Listin að lifa - 01.06.2013, Blaðsíða 19
Aldraðir 67 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar,
börn og ungmenni yngri en 22 ára. Tafla 3.
Trep Lyfjakostnaður á 12 mánaða tímabili Greiðsluhlutfall af heildarverði lyfja
Einstaklingar Sjúkratryggingar Einstaklingar Sjúkratryggingar
1 16.050 kr. Okr. 100% 0%
2 7.223 kr. 40.927 kr. 15% 85%
3 24.876 kr. 306.823 kr. 7,5% 92,5%
Samt. 48.149 kr.* 347.750 kr.
*ATHUGIÐ. Ef einstaklingur greiðir 48.149 kr. innan 12 mánaða tímabilsins
(4.012 kr. að meðaltali á mánuði) getur læknir sótt um að SI greiði lyf að fullu
(100%) það sem eftir er af tímabilinu að uppfylltum skilyrðum vinnureglna SI.
Einungis lyf sem SI taka þátt í að greiða falla hér undir.
Greiðsluþrep
Upphæðir í greiðsluþrepum og dæmi
um lyfjakaup má sjá í töflum 1-4. Aldr-
aðir 67 ára og eldri, örorkulífeyrisþegar
og börn og ungmenni yngri en 22 ára
greiða lægri upphæðir en aðrir. Oll
börn yngri en 18 ára í sömu fjölskyldu
greiða sem eitt.
Áður niðurgreidd lyf
munu falla inn í kerfið
Lyf sem hafa verið niðurgreidd að
fullu í eldra kerfi eru lyf sem höfðu svo-
kallaða stjörnumerkingu í lyfjaverðskrá
t.d. glákulyf, sykursýkilyf og krabba-
meinslyf. Einnig hafa einstaklingar
með parkinson, flogaveiki og Sjögren
ekki greitt fyrir lyf sín ef þeir hafa
fengið útgefið lyfjaskírteini. Þessi lyf
verða felld inn í kerfið og einstaklingar
taka þátt í kostnaði þeirra skv. nýja
kerfinu. Undantekningar á þessu eru
þegar sjúkratryggður nýtur líknandi
meðferðar í heimahúsi, er með í blóð-
skilun vegna lokastigs nýrnabilunnar
eða geðklofa/geðrof og er þá heimilt
að samþykkja fulla greiðsluþátttöku Sí
í ákveðnum lyfjum.
Reiknaðu sjálf/ur
út lyfjakostnað þinn
A www.siukra.is er aðgengileg „lyfja-
reiknivél“ þar sem hægt er að reikna út
lyfjakostnað út frá gefnum forsendum.
Þeir sem vilja skoða hvernig lyfjakostn-
aður þróast í nýju kerfi eru hvattir til
að kynna sér reiknivélina.
Skoðaðu stöðu þína
í Réttindagátt
í Réttindagátt - þjónustusíðu ein-
staklinga á www.sjukra.is er hægt að sjá
í hvaða greiðsluþrepi einstaklingur er
staddur hverju sinni og yfirlit yfir lyfja-
kaup sín. Innskráning fer fram með
rafrænum skilríkjum, íslykli island.is
eða veflykli skattyfirvalda.
r
Urræði vegna lyfjaútgjalda
í ákveðnum tilfellum er hægt að óska
eftir því við apótek að fá lyf afgreidd
í minni skömmtum. Til dæmis geta
apótek afgreitt eins mánaðar skammt í
einu þrátt fyrir að lyfseðill sé gefinn út
fyrir þriggja mánaða skammti.
Læknir getur sótt um lyfjaskírteini,
að uppfylltum ákveðnum skilyrðum,
vegna lyfja sem hafa almennt ekki
greiðsluþátttöku SI. Sjá upplýsingar
um lyfjaskírteini á www.siukra.is.
Einstaklingar sem hafa orðið fyrir
miklum útgjöldum vegna læknis-
hjálpar, lyfja eða þjálfunar geta átt rétt
á endurgreiðslu á hluta kostnaðar hjá
Tryggingastofnun ríkisins (TR). Endur-
greiðslur vegna þessa hækkuðu eftir 4.
maí. Upplýsingar og umsókn má nálg-
ast á www.tr.is eða í þjónustumiðstöð
að Laugavegi 114.
Upplýsingar
Sjúkratryggingar íslands, Laugavegi
114, opnunartími 10:00 - 15:00.
• Sími: 515-0000
• Netfang: lvfiadeild@siukra.is
• Vefsíða: www.siukra.is
• Réttindagátt á www.siukra.is
• Umboð hjá sýslumönnum
Heiðar Orn Arnarson,
vef- og kynningarfulltrúi.
Dæmi: Tafla L . Lyfjaúttektir Jóns á 12 mánaða tímabili.:
Dags. lyfjakaupa Heildarverð Jón greiðir Sjúkratryggingar Skýringar
15. maí 2013 23.795 kr. 17.212 kr. 6.583 kr. Greiðslutímabil hefst-Jón greiðir lyfin að fullu (100%) skv. þrepi 1 og fyrir hluta upphæðar greiðir hann 15% samkvæmt þrepi 2.
15. ágúst 2013 23.795 kr. 3.569 kr. 20.226 kr. Jón greiðir 15% samkvæmt þrepi 2.
15. nóv. 2013 23.795 kr. 3.030 kr. 20.765 kr. Jón greiðir 15% af hluta upphæðar skv. þrepi 2 og 7,5% af hluta upphæðar skv. þrepi 3.
15. feb. 2014 23.795 kr. 1.785 kr. 22.010 kr. Jón greiðir 7,5% samkvæmt þrepi 3.
15. maí 2014 23.795 kr. 1.785 kr. 22.010 kr. Jón greiðir 7,5% samkvæmt þrepi 3.
Samtals 118.975 kr. 27.381 kr. 91.594 kr. Samtals upphæð oggreiðsla f. lyf á 12 mánaða tímabili.
Eftir 15. maí 2014 23.795 kr. 17.212 kr. 6.583 kr. Nýtt greiðslutímabil hefst við fyrstu kaup eftir 15. maí -Jón greiðir lyfin að fullu (100%) sk\'. þrepi 1 og fyrir hluta upphæðar greiðir hann 15% samkvæmt þrepi 2.
19