Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Síða 8
8 Fréttir 25. janúar 2012 Miðvikudagur
n Stúlkan var 15 ára n Varð frægur fyrir skrif sem þóttu bera vott um kvenfyrirlitningu n Ætlaði að bjarga íslenskum karlmönnum
S
túlkan sem kærði Egil Einars-
son á mánudag sakar hann
um að hafa brotið gegn sér
kynferðislega þegar hún var
aðeins fimmtán ára gömul,
samkvæmt heimildum DV. Þá var Eg-
ill á þrítugsaldri. Fimmtán ára börn
eru fullorðin í þeim skilningi laganna
að það er ekki refsivert að hafa við þau
samræði með þeirra samþykki. Sé
maður hins vegar dæmdur fyrir kyn-
ferðisbrot skal virða það til refsiþyng-
ingar ef þolandinn er barn yngra en
átján ára. Áður hefur átján ára stúlka
kært hann. Mál hennar er hjá ríkissak-
sóknara.
Sönnunarfærslan erfiðari
Þótt nokkur ár séu liðin frá því að meint
brot átti sér stað er það ekki fyrnt. Kyn-
ferðisbrot fyrnast ekki fyrr en brota-
þoli nær átján ára aldri. Þá fer það
eftir eðli brotanna hversu langur fyrn-
ingarfresturinn er en það er ríkissak-
sóknari sem metur það út frá almenn-
um hegningarlögum og sakargiftum. Í
þessu tilviki er fyrningar fresturinn að
öllum líkindum tíu ár.
Eins og gefur að skilja getur sönn-
unarfærslan reynst erfiðari þegar langt
er um liðið frá meintu broti. Almennt
er nánast útilokað að ná í sönnunar-
gögn eins og lífsýni, fatnað og þess
háttar nokkrum árum eftir að brotið
átti sér stað. Óvíst er hvort stúlkan leit-
aði til Neyðarmóttöku vegna nauðg-
ana á sínum tíma en hafi hún gert það
er sú skýrsla til þótt sakargögn séu ekki
geymd svo lengi. Þá hefði málið einn-
ig endað í höndum barnaverndaryfir-
valda þar sem Neyðarmóttakan hefur
lagalega skyldu til að tilkynna mál er
varða börn undir átján ára aldri.
Óbein sönnunargögn geta þó
styrkt málið, líkt og mat meðferðar-
aðila eða vitni sem hægt er að kalla til.
Þótt sönnunarfærsla sé almennt erfið
þegar svo langt er um liðið þekkist það
að menn séu dæmdir fyrir brot sem
þeir frömdu á árum áður.
Hefur ekki áhrif á fyrri kæruna
Lögreglan fer með rannsókn máls-
ins sem er forgangsmál líkt og önnur
kynferðisbrotamál. Agli verður kynnt
eins fljótt og auðið er að hann hafi
verið kærður og síðan er næsta skref
að kalla hann til skýrslutöku. Þá fyrst
fær hann að vita hver kærði hann og
fyrir hvað.
Lögmaður Egils, Brynjar Níels-
son, sagðist í samtali við DV vera að
reyna að átta sig á því í hverju kæran
felst. „Það er ekki komin nein skýring
á þessu,“ sagði hann og bætti því við
að það væri ekki komið í ljós hvernig
lögreglan myndi afgreiða málið. Það
myndi væntanlega skýrast á næstu
dögum. „Við erum bara að reyna að
átta okkur á því hvað þetta er.“
Rannsókn þessa máls mun ekki
hafa nein áhrif á meðferð fyrri kær-
unnar sem er nú komin til ríkissak-
sóknara. Hvert mál er rannsakað út af
fyrir sig og síðan er það í höndum lög-
reglunnar að vísa málinu annaðhvort
frá eða senda það til ríkissaksóknara.
Þar er málið metið út frá líkum á sak-
fellingu miðað við þau gögn sem liggja
fyrir í málinu.
Sé maður hins vegar með fyrri dóm
á bakinu vegna kynferðisbrota er það
metið honum til refsiþyngingar verði
hann dæmdur aftur.
Flestar nauðgunarkærur látnar
niður falla
Guðjón Ólafur Jónsson lögmaður
staðfesti í samtali við DV að hann væri
réttargæslumaður stúlkunnar: „Ég
get staðfest að ég er réttargæslumað-
ur konu sem fór upp á lögreglustöð á
mánudag og kærði mann fyrir kyn-
ferðisbrot,“ sagði hann en vildi ekki tjá
sig frekar um málið.
Guðjón Ólafur er einnig lögmaður
stúlkunnar sem kærði Egil og kærustu
hans fyrir nauðgun í lok nóvember.
Líkt og fram hefur komið er rannsókn
málsins lokið, ákærusvið lögreglunnar
hefur farið yfir rannsókn málsins og
fyrirliggjandi sönnunargögn og sent
málið áfram til ríkissaksóknara.
Það þykir í sjálfu sér viss áfangi fyrir
stúlkuna þar sem lögreglan vísar mál-
inu frá ef hún metur það sem svo að
það sé ekki á rökum reist eða ekki þyk-
ir grundvöllur til að halda rannsókn
málsins áfram.
