Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Blaðsíða 23

Dagblaðið Vísir - DV - 25.01.2012, Blaðsíða 23
Smáauglýsingar smaar@dv.is sími 512 7004 Opið virka daga kl. 10.00–18.00 og laugardaga kl. 11.30–15.00 BÍLALIND.is - Funahöfða 1 110 Reykjavík - S: 580-8900 M.BENZ E 200 KOMPRESSOR Árg. 2004, ekinn 103 Þ.km, bensín, Verð 2.490.000. #321810. Benz-inn glæsilegi er á staðnum! RENAULT TRAFIC MINIBUS 01/2007, ekinn 283 Þ.km, dísel, sjálf- skiptur, 9 manna. Tilboðsverð 1.690.000 stgr. Kíktu á raðnr 350441 á www.bilalind. is eða komdu við því bíllinn er á staðnum! MMC MONTERO ANNIVERSARY 33“ Árgerð 2003, ekinn 106 Þ.km, sjálf- skiptur. Verð 2.290.000. Kíktu á raðnr 320179 á www.bilalind.is eða komdu við því jeppinn er á staðnum! PORSCHE 944 Árgerð 1987, ekinn 147 Þ.km, sjálf- skiptur GULLMOLI. Verð 1.490.000. Kíktu á raðnr 283389 á www.bilalind.is eða komdu við því bíllinn er í salnum! SKODA OCTAVIA AMBIENTE 08/2004, ekinn 149 Þ.km, 5 gíra, ný nagladekk! Verð 890.000. Kíktu á raðnr 283904 á www.bilalind.is eða komdu við því bíllinn er á staðnum! DODGE DURANGO 4WD LIMITED 05/2005, ekinn aðeins 101 Þ.KM, sjálf- skiptur ofl. Gott verð 2.890.000. Kíktu á raðnr 283661 á www.bilalind.is eða komdu við því jeppinn er á staðnum! www.bioparadis.is hverfisgötu 54 / 101 reykjavík FARÐU AFTUR Í BÍÓ Í FYRSTA SINN n Raflagnir n Tölvulagnir n Loftnetslagnir og uppsetningar n Gervihnatta- móttakarar n Ljósleiðaralagnir og tengingar n Raflagnateikningar n Lýsingarhönnun og ráðgjöf n Þjónustusamningar Pétur Halldórsson löggiltur rafverktaki petur@electropol.is, 8560090 Til sölu Honda CRV Árgerð 2007. Keyrður innan bæjar 55.000 km. Svartur, aðeins einn eigandi og mjög vel farinn. Ásett verð 3.900.000 kr eða besta tilboð. Hann er á nýlegum heilsársdekkjum. Abs bremsur,geisladiskaspilari, leðurklædd sæti. Aldrif og enginn áhvílandi lán á bílnum. uppl. í síma 891-9139. Slökkti á sjónvarpinu heilsunnar vegna n Magnús Hávarðarson átti erfitt með sálarlífið í kreppunni L agið Hey, samið af Magn­ úsi Hávarðarsyni, stal senunni í Söngvakeppni Sjónvarpsins á laugar­ daginn. Þjóðlegur bragur var yfir laginu en Simbi og Hrúts­ pungarnir fluttu lagið ásamt Magnúsi. Fóru þeir algjörlega á kostum og var lagið kosið áfram. Baksviðs voru þeir fé­ lagar enn þjóðlegri og gæddu sér á þorramat. Athygli vakti að Magnús sagði lagið hafa verið samið í kolsvartri kreppustemningu. „Já, það er rétt, ég flúði á náðir tónlistarinnar. Lagið er samið um hávetur í miðjum hríðarbyl og kolsvartri kreppu. Því var haldið svolítið á lofti hér fyrir vestan að við mynd­ um ekki finna fyrir kreppunni því við hefðum aldrei notið góðæris. En það reyndist rangt, hér hækkaði allt jafnmikið og annars staðar og skattarnir líka.“ Hann segist hafa verið upp­ tekinn af því að greina og fylgj­ ast með þróun mála og það hafi haft slæm áhrif á sálarlífið. „Ég átti erfitt með sálarheill því ég var svo illur yfir þessu. Mín leið út úr þessu var að slökkva á fréttum og taka fram gítar­ inn.“ „Konan kvartaði svolítið yfir glamrinu,“ segir hann og hlær. „Ég var svona að glamra hljóma og það getur tekið á taugarnar. En það var síðan hún sem stakk upp á því að ég semdi þetta lag í rammíslensk­ um tón. Þjóðin er að finna ræt­ urnar, það sannfærði hún mig um. Við erum að taka slátur og við erum að læra aftur hand­ verk og að prjóna og þannig lagað. Hún stakk því upp á því að ég notaðist við fimmundar­ söng í þessu lagi og mér finnst ótrúlegt hvað það féll í kram­ ið. Ég átti alveg jafn mikið von á því að þetta yrði skotið í kaf sem eitthvert lélegt grín.“ Hann segir ekki koma til greina að þýða lagið yfir á ensku komist það áfram í aðal­ keppnina. „Ég get ekki séð það fyrir mér. Ég myndi helst kjósa það að halda áfram að syngja á íslensku ef við komumst áfram. Hættum að skammast okkar fyrir að vera Íslendingar og komum okkur á framfæri á eigin forsendum. Við ríghöld­ um í götóttu þjóðbúningana og fátækrastemninguna og skömmumst okkar lítið fyrir þá landkynningu.“ Fólk 23Miðvikudagur 25. janúar 2012 Hættum að skammast okkar Hrútspungarnir stálu senunni með þjóðlegu lagi. Magnús Hávarðarson segist hafa ort sig út úr kolsvartri kreppu. Bauð öllum í eftirpartí T ónlistarmaðurinn Val­ geir Guðjónsson fagn­ aði sextugsafmæli sínu með tónleikun­ um Spilaðu lag fyrir mig, sem fram fóru í Hörpu á sunnudagskvöldið. Mikil stemming var á tónleikunum og mörg þekkt andlit meðal gesta. Eftir tónleikana var svo haldinn gleðskapur í Munn­ hörpunni sem er staðsett á fyrstu hæð Hörpu. Í stað þess að bjóða fáum útvöldum eins og gjarnan er siður bauð Val­ geir öllum þeim sem komu að tónleikunum, sem og tón­ leikagestum að fagna með sér. „Við lögðum töluvert upp úr því að hafa eftirpartíið opið öllum og fóru því bæði lista­ fólk og tónleikagestir í Munn­ hörpuna,“ segir Valgeir sem var hæstánægður með tón­ leikana. n Valgeir Guðjónsson fagnaði sextugsafmælinu Góðvinir Valgeir og Diddú hafa verið vinir og hljóm- sveitarfélagar til margra ára. Diddú söng með Val- geiri á tónleikunum. Með betri helmingnum Valgeir ásamt eiginkonu sinni, Ástu Krist- rúnu Ragnarsdóttur. Stuðmaður og landlæknir Egill Ólafsson og Geir Gunnlaugsson land- læknir voru í stuði ásamt vinkonum. Skemmtu sér Söngvarinn Stefán Hilmarsson var kátur á tónleikunum ásamt eiginkonu sinni og vinum. Sæt feðgin Valgeir og Vigdís Vala dóttir hans. Vala söng frumsamið lag fyrir föður sinn á tónleikunum. Góðvinir Söngvarinn Eyjólfur Kristjánsson spilaði og söng með Valgeiri.

x

Dagblaðið Vísir - DV

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Dagblaðið Vísir - DV
https://timarit.is/publication/255

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.