Listin að lifa - 01.06.2013, Blaðsíða 14

Listin að lifa - 01.06.2013, Blaðsíða 14
Kvöldlestur með barnabarni um Skype eða FaceTime eða álíka samskiptaforrít, þegar þráðlaus búnaður er til staðar og aðgengi að tækjum. I raun eru möguleikar velferðartækninnar miklu meiri en okkur óraði fyrir og talsvert af ónotuðum möguleikum hafa sýnt sig vera til staðar í nánasta umhverfi. Rafræn sjúkraskráning er svo enn annar þáttur innan vel- ferðartækninnar. Sérstakur hluti í þróunarverkefninu er síðan að reynsluprófa Memaxi hugbúnað- inn fyrir nokkra íbúa og kanna virkni hans og áhrif inni á heinv ilinu. Ahugaverður og raunar ögrandi þáttur í þessu verkefni reynist vera við' horf til notkunar nýjust tækni meðal eldra fólks. Þar örlar á viðhorfum um að venjubundin notkun yngra fólks á tölvu- og samskiptatækninni, eigi ekki með sama hætti við um eldra fólk. Það var því ómetanlegur stuðningur sem fólst í styrkveitingu Samherja hf. þegar þeir veittu myndarlegan styrk til að vinna að framgangi velferðartækni áÖA. I undirbúningi verkefnisins á ÖA, hefur orðið enn ljósara en áður hve mikilvægt er að hugað verði að framþróun á sviði velferðartækni í öldrunarþjónustu hér á landi og á Norðurlöndunum. Sú þróun mun skipta sköpum fyrir velferð og lífsgæði eldra fólks í framtíðinni, bæði innan stofnana og í heimahúsum. Um miðjan apríl sl. lögðu norðmenn fram nýja stefhu- mótun í málefnum aldraðra. Þar er með skýrum hætti dregin upp mynd af umfangsmiklum breytingum með aukinni velferð- artækni og fullyrt að óbreyttar áherslur dugi ekki til, til að mæta þörfum framtíðarinnar. Velferðartækni í þjónustu við eldra fólk mun því að lík- indum skipa veigamikinn sess í umræðu næstu ára hér á landi og því er nauðsynlegt að for- ystusveit LEB taki virkan þátt í þeirri umræðu og fylgist með norrænu samstarfi. Ahugasömum er bent á: da.wikipedia.org/wiki/ Velf%C3%A6rdsteknologi www.nordicwelfare.org/Publikatio- ner/ www.voutube.com (leitarorð: velfær- dsteknologi, digitalvelfærd) www.memaxi.is Öll fjölskyldan tengist með Memaxi Dagatal með áminningum Myndsímtöl Gestabók Ljósmyndir frá fjölskyldunni Yfirlit og skipulag memaxi www.memaxi.isj fyrirspurn@memaxi.is | 415 2520 14

x

Listin að lifa

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Listin að lifa
https://timarit.is/publication/1106

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.