgerði ef marka má reikninga sveitarfélagsins. Sigrún Árnadóttir bæjarstjóri og félagar hennar berjast nú fyrir sjálfstæði sveitarfélagsins með öllum tiltækum ráðum. Einn íbúi sveitarfélagsins sem hringdi í útvarpsþáttinn Í bítið á Bylgjunni var ekki í vafa um stöðuna. „Guð blessi Sandgerði,“ sagði hann í anda Geirs Hilmars Haarde. Skiptir um skoðun n Ögmundur Jónasson hefur verið í eldlínunni fyrir að skipta um skoðun á því hvort ákæra eigi Geir. H. Haarde fyrir lands­ dómi. Hann greiddi at­ kvæði með málshöfðun á Alþingi á sín­ um tíma, en segist nú sjá að sér og ætlar að greiða atkvæði öðruvísi næst. Illugi Jökulsson gerir stólpagrín að Ögmundi á Facebook­síðu sinni. Illugi segist einmitt hafa skipt um skoðun varðandi það hvernig hann greiddi atkvæði í alþing­ iskosningunum 1991 og vill því að atkvæðagreiðslan verð endurtekin. Ég var bara í sjokki Þjóðkirkjan er á breytingaskeiði Völu Grand brá þegar ókunnug kona vatt sér að henni í sundi og hrósaði henni fyrir falleg kynfæri. – DV. Sigurður Árni Þórðarson, sóknarprestur í Neskirkju, er þriðji presturinn sem býður sig fram til biskups. – DV. Afglapar á Alþingi Leiðari Reynir Traustason rt@dv.is „ Það verður að hreinsa þingið af óværunni Á kvæðið um náttúruauðlindir í stjórnarskrárfrumvarpi stjórn­ lagaráðs er nýmæli, sem á sér langa forsögu, sem ráða má af ítrekuðum en þó árangurslausum til­ raunum stjórnvalda til að koma inn í stjórnarskrána nýju ákvæði um auð­ lindir í þjóðareign. Fimm dæmi duga til að halda for­ sögunni til haga. Dæmin sýna, að þjóðareignarhugtakið á sér langa og virðulega sögu í rökræðum um nátt­ úruauðlindir og að auðlindaákvæðið í frumvarpinu er sprottið af og nátengt fyrri frumvörpum um málið. Dr. Gunnar Thoroddsen, forsætis­ ráðherra og formaður stjórnarskrár­ nefndar 1978–1983, lagði fram á Al­ þingi frumvarp 1983 þar sem gert var ráð fyrir nýrri grein um náttúruauð­ lindir í stjórnarskrá. Greinin hljóð­ aði svo: „Náttúruauðlindir landsins skulu vera ævarandi eign Íslendinga. Auðlindir hafs og hafsbotns innan ís­ lenskrar lögsögu eru þjóðareign. Eign­ arrétti að öðrum náttúruauðæfum skal skipað með lögum.“ Orðalagið „ævarandi eign Íslend­ inga“ var sótt í lögin um þjóðgarðinn á Þingvöllum frá 1928, en þar segir: „Hið friðlýsta land skal vera undir vernd Alþingis og ævinleg eign ís­ lensku þjóðarinnar. Það má aldrei selja eða veðsetja.“ Þingvallalögin frá 1928 lýsa inntaki þjóðareignarhug­ taksins: Þjóðareign er eign, sem „má aldrei selja eða veðsetja“. Sá skilningur er lagður í hugtakið þjóðareign í frum­ varpi stjórnlagaráðs. Davíð Oddsson forsætisráðherra lagði fram á Alþingi stjórnarfrumvarp 1995, þar sem gert var ráð fyrir nýrri grein um náttúruauðlindir í stjórnar­ skrá, svohljóðandi: „Nytjastofnar á hafsvæði því sem fullveldisréttur Ís­ lands nær til eru sameign íslensku þjóðarinnar. Kveðið skal á um hag­ nýtingu og verndun þessara auðlinda í lögum og stjórnvaldsfyrirmælum.“ Hér er notað orðalagið „sameign íslensku þjóðarinnar“ um þá þjóðar­ eignarhugsun, sem lýst var í frum­ varpi dr. Gunnars Thoroddsen tólf árum áður. Í skýrslu auðlindanefndar árið 2000 undir forustu dr. Jóhannesar Nordal, fyrrverandi seðlabankastjóra, var gerð tillaga um nýtt stjórnarskrár­ ákvæði um náttúruauðlindir, þar sem segir: „Náttúruauðlindir og landsrétt­ indi sem ekki eru háð einkaeignarrétti eru þjóðareign eftir því sem nánar er ákveðið í lögum. ... Náttúruauðlindir og landsréttindi í þjóðareign má ekki selja eða láta varanlega af hendi til einstaklinga eða lögaðila.