Embætti ríkislögreglustjóra og lög-
reglustjórans á höfuðborgarsvæð-
inu tóku saman upplýsingar um fer-
il þeirra kynferðisbrota sem voru
tilkynnt til lögreglu árið 2008. Tilkynnt
nauðgunarmál voru 68 en í 63 pró-
sentum tilvika var málinu annaðhvort
vísað frá eða rannsókn hætt. Fjórðung-
ur þessara brota var síðan felldur niður
hjá ríkissaksóknara en í tólf prósentum
tilvika féll dómur.
Líkt og DV greindi frá fékk ríkis-
saksóknari málið á miðvikudaginn í
síðustu viku. Þar fara að minnsta kosti
tveir saksóknarar yfir málið og meta
hvort ákæra verði gefin út eða mál-
ið fellt niður. Til að ákæra sé gefin út
verður saksóknari að meta gögn máls-
ins líkleg til sakfellis, enda er það meg-
inregla íslensks réttarfars að sakfella
ekki sakborning nema lögfull sönnun
komi fram.
Í raun eru flest nauðgunarmál lát-
in niður falla. Ef árið 2008 er aftur tek-
ið sem dæmi bárust embættinu 46
nauðgunarkærur. 32 voru látnar niður
falla. Ákært var í fjórtán málum og sak-
fellt í sjö.
Heldur fram sakleysi sínu
Sjálfur segir Egill að þessar ásakanir
séu „fráleitar og engar líkur á að þær
muni leiða til opinberrar ákæru“. Þetta
kom fram í yfirlýsingu sem Egill sendi
frá sér. Þar gaf hann einnig til kynna
að handrukkarar hefðu verið sendir á
hann til að kúga út úr honum fé. Sagð-
ist hann jafnframt hafa falið lögmanni
sínum að kæra stúlkuna fyrir rangar
sakargiftir.
Ekki hefur fengist staðfest að Egill
hafi í raun kært stúlkuna en lögreglan
myndi ekki sinna slíkri kæru fyrr en
nauðgunarmálinu er lokið.
Í úttekt lögreglunnar sem vísað er
til hér að ofan kemur fram að rangar
sakargiftir í nauðgunarmálum sem til-
kynnt voru lögreglunni árið 2008 voru
sjö prósent.
Samkvæmt íslenskum hegningar-
lögum skal sá sem reynir að koma því
til leiðar að saklaus maður sé sakað-
ur um eða dæmdur fyrir refsiverðan
verknað sæta fangelsi allt að tíu árum.
Hafi brotið í för með sér velferðarmissi
er refsingin ekki minni en tvö ár og allt
að sextán árum. Hafi viðkomandi skýrt
ranglega frá fyrir rétti að stjórnvaldi skal
hann sæta fangelsi í allt að fjögur ár.
Almannatengill sem DV ræddi við
benti á að þar sem Egill hefur byggt
upp ímynd af hörðum nagla sem ekki
er hægt að beygja væri erfitt fyrir hann
að biðjast opinberlega afsökunar ef
illa fer. Yfirleitt þegar menn lenda í
vandræðum sé best að fara í meðferð
og sína iðrun. „En út af því hvernig
hann hefur byggt sína opinberu pers-
ónu upp getur hann eiginlega ekki
verið þessi sem biðst afsökunar. Hann
er þessi sem er að segja mönnum að
hysja upp um sig og skeina sér. Hann
verður að taka naglann á þetta og ráð-
ast að þessari vesalings stelpu.“
Það er þekkt að menn sem eru
kærðir fyrir kynferðisbrot kæri fyrir
rangar sakargiftir. Egill er þar ekkert
einsdæmi. Þekktasta tilvikið er senni-
lega þegar Ólafur Skúlason þáverandi
biskup kærði konur sem sökuðu hann
um kynferðisbrot árið 1996.
Fleiri kæra
Þá er einnig þekkt að þegar kona kær-
ir nafntogaðan mann fyrir kynferðis-
brot fylgi fleiri kærur í kjölfarið. Það
átti til að mynda við um Ólaf Skúlason
og Gunnar Þorsteinsson í Krossinum
þótt hvorugur hefði verið dæmdur fyr-
ir kynferðisbrot.
Þegar dómur féll yfir Stefáni Hjalte-
sted Ófeigssyni sem var fundinn sekur
um að nauðga konu var hann kærður
fyrir brot sem hafði átt sér stað áður
en brotið sem hann var dæmdur fyrir
var framið. Fyrir dómi sagði brotaþol-
inn að hún hefði ekki treyst sér til að
leggja fram kæru þar sem henni fannst
hún ekki hafa neitt í höndunum, auk
þess sem hún var full sjálfsásökun-
ar þar sem hún hafði farið heim með
Stefáni. Málið hefði síðan hvolfst yfir
hana þegar hún sá fréttaflutning af því
að ákærði hefði hlutið dóm fyrir sams
konar brot og hún hefði sjálf orðið fyr-
ir. Hún hefði því ákveðið að leggja fram
kæru í því skyni að takast á við þetta.
