Listin að lifa - 01.06.2013, Blaðsíða 10

Listin að lifa - 01.06.2013, Blaðsíða 10
Framtíðarþing um farsæla öldrun Samstarfsverkefni sem Landsamband eldri borgara kom að l’;inn 7. mars sinasi liomn \ ar haklió | la-anitíhai'|\inL; um larsæla öUmn j í Tjarnarsal Ráöhúss Rcykja\'íkui\ ! hinyiö var samsrartswrkctni Öklr- |m||H unarráös íslands, Landsambands i ^ !,Á eldri bnryara, ÖLlrunartræöa- \ ''V jfl félags íslands, Velferöarráöuneyris, Iik„7| Sambands islenskra sveitartélaga, TM l\eykja\'íkurborgar, bagdeildar öldr- J unarh júkrunariræöinga, belags ---SHflflJ^lj;-. t sjúkraþjálfara í öldrunarþjónustu og Iðjuþjálfafélags íslands. Aðdragandi Pétur Magnússon formaður Öldrunarráðs íslands ásamt fundarins var Evrópuár um virkni Guðbjarti Hannessyni velferðarráðherra og Jóni Gnarr aldraðra og samstöðu kynslóðanna borgarstjóra sem báðir ávörþuðu þingið. árið 2012 hjá Evrópusambandinu, en í kjölfariö ákvaö Stjórn öldrunar- ráðs að stefna til þingsins með eftir- farandi markmið að leiðarljósi: • Að vekja jákvæða athygli á öldruð- um, stöðu þeirra og hvernig þeir líta sín mál til framtíðar. • Að skapa umræðu um öldrunarmál, væntingar og viðhorf til efri áranna. • Að skapa vettvang fyrir þá sem koma að öldrunarmálum á Islandi og koma af stað heilbrigðri og skynsamlegri umræða um þessa kynslóð. • Að kynna samfélaginu Öldrunarráð sem og aðra samstarfsaðila sem að fundinum koma; • Að skapa leiðbeiningar til stjórn- valda. Miklar og stórskemmtilegar umræður voru á þinginu þar sem margt fróðlegt kom fram. Spurningarnar sem fundarmenn glímdu við voru eftirfarandi: • Hvað er það besta við að eld- ast? • Hvaða væntingar hefur sam- félagið til aldraðra? / Hvaða væntingar hafa aldraðir til sam- félagsins? • Hvað er farsæl öldrun? • Hvernig stuðlum við að far- sælli öldrun? Fundarfyrirkomulag byggði á sömu hugmyndafræði og notuð var á Þjóð- fundi 2009 og 2010. Unnið var á sextán 8-9 manna borðum og á hverju borði var sérþjálfaður borðstjóri, en hans hlutverk var að sjá til þess að allir við borðið fengju jöfn tækifæri til að tjá sig og að tryggja virka hlustun þannig að öll sjónarmið kæmust að. Látttakendur voru 126 talsins úr eftirfarandi meginhópum: • Aldurshópurinn 75 ára og eldri • Aldurshópurinn 55-75 ára • Aldurshópurinn 55 og yngri • Starfsfólk sem tengist öldrunar- málum Hóparnir voru blandaðir þannig að á hverju borði voru þátttakendur í mis- munandi aldurshópum auk starfsfólks sem tengist öldrunarmálum. Þessa dagana er verið að ljúka við að vinna úr niðurstöðum og væru þær einar og sér efni í nokkrar greinar. Gerð verður skýrsla með niðurstöðum sem dreift verður víða, meðal annars til þingmanna. Einnig verða skrifaðar smærri greinar um niðurstöður og kynningarfundir haldnir. Undirbún- ingsnefnd hefur lagt mikla áherslu á að fylgja málum vel eftir næstu misserin. Sem dæmi um niðurstöður má nefna fyrstu spurninguna um hvað sé það besta við að eldast. Segja má að rauði þráðurinn í svörum þátttakenda þar sé frelsið til að ráða tíma sínum og sinna betur öllu því sem hefur mögulega setið á hakanum. Einnig þroskinn og víðsýnin sem kemur með lífsreynsl- unni og tækifæri til að gefa af sér og miðla lífinu til yngri kynslóða. Það sem er oftast nefnt er gæðastundir með fjöl- skyldu og vinum. Lá er mikilvægt að mati fundarmanna að hlakka til morg- undagsins og horfa björtum augum á árin framundan. Undirbúningsnefnd vill þakka þátt- takendum á þinginu fyrir sitt framlag sem vonandi verður haft til hliðsjónar þegar ákvarðanir verða teknar varðandi framtíð öldrunarmála þjóðarinnar. Pétur Magniísson, formaður Öldrunarráðs Islands Ingrid Kuhlmann, þingstjóri Myndir frá þingstörfum. 10

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.