“ Tvö nýleg frumvörp taka í sama streng, annars vegar frumvarp odd­ vita ríkisstjórnar Framsóknarflokks og Sjálfstæðisflokks, Jóns Sigurðs­ sonar, iðnaðar­ og viðskiptaráðherra, og Geirs H. Haarde forsætisráðherra á Alþingi 2007, og hins vegar frumvarp oddvita ríkisstjórnar Samfylkingarinn­ ar og Vinstri hreyfingarinnar – græns framboðs á Alþingi 2009, Jóhönnu Sig­ urðardóttur forsætisráðherra, Stein­ gríms J. Sigfússonar fjármálaráðherra og fleiri flutningsmanna. Í báðum frumvörpum var lögð til í stjórnarskrá ný grein, sem hófst í fyrra frumvarp­ inu á þessum orðum: „Náttúruauð­ lindir Íslands skulu vera þjóðareign ...“ og í hinu síðara á orðunum: „Náttúru­ auðlindir sem ekki eru háðar einka­ eignarrétti eru þjóðareign.“ Í ljósi þessarar forsögu ber að skoða og skilja upphaf náttúruauð­ lindaákvæðisins í frumvarpi stjórn­ lagaráðs: „Auðlindir í náttúru Íslands, sem ekki eru í einkaeigu, eru sameig­ inleg og ævarandi eign þjóðarinnar. Enginn getur fengið þær, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og því má aldrei selja þær eða veðsetja.“ Hér er fylgt langri hefð á bak við notkun hugtaksins þjóðareign. Orða­ lag Þingvallalaganna frá 1928 er notað í anda dr. Gunnars Thoroddsen til að skýra, að þjóðareign er eign, sem má aldrei afhenda til eignar eða varan­ legra afnota og má því aldrei selja eða veðsetja. Þessari hugsun er einn­ ig lýst í greinargerð með ákvæðinu um menningarverðmæti í frumvarpi stjórnlagaráðs. Eftir þessum skilningi deilir núlifandi kynslóð náttúruauð­ lindum í þjóðareign með óbornum kynslóðum og hefur því ekki rétt til að ráðstafa auðlindunum í eigin þágu. Skorðurnar, sem frumvarpinu er ætl­ að að reisa við ráðstöfun auðlinda í þjóðareign, eiga einnig við um réttindi tengd auðlindunum og ekki aðeins við auðlindirnar sjálfar. Auðlindaákvæði stjórnlagaráðs„Enginn getur feng- ið þær, eða réttindi tengd þeim, til eignar eða varanlegra afnota og því má aldrei selja þær eða veðsetja. Útgáfufélag: DV ehf. Stjórnarformaður: Lilja Skaftadóttir Ritstjórar: Jón Trausti Reynisson (jontrausti@dv.is) og Reynir Traustason (rt@dv.is) Fréttastjóri: Ingi Freyr Vilhjálmsson (ingi@dv.is) Umsjón helgarblaðs: Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir (ingibjorg@dv.is) Umsjón innblaðs: Kristjana Guðbrandsdóttir (kristjana@dv.is) Framkvæmdastjóri: Stefán T. Sigurðsson (sts@dv.is) Sölu- og markaðsstjóri: Heiða B. Heiðarsdóttir (heida@dv.is) Hönnunarstjóri: Jón Ingi Stefánsson (joningi@dv.is) Umbrot: DV Prentun: Landsprent Dreifing: Árvakur DV á netinu: DV.is F R J Á L S T, Ó H Á Ð D A G B L A Ð Heimilisfang Tryggvagötu 11 Hafnarhvoli, 2. hæð 101 Reykjavík FRéTTASkoT 512 70 70 DV áskilur sér rétt til að birta aðsent efni blaðsins á stafrænu formi og í gagnabönkum án endurgjalds. Öll viðtöl blaðsins eru hljóðrituð. Notkun á efni blaðsins er óheimil án samþykkis. 512 7000 512 7010 512 7080 512 7050 AÐALnúmeR RiTSTJÓRn ÁSkRiFTARSími AuGLýSinGAR 16 25. janúar 2012 Miðvikudagur Kjallari Þorvaldur Gylfason

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.