„Misheppnað grín“
Þó að Egill hafi verið umdeildur fyr-
ir ummæli sín í gegnum tíðina seg-
ist hann vera kórdrengur þó að hann
hafi reyndar þrisvar verið tekinn við
að tala í símann undir stýri. Eins var
hann einu sinni kærður til lögreglu
vegna ummæla um nafngreindar
konur sem hann var ósammála og
þótti of fyrirferðarmiklar í fjölmiðl-
um en sumir túlkuðu ummælin sem
nauðgunarhótun.
Ummælin voru meðal annars
þessi: „Þegar feministar verða of
áberandi í fjölmiðlum hefur ávallt
virkað að kalla til Ásgeir Kolbeinsson
til þess að gefa þessum leiðinda rauð-
sokkum einn granítharðan í háruga
bílskúrinn til þess að þagga niður í
þeim,“ þessi: „ …þessar „dömur“ eru
flestallar ógeðslegar auk þess að vera
geðsjúklingar,“ og „… munu þess-
ir herramenn sem Fréttastofan taldi
upp áðan fylla hana eins og hátíðar-
kalkún.“
Egill dró færsluna til baka sam-
dægurs og sagðist hafa gert það fyrir
móður sína. Seinna baðst hann af-
sökunar. „Ég ætlaði mér ekki að særa
þær,“ sagði hann. „Ég ætla hér með að
biðja þær opinberlega fyrirgefningar.
Þetta var misheppnað grín – mistök.“
Ummælin voru rifjuð aftur upp
þegar Egill var gerður að ritstjóra
Símaskráarinnar en um 700 ein-
staklingar mótmæltu því. Af því til-
efni kom móðir hans fram í fjölmiðl-
um og sagði að Egill væri ekki þessi
maður í raun og veru, þessi maður
sem er sekur um að segja vafasama
brandara sem fjalla oftar en ekki
um femínista, blökkumenn og aðra
minnihlutaópa, heldur væri hann að
leika þennan karakter, Gillzenegger.
„Hann er í rauninni frekar inn í sig og
ber ekki tilfinningar sínar á torg. Við
vitum það öll sem þekkjum hann,“
sagði hún.
Ofuráhersla á hefðbundna
karlmennsku
Enda hefur Egill ekki rætt um tilfinn-
ingalíf sitt í fjölmiðlum þótt hann hafi
baðað sig í kastljósi þeirra á undan-
förnum árum. Reyndar hefur hann
ekki rætt mikið um líf sitt, svo sem
æskuna, skólagönguna, ástina eða
fjölskylduna. Í viðtölum kemur hann
oftast fyrir sem hressi gaurinn sem
lætur allt flakka og segir óhikað frá því
að hann raki yfirleitt á sér punginn á
hverjum degi.
Samkvæmt greiningu þeirra Ástu
Jóhannsdóttur og Kristínar Önnu
Hjálmarsdóttur á karlmennskuhug-
myndum Gillz og valdatengslum í
samfélaginu ógnar kvenlægni metró-
karlmennskunnar karlmennskuhug-
myndum Egils. „Til mótvægis er því
lögð ofuráhersla á þætti sem falla
undir hefðbundna karlmennsku, svo
sem líkamlegan styrk, tilfinningalega
fjarlægð og gagnkynhneigð. Líkam-
legi styrkurinn er undirstrikaður með
áherslu á vöðvamassa. Gagnkyn-
hneigðin er ítrekuð aftur og aftur með
ofuráherslu á kynþokka sem virkar
á konur, kynferðislega sigra og hom-
mafóbíu. Aldrei má sýna veikleika-
merki eða tilfinningar. Reyndar virðast
tilfinningar hreint ekkert koma sam-
skiptum kynjanna við.“
Í umræðunni um Símaskrána opn-
aði Egill þó aðeins á tilfinningar sínar
þegar eldri maður kallaði hann ofvax-
ið kjötstykki. „Við vöðvatröllin lendum
oft í því að fólk heldur að við séum til-
finningalaus kjötstykki. Undir þessu
þykka lagi af kjöti og örþunna fitulagi
eru tilfinningar,“ sagði Egill þá.
Sóttist ekki eftir frægðinni
Sama hvað fólki finnst um Egil er ljóst
að hann hefur ekki þurft að sækjast
eftir frægðinni. Hann varð fyrst þekkt-
ur þegar hann vann sem lagarmaður í
IKEA og stofnaði bloggsíðuna kallarn-
ir.is í desember 2003 ásamt félögum
sínum. Strákarnir í hópnum voru alls
Egill kærður aftur
Ingibjörg Dögg Kjartansdóttir
blaðamaður skrifar ingibjorg@dv.is
„Við erum
bara að
reyna að átta
okkur á því
hvað þetta er
Önnur stúlka Á mánudag
kærði önnur stúlka Egil
Einarsson fyrir nauðgun. Hún
var 15 ára þegar meint brot
átti sér stað. Myndin er SviðSett